Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 39 w, • Guðmundur Torfason Framari, sækir að Þorsteini Bjarnasyni markverði ÍBK. Þeir berjast nú hvor á sinni vígstöð, Guðmundur á toppinum með Fram, en Þorsteinn á botninum með ÍBK. Ef litið er á töfluna sem pistli þessum fylgir, má sjá, að spennan er jafnvel enn rosalegri í botnbar- áttunni þar sem segja má, að FH, ÍBK, UBK, ÍBV og KR séu öll í bullandi fallhættu. Þessi lið leika meira og minna innbyrðis um helgina þannig að bóka má mikla baráttuleiki. Þrír leikir fara fram í dag. í Keflavík eigast við ÍBK og ÍBV og hefst leikurinn klukkan 15.00. Hefði það einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að leikur þessara liða væri fallbaráttuvið- ureign. Á Kaplakrikavelli mætast FH og UBK. Þar er einnig allt að vinna. KR-ingar mæta ÍA á Laug- ardalsvellinum og mega hafa sig alla við að krækja í stig. Loks skulum við líta á stöðuna í 1. deild. Valur 14 9 2 3 34- -12 20 Víkingur 14 6 6 2 20- -14 18 Fram 14 8 2 4 16- -18 18 Akranes 14 6 4 4 22- -16 16 UBK 14 6 1 7 22- -19 13 KR 14 5 1 6 14- -19 lð ÍBV 14 4 4 5 20- -24 12 ÍBK 14 3 5 6 13- -19 11 FH 14 4 3 7 19- -29 11 Þróttur 14 2 4 8 9- -18 8 Tveir leikir fara fram í 2. deild báðir i dag. Á Eskifirði leika Austri og Fylkir og hefst leikurinn klukkan 15.00. Austramenn eiga MARGT stórleikja er á dagskrá í knattspyrnunni um helgina, m.a. heil umferð í 1. deild. Segja má að stórleikur umferðarinnar sé á sunnudagskvöldið klukkan 19.00, en þá eigast við Fram og Víking- ur sem eru jöfn að stigum í 2.—3. sæti deildarinnar eins og er. Hafa bæði liðin hlotið 18 stig og eru tveimur stigum á eftir Vals- mönnum. Valsmenn leika ekki fyrr en á mánudagskvöldið, þeir mæta þá Þrótti á Laugardalsvell- inum klukkan 19.00. Von Þróttar um áframhaldandi setu i 1. deild er lítil og tapi liðið stigi gegn Val má heita að staðan sé vonlaus. enn agnarsmáa vonarglætu eftir getur allt gerst. í hinum leik hinn óvænta sigur gegn Haukum helgarinnar eigast við Völsungur um síðustu helgi. Sigri þeir Fylki og Þróttur á Húsavíkurvelli. & Oiufv-n Bjarni sýnir Svíaleikinn! BJARNI Felixson mun í dag sýna i íþróttaþætti sinum meiri hluta landsleiks Íslands og Svia sem fram fór i Halmstad á dögunum. en það þarf vart að minna islenska knattspyrnuáhugamenn á að leiknum lauk með jafntefli. 1 — 1, eftir að ísland hafði sýnt betri leik en í háa herrans tíð. Samtals mun Bjarni sýna síð- ustu 15 mínútur fyrri hálfleiks og síðan allan síðari hálfleik, en það var einkum þá sem ísland fór fyrst á kostunum. Islendingar gerðu víst ekki betur en að rétt halda í við Svía fyrsta hálftímann og því ætlar Bjarni ekki að þreyta íslenska áhorfendur með þei mkafla. Hann ætlar nefnilega að bjóða upp á fleira en knattspyrnu í þættinum. Sýning þessa leikjar Ovett varð öruggur sigurvegari STEVE Ovett sigraði í mílu- hlaupinu i hinu árlega Ivo Van Damme frjálsíþróttamóti í Brugge í gærkvöldi. Fjarri góðu gamni var Sebastian Coe, en brjósklos hrjáir piltinn þessa dagana. Tími Ovetts var 3:51,60. en næsti maður. John Walker frá Nýja Sjálandi, fékk timann 3:52,20. Athygli vakti, að Filbert Bayi frá Tanzaniu varð aðeins sjötti á 3:57,12, en margir ætluðu að i fjarveru Sebastian Coe, myndi Bayi veita Ovett hörðustu keppnina. er mikill hvalreki fyrir íslenska áhorfendur og munu vafalaust margir planta sér við skerma sína. Júgóslafi til Norwich NORWICH hefur fest kaup á júgóslavneskum knattspyrnu- manni, enda hafa Júgóslavar reynst sérstaklega vel í ensku knattspyrnunni til þessa og má þar benda á þá Katalinic og Golac hjá Southampton og Janko- wich hjá Middlesbrough. Eiga Júgóslavar greinilega auðvelt með að aðlagast ensku knatt- spyrnunni. Nýji leikmaðurinn heitir Draz- en Mazicis og hefur leikið með landsliði Júgóslavíu. Hann er mið- vallarleikmaður og lék áður með stórliðinu Hadjuk Split. Mazicis undirritaði samning við Norwich til þriggja ára, en enska félagið borgaði um 300.000 sterlingspund fyrir krafta hans. Annars hafa nokkrar sölur farið fram í Englandi nýlega. T.d. keypti QPR Tommy Langley frá Chelsea fyrir frekar lítinn pening. Arsenal framkvæmdi mikil hrossakaup, keypti markaskorar- ann Clive Allen frá QPR, en skipti síðan á honum og bakverði Crystal Palace Ken Sanson, áður en að Allen hafði leikið einn einasta leik fyrir Arsenal! Margt stórleikja á dagskrá um helgina r,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.