Morgunblaðið - 23.08.1980, Side 18

Morgunblaðið - 23.08.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 Sovétmenn vísa a bug ásökunum Ir- ana um afskiptasemi Moskvu 22. áitúst. AP. ÍRANSKI sendiherrann í Moskvu. Mohammad Mokri sagði í dan að Sovctmenn hefðu opinberlega visað á huu þeim ásökunum írana að Sovétmenn væru að skipta sér af innanrikismálum í íran. í bréfi sern Ghotbzadeh utanrík- isráðherra Irans ritaði til Grom- yko utanrikisráðherra Sovétríkj- anna segir hann að Sovétmenn séu fjandsamlegir byltingarstjórninni í Iran eigi síður en Bandaríkin. Mokri sagði á blaðamannafundi að hann hefði hitt aðstoðarutan- ríkisráðherra Sovétríkjanna til að Enn farast menn í flóðum liombay 22. áic. AP. MIKLAR ok lantí'innar rÍKn- intfar. hafa valdið flóðum, hleypt af stað skriðuföllum, svo að hús hafa hrunið í AuranKahadhéraði ekki ýkja lannt frá Bombay siðustu dat;a. Hafa 29 manns látið lífið og tjón orðið mikið. Víðar í Indlandi hafa verið flóð og óáran en verst er ástandið nú í Uttar Pradesh í norðurhluta landsins þar sem vit- að er að um sjö hundruð manns hafa dáið. Maersk Air tekur við Græn- landsflugi í BÖRSEN segir frá því að danska leiguflugfélagið Maersk Air muni að líkindum taka að sér Grænlandsflug. Er þar um að ræða flugleiðina Kaupmanna- höfn-Narsarssaq, en fram til þcssa hefur sænska félagið Transair, sem er í eigu SAS annast þetta flug. Ástæðan fyrir því að Transair verður að hætta við flugleiðina er að óhagkvæmt hefur reynzt að nota vél félagsins Boeing 727-100 sem er gömul og eldsneytisfrek. Maersk-Air flýgur einnig til Grænlands fyrir SAS og ræður yfir nýtízkulegum og sparneytn- um Boeing 737-200 sem tekur 130 farþega eða ámóta og B-727. ræða efni bréfsins. Að fundinum loknum sagði hann að Sovétmenn teldu þessar ásakanir tilhæfulaus- ar. „Samt sem áður mun Iran reyna að halda góðu og vinsamlegu sambandi við Moskvu,“ sagði Mokri. „Við munum þó halda áfram að mótmæla ferðum sov- éskra herskipa undan ströndum Irans en okkur finnst sem þeim fari nú fækkandi," sagði Mokri. Veður víða um heim Akureyri 11 léttskýjaó Amsterdam 20 skýjaó Barcelona 27 alskýjaó Berlín 17 skýjaó Chicago 29 heiðskírt Denpasar 29 skýjaó Dublín 17 heiðskírt Feneyjar 27 þokumóða Frankfurt 24 skýjað Genf 23 heiðskírt Helsinki 18 skýjað Hong Kong 32 heiðskírt Jerúsalem 28 heiðskírt Jóhannesarborg 21 skýjað Kaupmannahöfn 17 skýjað Kairó 33 heiðskírkt Las Palmas 25 heiðríkt Lissabon 36 skýjað London 23 skýjað Los Angeles 29 skýjað Malaga 26 alskýjað Mallorca 31 léttskýjaö Miami 35 rígning Moskva 18 skýjað Nýja Delhi 37 skýjað New York 24 skýjað Oslo 18 skjýjað Parrs 22skýjaö Rio de Janeíro 29 skýjað Reykjavik 12. léttskýjað Rómaborg 29 skýjað San Francisco 15 skýjað Stokkhólmur 18 skýjað Sydney 35 heiöskírt Tel Aviv 26 skýjað Tókýó 24 heiðskírt Vancouver 20 skýjað Vínarborg 21 heiöskírt FÓLK víkur úr vegi fyrir bifreið sem í var sendinefnd frá öðrum vinnustað, sem hann kemur að hliði Lenínskipasmíðastöðvarinnar í Gdansk. Sambúð íraka og Sýrlendinga fer versnandi Bagdad 22. ág. AP. STJÓRN íraks hefur borið fram mótmæli við nágranna- ríkið Sýrland vegna brottvísun- ar írakska sendiherrans frá Damaskus ásamt með nítján öðrum sendiráðsstarfs- mönnum. Kom liðið til Bagdad í gærkvöldi nokkru eftir að Sýrlendingar gáfu út tilkynn- ingu um brottvísunina. Þessi aðgerð Sýrlendinga mun eiga að vera svar við kunngjörð Iraka sl. mánudag/að fyrirskip- að hefði verið að loka sýrlenzka sendiráðinu í Bagdad og að fólk hefði sig þaðan snarlega á brott. Sögðu Irakar að starfslið sendi- ráðs Sýrlands hefði misnotað aðstöðu sína og það hefði smvgl- að vopnum inn í landið og sprengiefni og hefði átt að nota þetta í hermdarverkaiðju gegn stjórn Saddam Husseins í írak. Þessir síðustu viðburðir benda til að full vinslit hafi nú orðið með þjóðunum, en sambúð hefur lengi verið stirð, þrátt fyrir stöðugar hvatningar ýmissa Arabaríkja að þau reyndu að setja niður ágreiningsmál sín til að spilla ekki fyrir einingu Arabaríkjanna. ERLENT * Iran: Fréttir um að 5 bandarísku gíslanna hafi verið skotnir — Tilhæfulausar fréttir, segir talsmaður íranska utanríkisráðsins Kýpur «k Teheran 22. ágúst AP. TALSMAÐUR íranska utanríkisráðuneytisins vísaði í dag á bug staðhæf- ingum útvarpsstöðvar í Libanon um að fimm af handarísku gíslunum í Te- heran hefðu verið skotnir er þeir reyndu að flýja. „Ég hef haft samband við námsmennina í sendiráð- inu og get fullyrt að þessi frétt er úr lausu lofti grip- in,“ sagði hann. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins kvaðst ekkert hafa heyrt um óvænta atburði í bandaríska sendiráðinu í Teheran. í morgun sagði útvarps- stöð í Beirút sem er í eigu flokks kristinna phalang- ista að gíslarnir hefðu verið skotnir er þeir reyndu að komast út úr húsinu þar sem þeim er haldið föngn- um. Útvarpið tiltók ekki hvar í Teheran það er. Fjórir karlmenn og tvær konur voru tekin af lífi í íran í morgun eftir að hafa verið dæmd fyrir eitur- lyfjasölu, að sögn útvarps- ins í Teheran. Frá því Phalavi keisara var steypt af stóli í janúar 1979 hafa hundruð írana verið líf- látnir fyrir eiturlyfjasölu og saurlifnað. Síðustu vikur hefur aftökum fjölgað til muna eftir að á fót var komið sérstökum eitur- lyfjadómstól undir forsæti ayatollah Khalkali. Nato-herlið til æfinga á Norður- Atlantshafi Casteau. Belgiu 22. átfúst AP. SEXTÍU ÞÚSUND manna herlið frá átta aðildarþjóðum Nato heldur i næsta mánuði inn á Norður- Atlantshaf. Ermarsund og Norður- sjó til æfinga, að því er segir í tilkynningu sem gefin var út í höfuðstöðvum Evrópuherstjórnar bandalagsins í dag. I tilkynningunni segir að æfingin, sem hefst 10. september og lýkur 24. september n.k, sé ein af mörgum sem fram fara á vegum Nato fjórða hvert ár. Hefur æfingin fengið nafnið „Teamwork 80“. „Æfingunni er ætlað að sýna fram á og endurbæta getu Natoherliðs til að vernda landgönguliðssveitir og liðsflutninga frá Norður-Ameríku til Evrópu á stríðstímum," segir enn fremur í tilkynningunni. Meðan á æfingunni stendur munu 16.800 breskir, bandarískir og hol- lenskir sjóliðar ganga á land í Noregi og gerð verður sýndarárás á skip Nato á Norður-Atlantshafi. Japanskir bíl- ar seljast mest í Noregi Osló 22. ájf. AP. ENN ÓX í júlí innflutningur á japönskum bílum til Noregs og verður hlutur þeirra æ stærri í bílainnflutningi þangað. Af seldum bílum í júlí voru 44.2 prósent frá Japan miðað við 42.fi prósent í júní og aðeins 24.1 prósent árið 1979 allt. Næstir eru vestur þýzkir bílar með 33.5 prósent mark- aðsins, Frakkland kemur næst með 7.8 og Svíar eru númer fjögur með 5.0 prósent og hefur mest dregið úr kaupum Norðmanna á bílum frá Sví- þjóð. Af bílategundunum var mest selt af Mazda og því næst kom þýzkur Ford, þýzkur Opel og svo Datsun og Toyota frá Japan. Lucey varafor- setaefni Andersons Minneapolis, Minnesota 22. ág. AP. JOHN Anderson, scm býður sig fram utan flokka við forseta kosningarnar í Bandaríkjunum, hyggst velja Patrick J. Lucey varaforsetaefni sitt að því er heimildir sem nærri Anderson standa, sögðu frá i dag. Lucey er 62ja ára, frjálslyndur demókrati og fyrrverandi ríkis- stjóri í Wiscounsin. Lucey studdi baráttu Edwards Kennedys fyrir að ná útnefningu sem forsetaefni. Búizt er við að þetta verði form- lega tilkynnt á morgun, en haft er fyrir satt að Lucey hafi ekki gefið Ánderson endanlegt svar þótt allt hnígi í þá átt að hann muni þekkjast boð þetta. Aðrir sem voru taldir koma til greina voru Kevin White borgar- stjóri í Boston og Barbara Jordan, fyrrverandi þingmaður í fulltrúa- deildinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.