Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
37
sársauki og þjáning hverfur.
En hvernig stendur þá á því að
læknavísindin halda engu að síður
áfram að kenna að dauðinn sé
endir allrar tilveru mannsins?
Ef til vill má finna skýringu í
orðum hins fræga enska læknis
dr. med. Alexander Cannons.
Hann segir meðal annars í for-
mála einnar bókar sinnar þetta:
„Margir gera þá kröfu til sér-
fræðinga í geðsjúkdómum, að þeir
haldi fast við það sem er orðið
hefðbundið; séu með öðrum orðum
kreddufastir, annað sé ófyrirgef-
anlegt af þeim. En ég fullvissa alla
slíka gagnrýnendur um það, að ég
óttast enga dóma, enda er óttinn
sönnun fyrir úrkynjuðu sálarlífi.
Þeim sem svara orðum mínum
með því að þau séu fjarstæðufull,
svara ég aftur með orðum Napo-
leons: Lýsingarorðið fjarstæðu-
fullur er lýsingarorð. Litilsigldur
hugur er alltaf fullur þverúðar.
Opinn hugur er bæði ieiðitamur
fyrir nýjum sannindum og líka
fær um að leiða aðra. Þess vegna
er ráðlegging mín þessi: Áfellist
aldrei nokkurn mann, málefni eða
kenningu að órannsökuðu máli!“
í ölium merkum skáldskap er að
finna athyglisverðan sannleik. Svo
er og um þessa skáldsögu Gunnars
Dal, GÚRÚ GÓVINDA, að segja.
Þessi saga er öll látin gerast eftir
dauða söguhetjunnar og er að því
leyti einstök meðal ísienskra1
skáldsagna. í þjóðfélagi þar sem
dauðinn virðist vera eitthvert
feimnismál þarf hugrekki til þess
að skrifa skáldsögu sem öll er
látin gerast að þessu lífi loknu.
Þessi bók er ekki reist á sandi,
því hún virðist afrakstur alls sem
höfundur hefur lært og reynt í
áratuga langri leit að svörum við
ýmsum áieitnustu spurningum
hvers manns. Margt af því sem
sagt er frá í þessari íslensku bók
er ekki að finna í neinum öðrum
bókum, þótt leitað sé um öll lönd.
Á það einkum við um lýsinguna á
því sem gerist, þegar maðurinn fer
frá Kamaloka og fæðist (eða deyr)
til jarðarinnar.
Gunnar Dal segir á öðrum stað,
eða í bók sinni LÍF OG DAUÐI frá
því hvernig hann fékk þessa vitn-
eskju.
Lokakafli bókarinnar sem um
þetta fjailar gerir hana sérstæða,
jafnvel í heimsbókmenntum, því
mér vitanlega hefur hringnum
aldrei fyrr verið lokað. Engin bók
hefur áður reynt að gefa endanleg
svör um ferð mannanna um heim-
ana þrjá (eða fimm) og lýst því,
jafnvel í einstökum atriðum,
hvernig endurkoman gerist.
Skáldið Gunnar Dal stundaði
nám við háskólann í Calcutta á
Indlandi 1951—53 og hafði jafn-
framt samband við lærða menn
víðsvegar um Norður- og Suður-
Indland.
Þýski heimspekingurinn Heid-
egger segir, að gild hugsun skapist
á útjöðrum vitundarinnar í þögulli
íhugun. Víða erlendis, einkum í
hinum enskumælandi heimi, eru
nú skrifaðar fjölmargar bækur,
sem segja má að gerist á útjöðrum
mannlegrar skynjunar. Og er ekki
sennilegt að einmitt þar fari nú á
tímum fram sú sköpun, sem verða
almennur skilningur og þekking í
framtíðinni?
Allt þetta færöu fyrir aöeins
kr.
42.140.
1. Vélarþvottur.
2. Skipt um kerti og platínur.
3. Skipt um loftsíu.
4. Stilltur blöndungur.
5. Stillt kveikja.
6. Vél þjöppumæld.
7. Rafgeymasambönd athuguö.
8. Mældur rafgeymir.
9. Mæld hleðsla.
10. Viftureim athuguö.
11. Stillt kúpling.
12. Athugaöur vökvi á höfuödælu.
12. Bremsur athugaðar.
14. Kælikerfi þrýstiprófaö.
15. Mældur frostlögur.
16. Mælt loft í hjólböröum.
17. Smuröar huröalæsingar
lamir.
18. Athuguð öll Ijós.
19. Aöalljós stillt.
20. Rúöuþurrkur athugaöar.
21. Frostvari settur á rúöu-
sprautu.
22. Undirvagn skoöaður.
Pantiö tíma hjá ^
verkstjóra í síma
77756.
Einnig innifaiiö í þessu veröi er loftsía,
platínur, kerti, rúöuvökvi.
Ifiat-umboðiðI
/ Smiójuvegi 4 - Simi 77200/
Samstarf í
Gallerí Langbrók
ÞEIR félagar, Sigurður Örlygsson
og Ómar Skúlason, hafa slegið í
púkk saman og sýna nú sem
stendur 12 myndir í Gallerí Lang-
brók á Torfunni. Þetta er ekki
stórt húsnæði og getur ekki tekið
nema hæfilega stærð af myndum.
Þeir félagar hafa auðsjáanlega
kunnað sér hóf og haldið s'ærð
þessara verka innan vissra tak-
marka, en hér áður voru þeir, ef ég
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
man rétt, nokkuð fyrir stærri
myndverk, og Sigurður átti stórar
myndir á FÍM-sýningunni að
Kjarvalsstöðum í haust er leið.
Það hefur verið stundum, sein-
ustu ár, hræring í þá átt, að
myndlistarmenn legðu í samvinnu
um myndgerð. Ég hef enn sem
komið er ekki komið auga á kosti
við slíkt samstarf, enda er mynd-
list afar persónuleg í eðli sínu. Ég
veit heldur ekki til, að slík sam-
vinna hafi skapað nokkuð nýtt né
sannað tilverurétt sinn á annan
hátt. Þeir myndlistarmenn, sem
farið hafa út í þessa sálma, hafa
einnig verið fljótir að sjá, að þessi
aðferð var eingöngu tilraun, en
ekkert til að byggja á í framtíð-
inni. Það hefur örlað fyrir þessari
starfsemi hér heima að undan-
förnu, og er það vel. Sú sýning,
sem nú stendur í Gallerí Lang-
brók, er önnur í röðinni af þessu
tagi. Sú fyrsta var í Djúpinu, og
aðrir listamenn áttu þar í hlut.
Sýning þeirra félaga, Sigurðar
og Ömars, er mjög skemmtileg og
hressileg í alla staði. Litír eru
hvellir og gegna sínu hlutverki til
hins betra, formið er svolítið
gamalkunnugt og virðist vera orð-
ið til sem þróun í klippmyndum.
Nú veit ég ekki, hver á hvað á
þessari sýningu, en segja mætti
mér, að formið væri Sigurðar og
litir Ómars. Hvað um það, þetta er
þeim báðunt til sóma og okkur
hinum til ununar. Báðir lista-
mennirnir voru búnir að vekja
athygli með verkum sínum áður,
og við báða hafa verið bundnar
vonir. Þessi sýning dregur ekki úr
þeim vonum, en að mínum dómi
hefði verið skemmtilegra að sjá
verk þeirra hvors um sig. Þannig
hefði afrakstur orðið meiri fyrir
báða parta, og ég er ekkert viss
um, að þeir félagar vinni nokkuð
við þetta samstarf. En auðvitað er
hér um einkamál þeirra féiaga að
ræða og kemur hvorki þér né mér
við. Því verður heldur ekki breytt,
að mín persónulega skoðun er sú,
að slík samvinna sé ekki æskileg,
til þess sé iistsköpun of persónu-
leg. Sem sagt, listsmiðjur eru ekki
til hins betra, að mati þess, er
þetta ritar.
Ég óska þeim til hamingju,
Sigurði og Ómari, með þessa iitlu,
en snotru sýningu. Galleríið er
einnig mjög aðlaðandi, og mér
finnst miðbærinn hafa fengið
betri svip við tilkomu þess á hinni
margumtöluðu Torfu.
0-v
m OMIC REIKNIVÉUN ED HELMINGI
FVRHtFERMRMINNl OG TÖLUVEBT ÓDÍRAftl
Nú hefur ný reiknivél bæst í Omic fjöl-
skylduna, - Omic 410 PD. Þessi nýja
Omic vél er lítil og lipur. Hún gengur
fyrir rafhlöðum jafnt sem rafmagni.
Omic 410 PD skilar útkomu bæði á
strimli og með Ijósatölum. Hún vinnur
að öllu leiti verk stærri véla bæði fljótt
og vel.
Viö byggjum upp
framtíö fyrirtækis þíns.
Þegar Omic reiknivélarnar komu fyrst
á markaðinn voru þær sérhannaðar
samkvæmt óskum viðskiptavina Skrif-
stofuvéla h.f. Á örfáum vikum urðu
Omic 312 PD, Omic 210 PD og Omic 210
P, sannkallaðar metsöluvélar.
Komið og kynnist kostum Omic.
Verðið og gæðin tala sínu máli.
%
SRRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Tj£ ~x ~ .á? Hverfisgötu 33
Simi 20560