Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 13

Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 13 Fréttaskýring: Potemkin-tjöld og Madrid-ráðstefnan þeim hrundið í framkvæmd. ís- lendingar vilja lifa í friði við allar þjóðir, þeir vilja að sam- vinna ríki og hagsmunaárekstr- ar séu leystir með sanngirni og góðum samkomulagsvilja. Þjóðir okkar vænta þess af okkur, að góðum áformum sé hrundið í framkvæmd. Hér erum við ekki að reisa nein Potemkin-tjöld. Við ætlum hvorki að blekkja sjálfa okkur né aðra. Við gerum okkur þvert á móti grein fyrir, að á öllu veltur, að við efnum í raun samþykktir okkar og þær beri ávöxt í daglegu lífi þjóða okkar. Við eigum að heita því hér í Helsingfors á þessari stundu að svo skuli verða." Segja má, að í þessum orðum komi fram þau sjónarmið, sem settu helst svip sinn á ræður vest- rænna leiðtoga í Helsinki í ágústbyrjun 1975. Um leið og menn strengdu þess heit að standa við skuldbindingarnar í lokasamþykktinni, létu þeir í ljós, með eins „diplómatískum" hætti og viðeigandi þótti, efa um trúnað kommúnistaríkjanna við þær siðferðilegu hömlur, sem í samþykktinni felast, því að hún hefur hvorki lagagildi né gildi alþjóðasamnings í þess orðs fyllstu merkingu. Ég minnist þess frá ieiðtogafundinum, að haft var á orði við mig, að brýning íslenska forsætisráð- herrans með vísan til Potemk- in-tjaldanna væri ef til vill nokkuð hörð miðað við „Hel- sinki-andann". En segja má, að þessir dagar í Helsinki hafi verið hámark slökunartímabilsins. Þróunin síðan hefur leitt í ljós, að með vísan til Potemkin-tjalda var síður en svo kveðið of sterkt að orði. Sovétmenn hafa nefni- lega leitast við að nota Hel- sinki-samþykktina í sama til- gangi og Potemkin kammer- herra greip til margvíslegra blekkingaraðgerða undir lok 18. aldar til að villa um fyrir Katarínu II keisaraynju í Rúss- landi. Franska orðið „détente" er ekki lengur lykilorðið í samskiptum austurs og vesturs. í stað þeirra slökunar, sem orðið lýsir, gætir nú vaxandi tortryggni á Vestur- löndum í garð Sovétríkjanna og menn vilja gæta meiri varúðar í samskiptum sínum við þau. Sov- étmenn hafa komið þannig fram, að engu er líkara en þeim sé það sérstakt kappsmál að gera allt, sem í þeirra valdi er, til að ögra lýðræðisríkjunum. Þeir töldu mestan ávinning með öryggis- ráðstefnunni fram að Helsinki- fundinum, að viðurkenning feng- ist á þeim landamærum, sem dregin voru í Evrópu að lokinni síðari heimsstyrjöldinni. Svo virðist sem þeir telji sig hafa náð þessu markmiði sínu og evrópsk landamæri heimsveldis þeirra hafi verið viðurkennd og þeim sé sama um allt annað. Vestrænir stjórnmálamenn segj- ast enga slíka viðurkenningu liggja fyrir.'um leið og þeir hafa lagt á það áherslu, að ekki sé unnt að skipta „slökuninni" hún verði að ná til allra þátta alþjóðamála en ekki aðeins þeirra, sem Kremlverjar ákveða. Þess vegna vilja fulltrúar Vest- urlanda ræða um innrásina í Afganistan á Madrid-fundinum og annað hernaðarbrölt Sovét- manna eða undirsáta þeirra víða um heim. Mannréttindabrot kommúnista- stjórnanna síðan 1975 eru svo mörg, að vart verður tölu á komið. Sovétstjórnin vinnur skipulega að útrýmingu þeirra, sem berjast fyrir mannréttind- um og hefur sérstaklega lagt sig fram um að níðast á þeim, sem beitt hafa Helsinki-samþykkt- inni fyrir sig í baráttunni. Talið er, að nú sitji um 10 þúsund pólitískir fangar í sovéskum geðveikrahælum eða fangabúð- um. Hlutfallslega er talan miklu hærri annars staðar í Austur- Evrópu, því að til dæmis er talið, að í Austur-Þýskalandi séu póli- tískir fangar milli 5 og 6 þúsund. Austur-þýsk stjórnvöld hafa hundsað ákvæði Helsinki-sam- þykktarinnar i mörgum grein- Sendinefnd Islands á Helsinki-ráðstefnunni i ágúst 1975. um. Til dæmis virða þau að vettugi ákvæðin um samskipti manna úr sömu fjölskyldu, sem búa sitt hvorum megin við járntjaldið. Nýlega voru hækkuð landamæragjöldin í Austur- Þýskalandi, það er að segja þær fjárhæðir, sem Vestur-Þjóðverj- ar verða að greiða í hvert sinn, sem þeir fara austur yfir. Aust- ur-þýski ríkiskassinn hefur þar að auki drjúgar tekjur af því að selja fólk vestur yfir járntjaldið. Kommúnistastjórnirnar hika ekki við að hafa að engu ákvæði Helsinki-samþykktarinnar um frjálsa upplýsingamiðlun, þær trufla útvarpssendingar og banna innflutning á blöðum og tímaritum. Atburðirnir í Pól- landi vekja ótta um yfirvofandi valdbeitingu og þar með brot á yfirlýsingum um friðhelgi landa- mæra, sem reynst hafa eins marklausar og annað, þegar hagsmunir sovéska heimsveldis- ins eru annars vegar. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar á undirbúningsfundinum í Madrid sagðist fyrir helgi efast um, að Sovétmenn hefðu nokkurn áhuga á, að Madrid-ráðstefnan færi fram. Ekki er ólíklegt, að hann hafi rétt fyrir sér. Kremlverjar þola ekki, að athyglinni sé beint að harðræðinu og kúguninni, sem þeir beita. En Helsinki- samþykktin hefur það sér helst til gildis fyrir Vesturlönd, að hún gefur færi á að benda á þann grundvallarmun, sem felst í ólíkuni stjórnarháttum ríkja- hópanna tveggja. Spennan vex í Póllandi og þar með líkur á sovéskri hernaðaríhlutun. Kremlverjum finnst líklega óþægilegt að tala um frið í Madrid, um leið og þeir telja hagsmunum sínum ef til vill best borgið með því að senda skrið- dréka inn í Varsjá. Björn Bjarnason 5. Stjórn Félagsstofnunar stúd- enta og Húsfélag Hjónagarða eru sammála um það að leiguverð lítillar íbúðar á Hjónagörðunum verði kr. 65 þús. á mánuði á komandi rekstrarári. Þessi leiga mun ekki breytast fyrr en í fyrsta lagi 1. sept. 1981. Stjórn Félagsstofnunar stúd- enta telur, að við ríkjandi aðstæð- ur í húsnæðismálum á höfuðborg- arsvæðinu sé vissulega ekki van- þörf á gagngerri umræðu um húsnæðisvanda stúdenta sem og annarra leigutaka. Á hinn bóginn harmar stjórn Félagsstofnunar stúdenta að til þeirrar umræðu skuli hafa verið stofnað með þeim ómálefnalega hætti sem að hefur verið vikið. Úr fróttatilkynniniíu. EF ÞAÐ ER FRETTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ I MORGUNBLAÐINU LAUGAVEGI47 iiP m ' ■ vr—^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.