Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980
33
Umrætt verk á Sauðárkróki
hafði fjárveitingu er svaraði til 40
milljóna kr. verkkostnaðar, en
endanlegur kostnaður varð rúmar
50 milljónir kr. Dælt var upp um
13.000 rúmmetrum af möl og
sandi. Kostnaður á rúmmetra
varð því um 4.000 kr., sem er í
hærra lagi. Ætla má, að við góðar
aðstæður geti dýpkunarkostnaður
við dælingu orðið milli tvö og þrjú
þúsund krónur á rúmmetra. Ef
gröfuflekinn Grettir hefði unnið
þetta verk hefði kostnaöur getað
orðið um 3.000 kr/m3.
Ef Grettir hefði annast um-
rædda dýpkun, hefði uppgrafið
efni verið losað utan hafnar og
ekki nýst í uppfyllingu fyrir bæj-
arbúa. Þannig má áætla að kostað
hafi um 1.000 kr. á rúmmetra að
setja efnið í umrædda uppfyllingu,
sem greiðist að % hlutum af
ríkissjóði, ef hægt er að telja það
hafnargerðarkostnað.
I skrifum Kára eru tafir og frí
áhafnar tíundaðar mjög nákvæm-
lega. Ekki verður séð að það komi
þessu máli við. Áhöfnin vinnur
samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum, sem kveða á um orlof og
heimferðafjölda. Enda er verk-
kostnaður byggður á dælutíma
Háks og vinnutíma áhafnar, en
ekki á þeim tírna er dælu-
pramminn lá í Sauðárkrókshöfn.
Fréttamennska sú, er viðhöfð
hefur verið í þessu máli, er
vítaverð. Kára á Sauðárkróki virð-
ist algjörlega hafa láðst að kynna
sér margumræddar skemmdir á
uppfyliingunni. Það virðist fara
nokkuð á milli mála, þegar
fréttaritarinn talar um tugmillj-
óna tjón, en samkvæmt upplýsing-
um bæjarstjóra er það ímyndun
ein.
Það verður að gera þá lág-
markskröfu til fréttamanna dag-
biaða, að þeir leiti upplýsinga hjá
þeim aðilum er málum eru kunn-
ugir, áður en sendar eru út fréttir
um tæknileg mál.
Frá Hafnarmálastofnun:
Dýpkun dæluprammans
Háks á Sauðárkróki
Austurbær
Sóleyjargata Miöbær
Laufásvegur frá 2—57
Þingholtsstræti
Hringið ísíma 35408
FRÉTTARITARI Morgunblaðsins
á Sauðárkróki lætur sér ekki
segjast í óvönduðum fréttaflutn-
ingi. í athugasemd Hafnamála-
stofnunar var efast um að
skemmdir á uppfyllingu heima-
manna hafi numið tugum milljóna
eins og hann staðhæfir.
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjóra og þeirra heimamanna er
vita best, og um þetta mál fjalla á
staðnum, hafa í raun engar
skemmdir orðið á margumræddri
uppfyllingu og megi telja í vatns-
fötum það efni er hafi tapast.
Ólokið var við grjótvörn þegar
norðanveðrið skall á, þar sem
ætlunin var að láta ölduna draga
grjótfláann betur úr áður eh
stærsta grjótið væri sett á hann.
Fréttaritarinn Kári á Sauðár-
króki er því staðinn að því að búa
til stórfrétt af litlu tilefni.
I síðari grein sinni fer Kári út í
að gera tafir við dælingu Háks að
stórmáli. Verður hér reynt að
skýra fyrir lesendum Morgun-
blaðsins aðstæður og niðurstöður
þess verks.
Dælupramminn Hákur er sér
byggt tæki til dýpkunar í höfnum
Fremst á sogröri er Hákur út-
búinn með skera, sem losar upp
það efni er upp er dælt. Getur
tækið því dýpkað, þar sem ókleift
væri að dæla upp efni án hans.
Víða um land hefur þessi mögu-
leiki reynst grundvöllur þess að
hægt hefur verið að byggja upp
land meðfram höfnum. Land, sem
vegna legu sinnar og hæðar er
mjög dýrmætt, einkum þar sem
lítið undirlendi er. Hafnamála-
stofnun hefur fylgt þeirri stefnu
að reyna að uppfylla óskir heima-
manna um slíkar uppfyllingar, þó
það hafi komið niður á afköstum
við dýpkunarframkvæmdina
sjálfa.
En dýpkun hafna er eitt af
verkefnum Hafnamálastofnunar
og styrkhæft sem slíkt úr ríkis-
sjóði. Uppfyllingar aðrar en á
hafnarsvæðinu sjálfu eru ekki slík
verkefni og ekki styrkhæf.
Við fyrri dýpkunarframkvæmd-
ir á Sauðárkróki hefur Hákur dælt
upp uppfyllingar meðfram landi
og myndað þannig verðmætt land
fyrir bæjarbúa. Eftir því sem
þessi landmyndun hefur aukist,
hefur um leið fjarlægð frá höfn-
Innrömmun Sigurjóns í Ármúlanum
Innrömmun Sigurjóns hefur nýlega opnað verzlun og verkstæði í Ármúla 22, en þar er boðið upp
á alhliða innrömmunarþjónustu. Þá eru seld málverk og fleiri listaverk í Innrömmun Sigurjóns og
einnig er þar úrval spegla. Myndina tók Emilía Björnsdóttir, ljósmyndari Morgunblaðsins, af
Sigurjóni Kristjánssyni í hinni nýlegu verzlun.
*
Frá höfninni á Sauðárkróki. Uppfyllingin fyrir framan götuna er mynduð við fyrri dýpkanir Háks á
höfninni. Nær þessi uppfyliing nú nokkur hundruð metra inn með iandinu. Þar verður rými fyrir ýmsa
starfsemi, einnig aðra en þá sem beinlínis fylgir höfninni.
inni aukist og þar með sú leið sem
efninu er dælt.
Leiðslur Háks eru 35 cm víðar
stálpípur, þungar og erfiðar við-
fangs. Eftir því sem leiðslan
lengist, eykst viðnám í henni og
afköst dælu minnka. Einnig eykst
vinna áhfnar við uppsetningu
leiðslunnar og undirbúning. Síðast
en ekki síst eykst mjög vinna
áhafnar ef stöðva verður dælingu
vegna rusls og aðskotahluta og
leita verður stíflu í langri leiðslu.
Það ætti að vera öllum augljóst að
erfitt verk er að eiga við kílómetra
langa leiðslu hálffulla af möl og
sandi. Erfitt er að koma rennsli af
stað aftur ef stöðva verður dæl-
ingu. Á Sauðárkróki þurfti einnig
oft að stöðva dæiingu vegna um-
ferðar um höfnina.
Leikmenn gera sér ekki grein
fyrir að mikill hluti vinnu áhafnar
Háks er einmitt undirbúningur og
önnur vinna, þegar dælan er ekki í
gangi.
Hversu mikil þessi vinna er fer
eftir aðstæðum.
Gjald fyrir Hák er miðað við
þann tíma er dælan er í gangi, en
vinna áhafnar er miðuð við vinnu-
tíma hennar. Þess vegna hefur sá
tími er Hákur dældi ekki á
Sauðárkróki á engan hátt aukið
kostnað við verkið. Það hafa aftur
á móti léleg afköst vegna langrar
dælingar gert.
Aukin vinna við rörin, undir-
búningur og tafir vegna rusls og
umferðar koma auðvitað fram
sem aukinn kostnaður vegna
áhafnar, en þetta á sínar eðlilegu
orsakir. Aukið álag á dælu vegna
langrar dælingar hefur í för með
sér auknar bilanir. Reynt er að
halda kostnaði vegna bilana sér,
svo hann verði ekki á kostnað
verksins.
Vegna þess hversu mikill munur
getur orðið á afköstum Háks við
hinar ýmsu aðstæður er ekki hægt
að segja fyrir hversu mörgum
rúmmetrum tekst að dæla upp á
hverjum stað. Unnið er fyrir þær
upphæðir er svara til fjárveitinga
hverju sinni.
Dýpkanir hafna hér á landi eru
þannig unnar í áföngum sem
ákveðast fyrst og fremst af því
fjármagni sem fyrir hendi er
hverju sinni.
Þakkir
Innilegar þakkir fyrir hugheilar kvedjur ykkar og
ámadaróskir á 85 ára afmæli mínu 11. þ.m.
Kristján Schram,
Vesturgötu 36B.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU