Morgunblaðið - 11.11.1980, Side 39

Morgunblaðið - 11.11.1980, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 39 þar næst þessa fjölskyldu, þegar María flutti úr föðurhúsum til Bandaríkjanna, ásamt eiginmanni sinum, Timothy David Creighton. Það var falleg brúður, sem ég fylgdi í skrúðhús Háteigskirkju árið 1972, áður en hún gekk á vit framtíðar þeirra beggja, full trúar og vonar á lífið sjálft. Árið 1973 lést Guðmundur faðir Maríu af slysförum. Mun það lýsa best mannkostum hans og gæðum, hve öll börn hændust að honum. Árið 1975 lést faðir Helgu, aldinn öðlingur. Þegar til Bandarikjanna kom, eignaðist hún trygga vinkonu, Judy að nafni, sem svo eignaðist litla stúlku, sem ber nafn Maríu. Judy er nú komin alla þessa leið til að fylgja Maríu síðasta spölinn. Nú eru þær aðeins orðnar eftir tvær á Starhaga, mæðgurnar, ásamt unnusta Ingibjargar, þar sem Jón móðurbróðir Maríu hefur fundið sér lífsförunaut, og hafi þau bæði þökk fyrir alla þá hjálp, sem ég veit að þau hafa veitt Helgu, konu sem á fáa sina líka að mannkostum. Ég bið algóðan Guð um að María fái góða heimkomu fyrir handan móðuna miklu, þar sem ég veit að þjáningum hennar er lokið. Ég bið einnig fyrir styrk eigin- manni, fjölskyldu og vinum henn- ar til handa. Blessuð sé minning Maríu og hafi hún þökk fyrir allt. -Nú letot ég augun aftur, ú, Guð þinn náðar kraftur min veri vðrn i nútt. /E virst mig að þér taka. mér yfir littu vaka, þinn enKÍl, avo ég sofi rótt.“ Matthias Jochumson. Málfríður Haraldsdóttir. „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma, og að deyja hefur sinn tíma; að gróðursetja hefur sinn tíma og að rífa það upp sem gróðursett hefir verið hefur sinn tíma.“ Svo mælti predikarinn. Orð hans eiga vel við á þessari óvæntu og ótímabæru skilnaðarstund, því hér hefur verið upp rifinn sá gróður, sem að var hlúð af dæma- fárri alúð. Á seinni árum, þegar heimilið, fjölskyldan, og þó fyrst og fremst börnin, eiga í vök að verjast í hinu miskunnarlausa kapphlaupi, sem oftar en ekki reynist eftirsókn eftir hégóma og vindi, hefur hug- urinn oft leitað að Starhaga 14, á heimili þar sem þrjár kynslóðir bjuggu saman í fullkominni ein- drægni og aldrei heyrist orði hallað. Þangað þótt börnum og unglingum gott að koma og höfðu af sálarbót. Þannig var andrúms- loftið sem ríkti í föðurhúsum Maju, á heimili þeirra Helgu Eiríksdóttur og Guðmundar Jónssonar. En þar voru líka þau amma María og Eiríkur afi, og Inga litla-systir, ásamt Nonna frænda, sem var í miklu afhaldi hjá systurdætrum sínum fyrir grín og glens. Þar með eru þeir upptaldir, sem heimilisfastir voru, en í endurminningunni bregður þó fyrir sæg af litlum andlitum, rétt eins og í bænum á 17. júní, og börnin gengu þarna inn og út eins og væru þau heima hjá sér. I slíkri fjölskyldu eru orð eins og „firring" og „kynslóðabil" einungis fjarlæg hugtök, enda var hið nána sam- band innan fjölskyldunnar eins- dæmi. En þessi heimilisgæfa var ekki undanþegin lögmáli breytinganna, fremur en annað það, sem jarðn- eskt er. Þó er eins og forlögin hafi gerzt hér full umsvifamikil á tæpum tíu árum. Það er lögmál lífsins að öldungar kveðji að loknum löngum vinnudegi, eins og þau María og Eiríkur, en um lát Guðmundar af slysförum 1973 gegndi öðru máli, og var mægðun- um þungbær raun. En nú er reitt hærra til höggs; fyrirvaralaust, eftir örskamma sjúkrahúsvist fjarri heimahögum, er þrjátíu og sjö ára gömul kona öll. Hver minningin rekur aðra, stundum sár og stundum skemmtileg. Upplag og uppeldi mótuðu þann vin, sem ég hef þekkt tryggastan og falslausastan. Mér er jafnan minnisstætt lítið atvik frá Melaskóladögunum; við vorum nokkrar vinkonur að dunda okkur við að draga málshætti; líkast til fengna úr páskaeggjum. I minn hlut kom hin þarfa ábend- ing: „Svo má góðu venjast að gæðalaust þyki.“ Ég varð þegar gripin sterku samviskubiti, sem beindist að Maju. Það var þó með öllu ástæðulaust, þvi vinátta okkar var gagnkvæm og innileg. Samt fannst mér ég eiga þarna eitthvað dýrmætt, sem ég mæti ekki að verðleikum og mætti ekki taka sem sjálfsögðun hlut. Ég held að þessi litla saga lýsi 'betur en hástemmt lof tilfinningum mínum til Maju, en þó öllu fremur henni sjálfri. Öll framkoma Maju einkenndist af því, hve lítið henni var um það gefið að fara sér að nokkru óðslega. Olli það oft miklu upp- námi okkar kunningjanna á ungl- ingsárunum, þegar allt skyldi ger- ast með forgangshraði, ekki sízt skemmtanalífið. Það brást þó ekki, að vel æfðar og mergjaðar umvöndunarræður duttu mark- lausar niður, þegar Maja birtist á athafnasvæðinu, alsæl og haggað- ist hvergi í ró sinni. En þrátt fyrir ljúfa og hæga framgöngu var Maja föst fyrir þegar hún hafði gert upp hug sinn og órög við að segja meiningu sína á mönnum og málefnum. Þá er ótalinn sá þáttur í fari hennar, sem gerði hana svo skemmtilegan félaga, en það var næmt auga fyrir því skoplega og leikandi létt kímnigáfa, stundum neyðarleg, sem beindist jafnt að henni sjálfri sem öðrum. Undanfarin 14 ár hafa samveru- stundir okkar verið fáar og strjál- ar, enda vík á milli vina þar sem Atlantshafið skilur að. Alltaf var þó jafngaman að hittast og skipt- ast á skoðunum og frásögnum, og það kitlaði í mér þjóðræknispúk- ann, að eftir átta ára dvöl vestra, á stöðum þar sem engan landa var að finna, var ekki að heyra á mæli vinkonu minnar, að hún hefði nokkurn tíma haft veður af ann- arri tungu en móðurmálinu. En það hefur oft verið mér raun að heyra landa mína vera búna að hálftapa málinu eftir eins eða tveggja ára veru erlendis, á slóð- um þar sem ekki varð þverfótað fyrir íslendingum og uppákomum þeirra. Eftir stúdentspróf frá Verzlun- arskólanum 1964 vann Maja við skrifstofustörf og kom sér hvar- vetna vel sökum vandvirkni sinn- ar. Árið 1972 giftist hún Banda- ríkjamanninum David Creighton, og fluttist með honum vestur um haf. Af frásögnum hennar mátti glöggt ráða hve gott hjónaband þeirra var, og þá einnig innilegt samband hennar við tengdafólk sitt. Er það mikill styrkur ætt- ingjum hennar að vita að hún átti góða að þar ytra, svo fjarri sínum. Vinkona hennar bandarísk skírði jafnvel dóttur sína eftir henni, og væri það gæfa þeirrar litlu ef hún líktist nöfnu sinni í sem flestu. Undanfarin tvö ár hafa þó reynst þeim hjónum þung í skauti. Tvisvar hefur David .orðið fyrir alvarlegum slysum, og átti raunar að fara í meiriháttar aðgerð þegar reiðarslagið dundi yfir. Og víst er, að sjúkdómur sá, sem svo skyndi- lega brauzt út, hefur verið lengi að búa um sig, þótt ekki væri kvart- að. Undanfarin sumur voru þau hjón einmitt að búa sér nýtt heimili. En skapanornirnar láta ekki að sér hæða, og við fáum engu ráðið. Þó hefur Maja nú efnt það heit, sem hún gaf frænda sínum nýlega er hann ámálgaði við hana að koma sem fyrst í heimsókn, enda ætti hún farmiða sem væri að verða ógildur. Hún neitaði því ákveðið að koma að svo stöddu, en lofaði hins vegar að vera komin heim fyrir jól. Nú er hún alkomin heim, þó sú heimkoma yrði með öðrum hætti en nokkurn gat órað fyrir. Hún fær hér sína hinztu hvíld í íslenzkri mold, að eigin ósk. Þá ósk lét hún í ljós löngu áður en veikindanna varð vart, en ef til vill hefur hana sjálfa grunað meira en hún lét uppi. Ég sendi að lokum mína dýpstu samúðarkveðjur til ykkar allra, til eiginmannsins og til Helgu, sem bæði eiga við heilsuleysi að stríða í þessari þungu raun, til Ingi- bjargar, sem vakti yfir systur sinni í banalegu hennar erlendis og létti þannig þjáningar hennar, og til Jóns móðurbróður hennar. Ég sendi þær líka fyrir hönd foreldra minna sem þekktu Maju sem barn og ungling og mátu jafnan mikils. Ég veit hve missir ykkar er mikill. Ég veit líka, að þið eigið minningar svo góðar, að fágætt mun vera. Megi það veita ykkur styrk á sorgarstundu. Fari mín elskulega vinkona í friði. Helga Þórarinsdóttir Fyrir þremur vikum barst okkur sú frétt að Maja, okkar kæra skólasystir, lægi alvarlega veik vestur í Bandaríkjunum. Fáum dögum síðar var hún látin. Hún var fædd hér í Reykjavík 9. marz 1943, dóttir hjónanna Helgu Eiríksdóttur og Guðmundar Jóns- sonar, sem lést fyrir aldur fram í marz 1973. Hún ólst upp ásamt Ingibjörgu systur sinni í skjóli foreldra sinna og móðurforeldra, lengst á Starhaga 14. Haustið 1958 hóf hún nám i Verzlunarskóla íslands og lauk stúdentsprófi það- an vorið 1964. Á sex vetrum fór ekki hjá því að bekkjarsystkin kynntust vel og átti það ekki síst við um tvo síðustu veturna þegar 25 nemend- ur héldu áfram í framhaldsdeild. Við komumst ekki hjá að taka eftir af hvilíkri alúð og nákvæmni Maja vann öll sín verk, hvort sem það voru athugasemdir í rissbók eða úrlausnir, sem átti að skila til kennara. Aðrir góðir kostir prýddu hana, prúðmennskan og umhyggjan fyrir öllu, sem lifði, báru hæst. Ekki er að efa að hún hefur lagt alla alúð sína fram við störf sín, en hún vann skrifstofustörf þang- að til hún flutti með manni sínum til hans heimalands. Þau María og Timothy David Creighton gengu í hjónaband hér heima vorið 1972, en fluttu fljótlega til Bandarikj- anna. Maja hafði mikla ánægju af heimilisstörfunum og naut þess að hafa tíma til að sinna manni sínum og heimilinu. Þannig fengu þau að njóta hamingju í nokkur ár. Fyrir u.þ.b. 2 árum varð David fyrir alvarlegu slysi, sem markaði þáttaskil í þeirra lífi. Hann gat ekki tekið upp fyrra starf og hóf iðnnám. Þegar þau höfðu nýlega komið sér fyrir í nýjum húsakynn- um, slasaðist hann aftur alvar- lega. Síðan hefur hann i sex mánuði að mestu verið rúmliggj- andi og átti að gera á honum aðgerð um miðjan október, en þá var farið að bera á veikindum Maju, sem eins og áður segir heltók hana á stuttum tíma. Þegar fréttin barst um veikindi hennar gátum við vart trúað að hún ætti ekki afturkvæmt heim, en hún hafði ráðgert heimkomu fyrir jól til að vinna hér. Heim gat hún ekki komið fyrr en David væri kominn yfir mestu erfiðleikana. Heimkoman varð önnur en móðir hennar og systir áttu von á, en þær hafa sýnt ótrúlegan styrk og trú á þessum sorgarstundum, Helga hér heima, en Ingibjörg við banabeðið í Louisiana. Helga hef- ur miðlað okkur af trú sinni um að lífið og dauðinn séu ekki tilviljanir og hjálpar það í sorginni. Og eitt er víst að Maja hefur ekki átt óloknu verki, hún var vön að ljúka öllu og skila því með alúð. Guð blessi minninguna um hana. Elísabet, Freyja Kristíh, ólöf, Sigurbjörg og Sissú. Leiðrétting I minningargrein um Önnu Ei- ríksdóttur frá Fagurgerði á Sel- fossi urðu dálitil mistök. Það féll niður nafn eins af börnum Önnu, nafn Baldurs mjólkurfræðings, sem er kvæntur Gunndísi Sigurð- ardóttur og búa þau á Selfossi.Þá féll niður lína í málsgrein, en hún á að vera svona: Eins og vænta mátti þráði Anna að afla sér meiri menntunar og lagði hún þá í það þrekvirki, að fara til Reykjavíkur, í einkatíma til tónsnillingsins Róberts Abra- hams ...“ list listiðnaóur Gjafavörurnar frá Rosenthal hafa hlotið óblandna aðdáun allra þeirra sem bera skyn á listfenga hönnun, glæsileik og fágun. ,,Bögglaði bréfpokinn“ eftir lista- manninn Wirkkala er skemmtilegt dæmi um hugkvæmni og frum- leika Rosenthal gjafavaranna. Hinir fágætu plattar Björns Wiin- blad hafa geysilegt söfnunargildi. Þeir eru gullfallegir. Þeir eru gulltryggðir. Suomi postulinsstellið er eitt glæsilegasta stellið frá Rosenthal. Það er gljáð í handavinnu og hluti framleiðslunnar er valinn til skreyt- ingar með gulli og hvítagulli af heimsfrægum listamönnum. Suomi er hannað af Timo Sar- paneva. I studio-line A EINARSSON & FUNK Laii£ave£i <S5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.