Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 Fólk og fréttir í máli og myndum yt % s * % t-H* f 9 <4 , • Þúsundasti stjórnarfundur Frjálsiþróttasambands íslands var haldinn fyrir skömmu, en þar sem sambandið er 33 ára hafa verið haldnir að jafnaði yfir 30 fundir á ári. Á fundinum mættu m.a. nokkrir þeir, er gegnt hafa formennsku i sambandinu, og smellti Kristján Magnússon ljósmyndari þá þessari mynd af. Á myndinni eru (fv.): Björn Vilmundarson, Bragi Kristjánsson, Konráð Gíslason er var fyrsti formaður sambandsins, Brynjólfur Ingólfsson og örn Eiðsson, núverandi formaður FRÍ. Þúsund stjórnarfundir á þremur áratugum • Lyftingamenn brydduðu upp á skemmtilegri nýbreytni á NM unglinga i Laugardalshöllinni á dögunum. beir fengu þessar bráðfallegu konur til þess að afhenda verðlaunapeninga og setti það mikinn svip, bókstaflega. á keppnina. Stúlkurnar skörtuðu peysufötum og þjóðbúningi. Ljósm. Guöjón B. EITTbÚSUNDASTI stjórnar fundur Frjálsiþróttasambands íslands (FRÍ) var haldinn nýlega, en við það tækifæri komu núver- andi formaður sambandsins, Örn Eiðsson, og nokkrir fyrrverandi formenn saman, en alls hafa tiu menn gegnt formennsku i Frjáls- iþróttasamhandinu frá stofnun þess 16. ágúst 1947. Fyrsti formaður FRÍ var Kon- ráð Gíslason, sem lengi rak sport- vöruverzlunina Hellas. Lárus Halldórsson tók við af honum, og síðan komu, í réttri röð, Garðar S. Gíslason, Jóhann Bernharð, Bragi Kristjánsson, Brynjólfur Ingólfs- son, Jóhannes Sölvason, Ingi Þor- steinsson, Björn Vilmundarson, en við af honum tók Örn Eiðsson, sem verið hefur formaður frá því haustiö 1968, eða 12 ár. Örn hefur gegnt formennsku lengur en nokk- ur annar, Brynjólfur gegndi for- mennsku í sex ár. Á þúsundasta fundinum voru gerðar tvær samþykktir. Annars vegar beindi fundurinn þeim til- mælum til fjárveitinganefndar Alþingis, að hún leggi til við hið háa Alþingi, að árlega verði veitt framlag í Afreksmannasjóð ÍSÍ, sem yrði algjörlega óháð styrk þeim, sem veittur er ÍSÍ á fjárlög- um hverju sinni. Lagt var til að fyrsta fjárveiting í sjóðinn yrði krónur 20 milljónir á árinu 1981. Einnig samþykkti fundurinn, að kosinn yrði þriggja manna sam- starfsnefnd, sem skipuð yrði stjórnarmanni FRÍ, þjálfara og íþróttamanni. Starfssvið þessarar nefndar er að auka samvinnu og skilning milli leiðtoga, þjálfara og íþróttamanna í framtíðinni. Heimsmeti fagnað • Meðfylgjandi mynd segir sína sögu um hvers vegna hnefaleikar eru bannaðir á íslandi og fjölmargir aðilar erlendis fordæma einnig iþróttina, þótt þar sé hún leyfð. Myndin er frá viðureign Bandarikja- mannsins Sean O’Gradys og Skotans Jim Watt. bað er O'Grady, sem hefur orðið fyrir alvarlegu skakkafalli og skömmu eftir að mynd þessari var smellt af, var keppnin stöðvuð. bað virðist verða æ algengara, að hnefaleikarar biði bana, a.m.k. hefur mikið á þvi borið að undanförnu. T reystu sér ekki á íþróttaþing vegna kostnaóar „VIÐ hreinlega treystum okkur ekki á þing Evrópusambands frjálsiþróttamanna, því þótt Flugleiðir hafi sýnt okkur sér- stakan velvilja við tækifæri af þessu tagi, hefði kostnaður sam- bandsins orðið yfir einni milljón króna. Og þótt þátttaka í fundum af þessu tagi sé nauðsynleg, er i mörg horn að lita, einkum vegna hinnar slæmu fjárhagsstöðu sam- bandsins, og urðum við að hætta við þátttöku að þessu sinni,“ sagði Örn Eiðsson, formaður Frjálsiþróttasmbandsins, i spjalli við Morgunblaðið, en stjórn sambandsins ákvað á sin- um tima að taka ekki þátt i ársþingi Frjálsiþróttasambands Evrópu vegna kostnaðar sem því hefði verið samfara. Örn sagði að FRÍ hefði farið þes á leit við framkvæmdastjóra norska frjáls- íþróttasambandsins, K&re Bakk- en, að hann yrði eins konar fulltrúi íslands á þinginu, þar sem hann yrði þar hvort eð er fyrir hönd Norðmanna. Þorvaldur golfkennari að hefja sitt 14 starfsár • bessi myndasyrpa er af hinu frækilega afreki Skúla óskarssonar, er hann setti hið glæsilega heimsmet i réttstöðulyftu á NM á dögunum. Á fyrstu myndinni hefur Skúli lagt lóðin niður og gengið úr skugga um að lyftan sé gild. Síðan öskrar hann af gleði. bá ráðast velunnarar kappans að honum og tollera hann og eins og sjá má, er Skúla mikið niðri fyrir. Ljósm. gb IIINN góðkunni og snjalli golf- kennari borvaldur Ásgeirsson er nú að hefja sitt 14. starfsár með kennslu innanhúss í vetur. 'Áformað er að kennslan verði mjög svipuö og undanfarin starfsár. Kennt cr í irþóttahús- inu í Garðabæ. Kcnnslan hjá borvaldi er bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lcngra komnir í iþróttinni. Gott er að nota vetr- artimann til þess að lagfæra ýmislegt sem betur má fara í högglciknum. þannig að allt verði í sem bestu lagi þegar kylfingar taka til við að keppa á næsta vori. borvaldur veitir öll- um þeim, sem áhuga hafa á, upplýsingar í sima 14310 og þar fer fram skráning. bess má að lokum geta að borvaldur Ás- geirsson er atvinnumaður í golfí- þróttinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.