Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 11 Hanna Maria Karlsdóttir og Kjartan Ragnarsson i hlutverkum sínum. en Kjartan leikur aðalpersónuna Gretti og Hanna Maria systur hans. Ljd«m. Mbi.: Kristján. Leikfélag Reykjavíkur: Grettir - nýr ísl. söngleikur frumsýndur í Austurbæjarbiói LEIKFÉLAG Reykjavikur frumsýnir nk. föstudagskvöld 14. nóv. nýjan islenzkan söngleik, Gretti, eftir Egil ólafsson, Ólaf Hauk Simonarson og Þórarin Eldjárn. Söngleikurinn verður sýndur i Austurbæjarbiói og er þetta ein viðamesta sýning, sem Leikfélagið hefur ráðizt i. Verkið fjallar í gamansömum tón um Gretti, ungan pilt í Breiðholtinu, sem gerður er að sjónvarpsstjörnu. Yfir 20 söng- og dansatriði eru í sýningunni og tónlist er flutt af Þursaflokknum. Sextán leikarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar koma fram í Gretti. Titilhlutverkið leikur Kjartan Ragnarsson, foreldra hans leika Jón Sigurbjörnsson og Sigurveig Jónsdóttir, Atli bróðir hans er leikinn af Harald G. Haralds og Hanna María Karls- dóttir leikur Gullauga, systur Grettis. Ragnheiður Steindórs- dóttir leikur Siggu, kærustu Grettis og Egill Ólafsson bregður sér í hlutverk Gláms. Sex leikarar fara með öll önnur hlutverk: Aðalsteinn Bergdal, Andri Örn Clausen, Eggert Þorleifss^n, Guð- rún Gísladóttir, Margrét Ákadótt- ir og Soffía Jakobsdóttir. Fara þau með hlutverk táninga, pönk- ara, nemenda, kennara, sjónvarps- fólks, fangavarða o.fl. Hlutur þeirra í dans- og söngatriðum er hvað mestur, en það er Þórhildur Þorleifsdóttir, sem hefur samið og æft alla dansa í sýningunni. Leikmynd gerir Steinþór Sig- urðsson, búningar eru eftr Guð- rúnu Sigríði Haraldsdóttur og Daníel Williamsson annast lýs- ingu. Leikstjóri er Stefán Baldurs- son. Frumsýningin á Gretti verður eins og áður segir föstudagskvöld- ið 14. nóv. kl. 21 í Austurbæjar- bíói, önnur sýning verður sunnu- dagskvöldið og sú þriðja á mið- vikudagskvöld. Síðar verður verkið sýnt á miðnætursýningum. Forsala aðgöngumiða hefst Foreldra Grettis leika þau Sigurveig Jónsdóttir og Jón Sigurbjörns- þriðjudaginn 11. nóvember. son. Landsnefnd bamahjálp- ar Sameinuðu þjóðanna stof nuð hérlendis? IIÉR Á landi er nú staddur dr. Reinhard Y. Freiberg, fulltrúi frá barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna — IINICEF. Sameinuðu þjóðirnar hafa um nokkurt skeið haft áhuga fyrir að hér á landi yrði stofnuð landsnefnd UNICEF og var dr. Freiberg sendur hingað þeirra erinda að vera ráðgefandi við athugun þessa máls og fulltrúi Sameinuðu þjóð- anna við stofnun nefndarinnar, ef af stofnun verður. Á blaðamannafundi sem dr. Freiberg efndi til kom fram að ísland er eitt fárra ríkja í Evrópu þar sem landsnefnd barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna er ekki starf- andi. Kvenstúdentafélag íslands hefur hins vegar séð um sölu jólakorta til styrktar barnahjálp- inni um árabil. Dr. Freiburg áleit það mjög æskilegt að hér á landi yrði stofnuð landsnefnd UNICEF. Tilgangur slíkrar nefndar sagði hann að væri fyrst og fremst þríþættur: í fyrsta lagi að upplýsa þjóðirnar sem þær störfuðu í um vandamál og hagsmuni barna bæði hjá viðkomandi þjóð og annars staðar, í öðru lagi að stuðla að aukinni menntun barna eða koma upp menntakerfi fyrir börn þar sem það er ekki fyrir hendi, og í þriðja lagi að vinna að fjáröflun til hjálparstarfs við börn víða um heim. Það ber þó ekki að líta á barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sem góðgerðastofnun — tilgangur hennar er fremur að veita þróun- araðstoð. Stofnunin einbeitir sér að því að hafa jákvæð áhrif á þá fjölmörgu þætti, félagslega og efnahagslega, sem hafa bein eða óbein áhrif á kjör barna. Þannig hefur bamahjálpin t.d. reynt að stuðla að bættum hag mæðra I Dr. Reinhard Y. Freiberg þróunarlöndunum, aukinni menntun þeirra og fleiru sem að þeim snýr. Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna er fjármögnuð með frjálsum framlögum aðildarríkja Samein- uðu þjóðanna en þó byggist starf- semi stofnunarinnar að verulegu leyti á framlögum félaga og ein- staklinga. Þá selur stofnunin kveðjukort o.fl. og annast Kvenstúdentafélag íslands þessa sölu hérlendis. Ymis félagasamtök hafa sýnt áhuga á aðild að landsnefnd UNI- CEF hér á landi — Rauði kross Islands, ýmis félög innan þjóð- kirkjunnar, Kiwanisklúbbar, Lionsklúbbar, stjórnmálasamtök o.fl. Hefur verið haldinn fundur um þetta efni en ekki er ákvörðun- ar að vænta fyrr en eftir áramót. Þau félagasamtök sem áhuga hafa á þessu málefni geta fengið nánari upplýsingar um UNICEF-lands- nefndina á skrifstofu Kvenstúd- entafélagsins, Túngtu 14, Reykja- vík. ÚTSÝN - KLÚBBUR 25 Uts ynar kvöld miðvikudagskvöld 12. nóv. í Súlnasal Hótel Sögu. Húsið opnar kl. 19.00. Kvöldveröur Super Burger Club 25 Style. Verö aöeins kr. 6000.- ★ ★ ★ Diskódans ★ ★ ★ Hljómsveitin The Platters leikur frá kl. 20.00. ★ ★ ★ The Platters Eitt albezta söngatriöi sem komið hefur til ís- lands skemmta ásamt 6 manna hljómsveit. PETTA ER SÍÐASTA TÆKIFÆRID TIL AD SJÁ ÞESSA FRÁBÆRU LISTAMENN Bingó Vinningar: Ferö til Costa del Sol og vöruúttekt frá Versluninni Moons. Ragnar Bjarnason og félagar leika fyrír dansi til kl. 1. Borðapantanir á Hótel Sögu í sima 20221 fri kl. 15.00. Klúbbur 25 býður ykkur öll vel- komin á góða akemmtun með góðu fólki og frábaarum listamönnum. kluhhur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.