Morgunblaðið - 11.11.1980, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
35
Kaupfélag Árnesinga 50 ára:
Veltan úr 547 þúsundum kr.
í 9,5 milljarða á þessu ári
Sl. laugardag, 1. nóvember, átti
Kaupfélag Árnesinga 50 ára af-
mæli. Stjórn kaupfélagsins ákvað
á stjórnarfundi, sem haldinn var á
afmælisdaginn, að minnast af-
mælisins á ýmsan hátt, m.a.
verður veittur 10% afsláttur á
vöruúttekt í aðalbúð og vörumark-
aði á Selfossi og í útibúunum í
nóvembermánuði. Þá verður veitt-
ur 20.000 króna afsláttur af hverju
tonni af fóðurbæti í nóvember og
desember.
Ákveðið var einnig að gefa
Sjúkrahúsi Suðurlands 10 milljón-
ir króna, en unnið er að loka-
áfanga nýja sjúkrahússins á Sel-
fossi. Þetta var tilkynnt á hátíð-
arfundi, sem haldinn var á laugar-
dagskvöldið. Þar var Páli Hall-
grímssyni, formanni stjórnar
Sjúkrahúss Suðurlands, afhent
peningagjöfin. Þar rakti Oddur
Sigurbergsson, kaupfélagsstjóri,
sögu og þróun kaupfélagsins frá
stofnun til dagsins í dag.
Fyrstu stjórn Kaupfélags Ár-
nesinga skipuðu Ágúst Helgason í
Birtingaholti, sem var formaður,
Gísli Jónsson á Stóru-Reykjum og
Þorvaldur Ólafsson í Arnarbæli.
Stofnfundinn sóttu 27 menn, en í
árslok 1930 voru félagsmenn 80.
Nú eru þeir 1674.
Félagið keypti verslunarað-
stöðu, hús og vörulager Eglis
Thorarensen, sem hafði rekið
verslun á Selfossi í nokkur ár. Þá
var Egill ráðinn kaupfélagsstjóri
og gegndi hann því starfi í 31 ár.
Fyrstu 10 árin var verslunarrekst-
ur helsta starfsemi félagsins. En
árið 1940 var sett á laggirnar
bifreiðaverkstæði, og síðan jókst
starfsemi félagsins jafnt og þétt.
Nú rekur Kaupfélag Árnesinga
bifreiðasmiðju og vélaverkstæði í
mörgum deildum, trésmiðju, kjöt-
vinnslu, brauðgerð, lyfjabúð.
þvottahús og vöruflutninga í stór-
um stíl. Verslanir eru 14, þar af
eru útibú á Eyrarbakka, Stokks-
eyri, Hveragerði, Þorlákshöfn og á
Laugarvatni. Þá annast kaupfé-
lagið umboð fyrir Samvinnutrygg-
ingar og Andvöku.
Árið 1946 var starfsemin flutt í
nýtt og glæsilegt verslunar- og
skrifstofuhús á Selfossi. Nú rúmar
það ekki starfsemina lengur, og er
verið að reisa nýtt hús, sem
áætlað er að verði tekið í notkun í
árslok 1981. Grunnflötur nýja
hússins er 5000 fermetrar, en
rúmmál 38000 rúmmetrar. Er það
um það bil fimm sinnum stærra
en gamla húsið. Trésmiðja var
byggð 1956 en bifreiða- og véla-
verkstæði 1971.
Fastráðið starfsfólk síðustu
áramót var 230, og launagreiðslur
976 milijónir króna. Fyrsta árið
voru starfsmenn 9 og launa-
greiðslur 26 þúsund krónur.
Fyrsta árið var heildarveltan 547
þúsund krónur, en áætlað er að á
þessu ári verði veltan a.m.k. 9,5
milljarðar.
Árið 1934 keypti Kaupfélag
Árnesinga jörðina Þorlákshöfn og
hóf þar útgerð. Þar með var
lagður grunnur að þeirri byggð,
sem þar er í dag. Félagið átti
einnig aðild að stofnun útgerðar-
félagsins Meitils, sem enn í dag er
stærsta fyrirtæki í Þorlákshöfn.
Árið 1937 keypti kaupfélagið
jörðina Laugardæli, og lét á árinu
1945 bora þar eftir heitu vatni og
lagði heitaveitu í hús á Selfossi.
Það seldi síðan Selfosshreppi hita-
veituna árið 1968. 1972 var jörðin
leigð Búnaðarsambandi Suður-
lands, sem rekur þar tilraunabú.
Stjórn Kaupfélags Árnesinga
skipa nú Þórarinn Sigurjónsson,
Laugardælum, formaður, Gísli
Hjörleifsson í Unnarholtsköti,
Gunnar Kristmundsson, verslun-
armaður á Selfossi, Helgi Jó-
hannsson á Núpum og Björn
Erlendsson í Skálholti. Núverandi
kaupfélagsstjóri er Oddur Sigur-
bergsson.
Tómas
| Nationai |
Panasonic
'lNDl , ,»«a aö ^'n' 4
á«.
nnl’ VarnöSpÓ'ar ' A AuK PesS
,e9ö ^yndínn' um *máKXw
myndetn' a ' þv/í tra
e'rnbaö eöa W' P
yst Þao’ . T meö
OOLey-kerhA • fl 1 tæki
aörar truflanir m'nnkar stórlega suö
ÖRV GG» tuUa g[eln tyrir
Þeir hiá Panason,c^9®a ulbandi er miká
AÐ LOKUM
Hér höfum viö vakiö athygli þína á þeim kostum sem PANASONIC-tækiö býöur þér umfram aöra framleiöendur, aöra kosti þarf vart aö minnast
á, því þeir þykja sjálfsagðir í fullkomin myndsegulbönd.
PANASONIC notast viö hið útbreidda og viðurkennda VHS-kerfi, og eru kassettur í því kerfi fáanlegar fyrir 60-90-120 og 240 mínútna dagskrár.
SÉRTU í VAFA, snúöu þér þá til fagmannsins, og hann mun trúlega vera okkur sammála um þaö, aö þeir hjá PANASONIC eru þekktir fyrir allt
annað en óvönduö og fljótfærnisleg vinnubrögð.
ir zs, Brautarh°m 2
.iTTA-. JL JL Símar 27192-27133