Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
3
Afríkuhjálpin 1980:
Rúm 151 milljón
króna hefur saf nast
Meginþætti
söfnunarinnar
lokið, giró-
reikningur-
inn enn opinn
MEGINÞÆTTI fjársöfnunar
KauOa Kross íslands vegna
Afríkuhjálparinnar 1980 lauk á
laugardaginn, 8. nóv. Var þá
liðinn nákvæmlega mánuður frá
því söfnunin hófst í Norræna
Ilúsinu. Á þessum tima hafa
safnast samtals 151.128.363 kr.
og er það mjög góður árangur,
skv. því sem Jón Ásgeirsson
framkvæmdastjóri söfnunarinn-
ar sagði á blaðamannafundi i
gær. Giróreikningur Afríku-
hjálparinnar verður opinn til
laugardagsins 15. nóvember og
endurskoðað lokauppgjör verður
lagt fram á formannafundi
R.K.Í. 21.—23. þ. m. Söfnun þessi
er samnorræn og er Ísland annað
i röðinni hvað árangur varðar, en
miðað við fyrrnefnda heildartölu
hafa safnast hér u. þ. b. 600 kr. á
hvert mannsbarn. Norðmenn eru
efstir með um 1.000 kr. á hvern
íhúa.
Jón Ásgeirsson sagði í gær, að
þrátt fyrir þennan góða árangur
væru ekki öll kurl komin til grafar,
og væri vitað um framlög sem væru
á leiðinni til aðalskrifstofunnar. Þá
hafa ungir hljómlistarmenn boðið
fram aðstoð sína og munu fjórar
hljómsveitir með Pálma Gunnars-
son og Magnús Kjartansson í farar-
broddi ætla að standa fyrir fjáröfl-
unarhljómleikum í Klúbbnum nk.
miðvikudagskvöld. Eru það hljóm-
sveitirnar Geimsteinn, Friðryk,
Fimm og Vísnavinir.
Þá sagði Jón, að þó söfnuninni
væri formlega lokið mætti ekki
eingöngu einblína á peningaupp-
hæðina, því með söfnuninni hefði
einnig náðst mjög gott samband við
grunnskólabörn í landinu, skóla-
stjóra og kennara, og börnin, sem
lagt hafa hvað stærstan skerf af
mörkum til að söfnunin gengi eins
vel fyrir sig og raun varð á, hefðu
einnig fræðst mikið um þennan
hluta Afríku og hungur í heiminum
almennt.
Þá þakkaði Jón þeim fjölmörgu
aðilum sem aðstoðað hafa við söfn-
unina og nefndi þar sérstaklega
fyrirtækin Reykjalund, Múlalund,
Flugleiðir, Formprent og Vöru-
merkingar. Einnig sagði hann mörg
starfsmannafélög og félagasamtök
hafa lagt mikið af mörkum og þá
þakkaði hann einnig þátt fjölmiðla
við kynningu málefnisins.
Nú þegar hefur 45 millj. kr. verið
varið til kaupa á matvælum og
lyfjum. Ákveðið hefur verið að
verja 37,9 millj. kr. til greiðslu fyrir
starf hjúkrunarfólks, einnig er
ákveðið að senda annan sendiboða
frá íslandi til Uganda og Kenya um
áramótin og verður hluta þeirrar
fjárhæðar varið til þess. Þá verður
Fjögur skip
seldu ytra
FJÖGUR islenzk skip seldu afla
sinn erlendis í gærdag. Ýmir
seldi 91,5 tonn í Grimsby og fékk
fyrir það 58,3 milljónir króna.
eða 637 krónur fyrir hvert kíló að
meðaltali.
Ársæll Sigurðsson seldi í Hull
121,1 tonn og fékk fyrir það 87,6
milljónir króna, eða um 701 krónu
fyrir hvert kíló að meðaltali.
Þá seldi Hegranesið 124,4 tonn í
Bremerhaven og fékk fyrir það
71,2 milljónir króna, eða 572
krónur fyrir hvert kíló að meðal-
tali.
25 millj. kr. varið til þróunarhjálp-
ar, þ.e. varanlegrar aðstoðar. 20
millj. kr. fara í sérstakan neyðar-
hjálparsjóð sem notaður verður í
sérstökum neyðartilvikum á svæð-
inu öllu. 25 millj. kr. er enn
óráðstafað og verður tekin ákvörð-
un um nýtingu þeirra síðar.
Frá blaðamannafundinum i gær. ólafur Mixa formaður R.K.Í. lengst
til vinstri, þá Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri söfnunarinnar og
ólafur B. Thors einn af þeim er sat i framkvæmdanefnd sofnunarinn-
ar lengst til hægri. Ljósm. Mbi.: F.miií*.
Þetta er
ade
bíllinn,
sem allir
keppi-
nautarnir
taka til
fyrirmyndar
við hönnun
En hversvegna eltast allir
keppinautarnir viö Daihatsu
Charade?
Jú, Daihatsu Charade var
hannaöur til aö mæta þeim
erfiöleikum sem þjóöir heims
eiga viö aö etja í dag í
orkumálum, umferöarmálum í
þéttbýli og dreifbýli og nauö-
syn þess aö eiga lítinn, hag-
nýtan bíl, sem þjónar aö fullu
hlutverki stærri bíla.
Viö erum stoltir af því aö vera
fyrirmynd annarra bílafram-
leiöenda, en bendum fólki
vinsamlegast á aö gæta þess
viö val á nýjum bíl, aö kaupa
ekki eftirlíkingu, þegar frum-
myndina er hægt aö fá til
afgreiðslu strax á hagstæö-
asta veröi markaöarins.
nyrra
árgerða.
Lítiö samt viö hjá öörum umboðum, áöur en þér komið og
kaupiö Daihatsu Charade.
— Daihatsu Charade
hagnýtnasti,
sparneytnasti og
mest seldi
bíUinn
á fslandi
Ve«ö
\Mffi
w
a
etö
iðteB
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23,
sími 85870 og 39179.