Morgunblaðið - 18.10.1980, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980
Í GARÐABÆ efndu þes«ar telpur til hlutaveltu til ájfóða fyrir
Afrfkusofnun Rauða krossins. Þær söfnuðu 6600 krónum. Þær heita
Guðrún Halldóra Jónsdóttir, Anný Dóra Hálfdánardóttir og Ingunn
Þóra Hallsdóttir.
ÞESSAR stulkur. Ilelena Rúnarsdóttir. Anna Lísa Rúnarsdóttir og
Ingunn Lovísa Ragnarsdóttir, afhentu Sjálfsbjörg, Fél. fatlaðra í
Reykjavík, andvirði hlutaveltu að upphæð 30.000 - kr.
„Árásir44 á SÍS
Reykvikingur skrifar:
„I Tímanum þann 14. október sl.
má lesa leiðara merktan Þ.Þ., með
yfirskriftinni Árásir á samvinnu-
hreyfinguna.
Lífseigir draugar
Þú minnist þess ef til vill
Velvakandi góður, að undirritaður
átti nýlega í nokkrum skoðana-
skiptum við samvinnumenn í
dálkum þínum, og vekur framan-
greindur leiðari Þ.Þ. upp nokkra
af þeim draugum sem undirritað-
ur glímdi þá við, og verða sjálfsagt
seint endanlega lagðir að velli!
Skattfríðindi
samvinnufélaga
Fyrst og fremst vekur það enn
einu sinni athygli, að hvers konar
gagnrýni á samvinnuhreyfinguna
OK löggjöf, sem gerir henni hærra
undir höfði en öðrum rekstrar-
formum, er alltaf umsvifalaust
dæmd í Tímanum sem árás á SÍS.
— Má í þessu efni enn einu sinni
benda á þá staðreynd, sem er
algerlega óhrakin, að skattfríðindi
samvinnufélaga eru slík, að í
sambærilegum rekstri greiðir
samvinnuféiag allt niður í þriðj-
ung þess skatts sem öðrum rekstr-
arformum er gert að greiða. — Ef
Þ.Þ. óskar eftir endurtekningu
umræðna um þessar staðreyndir,
þá er undirritaður til í slaginn
hvenær sem er!
Tíminn rökheldur
Þ.Þ. segir orðrétt í leiðara
sínum: „Það ber að viðurkenna, að
forsvarsmenn margra einkafyrir-
tækja skilja það orðið, að slík
samkeppni samvinnuhreyfingar-
innar og einkaaðila er nauðsyn-
leg.“ — Undirritaður fullyrðir að
skilningur einkaaðila á nauðsyn
samkeppni í hverskonar rekstri og
viðskiptum er og hefur alltaf verið
ótvíræður, en þó með þeim fyrir-
vara að einu rekstrarformi sé
aldrei gert, af löggjafa þjóðar-
innar, hærra undir höfði en öðru.
— Nú skyldu menn ætla að þegar
bent er á staðreyndir slíkar sem
þessar, mætti teljast sanngjarnt
að nefna slíkt gagnrýni, — en
Tíminn hefur löngum reynzt rök-
heldur í þessu efni og skal nú
reyna á það enn einu sinni hvort
aftur verður reynt að koma
„árásar“-stimplinum á slíka gagn-
rýni, þegar hún birtist hér og nú.
— Eða er samvinnuhreyfingin ef
til vill svo heilög kýr í augum
samvinnumanna, að hún sé hafin
yfir gagnrýni?
Leiðir lögkrókanna
Seinna segir Þ.Þ. í leiðara
sínum: „Arður samvinnuhreyf-
ingarinnar er sameign hinna fjöl-
»4K>
MORödh;- ,
KAffinu ] [s
Ég hélt að svona gúmmípoki
myndi leysa vandann.
Bléstu í vitlausan enda?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Sé eingöngu stuðst við hefð-
hundnar aðferðir við lausn varn-
arþrautar í dag er hadt við að
ekki takist. Hafa verður meðferð-
is góðan siurk af ímyndunarafli
svo dæmið gangi upp.
Við látum nægja spil blinds og
þín í austur.
Norður
S. G107
H. ÁD83
T. Á8
L. ÁDG9
Austur
S. D62
H. K1095
T. K1032
L. K8
Norður gaf spilið og opnaði á 1
grandi. Eftir pass þitt stökk suður
í 3 spaða, sem norður hækkar í 4
spaða og er það lokasögnin. Útspil
hjartatvistur. Sagnhafi lætur
hjartadrottninguna frá blindum
og þú færð á kónginn. Hvað svo?
Út af fyrir sig er ekki erfitt að
sjá 3 slagi. Gera verður ráð fyrir,
að kóngarnir sjái fyrir þeim.
Útspil vesturs er eflaust frá gos-
anum og úr því hann spilaði
tvistinum, átti hann sjálfsagt þrjú
hjörtu. Þá þýðir ekki að reikna
með öðrum slag á hjarta. Þannig
ber allt að sama brunni. Fá verður
slag á trompdrottninguna.
Sjálfsagt mun sagnhafi svína í
trompinu nema hann hafi sér-
staka ástæðu til annars. Datt þér í
hug að spila laufáttunni? Ef þú
gerir það má vel ímynda sér
viðbrögð suðurs.
Það fyrsta, sem honum dettur í
hug, er, að vestur eigi laufkóng-
inn. Og það næsta verður, að þú
eigir einspil í laufinu. Ekkert er
eðlilegra þegar þú spilar svona
upp í gaffalinn í blindum. Og
hrein og bein afleiðing þess verð-
ur, að hann mun við fyrsta
tækifæri taka á bæði trompás og
-kóng, svo að vestur komst ekki að
til að spila laufi, sem sagnhafi
býst við, að þú munir trompa. Og
honum verður alveg sama þó
trompdrottningin komi ekki í. En
honum mun ekki standa á sama
þegar hann svínar næst laufi og
þú færð á kónginn. Og ekki mun
skap hans léttast þegar þú tekur á
trompdrottninguna og bíður
rólegur eftir fjórða slagnum á
tígr'kónginn.
COSPER
©PIB
C0PI NNAúl N
84A2 COSPER
ÞESSAR skólastúlkur efndu til hiutaveltu að Giljalandi 3, Rvik, til
ágóða fyrir Afrikusöfnun RKÍ fyrir nokkru. Þar söfnuðust 14.300.-
krónur. Stúlkurnar heita: Katrin Jónsdóttir, Ingibjörg Sigurðardótt-
ir. Guðrún Þóra Jónsdóttir og Þóra Björk Ólafsdóttir.
ÞESSAR stöilur, Unnur Maria Haraldsdóttir og Karen Linda Kinchin,
héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Sjálfsbjörg, Fél. fatlaðra i Reykjavik,
og söfnuðu þær rúmiega 19.400.- kr. til félagsins.