Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
Omurlegt ástand öldrunarmála
Ellilífeyrisþegum fjölgar jafnt og þétt hérlendis. Meðalævilengd kvenna hér
er til dæmis lengst í heimi og verða þær fyrstar til að ná 80 ára meðalaldri. Karlar
fylgja þeim svo fast á eftir. Veruleg fjölgun gamals fólks verður þó ekki fyrr en eftir
árið 2010 þegar stóru eftirstríðsárgangarnir „koma í gagnið“, sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir, er Mbl. ræddi við hann um öldrunarmálin.
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Greiðslufyrirkomulagið hvetur
til elliheimilisbygginga en ekki
til eflingar heimilishjálpar
Tafla 1.
Vistunarrými á Norðurlöndum á 1000 íbúa.
í D N S
19401 10 9,1 8,6 9,6
19792 24,3 20,0 21,5 23,8
1 Vilmundur Jónsson landlæknir. Skipan heilbrigöismála á
íslandi 1946.
Orsakir langlífis
Islendingar eru þar fremstir,
þ.e. meðal Norðurlandaþjóða. Á
þessu ári hafa nokkrar erlendar
fréttastofur haft samband við
mig til að fá skýringar á þessu
og spurt hvort við séum í ætt við
fjallabúa í Kákasus. En það er
engin einhlít skýring til á fyrir-
bærinu. Trúlega hafa þó góð og
jöfn lífskjör einna mesta þýð-
ingu. Samkvæmt niðurstöðum
hóprannsókna virðast lífskjör
hér almennt betri og jafnari en
víðast gengur og gerist, aðbún-
aður og heilsufar sömuleiðis.
Stéttaskipting er minni en víða
erlendis og fáir lifa við örbirgð.
Dánartíðni vegna langvinnra
sjúkdóma er því lægri hér en í
nágrannalöndum, en dánartíðni
er mest í lægstu stéttum. Ung-
barnadauði er einna lægstur hér.
Menntun hefur einnig mikla
þýðingu, henni fylgja betri
lífsskilyrði. Almenn lestrar-
kunnátta fyrr á öldum gerði
okkur kleift að losa okkur við
alvarlegar landlægar farsóttir,
s.s. sullaveiki og holdsveiki á
skemmri tíma en í nágranna-
löndum, en fleira kom þar til
sem ekki verður rakið hér.
Skortur á
hjúkrunarspítala
I Reykjavík er mikíll skortur
hjúkrunarrúma. Landlæknis-
embættið hefur í mörg ár í
samvinnu við Þór Halldórsson
yfir- og borgarlækni gert ítrek-
aðar tilraunir til þess að fá
einhverja af „hálftómum" skól-
um borganna til afnota fyrir
ellisjúk gamalmenni sem hjúkr-
unarstofnun. Málið var eyðilagt
af skrifstofupólitíkusum. I fyrra
létum við teikna 80 rúma hjúkr-
unarspítala, staður var valinn og
byggingartilboð fengið upp á
tæpar 900 millj. Þáverandi heil-
brigðismálaráðherra Magnús H.
Magnússon fékk góð vilyrði fyrir
fjárlagaheimild í ríkisstjórninni
til þess að byggja húsið. Mér er
ekki vel ljóst hvar innan borg-
armarkanna tillögurnar hafa
horfið. Ég tel, að B-álma Borg-
arspítalans hafi tafist i 7 eða 8
ár vegna „skrifstofudeilna".
Á undanförnum árum hafa
verið haldnar 15 eða 20 meiri-
háttar ráðstefnur um málið og
nefndargreiðslur borgar og ríkis
gefa til kynna að ekki hafi skort
nefndarfundina.
Nú er loks hafin bygging
B-álmu og ber að fagna þeim
áfanga, þó allt sé í óefni komið.
Alls eru nú í byggingu yfir 200
rými.
Um vistunarrými
Það er athyglisvert, að allt frá
því að fyrst lágu fyrir upplýs-
ingar um vistunarrými á íslandi,
borið saman við önnur Norður-
lönd, hafa íslendingar búið
einna best í þeim efnum og er
svo ennþá. Sjá töflu 1.
2 Landlæknisembættiö 1979.
Samanlagður vistunarrúmafj.
fyrir aldraða hér á landi í
samanburði við nágrannalöndin
er því ríflegur og má lesa úr
næstu mynd að samanlagður
fjöldi elli- og hjúkrunarrúma er
nokkuð meiri hér en í nágranna-
löndum. t6.Hjúkrunarrými er of
lítið, en nægur fjöldi er af
elliheimilisrúmum. Landlæknis-
embættið benti á þessa stað-
reynd fyrir mörgum árum. Sum-
ir trúa þessu ekki enn í dag og
hafa mótmælt þessum niður-
stöðum og talið þær rangar.
Byggja þeir á heimagerðum
stöðlum en niðurstöður embætt-
isins eru fengnar samkvæmt
stöðlum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, og því fremur
marktækar í samanburði við
önnur lönd. Annað mál er, að
aðbúnaður margra hjúkrunar-
sjúklinga á stofnun er bágur,
enda eru margar stofnanir ekki í
stakk búnar til þess að sinna
veikum gamalménnum.
ElliheimilisbygK-
inuar sveitaríélaKa
Ýmsir hafa reynt að leysa
vandamál eldra fóiksins með því
að fjölga vel búnum elliheimil-
um. Ber að þakka einlægan vilja
og dugnað þeirra. Annað mál er
að þetta átak leysir ekki brýn-
asta vandann. Á sama tíma og
aðrar þjóðir leggja niður elli-
heimili, fjölgum við þeim! Við
verðum að snúa frá þessari
stefnu og sinna vandamálunum í
réttri röð.
Greiðslufyrirkomulagið hvet-
ur til elliheimilisbygginga en
ekki til eflingar heimilishjáip-
ar. Vegna veru sjúklings á
stofnun. greiðir sveitarfélagið
óverulega upphæð — en heima-
hjálp er að mestu greidd af
sveitarfélögum.
Þetta er aðalástæðan að
heimaþjónustu hefur ekki verið
sinnt sem skyldi hérlendis sbr.
töflu 2.
ellinni, verður að hafa eftirfar-
andi í huga:
Fátt fólk yfirgefur heimili og
sveit af fúsum vilja í ellinni til
þess að búa á elliheimili. Stofn-
anavistun er í flestum tilvikum
neyðarúrræði. I viðjum stofnun-
ar dvínar frumkvæði og lífsvilji.
Athafnafrelsi minnkar og sjálfs-
virðing þverr. Aðgerðarleysi og
depurð fylgja í kjölfarið. Félags-
leg tengsl rofna og andlegt
heilsufar versnar. Neysla svefn-
lyfja og róandi lyfja er veruleg á
stofnunum.
Fyrsta boðorðið er því að fólk
hafi valfrelsi til þess að kjósa
sér samastað. Til þess að svo
megi verða verður gamalt fólk
að búa við sæmilegt fjárhagslegt
öryggi.
Lágmarkstekjur ellilífeyris-
þega, þ.e. lífeyrir og tekjutrygg-
ing sem hlutfall af árslaunum
verkamanna, hafa aukist á sl.
8—10 árum. Einstaklingur hefur
húsnæði, hefur skipulag hús-
næðismála leitt til þess, að
flestir eru að stækka við sig
húsnæði fram á miðjan aldur.
Þegar svo börnin eru farin að
heiman, heilsunni hrakar og
minna húsnæði væri heppilegra,
eru annað hvort ekki möguleikar
á slíku eða þá að fólk veigrar sér
við að selja eigur sínar, sem eru
afrakstur og tákn langs lífs-
starfs. Margir aldraðir dvelja
því í híbýlum sínum án þess að
geta með góðu móti búið þar án
aðstoðar. Skipulag húsnæðis-
mála og skortur á þjónustu
stuðlar því samtímis bæði beint
og óbeint að því að stofnanavist-
un verður nær eini valkosturinn.
Þriðja boðorðið er góð heima-
þjónusta. Hcimaþjónusta er
mun mikilvægari nú en áður
vegna þess að yfirleitt eru
heimilin mun verr úr garði
gerð til þess að sinna samhjálp.
Nú þarf 2 til að vinna fyrir
fjölskyldu og lítill tími og þol er
afgangs til þess að sinna börnum
og gamalmennum. Meginástæð-
an er hinn óhóflega langi vinnu-
tími. Það er athyglisvert, að
samtímis því að íslendingar
fjölga ellihéimilum, fjölgar dag-
heimilisplássum einna mest
miðað við nágrannalönd. — Við
höfum ekki mikinn tíma til að
sinna þeim sem eru hjálparþurfi.
Langtímalausn á vandamálum
eldra fólks er ekki eingöngu
fólgin i því að hella steypu í
mót. Hér er víðtækra aðgerða
þörf á sviði félags- og atvinnu-
mála, fjármla, þjónustu og ekki
síst fjölskyldumála.
Lokaorð
Nú höfum við samið drög að
frumvarpi um samvinnu heil-
brigðis- og félagsmálageirans
varðandi umsjá aldraðra. I drög-
unum er lögð áhersla á mikla
eflingu heimaþjónustu. Sjálfsagt
þarf þá að auka við tekjustofna
sveitarfélaga. Öðrum kosti verð-
ur ríkið að greiða hluta af
heimahjálpinni eftir kvótakerfi.
Leysa þarf bráðan vanda sem nú
er með því að flytja inn eða
byggja 60—80 rúma hjúkrunar-
byggingu, sem taka mætti í
notkun á næsta ári. Hraða þarf
byggingu B-álmu eftir mætti.
Huga ber betur að atvinnu-
málum aldraðra. Gefa skal eldra
fólki kost á endurhæfingarnám-
skeiði, er hilla tekur undir eftir-
launaaldur. í þjóðfélagi voru
fyrirfinnast ýmsar atvinnu-
greinar, sem henta fólki, er
styrkur þess fer að dvína. Eins
og nú er, hefst endurhæfing
yfirleitt ekki fyrr en fólk hefur
lagst inn á stofnanir.
Fjöldi 65 ára og eldri sem (á heimaþjónustu 1979.
Heimahjálp
Heimahjúkrun
Þessu ákvæði verður að breyta
hið bráðasta. Eíla ber heima-
hjálp til hins ýtrasta og þá má
trúlega draga úr dýrum stofn-
anabyggingum. Ekki er ætlunin
að með þessum orðum sé gert
lítið úr góðu starfi sumra sveit-
arfélaga á þessu sviði.
Að hella steypu
í mót er skamm-
tímalausn
Þegar búa skal fólki skjól í
Önnur
ísland Norðurl.
6% 15-27%
2% 2-3%
rúm 60% af árslaunum verka-
manns en hjón rúm 110%.
Félagsmálaráðherrum ber að
þakka það sem vel hefur verið
gert. Betur þarf þó að sinna
fjárhagsmálum þeirra sem eru í
óverðtryggðum lífeyrissjóðum,
því að verðbólgan gleypir alla
viðbót.
Annað boðorðið er að fólk
verður að eiga kost á húsnæði
við hæfi. Hér á landi, þar sem
80% allra íbúa búá í eigin
Fjöldi rýma á elli- og hjúkrunarstofnunum á 1.000
íbúa 65 ára og eldri. í D N S
EJli- og hjúkrunardeildir 73,9 25,8 68,4
Iljúkrunarspítalar 19,7 47,7 27,6
Samtals 93,7 70,6 60,0 76,0
Hyggjast
efla starf
JÆ»S.-félags
Islands
M.S.-FÉLAG íslands var stofnað
árið 1968, en félagar þess eru
þeir sem hafa orðið fyrir barðinu
á sjúkdómnum Multiple Sclerosis
og styrktarmeðlimir. Félagið
hyggst nú efla starf sitt og
ráðgerir að koma á framfæri
stóraukinni fræðslu til félags-
manna og annarra. M.S.-félagið
hóf á siðasta ári samstarf við
hliðstæð félög á Norðurlöndum
og var í sumar stofnað norrænt
samband M.S.-félaganna til að
efla gagnkvæma fræðslu og sam-
vinnu m.a. með sameiginlegum
námskeiðum.
í frétt frá M.S.-félagi íslands
segir að sjúkdómur þessi hafi
meðal almennings oft verið nefnd-
ur hægfara lömun. „M.S. er
skammstöfun fyrir Multiple Scler-
osis. Multiple mætti þýða með
margvísleg eða dreifð, sclerosis
þýðir herðing eða örmyndun. Við
sjúkdóminn M.S. verður nokkurs
konar bólgumyndun á víð og dreif
í miðtaugakerfinu, heila og mænu.
Bólgan gengur til baka, en eftir
verður örmyndun eða herðing. Það
sem skemmist eru mergslíður,
sem eru utan um taugaþræðina.
Við það verður truflun á leiðni
tauganna. Einkenni fara eftir því
hvaða taugar verða fyrir truflun,
en þau geta verið lömun, skyn-
truflanir, sjóntruflanir o.fl. Sjúk-
dómurinn getur lýst sér á mjög
mismunandi vegu og farið mjög
mismunandi illa með fólk, en hann
herjar á fólk á unga aldri, flest
20—40 ára,“ segir m.a. í frétt
félagsins um sjúkdóminn.
í sumar var haldinn í Stokk-
hólmi fundur alþjóðasambands
M.S.-félaga og sat hann María
Þorsteinsdóttir fyrir hönd
M.S.-félags íslands, sem þó er ekki
aðili að alþjóðasambandinu.
Markmið þess er að efla og örva
rannsóknir og dreifa upplýsingum
um sjúkdóminn og láta í té ráðgjöf
og aðstoð við hin ýmsu M.S.-félög.
Lagði sambandið á síðasta ári um
70 milljónir dala í rannsóknir. Á
félagsfundi M.S.-félags íslands
nýlega var flutt skýrsla um fund-
inn í Stokkhólmi og kom þar fram
áhugi fyrir að íslenska félagið
gerðist aðili að alþjóðasamband-
inu. Vænta félagsmenn mikils af
sambandinu við norrænu félögin
og alþjóðasambandið og leggja
áherslu á að aflað sé sem gleggstr-
ar vitneskju um sjúkdóminn og
rannsóknir.
M.S.-félag Islands vinnur nú að
því að finna fjáröflunarleiðir og
hafa t.d. verið gefin út minn-
ingarspjöld og reyna á að auka
fjölda styrktarmeðlima. Félagið
hefur enn ekki bolmagn til að reka
skrifstofu, en stjórn þess veitir
nánari upplýsingar og skipa hana:
Margrét Guðnadóttir formaður,
Gretha Morthens varaformaður,
María H. Þorsteinsdóttir ritari,
Karólína Eyþórsdóttir gjaldkeri,
Margrét Kristinsdóttir og Mar-
grét Ólafsdóttir meðstjórnendur.
Ráðgefandi læknir félagsins er
Sverrir Bergmann.
Hafnarfjörður:
Ökumaður dráttar-
bíls hafi sam-
band við lögreglu
LÖGREGLAN i Hafnarfirði hefur
beðið Mbl. að koma eftirfarandi á
framfæri: ÞriðjudaKÍnn 28. október
hakkaði rauður dráttarbill, sem flutti
Kám, á Ijósastaur á mótum SævanKs
ok Skjólvangs og skemmdi talsvert, en
bílstjórinn hvarf á braut án þess að
Kera viðvart. Kona nokkur sá til ferða
bílsins og lét Rafveitu Ilafnarfjarðar
vita. Biður löKreglan ökumann drátt-
arbilsins að gefa sig fram, svo ok
konuna eða aðra er kynnu að hafa séð
umrætt atvik.