Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
19
Einar Gunnar Ein-
arsson ráðinn fram-
kvæmdastjóri SUS
Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni hafnað
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna samþykkti á stjórnar-
fundi sl. laugardag að ráða Einar
Gunnar Einarsson laganema sem
framkvæmdastjóra sambandsins.
Ilannes Hólmsteinn Gissurarson
sótti einnig um stöðu þessa og
var á stjórnarfundinum lagt
fram bréf frá honum þar sem
hann átelur fulltrúa sérstakrar
viðræðunefndar stjórnar SUS
fyrir að greina ekki nákvæmlega
frá viðræðum við sig vegna ráðn-
ingar þessarar. Einar Gunnar
mun taka við starfi framkvæmda-
stjóra næstu daga og lætur Stef-
án Stefánsson þá af starfi en
hann hefur gegnt þvi i u.þ.b. þrjú
ár.
Jón Magnússon formaður SUS
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að í
viðræðum við áðurnefnda nefnd,
sem skipuð hefði verið þeim Jóni
Ormi Halldórssyni, Birni Her-
mannssyni og Ólafi Helga Kjart-
anssyni, hefði Hannes Hólmsteinn
lýst því yfir, að hann treysti sér
ekki til að gæta hlutleysis í starfi,
ef hann yrði ráðinn framkvæmda-
stjóri. í bréfi til stjórnar SUS
hefði hann síðan sagt, að Jón
Ormur hefði ekki skýrt rétt frá að
þessu leyti. Þá sagði Jón Magnús-
son, að hann hefði ekki verið
mótfallinn ráðningu Hannesar og
að hann teldi hann hæfan mann
að mörgu leyti. „Þess verður að
geta, að í haust verður haldið þing
SUS og væntanlega verða þar
fleiri en eitt framboð til formanns
og mér finnst mjög mikilvægt að
starfsmaður sambandsins sé hlut-
laus aðili. Mér finnst ekki tækt að
ráða til starfans aðila, sem er
fyrirfram upp á kant við liðið."
Þá sagði Jón að Einar Gunnar
væri vanur félagsmálamaður, ætti
sæti í stjórn Heimdallar og teldist
til yngri manna í röðum ungra
sjálfstæðismanna og full ástæða
væri til að yngja upp i forystulið-
inu.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son hafði eftirfarandi að segja:
„Því er ekki að leyna, að nokkur
ágreiningur hefur verið með ung-
um sjálfstæðismönnum síðustu
þrjú árin. Margir hafa verið
óánægðir með vinnubrögð SUS-
stjórnar, en þó talið rétt að láta
kyrrt liggja. Menn úr SUS-
stjórninni hafa þó hvað eftir
annað ákveðið að bera ágreinings-
efnin á torg. Nefna má þegar Jón
Magnússon formaður SUS lýsti
yfir óánægju í fimm dálka forsíðu-
frétt í Dagblaðinu með ráðningu
Kjartans Gunnarssonar sem
framkvæmdastjóra flokksins, en
Kjartan er í röðum ungra sjálf-
stæðismanna. Hafði hann það
helst á móti Kjartani, að hann
styddi formann flokksins og kost-
ur hefði verið á öðrum manni
reyndari. Einnig má nefna þegar
Gústaf Níelsson stjórnarmaður í
SUS skrifaði grein í Mbl. til að
ófrægja mig eftir síðasta sam-
bandsráðsfund SUS Þá má nefna,
að menn úr SUS-stjórninni
reyndu að fella Ingu Jónu Þórðar-
dóttur og Skafta Harðarson úr
stjórn Varðbergs á síðasta aðal-
fundi þess félags, þó að vit væri
haft fyrir þeim á fundinum sjálf-
um. Allt þetta sýnir að takmarkið
er ekki að vinna að sáttum heldur
að sundra ungum sjálfstæðis-
mönnum, þó að verkefnin í stjórn-
málunum séu næg.
Ég og margir aðrir höfum þó
talið rétt, þrátt fyrir allar þessar
ögranir, að vinna eins og kostur er
með þessu fólki. Ég bauðst þess
vegna til að taka að mér fram-
kvæmdastjórn SUS og hugðist
vinna þar til sátta, en því var
hafnað. Skýtur mjög skökku við
frá því að Jón Magnússon deildi á
ráðningu framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, því að hann
notar nákvæmlega sömu rökin
gegn mér og hann taldi formann
flokksins hafa notað. Að sjálf-
sögðu hefði ég unnið að beztu
samvisku fyrir SUS ef ég hefði
verið ráðinn framkvæmdastjóri.
Ég harma framkomu SUS-stjórn-
ar í öllum þessum málum en óska
hinum nýráðna framkvæmda-
stjóra, sem er dugandi maður,
allra heilla í starfi."
Annar hluti keppninnar um Islandsmeistaratitilinn i einstaklingsdansi
fór fram i Klúbbnum sl. sunnudag. Þátttakendur voru fimm en þrir
komust áfram i úrslitakeppnina. Þau eru: Harpa Karlsdóttir, Haukur
Harðarson og Sigmar Vilhelmsson. Meðfylgjandi mynd sýnir þau á
dansgólfinu eftir að úrslit voru kunn (Haukur er í hvitum fötum).
Úrslitakeppnin fer fram 30. nóvember en tvo næstu sunnudaga verður
keppt i undanrásum. Ljósm. as
Kjólar — Kjólar
Dagkjólar — Kvöldkjólar — Samkvæmiskjólar —
Tækifæriskjólar í glæsilegu úrvali. Allar stæröir —
Hagstætt verö.
Opiö föstudag til kl. 7.
Laugard. kl. 10—12.
Kjólasalan, Brautarholti 22,
inngangur frá Nóatúni.
25 ára afmœlisferð Utsýnar
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn er 25 ára um þessar mundir. Sl. laugardag hélt 150 manna hópur af stað í
sérstaka afmælisferð félagsins. Var förinni heitið til Mexico þar sem dvalist verður 1 þrjá daga en þaðan
verður haldið til Acapulco og dvalið þar i 14 daga. Á myndinni hér að ofan er hópurinn á leið um borð i
Arnarflugsvélina, sem var leigð sérstaklega til þessarar farar. Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar
er fararstjóri i ferðinni.
Reykjavikurdeild Norræna félagsins:
Þróttmikið starf á árinu 1980
AÐALFUNDUR Reykjavikurdeild-
ar Norræna félagsins var nýlega
haldinn i Norræna húsinu. For-
maður deildarinnar, Gylfi Þ. Gisla-
son prófessor, setti fundinn en
fundarstjóri var kjörinn Sigurður
Þórarinsson prófessor.
I skýrslu formanns kom fram að
starf deildarinnar á árinu 1980 hefði
verið þróttmikið. í sambandi við
þing Norðurlandaráðs í Reykjavík
efndi deildin til hátíðardagskrár í
Norræa húsinu þar sem rithöfund-
urinn Sara Lidman var heiðursgest-
ur. Ræddi hún um verk sín og las
upp úr þeim. Þá söng Sigríður Ella
Magnúsdóttir norræn lög og við
þetta tækifæri var úthlutað fyrstu
verðlaunum fyrir merki málaársins.
Samband Norrænu félaganna efndi
til samkeppni um gerð merkisins og
fyrstu verðlaun hlaut Mickel Öst-
lund frá Svíþjóð. Formaður sam-
bandsins, Reidar Carlsen frá Nor-
egi, afhenti verðlaunin.
í maí efndi Reykjavíkurdeildin til
kynningarfundar fyrir ungt fólk um
náms-, styrkja- og ódýra ferða-
möguleika á Norðurlöndum. Kynn-
inguna önnuðust fulltrúar frá
Menntamálaráðuneytinu og Nor-
ræna félaginu. í júní stóð deildin
fyrir höfuðborgaráðstefnu í Reykja-
vík. Hingað komu rúml. 70 þátttak-
endur frá höfðuborgum hinna Norð-
urlandanna og dvöldu hér frá 13. til
20. júní. Höfuðmál ráðstefnunnar
var „Listin í borginni" og var hún
kynnt ítarlega. Auk þess var kynnt
atvinnu- og menningarlíf í borgum.
Borgarstjórn og þau borgarfyrir-
tæki, sem leitað var til, veittu
ómetanlega aðstoð við framkvæmd
ráðstefnunnar.
Gylfi Þ. Gíslason var endurkjör-
inn formaður Reykjavíkurdeildar-
innar til næstu tveggja ára. Til
sama tíma voru kosin í stjórn: Jóna
Hansen kennari, Sigurður Þórar-
insson prófessor og Svava Storr frú.
Fyrir voru í stjórninni: Arnheiður
Jónsdóttir fv. námsstjóri, Gils Guð-
mundsson fv. alþingismaður og Vil-
hjálmur Þ. Gislason fv. útvarps-
stjóri.
(Fréttatilkynning)
Italskt
andrúmsloft
f eldhúsinu
m
ítalir eru sérfræöingar í matargerö og þaö eru þeir einnig í eldhúsum og
eldhúsinnréttingum.
Höfum tekiö upp mikið úrval af elohúsinnréttingum.
KOMIÐ, SJÁIÐ OG SANNFÆRIST
Opiö kl. 9—6.
USGAGNA-
MIÐSTÖÐIN
SKAFTAHLÍÐ 24, SÍMI 31633