Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
Víðast hvar látlaus úr-
slit í ensku knattspyrnunni
Mikiir markaleikir voru þó í Southampton og Leeds
ÚRSLIT leikja í ensku knattspyrnunni voru yfirleitt heldur látlaus
þessa helgina og eigi færri en fjórum leikjum lauk án þess að
markverðirnir þyrftu að hirða knettina úr netum sinum. t fiestum
hinna leikjanna var litið skorað, en auðvitað dró sums staðar til
tiðinda, tii dæmis á Elland Road i Leeds, þar sem heimaliðið fékk á sig
fimm mörk, eftir að hafa haldið markinu hreinu í fimm leiki í röð. Og
í Southampton fengu áhorfendur einnig nóg fyrir aurana. En staðan á
toppinum er að verða einn ailsherjar hrærigrautur og má fullyrða að
átta efstu liðin eigi öll möguleika og segja má að þau berjist öll á
toppinum. Aðeins lið Aston Villa hefur reynst vera afgerandi, en það
er engu að siður spá margra, að liðinu förlist innan tiðar. Ekkert skai
um það fullyrt, en minnt á að menn spáðu Nottingham Forest
stöðugum óförum fyrir tveimur árum, en liðið varð meistari samt.
Áður en lengra er haldið, skulum við líta á úrslit leikja i 1. deild:
• Úr leik Man. Utd. og Coventry. Mick Thomas stjakar við Gerry
Daly, fyrrum leikmanni MU.
Birmingham — Cr. Palace 1—0
Brighton — Middlesbr. 0—1
Leeds — Arsenal 0—5
Leicester — Man. City 1—1
Liverpool — Nott. Forest 0—0
Man. Utd. — Coventry 0—0
Norwich — Everton 2—1
Southampton — Ipswich 3—3
Sunderland — Stoke 0—0
Tottenham — Wolves 2—2
WBA — Aston Villa 0—0
John Lukic, enski unglinga-
landsliðsmarkvörðurinn hjá
Leeds, átti ekki einn af sínum
betri dögum, er Arsenal sótti
Leeds heim. Hann gerði urmul
mistaka í leiknum og þrívegis
refsuðu leikmenn Arsenal hon-
um með því að skora. Til dæmis
átti Lukic einn sökina á tveimur
fyrstu mörkunum, sem John
Hollins skoraði. Bæði mörkin
komu í fyrri hálfleik, en í þeim
síðari bættu þeir Steve Gatting,
Brian Talbot og Alan Sunder-
land mörkum við og átti Lukic
sinn þátt í einu þeirra. Þetta var
stjórnvölnum.
Annar hörkuleikur var á The
Dell í Southampton. Þar kom
einnig við sögu mistækur
markvörður, í þessu tiiviki Júgó-
slavinn Iwan Katalinic hjá
heimaliðinu. Hann virtist líta á
knöttinn sem glóandi furðuhlut
sem bar að missa úr höndum sér
við hin ótrúlegustu tækifæri.
Þannig færði hann Ipswich ann-
1. DEILD
Aston Villa 16 II 3 2 29 13 26
Ipswich 14 8 6 0 21 9 22
Nottingham F. 16 8 5 3 26 14 21
Arsenal 16 8 5 3 25 14 21
Liverpool 15 6 8 1 31 15 20
West Bromwich 16 7 6 3 19 13 20
Manrh. litd. 16 5 9 2 21 11 19
Everton 16 7 4 5 27 19 18
Birmingham 15 5 6 4 20 18 16
Tottenham 15 5 6 4 21 24 16
Sunderland 16 5 5 6 21 20 15
Middieshrough 16 6 3 7 24 26 15
Coventry 16 6 3 7 19 25 15
Stoke 16 1 7 5 18 25 15
Southampton 16 5 4 7 28 26 14
Wolverhampton 15 5 3 7 15 21 13
Norwich 16 4 I 8 19 30 12
Manch. City 16 3 5 8 18 29 11
Leeds l]td. 16 1 3 9 13 28 11
Leicest<*r 16 4 2 10 12 26 10
Crystal Palæe 16 I 1 11 17 30 9
Brignton 16 2 4 10 17 31 8
2. DEILD
Notts County 16 10 5 1 23 12 25
West Baiu 15 10 1 ] 23 8 24
Chelsea 16 9 5 2 30 15 23
Swansea City 16 7 6 3 21 16 20
Blaekhurn 16 8 1 4 20 11 20
Shcffivld Wcd. 16 8 i 4 23 20 20
Orient 16 7 4 5 25 18 18
Derby County 15 5 6 4 20 21 16
Newcastle 16 6 4 6 15 25 16
Preston 16 4 7 5 14 18 15
Camhridg* 16 7 1 8 20 26 15
Bolton 16 5 1 7 26 24 14
Cuton 16 5 1 7 20 21 11
Wrexham 16 r> 4 7 15 16 li
Watford 16 6 2 8 21 21 14
Shrewsbury 16 4 6 6 17 20 II
QPR 16 4 5 7 21 17 13
Oldham 16 3 6 7 11 16 12
(flrimsby 16 2 8 6 7 15 12
Bristol City 16 3 5 8 13 20 11
Cardiff 16 5 ] 10 16 25 11
Bristol Rov. 16 i 7 8 12 25 9
að af tveimur fyrstu mörkum
liðsins, sem þeir John Wark og
Eric Gates skoruðu á fyrstu 20
mínútum leiksins. Southampton
sótti síðan án afláts og Steve
Williams skoraði fyrir liðið rétt
fyrir leikhlé. Rétt eftir hléið,
jafnaði Phil Boyer síðan fyrir
Southampton með góðu marki.
Southampton hafði töglin og
hagldirnar á vellinum, en um
miðjan hálfleikinn færði mark-
vörðurinn Katalinic Ipswich for-
ystuna með ljótum mistökum.
Paul Mariner skoraði þá gegn
gangi leiksins. Áfram dundi
stórsókn á mark Ipswich og
Steve Moran tókst að jafna um
svipað leyti og miðverðinum
sterka hjá Ipswich, Terry Butch-
er, var vikið af leikvelli. Undir
lokin björguðu varnarmenn
Ipswich síðan ævintýralega af
marklínu, er framherjar South-
ampton voru ágengir.
Efsta liðið, Aston Villa, sótti
%
• Garth Crookes skoraði
eitt af mörkum Totten-
ham.
nágrannalið sitt, WBA, heim og
skiptu liðin stigunum með sér
bróðurlega. Voru það eftir atvik-
um sanngjörn úrslit, en þrátt
fyrir að ekkert væri skorað, þótti
leikurinn hinn líflegasti og mikil
skemmtun fyrir hina 34.000
áhorfendur sem tróðu sér inn á
leikvöll WBA. Er það mesti
fjöldi sem mætt hefur á Haw-
thornes-leikvanginn í háa herr-
anstíð.
Markalaus jafntefli voru einn-
ig á Anfield og Old Trafford, þar
sem Forest og Coventry lögðu
alla áherslu á vörnina og stór-
veldin Liverpool og Manchester
Utd áttu engin svör. „What a
load of rubbish," sungu
áhorfendur á umræddum leik-
völlum, en lausiega þýtt mætti
segja á móðurmálinu, „hvílík
hörmung". Liverpool fékk aðeins
eitt opið marktækifæri gegn
Forest, Dave Johnson klúðraði
því á áttundu mínútu, en United
sýndi ömurlegan leik gegn Cov-
entry, sem var heldur líflegra
liðið, ef hægt er að nota það orð
um frammistöðuna í þessum
leikjum.
Á ýmsu gekk hjá botnliðunum
og fæst þeirra nældu sér í stig.
Lið Brighton er gersamlega
heillum horfið, en í herbúðum
iiðsins ríkti mikil bjartsýni áður
en þetta keppnistímabil hófst.
Nú situr liðið eftir eitt og
yfirgefið á botninum og tap
liðsins á heimavelli gegn Boro,
var fjórði tapleikurinn í röð á
heimavellinum. Craig Johnstone
skoraði sigurmark Boro. Crystal
Palace á enn í bölvuðu basli
þrátt fyrir nokkra góða sigra að
undanförnu. í baráttuleik í
Birmingham fékk liðið enn einn
skellinn, Keith Bertchin skoraði
sigurmark Birmingham. Tvö af
hinum lánlausu liðum áttust við
innbyrðis á laugardaginn. Lei-
cester fékk þá Manchester City í
heimsókn, en gestirnir mættu til
leiks með fimm sigra í röð í
sarpnum. Leicester hafði þó yfir-
burði mikla framan af og ekki
kom á óvart, er Alan Young
skoraði með fallegum skalla.
Man. City náði sér hins vegar
betur á strik í síðari hálfleik og
þá tókst Denis Tueart að jafna
metin með góðu marki, tíunda
mark hans á keppnistímabilinu.
Norwich kom nokkuð á óvart
með snjöllum leik gegn Everton.
Komst Norwich í 2—0 gegn
Everton áður en Liverpool-liðið
fór að láta til sín taka. Justin
Fashanu skoraði fyrra mark
Norwich snemma í leiknum og í
síðari hálfleik bætti Joe Royle
öðru marki við gegn sínu gamla
félagi. Það var síðan Bob Latch-
ford sem svaraði fyrir Everton
nokkru fyrir leikslok. Með þess-
um sigri, skaust Norwich úr
fallsætunum.
Hin óútreiknanlegu lið, Tott-
enham og Wolves, skildu jöfn á
White Hart Lane í Lundúnum.
Tottenham hafði algera yfir-
burði í fyrri hálfleiknum og lék
þá lið Úlfanna sundur og saman.
Glenn Hoddle skoraði úr víti og
Garth Crookes bætti öðru marki
við fyrir hlé. En í síðari hálfleik
tóku Olfarnir við sér og tókst
með mikilli seiglu að jafna
metin.
2. deild:
Bristol City 2 (Garland, Tainton)
— Blackburn 0
Cambridge 2 (Spriggs, Gibbins)
— Newcastle 1 (Shinton)
Chelsea 1 (Lee) — Oldham 0
Notts C. 0 — Derby 0
Preston 3 (Baxter, Bruce, Stev-
ens) — Cardiff 1 (Kitchen)
QPR 3 (Neal 2, King) — Luton 2
(Stein, Moss)
Sheffield W. 2 (Curran 2) —
Wrexham 1 (Sutton)
Shrewsbury 3 (Atkins, Biggins,
Cross) — Bristol R. 1 (Williams)
Swansea 0 — Orient 2 (Chied-
ozie, Moores)
Watford 3 (Poskett, Ward,
Rostron) — Bolton 1 (Hoggan)
West Ham 2 (Cross 2) — Grims-
by 1 (Stone).
• Joe Royle skoraði sigurmark Norwich gegn sínu
gamla félagi.
Knatt-
spyrnu-
úrslit
Ilolland.
Nac Brrda — Waitcniniccn 1—1
PSV Kindhnvcn - R»da JC 4—1
Excdahir — GAE Dcvcntcr 3—0
GroninKcn — Dtri-cht fr.
Dcn liaaK — Willcm 2. 0—I
AZ '67 Alkntaar — FcycmKird 5—2
Pcc Zwollc — Tvcntc fr.
Nec NijmcKcn — Maastricht fr.
Sparta — Ajax 4—3
Alkmaar ick scr ail Fcycmaird cins
»K köttur að mús framan af ok komst
liðið i 5—0 áður cn að Fcycnoord
svaraði fyrir sig. Kccs Kist (2). Pict
Tol. Pctcr Arnzt ok Jan Pctcrs
skoruðu fyrir Alkmaar. cn Richard
BuddinK ok Jan Pctcrs svöruðu fyrir
Rottcrdam-liðið. Rcnc Van Dcr Gijp
ok Adric Van TlKKclcn skoruðu tví-
vckík hvor. cr Sparta sÍKraði Ajax
4— 3. Schocnaker og Arncscn voru
mcðal markaskorara Ajax.
Alkmaar cr nú lanK cfst í llollandi.
hcfur liðið 23 stÍK að 12 lcikjum
loknum. Er áranKur liðsins hrcint
stiirkostlcKur ok ckki á fa-ri ncma
stórliða að tapa aðcins cinti stigi úr 12
lcikjum. Fcycmsird hcfur 18 stÍK. cn
Ajax ok Vilhjálmur annar frá TilburK
cru 13—4 sarti mcð 15 stig hvort félag.
ítalia:
Aseolf — Hdincsc 1—0
lioloKnia — Brescia 0— 1
Fiorcntina — ( aKliari 0—0
Intcr — Pistoisc 2—0
Napólí — Avcllino 1 —0
PcruKÍa — Juvcntus 0—0
Roma — ('atanzarrn 0—0
Torino — (omo 1 — 1
FcikilcKt markafkið að vcnju (!) í
itölsku dcildinni. Roma cr cfst scm
stendur mcð 10 stÍK. Fiorentina ok
Intcr hafa 9 stig hvort fclaK.
Spánn.
Barcclona — Atl. Madrid 4—2
Salamanca — Hcrculcs 0— 1
Zaragoza — Betis 2—0
Rcal Madrid — Real Socicdad 1 —0
Valladolid — l,as Palmas 3—1
Almcrla — Osasuna 1 — 1
Atl. Bilhao — Valcncia 4—0
Scvilla - Gijon 3-2
Murcia — Kspanol I —1
Atlctico Madrid hcfur forystu i
dcildinni þrátt fyrir tap um hclKÍna.
Ilcfur liðið 16 hIík að 10 lcikjum
loknum. Valcncia ok Scvilla hafa 13
stÍK hvort félag.
Góður sigur Mexíkó.
Landslið Mcxikó í knattspyrnu
sýndi snilldartakta. cr það Kcrsigraði
líð Bandarlkjanna i undankcppni HM
um helKÍna. laikatöiur lciksins urðu
5— 1 ok var mál manna að Mextkó
hafi ckki í annan tíma sýnt aðra eins
knattspyrnu.
England. 3. deild:
Burnlcy — RcadinK 1 — 2
Carlislc — Fulham 2—2
Gharlton — Rothcrham 2—0
(’hcstcr - Shcffidd Htd 3-2
Chcstcrficld - Brcntford 2—1
Colchester — Swindon 1 —0
Excter — Barnslcy 0—1
OillinKham — Portsmouth 0— 1
Millwali - lluddcrsficld 2-1
Ncwport — llull 4—0
Oxford — Rlarkpool 0—2
Plymouth — Walsall 2—0
England, 4. deild:
Aldrrshot — IVtcrbrouKh 0—0
Bury — Bourncmouth 3—0
(’rcwe — York 1 — 1
Darlington — Tranm<*rr2—0
Balifax — Bartlrpool 1—2
Lincoin — Southend 2—1
Mansfield — Torquay I—1
Port Vale — Rorhdaie 1 — 1
Scunthorpe — Bcrcíord 3—1
Wigan — Bradford 0—1
Wimhledon — Northampton 1 —0
Skotland. úrvalsdeild:
Celtic — Abcrdecn 0—2
Bcarts — Dundcc Utd 0—3
Kilmarnock — Airdrie 1 — 1
Bartick — Morton 0—ö
St. Mirren — Rangers 0—0
Ab<»rdeen hefur nád afgerandi for-
ystu í skosku deildarkeppninni og
virðint allt stefna í sigur hjá liðinu
annað keppnistímahilið i riið. Í5ixur
liðsins á útivelii geKn Celtic er mjojf
athyglisverður. Walker McCalI skor-
aði hæði mork liðsins <»«: siðan dró
heldur betur til tiðinda. er oh’iður
áhangandi Celtic æddi inn á vollinn ott
róðist á (íordon Strarhan. skoska
landsliðsmanninn í liði Aberdeen.
Áður en nokkur fékk að «ert. flauK sá
fulii á Strachan o« var í þann mund
að heíja harsmíðar. er logregluþjónar
nokkrir svifu að og drógu hann
afsiðis. l>að þurfti eigi færri en sex
loggur til að ráða við kappann. Sem
fyrr se>{ir, hefur Aherdeen náð góðri
forystu. liðið hefur 23 stiic eftir 13
leiki. en Rangers hefur 20 stig að jafn
morgum leikjum loknum. I þriðja
sa tinu er Celtic með 18 stiif.