Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
Blíkksmiðjan
Vogur
tvöfaldar
vinnupláss
sitt
Eigendur Blikksmiðjunnar Vogs hf. Frá vinstri: Magnús Magnússon, Finnbogi Júliusson, Helgi
Pálmason, Ingimar Sigurtryggvason, Tryggvi Sveinbjörnsson, Sveinn A. Sæmundsson og Einar
Finnbogason.
1 SÍÐUSTU viku tók Blikk
smiójan Vogur hf. í Kópavogi í
notkun nýjan og glæsilegan
vinnusal og í tilefni þess var
fjöldi gesta viöstaddur. Sveinn
A. Sæmundsson, einn eigenda
Vogs, ávarpaði gesti og í ræðu
hans kom eftirfarandi meðal
annars fram:
Blikksmiðjan Vogur tók til
starfa í október 1949 og átti því
20 ára afmæli á síðasta ári.
Af ýmsum ástæðum var af-
mælishófi frestað þar til nú að
þessi nýi vinnusalur er tekinn í
notkun.
Stofnendur voru upphaflega 3,
Sveinn A. Sæmundsson, Finn-
bogi Júlíusson og Tryggvi Svein-
björnsson, allir blikksmiðir.
Fyrirtækið var þá sameignarfé-
lag. Við Tryggvi byrjuðum að
vinna tveir í 45 m2 kjallara í
Vallargerði 2. 1952 tókum við
fyrsta nemann, en síðan hafa
yfir 40 nemar verið teknir á
námssamning og 36 iokið prófi.
Fyrstu 12 árin var smiðjan til
húsa að Vallargerði 2, 1960 var
smiðjunni breytt í hlutafélag og
komu þá 4 blikksmiðir í félagið
til viðbótar þeim 3 er fyrir voru,
þeir Magnús Magnússon, Ingi-
mar Sigurtryggsson, Helgi
Pálmason og Einar Finnboga-
son.
Allir þessir menn eru við störf
hjá fyrirtækinu í dag. Um ára-
mót ’61----’62 var flutt í fyrsta
áfanga þessarar byggingar,
SdOm2 auk kaffistofu og þá voru
viðbrigðin svo mikil að við héld-
um að það myndi duga næstu 20
ár en 3 árum seinna var næsti
áfangi hafinn og flutt í hann
1966—’67. Sú bygging er á 2
hæðum, samtals um 700 mz. Það
var líka löngu of lítið, en þessi
salur, sem við erum í er um 970
m* svo þessi viðbót er næstum
tvöföldun á vinnuplássi. Það var
byrjað á grunni þessarar bygg-
ingar í febrúar 1979 og má heita
að verkstæðishluta hennar sé
lokið, þó er lítið eitt eftir við
hitalögn i vesturenda. Kostnað-
aráætlun þá var um 160 milljón-
ir en kostnaður er í dag kominn í
um 214 milljónir, eða um 36%
hærri en áætlunin var.
Á 30 ára starfsferli hefur
margt breyst, t.d. var ársveltan
240 þúsund fyrsta starfsárið en
um 570 milljónir ’79, að vísu
verðbólgukrónur. Tæknin hefur
tekið miklum framförum og
verkefnin verða sífellt fjöl-
breytilegri. Starfsmenn hafa á
síðustu árum verið milli 40 og 59,
í dag eru þeir um 50.
Stór hlut af blikksmíðinni er
tengdur byggingariðnaði og
verkefni því mismikil eftir því
hve mikið er byggt. I svona
rekstur þarf mikið fjármagn.
Við þurfum a.m.k. 40 m2 gólfflöt
á hvern starfsmann, sem þýðir á
núvirði ca. 11 milljónir, véla- og
tækjakostur ca. 3 milljónir á
starfsmann eða 14 milljónir á
hvern starfsmann í fastafjár-
munum. Ég ætla ekki að fara að
reikna út hvað hver klst. í vinnu
kostar í fastafjármunum, því ég
býst ekki við að verðlagsyfirvöld
vilji taka þann kostnað inn í
útsölutaxta.
Sveinn A. Sæmundsson býður gesti velkomna og rekur sögu fyrirtækisins.
Séð yfir nýja verksmiðjusalinn.
Reykjavíkurprófastdæmi 40 ára
MEÐ LÖGUM nr. 76 frá 7. maí
1940 var Reykjavíkurprófastsdæmi
stofnað, en fram að þeim tíma
hafði Reykjavik verið hluti Kjal-
arnessprófastsdæmis. Var hið nýja
profastsda mi látið ná yfir Reykja-
vík, Seltjarnarnes og Kópavog og
hefur sú skipan haidizt síðan. Og
um mánaðamótin september —
október var boðað til fyrstu fund-
anna i söfnuðunum. sem stofnaðir
voru með prófastsdæminu. en það
eru Hallgrims-. Laugarnes- og
Nessöfnuðir.
Þó hafði áður verið hafið starf i
Laugarne.sinu í tengslum við Dóm-
kirkjusöfnuðinn og fyrstu messuna
þar í hverfinu flutti séra Garðar
Svavarsson 13. desember 1936. Eftir
kosningar í hinum nýju prestaköll-
um 15. desember, voru skipaðir
sóknarprestar í Hallgrímssöfnuði,
séra Sigurbjörn Einarsson og séra
Jakob Jónsson, í Laugarnesi séra
Garðar Svavarsson og í Nessöfnuði
séra Jón Thorarensen. Tóku hinir
nýju prestar við embættum sínum í
ársbyrjun 1941, og fyrsti héraðs-
fundur hins nýja prófastsdæmis var
haldinn 25. marz 1941.
Dómprófastur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi var skipaður 4. marz 1941
séra Friðrik Hallgrímsson, en hann
hafði verið prófastur í Kjalarnes-
prófastsdæmi frá 27. marz 1938 og
gegndi hann prófastsstörfum til 1
desember 1945, og tók þá við af
honum séra Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup.
1. júlí 1951 var séra Jón Auðuns
skipaður dómprófastur og 18. apríl
1973 tók séra Óskar J. Þorláksson
við af honum, en núverandi dóm-
prófastur, séra Ólafur Skúlason, var
skipaður frá 1. nóvember 1976.
Um leið og prófastsdæmið var
stofnað var fitjað upp á því nýmæli
að gera ráð fyrir svonefndu Safnað-
arráði, sem í skyldu vera prestarnir,
formenn sóknarnefnda og safnað-
arfulltrúar. Skyldi ráðið koma sam-
an eins oft og þurfa þætti og fjalla
um kirkjuleg nýmæli og skipu-
lagsmál innan prófastsdæmisins.
Hefur Safnaðarráð haidið fundi
samhliða héraðsfundum, sem eru
einu sinni á ári og fjalla m.a. um
Frá hátíðarsamkomu sem haldin
var i Bústaðakirkju sl. sunnudag
í tilefni 10 ára afmadis Revkjavík-
urprófastsdæmis. Sr. Oskar J.
Þorláksson. fyrrverandi dóm-
prófastur er í ræðustóli.
I.jósm. Mbl. Guójón
reikninga safnaðanna og annað þess
háttar. Hefur reyndar komið til tals
að fella héraðsfund undir aðalfund
Safnaráðs og mundi að því nokkur
hagræðing. Á vegum Safnaráðs
starfa nokkrar nefndir, fjalla þær
m.a. um æskulýðsmál og er formað-
ur hennar séra Karl Sigurbjörnsson,
fjármál safnaða og er Hermann
Þorsteinsson formaður hennar, og
nýskipaðar eru tvær nefndir, er
önnur þeirra, undir forsæti dr.
Björns Björnssonar, að athuga með
fjölskylduráðgjöf, á vegum safnaða
og prófastsdæmis, en hin var skip-
uð, eftir höfðinglega gjöf Gísla
Sigurbjörnssonar og konu hans, til
að vinna að málefnum aldraðra í
prófastsdæminu, en formaður þeirr-
ar nefndar er Árni Gunnarsson,
alþingismaður.
Fjárskortur hefur háð mjög starfi
safnaðanna sem prófastsdæmisins
og komið í veg fyrir það, að reynt sé
að beina safnaðarstarfinu inn á
ennþá fjölbreyttara svið. Þó er
ailtaf verið að reyna ýmislegt, og
mikil bót var að því, þegar fjárveit-
ing fékkst til þess að ráða skrif-
stofustúlku í hálft starf á vegum
prófastsdæmisins og hefur reynslan
sannað, að þetta var ekki aðeins
mikill léttir, heldur nauðsynlegt til
samræmingar og auðveldunar á
starfi presta og safnaða. Og mundi
að vísu ekki þykja mikið í borið,
enda þótt prófastur og hinir 18 aðrir
prestar, auk safnaðanna, hefðu að-
gang að slíkri skrifstofuaðstoð fimm
morgna í viku.
(Frá dómprófasti)
Fundur í Ár-
nesi um land-
búnaðarmál
(irldinKaholti. 10. nóv.
Búnaðarsamband Suðurlands
boðar til almenns fundar um
landbúnaðarmál í Ámesi nk. mið-
vikudagskvöld. 12. nóv. kl. 21.00.
Fundurinn er haldinn að tilhlut-
an fulltrúa Árnesinga á Stéttar-
sambandsfundum. Framsögumenn
verða Hákon Sigurgrímsson full-
trúi hjá Stéttarsambandinu og
Böðvar Pálsson bóndi að Búrfelli.
Síðan verða almennar umræður.
Jón.