Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980
41
fclk í
fréttum
ffLít þessa rós! Hún seg-
ir: Sjá, ég grœ og seilist
uppí veröldina og hlœ..“
- Úr Rubáiyát
fundinum? — Svona hálf
þrjú ansaði Mæja. Og þá hélt
Elísabet hún væri laus við
fundasetur uppúr klukkan
þrjú á miðvikudag. Og
stundvíslega klukkan þrjú
kom hún.
— Eg vissi eiginlega ekki
hvaðan á mig stóð veðrið,
sagði hún, þegar þú komst og
lagðir höndina á öxlina á
mér uppí skóla um daginn.
Þú varst svo alvarlegur,
bætti hún við, að ég hélt þú
værir kannski frá lögregl-
unni, sem ég vissi ekki ég
ætti vantalað við!
Ég er Traustadóttir og
átján ára gömul. Nei, ég fer
líklega ekkert utan í fegurð-
arkeppni fyrr ®n þá á næsta
ári, eða svo. Mér þykir gam-
an að taka þátt í fegurðar-
samkeppni, maður kynnist
mörgum. Reyndar fór ég út í
þetta fyrst, til þess að yfir-
stíga feimni og ég held mér
hafi tekist það. Nei, ég er
ákveðin í að klára skólann
fyrst, en svo fer ég kannski í
teikninám. Mér hefur alltaf
þótt gaman að teikna, sagði
hún Élísabet.
Það er trúlegt Elísabet sé
þegar frátekin!
Fegurðardrottningar eru
varar um sig: — Utaf hverju
eiginlega, spurði hún og
horfði með tortryggni á
þennan mann, sem hvíldi
hönd sína á öxl henni, eins og
hann æltaði að handtaka
hana. Hún fékkst ekki með
nokkru móti afsíðis, að tala
við manninn, sem hélt hann
væri svo sakleysislegur í
framan. Þá varð að tefla
fram Mogganum: — Ég kem
frá Morgunblaðinu og langar
að hafa af þér mynd í
laugardagsblaðinu. Geturðu
nokkuð komið niður á Mogga
seinna í dag?
Það gat Elísabet ekki. Feg-
urðardrottningar hafa í
mörgu að snúast og hún var
önnum kafin allan daginn. —
En á morgun? — Ja, Mæja,
spurði hún, hvenær lýkur
— Elísabet, hún er þarna!
Og þarna sat þá Elísabet.
Hún er fegurðardrottning ís-
lands og svo lærir hún líka
ýmislegt í Hamrahlíðarskól-
anum. Blm. gekk til Elísabet-
ar og lagði hönd sína á öxl
hennar og spurði: — Get-
j urðu, Elísabet, komið aðeins
i og talað við mig?
Synir Medúsu
HANN heitir Sigurjón Birgir Sigurðsson, nefnir sig Sjón. Hann er
einn úr félagsskap, sem kallar sig Medúsa. í grískri goðafræði eru
kunnar Gorgónurnar þrjár, en Medúsa var ein þeirra, hin hræði-
legasta ófreskja. Medúsa var eina Gorgónan sem var dauðleg og drap
Perseifur hana eftir eitthvert illvirkið sem hún vann, hjó af henni
höfuðið. Og úr blóðinu, sem spýttist upp úr strjúpanum, fæddust þeir
Chrysaor og Pegasus, en þá hafði Medúsa átt með sjávarguðnum
Poseidon. Þess er getið, að allir sem litu höfuð Medúsu afhoggið urðu
að steinum. En hverjir skildu það vera, sem kenna sig við þessa
hræðilegu skepnu Medúsu?
— Við erum átta til tíu á aldrinum 18 til 21 árs, sagði Sjón, og
eigum það sameiginlegt allir, að dufla við surrealismann. Við erum
andans menn og tölum mikið saman, iðulega fram á nætur. Svo
skrifum við ljóð og sögur, teiknum líka og gefum út bækur. Ungir? Nei,
það er nefnilega þannig, að það fer að renna af mönnum andagiftin
upp úr tvítugu. Við erum sannfærðir surrealistar, allir saman, þó við
séum auðvitað ekki einn og sami hugurinn. Já, við ætlum að gera
konurnar okkar að surrealistum og líka hundana okkar og kettina.
Annars eru kettir surrealistar að eðíislagi, en síður hundar ...
Nú verður
„Partí"
í kvöld kl.
10—03.
Friðryk og
Pálmi Gunnarsson
sjá um að allir sleppi fram af sér beizlinu.
Gestur kvöldsins:
Laddi skemmtir kl. 24.00.
Ef þú vilt prófa eitthvaö nýtt, komdu þá í stuðið
hjáokkur. „
Leigubílar viö innganginn.
Partínefndin.
VEITINCAHUS
VAGNHOFDA11 REYKJAHilK SIMI 80680
, Fjölskyldu-
skemmtun með
Gosa
-í hádeginu alla sunnudaga
Njótið ánægjulegs málsverðar með allri fjölskyldunni í
Veitingabúð Hótels Loftleiða. Gosi gengur um svæðið með
bömunum, stjómar skemmtun þeirra og fer í leiki.
• Skólahljómsveit Laugamesskóla leikur nokkur lög undir
stjórn Stefáns Þ. Stephensen • Böm koma fram og sýna
skemmtiatriði og dans • Böm sýna föt frá Mömmusál •
Flugmódel verða sýnd á göngum hótelsins á vegum íslensku
plastmódelsamtakanna • Alvöru flugvélar verða sýndar á
flugvélastæðunum við hótelið. Allt frá smáflugvélum upp ístærri
flugvélar frá Amarflugi og Flugleiðum • Loks býður Gosi öllum t
bíó. • Dagskráin byrjarkl. 11.30.
Matseðill:
Blómkálssúpa kr. 700
Glóðarsteiktur kjúklingur m/rjómasveppasósu og
hrásalati kr. 5.300
Pönnust. smálúðuflök m/rækjum og hrísgrj. kr. 3.250
Rjómaís m/súkkulaðisósu kr. 1.050
Fyrir bömin:
1/2 skammtur af rétti dagsins 6—12 ára,
fritt fyrir böm yngri en 6 ára.
Auk þess: Gosaborgari m/frönskum kartöflum kr. 1.200
Nórasamloka m/frönskum kartöflum kr. 850
Verið velkomin
HOTEL LOFTLEIÐIR