Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980
Stefán Pálsson hæstaréttarlögmaður:
Eru útvegs-
menn undanþegnir
byggingarleyfum?
Dagana 14. og 16. október sl. fær
Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri
LÍÚ birtan greinaflokk í Morgun-
blaðinu, sem hann nefnir „Deil-
urnar um byggingu sumarbústaða
LÍÚ að Hellnum“. Segist Jónas
rita greinaflokkinn sem formaður
sumarbústaðanefndar LÍÚ vegna
þeirra deilna, sem staðið hafa yfir
í tæp 3 ár á milli Landssambands
íglenskra útvegsmanna og nokk-
' urra ábúenda að Hellnum, Breiðu-
víkurhreppi, Snæfellsnesi, um
staðsetningu 5 sumarbústaða, er
samtökin hafa ætlað að reisa í
landi jarðarinnar Skjaldartraðar,
sem samtökin keyptu árið 1978.
Ég vil sem lögmaður og tals-
maður íbúa að Hellnum koma hér
á framfæri nokkrum athugasemd-
um og leiðréttingum í tilefni af
greinarflokki Jónasar.
un að reisa sumarbústaðahverfið
engu að síður og í trausti þess að
samtakamáttur útvegsmanna
væri svo sterkur, að lögmæt yfir-
völd eða „nokkrir ábúendur að
Hellnum" fengju þar enga rönd
við reist.
Miðvikudaginn 9. júlí sl. mættu
útvegsmenn mað jarðýtu og vöru-
bíla að Hellnum og hófu að leggja
veg að hinu fyrirhugaða sumarbú-
staðahverfi sínu. Þegar íbúar að
Hellnum urðu þessa varir, þá
gerðu þeir embætti byggingar-
fulltrúa Vesturlandsumdæmis að-
vart, en slíkur hraði var á fram-
kvæmdunum, að þegar varabygg-
ingafulltrúinn kom á staðinn og
lögreglan úr Stykkishólmi var
verið að ljúka framkvæmdunum.
Voru fyrirsvarsmenn útvegs-
manna að vonum mjög roggnir
vinnuflokkurinn hafði lokið
verkinu.
Ég vil með bréfi þessu tilkynna
yður hr. sýslumaður um neitun
áðurnefndra aðila á því að fara að
fyrirmælum mínum og vænti þess
að embætti yður fjalli um mál
þetta eins og til er ætlast í 2. mgr.
áðurnefndrar 31. gr. byggingar-
laga.“
Grein sú úr byggingarlögum, er
vitnað er til í bréfinu, er svohljóð-
andi:
„Ef byggingarframkvæmd er
hafin án þess að leyfi sé fengið
fyrir henni, ef byggt er á annan
hátt en leyfi stendur til eða ef
bygging er tekin til annarra nota
en byggingarnefnd hefur heimil-
að, varðar það sektum. Enn frem-
ur getur byggingarfulltrúi fyrir-
skipað stöðvun slíkrar fram-
IfTilnrnar um byggin§u sumari
KðaLÍ.Ú.aðHellnum
iVlllSt&Oa
IU U-O t/M. m hrf( ;>ft h»nn rn ^ J* ^^rráöhrrra. —
Vi-vn.i l«árr»
,ftr i ' rJ '
*'ni
m*H*
uns. „rtis1»ft
Rétt er að leiðrétta þann mis-
■skilning útvegsmanna, að svo-
nefndar deilur um byggingu
sumarbústaða þeirra standi á
milli þeirra og „nokkurra ábúenda
að Hellnum". Staðreyndin er sú,
að á árinu 1978, er útvegsmenn
óskuðu leyfis til þess að fá að
byggja sumarbústaðahverfi þétt
ofan í Hellnabyggðinni, þá gagn-
rýndu ábúendur og íbúar að
Hellnum hina fyrirhuguðu stað-
setningu sumarbústaðanna. Var
fullkomlega eðlilegt að þeir tjáðu
sig um málið í samræmi við
ályktun sýslufundar á árinu 1977,
en þar segir varðandi sumarbú-
staðabyggingar í sýslunni „að ekki
síst verði tekið fullt tillit til
sjónarmiða þess fólks sem byggir
viðkomandi svæði“.
Þegar lögmætir umsagnaraðilar
fjölluðu um byggingarleyfisum-
sókn LIÚ, þá kom í ljós, að svo
margt mælti í móti hinni fyrir-
huguðu staðsetningu sumarbú-
staðahverfisins, að byggingar-
nefnd Breiðuvíkurhrepps sam-
þykkti ekki hina fyrirhuguðu stað-
setningu og embætti byggingar-
fulltrúans í Vesturlandsumdæmi
gaf því ekki út byggingarleyfi
fyrir bústöðunum. Það er því ekki
rétt, að útvegsmenn eigi í deilum
við „nokkra ábúendur að Helln-
um“ heldur hljóta deilur að standa
við alia þá aðila, sem mælt hafa
gegn hinni fyrirhuguðu staðsetn-
ingu sumarbústaðahverfisins. Á
meðal þessara aðila eru: Jarða-
nefnd Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu, Byggingarnefnd Breiðu-
víkurhrepps, Landnámsstjóri,
Landnám ríkisins, Landbúnaðar-
ráðuneytið, Byg '"garfulltrúinn í
Vesturlandsumdæmi, Skipulags-
stjórn ríkisins, Náttúruverndar-
ráð og framkvæmdastjóri þess.
Þegar fyrirsvarsmönnum LÍÚ
var ljóst, að samtökin fengju ekki
byRKÍöKarleyfi fyrir sumarbú-
staðahverfi á óskastað sínum, þá
virðast þeir hafa tekið þá ákvörð-
yfir því hve vel þeim tókst.
Næst gerist það þriðjudaginn
22. júlí sl. að flokkur manna á
vegum útvegsmanna kemur að
Hellnum með tæki til þess að bora
fyrir undirstöðustöplum undir
sumarbústaðina og einnig voru
þar steypubílar til taks. Ibúar að
Hellnum gerðu þá byggingarfull-
trúa aftur aðvart og er rétt að
birta hér bréf varabyggingar-
fulltrúa, er hann ritaði sýslu-
manninum í Stykkishólmi í tilefni
af heimsókn þessari:
„Þriðjudaginn 22. júní sl. kom
vinnuflokkur á vegum Lands-
sambands ísl. útvegsmanna að
Hellnum á Snæfellsnesi, í því
skyni að steypa undirstöður undir
5 sumarbústaði í landi Skjaldar-
traðar.
Embætti byggingarfulltrúa
Vesturlandsumdæmis hafði ekki
verið tilkynnt um framkvæmdir
þessar fyrr en íbúar á Hellnum
tilkynntu mér um vinnuflokkinn.
Embætti byggingarfulltrúa hef-
ur ekki gefið út byggingarleyfi
fyrir áðurnefndum sumarbú-
stöðum, enda hefur embættið ekki
undir höndum nægjanleg gögn frá
byggingaraðila s.s. afstöðuteikn-
ingar, verkfræðiteikningar af und-
irstöðum og staðsetning húsanna
er umdeild.
Undirritaður fór á staðinn og
hitti þar Kristin Ragnarsson
byggingameistara, sem var í fyrir-
svari fyrir vinnuflokknum. Sagði
ég honum að framkvæmdirnar
væru ólöglegar og skipaði þeim að
hætta. Kristinn varð ekki við þvi
og hélt vinnuflokkurinn áfram
framkvæmdum.
Samkvæmt 31. gr. byggingar-
laga nr. 54/ 1978 er lögreglu skylt
að veita byggingarfulltrúa aðstoð í
slíkum tilvikum sem að ofan
greinir. Hringdi ég því ti! lögregl-
unnar í Stykkishólmi og bað um
aðstoð. Svo illa fór þó, að lögregl-
an kom ekki á staðinn fyrr en
rúmum sólarhring seinna er
kvæmdar tafarlaust og fyrirskip-
að brottnám byggingar eða bygg-
ingarhluta. Er lögreglunni skylt
að veita byggingarfulltrúa aðstoð
við slíkar aðgerðir, ef þörf krefur.
Byggingarfulltrúi skal, svo fljótt
sem við verður komið, gera bygg-
ingarnefnd grein fyrir slíku máli.
Hlíti byggingaraðili ekki fyrir-
mælum byggingarfulltrúa og lög-
reglu um stöðvun eða brottnám
framkvæmda, skal fara með málið
að hætti opinberra mála.
Sveitarsjóður á endurkröfu á
byggingaraðila á öllum kostnaði,
sem hann hefur haft af ólöglegri
byggingarframkvæmd, og á sveit-
arsjóður lögveð fyrir endur-
greiðslukröfu sinni í öllu efni, sem
komið er í hina óleyfðu byggingar-
framkvæmd."
Þegar íbúar að Hellnum voru
þannig búnir að horfa upp á það í
tvígang, að virðingarleysi LÍÚ-
manna fyrir réttmætum yfirvöld-
um var algjört, þá óttuðust íbú-
arnir mjög, að næsta skref yrði
það, að LÍÚ-menn kæmu með
sumarbústaði sína í skyndingu og
reistu þá á undirstöðunum, án
þess að nokkur fengi vörnum við
komið. Var þessi ótti orsök þess að
íbúar að Hellnum gripu til þess
eina urræðis, sem þeim vartiltækt
til þess að stöðva hina ólögmætu
framkvæmdir, þ.e. að fjarlægja
hina nýsteyptu stöpla.
Að lokum vil ég geta þess, að
Landssamband íslenskra útvegs-
manna á hér ekki í deilum við
„nokkra ábúendur að Hellnum"
heldur lögmæta framkvæmdaað-
ila og yfirvöld í landinu. Af hverju
geta útvegsmenn ekki beðið eftir
því að fá byggingarleyfi eins og
aðrir þegnar í landinu? Bygg-
ingaryfirvöld í Vesturlandsum-
dæmi eru engu ómerkari en bygg-
ingaryfirvöld annars staðar á
landinu og vona ég að LÍÚ-menn
virði framvegis yfirvöld þessi meir
en þeir hingað til hafa gert.
Stefán Pálsson
Akureyrar-
pistill
Þegar birt var greinin
um gamla eplatréð á Ak-
ureyri 12. ágúst sl., var
þess farið á leit við lesend-
ur þessara þátta að þeir
skrifuðu okkur, væri þeim
kunnugt um ræktun epla-
trjáa eða annarra ávaxta-
trjáa og hvern árangur sú
iðja hefði borið. Ekki er nú
hægt að segja að bréfum
hafi rignt yfir okkur, en þó
hefur verið hægt að birta
einn viðbótarpistil (6. sept.
nr. 268) og enn getum við
aukið við þennan fróðleik
með kafla úr ágætu bréfi
sem þættinum hefur bor-
ist frá hjónunum Guð-
laugu Þorsteinsdóttur og
Gesti Ólafssyni kennara,
Goðabyggð 1, Akureyri, en
þau eru kunn fyrir rækt;
unarstörf sín þar í bæ. I
bréfinu segir m.a.: „Við
eigum tvö eplatré sem við
á sínum tíma fengum frá
Norður-Noregi og þá ör-
smá. Nöfn þeirra eru Mal-
us baccata, sem nú or um
kannski höfum við ekki
lagt nógu mikla rækt við
það. Þá erum við með álm
sem þrífst mjög vel og
sömuleiðis tvær aspir sem
eru orðnar gríðarlega háar
og fallegar og svo auðvitað
þessi sígildu tré, reynivið
og birki, sem við höfum
þurft að grisja nokkuð.
Sömu sögu er að segja af
öðrum ávaxtarunnum, þeir
blómstruðu lítið sem ekk-
ert í sumar, t.d. gaf ribsið
ekkert af sér, heldur ekki
sólber eða hindber, en ör-
lítið kom á stikilsberja-
runnana, þeir bregðast
næstum aldrei og er alltof
lítið ræktað af þeim á
Islandi og frekar fáir sem
þekkja þá. Og nú vonum
við að þetta góða sumar í
ár gefi mikinn gróður og
ávexti næsta ár.“
Undir þessi orð tökum
við heils hugar jafnframt
því sem við þökkum þetta
fróðlega bréf og væntum
að fleiri lesendur fáist. til
Myndin er tekin 8. ágúst 1977 í garði Guðlaugar og Gests að
Gnoðabyggð 1, Akureyri. Upp við húsvegginn eru eplatrén
sem um er getið í greininni og eru á þeim mörg hálfþroskuð
epli. Má glöggt marka hæð trjánna sé hún borin saman við
hæð kvennanna sem á myndinni eru.
4,5 m á hæð og Safstaholm
um 3,5 m og hafa þau
dafnað vel og verið mikið
augnayndi, en þau eru
milli 18—20 ára gömul.
Að vísu hafa þau ekki
gefið mikið af sér, en alltaf
eitthvað, þangað til í
sumar, að ekki kom eitt
einasta blóm á þau. Mesta
uppskeran var árið 1977 að
við fengum 4 kg og bjó ég
til úr þeim eplahlaup sem
var hreinasta lostæti.
Við erum sannfærð um
það, að hægt er að rækta
hér eplatré með góðum
árangri ef því væri sinnt
eitthvað að ráði.
I sitt hvoru suðurhorni
garðsins höfum við hlyn
og hegg, en það er eins
með hegginn í sumar,
hann hefur lítið blómstrað
og sama er að segja um tvö
sírenu-tré, sem ævinlega
hafa borið falleg blóm þar
til í sumar. Svo erum við
með eikartré, sem er held-
ur smávaxið ennþá,
þess að miðla af reynslu
sinni og sendi okkur línu.
Og svo að lokum fáein
orð frá félaginu: GÍ er nú
flutt í eigið húsnæði að
Amtmannsstíg 6, að vísu
hvorki stórt né ríkmann-
lega búið, en þó sæmilega
notalegt þeim sem líta
vilja inn og kíkja í þau
garðyrkjurit og blóma-
bækur sem félagið á.
Skrifstofan er opin sem
fyrr á mánudögum og
fimmtudögum frá kl. 2—6.
Auk þess hvert fimmtu-
dagskvöld frá kl. 8—10.
Félagar sem ekki hafa
fengið ritið og greitt ár-
gjaldið eru beðnir um að
gera það hið allra fyrsta,
svo þeir ekki falli út af
félagatali og missi þar
með af ritinu sem óðum
gengur á vegna gífurlegrar
fjölgunar félagsmanna á
þessu ári.
Sími á skrifstofu er
27721.
Ums.