Morgunblaðið - 11.11.1980, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
MAÐUR í FRÉTTUNUM:
Michael Foot
Frá Einari K. GuðfinnNMyni,
fréttaritara Mbl. i Bretiandi.
10. nóvember.
MICHAEL Foot verður ekki lýst
i íáum orðum. Maðurinn er
þversðjfn — stjórnmálahuK-
myndir hans virðast olt vera
þversagnakenndar og það virðist
vera þversaunakennt. að þinu-
menn Verkamannaflokksins
velji hartnær sjotuuan mann til
þess að leiða flokk sinn í þvi
mikla ölduróti, sem hann hefur
verið í.
Innviðir Verkamannaflokksins
virðast ekki sterkir um þessar
mundir. Síðasta landsþing flokks-
ins einkenndist af stöðugum erj-
um og róstum. Til að sameina þá
mislitu hjörð sem Verkamanna-
flokkurinn er, virðist þurfa
„himnasendingu" eða krafta-
verkamann.
Kosningar eiga samkvæmt öllu
óbreyttu að verða í Bretlandi eigi
síðar en árið 1984. Það gæti þýtt,
að leiðtogi Verkamannaflokksins
væri kominn á áttræðisaldurinn
þegar hann leiddi flokk sinn í þá
orrahríð, sem kosningar vitanlegu
eru. En Michael Foot er alls
ósmeykur. „Ég hef aldrei verið
hressari,“ sagði hann í sjónvarps-
viðtali fyrir skömmu og það var
enginn vandi að trúa honum.
Spurningar buldu á honum.
Fréttamaðurinn var harðjaxlinn
Brian Walter, fyrrum þingmaður
Verkamannaflokksins og hann
dró svo sannarlega ekki af sér. En
Michael Foot brá hvergi. Sjarm-
inn sem um hann hefur einlægt
leikið var auðsær. Sjónvarps-
áhorfendur fengu að sjá snjallan
ræðumann í ham og óneitanlega
vakti hann aðdáun.
Michael Foot er á marga lund
goðsögn í lifanda lífi. Hann þykir
með afbrigðum snjall ræðumaður.
Þessa hæfileika hefur hann að
sjálfsögðu nýtt til hins ítrasta.
Samt sem áður eiga margir
eriftt með að ímynda sér Foot
sem ráðherra — hvað þá forsætis-
ráðherra. Háttsettur opinber
starfsmaður sagði eitt sinn, að
hann nennti sjaldnast að kynna
sér nein mál til hlítar. Sumir
dæmdu því Foot þannig, að hann
yrði ævilangt í stjórnarandstöðu
og fyrir nokkrum árum virtist sú
spá ætla að rætast.
Michael Foot er í augum
margra, maðurinn sem stjórnaði
andstöðunni gegn hernaðarupp-
byggingunni hér á árum áður.
Hann var óþreytandi í mótmæla-
göngum og var alltaf kjörinn
ræðumaður á útifundum þar sem
hann naut sín til hlítar.
Síðar meir fyllti hann flokk
þeirra, sem voru andsnúnir veru
Bretlands í Efnahagsbandalagi
Evrópu.
Afstaða Foot til þessara mála
bendir ótvírætt til þess, að hér sé
vinstrimaður á ferð. Hann hefur
líka krafist aukinna ríkisútgjalda
og þjóðnýtingur og fyrir vikið
notið lítilla vinsælda meðal
þeirra, sem hægfara eru í Verka-
mannaflokknum.
Það sem gerir afstöðu Foot
þversagnakennda er að í raun og
veru eiga stjórnmálaskoðanir
hans á marga lund sér rætur í
frjálshyggju 19. aldarinnar. Hann
er einstaklingshyggjumaður.
Lífssýn hans mótast oft af
íhaldssamri rómantík og engin
efast um að hann mun ævinlega
hafa þingræði í hávegum. Sumir
stuðningsmanna hans aðhyllast
kenningar 19. aldar heimspek-
ingsins Karls Marxs. Michael
Foot er klénn marxisti.
Þó Michael Foot hafi setið lengi
á þingi hefur hann ekki mikla
reynslu af ríkisstjórnarsetu.
Hann hefur alltaf verið uppreisn-
armaður — rekist illa í flokki og
slíkir menn verða ekki sessur
ráðherrastólana. Árið 1974 gerði
Harold Wilson hann að atvinnu-
málaráðherra. Og ekki leikur vafi
á, að ráðherradómurinn breytti
viðhorfum bardagamannsins
Michaels Foots. Atvinnumála-
ráðherra þarf að vera maður
málamiðlunar. Það var nýtt hlut-
verk fyrir Foot er hann lék vel.
Hann keppti við James Callag-
han um leiðtogastöðuna árið 1976
en tapaði. Hann gekk þó strax til
liðs við hinn nýkjörna leiðtoga og
studdi hann með ráðum og dáð.
Verkamannaflokkurinn hafði
fengið meirihluta í brezka þing-
inu. Hann misstu þeir þegar íeið á
kjö'rtímabilið. Þá tók við timabil
málamiðlunar og samkomulags
við Frjálslynda flokkinn, sem
varði stjórnina vantrausti. í þeim
erfiða leik tók Foot þátt af
einlægni og alvöru. Hann trúði
því, að Verkamannaflokkurinn
einn gæti unnið brezku þjóðinni
gagn. Því væri um að gera, að
halda honum við völd. Hinn gam-
alreyndi vinstrimaður hafði það
hlutverk með höndum, að róa og
sætta órólega vinstriarminn í
Verkamannaflokknum. Þetta var
nýstárlegt hlutverk fyrir höfuð-
paur vinstrimennskunnar en hon-
um tókst það vel.
Það er enginn vafi á, að það hve
honum tókst vel við sáttasemjara-
hlutverkið færði honum sigur nú í
leiðtogakosningunum. Vinstri-
mennirnir stóðu einhuga að baki
honum vegna pólitískrar fortíðar
hans. Sumir hinna hægfara
freistuðust til að kjósa hann
vegna þess hve honum gekk vel að
sætta og sameina hin ólíku öfl.
Foot nýtur líka stuðnings í
kjördæmisráðum Verkamanna-
flokksins. Verkalýðsleiðtogar
flykktust um hann. Þessir tveir
hópar þrýstu á þingmenn um að
kjósa Foot og hafa haft árangur
sem erfiði.
Þó Michael Foot hafi löngum
verið eftirlæti vinstrimanna fer
því fjarri, að allir unni honum
sigrinum. Anthony Wedgewood
Benn, vellauðugur róttæklingur af
aðalsættum ætlaði sér stóran
hlut. Foot verður þröskuldur á
framaferli hans.
Hægrimenn í Verkamanna-
flokknum eru allt annað en
ánægðir. Robert McKenzie,
stjórnmálaprófessor við London
Scholl og Economics sagði í sjón-
varpsviðtali í kvöld, að sigur
Foots gerði það líklegt að margir
þekktir hægrimenn neituðu að
bjóða sig fram undir merki
Verkamannaflokksins. Að
minnsta kosti ef einhliða afvopn-
un og úrsögn Breta úr EBE verður
í stefnuskrá flokksins.
Það er því alls ekki útséð um að
Michael Foot takist vel upp i
sáttasemjarahlutverkinu að þessu
sinni. Til þess var hann þó kosinn
og það verður prófsteinn hins
nýkjörna leiðtoga.
Reagan hvílir sig frá
skarkala umheimsins
Santa Barbara. Kaliforníu.
10. nóvrmber. — AP.
RONALD Reagan, hinn nýkjörni
forseti Bandaríkjanna. hefur tekið
sér 5 daga hvíld og hyggst alveg
draga sig út úr skarkala umheims-
ins þann tíma. Ilann fór til hú-
garðs síns. skammt frá Santa
Barhara í gær og ekki einu sinni
„nanir samstarfsmenn" hans fá að
ónáða hann. Hann hyggst ekki
koma út úr einangrun sinni fyrr
en á föstudag. Þessa fimm daga
hyggst Ronald Reagan riða út og
njóta hvíldar. „Eftirlætistóm-
stundaiðja hans er að ríða út.
höggva við og girða." sagði Lyn
Nofziger, blaðafulltrúi Reagans,
við fréttamenn. „Ég á von á, að
einmitt þetta muni Reagan gera."
bætti hann við.
Ronald Reagan mætti þó til
guðsþjónustu í Los Angeles í gær.
Hann ræddi þá stuttlega við
fréttamenn. „Meginmarkmið mitt
nú er myndun stjórnar, sem getur
tekið umyrðalaust við,“ sagði hann
m.a. en formlega tekur hann við
embætti þann 20. janúar.
Hann var spurður hvort hann
ætti von á erfiðleikum við að
sameina þjóðina eftir hina löngu og
ströngu kosningabaráttu undanfar-
inna mánuða. „Þjóðin stendur þeg-
ar einhuga að baki mér,“ svaraði
Reagan. Enn er alveg á huldu
hverjir verða helstu ráðgjafar hans
og hverjir skipa ráðherraembætti.
Einn helsti aðstoðarmaður hans
sagði að hann myndi líklega ekki
hitta neina erlenda þjóðarleiðtoga
að máli þar til' hann tæki við
embætti og að hann myndi láta
stjórn Jimmy Carters alfarið um að
leysa aðsteðjandi vandamál erlend-
is — gíslamálið fyrst og fremst og
einnig deiluna fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Þá var haft eftir aðstoðar-
manni hans, Edwin Meese, að staða
öryggismálaráðgjafa yrði ekki eins
valdamikið embætti og verið hefði í
stjórn Carters og Nixons. Meese
vildi ekkert tjá sig um helstu
ráðherraembætti. Hann var sér-
staklega spurður hvort Henry Kiss-
inger yrði í stjórn Reagans. Hann
vildi ekkert tjá sig en sagði, að
líklega myndi Reagan útnefna
„einn eða tvo“ demókrata í stjórn
sína. Orðrómur hefur verið uppi
um, að Henry Jackson, demókrati,
verði í stjórn Reagans og hefur
hann einkum verið orðaður við
embætti landvarnaráðherra og
utanríkisráðherra.
Meese sagði, að Brent Scowcroft,
hershöfðingi og náinn ráðgjafi í
utanríkismálum, myndi fara í dag
(mánudag) til Moskvu til að ræða
við sovéska embættismenn. Hann
sagði, að ferð þessi hefði verið
ákveðin löngu áður en Scowcroft
hefði hafið samvinnu við Reagan.
Haft var eftir Scowcroft í banda-
rísku blaði: „Ég get gefið þeim
nokkuð raunsanna mynd af skoðun-
um Reagans.“
Búist er við, að Reagan muni
auka verulega útgjöld til varnar-
mála, jafnvel um allt að 20 millj-
örðum dollara. Ekki er búist við
mikiili andstöðu í þinginu, því
þingið samþykkti 5 milljarða aukn-
ingu til varnarmála umfram beiðni
frá Jimmy Carter. } kosninga-
slagnum boðaði Reagan launa-
hækkun til hermanna auk margvís-
legra aðgerða til að styrkja varn-
armátt Bandaríkjanna.
Nikolai Lunkov, fráfarandi sendi-
herra Sovétríkjanna í Bretlandi,
sagði í dag við fréttamenn, að án
staðfestingar Bandaríkjanna á
SALT 2 samkomulaginu, verði ekki
hægt að halda áfram samningum
um afvopnun.
Charles Kirbo, einn helsti ráð-
gjafi Jimmy Carters og náinn vinur
hans, sagði í dag við fréttamenn að
að hans mati hefði baráttan við
Edward Kennedy um útnefningu
Demókrataflokksins, verið ein
helsta orsök falls forsetans.
Kosningarnar í Færeyjum:
Mestar líkur á
samsteypustjórn
borgaraflokkanna
Frá Jógvani Arge, fréttaritara Mbl. í
Færeyjum 10. nóv.
í KOSNINGUNUM til lögþings
Færeyja sl. laugardag bættu
Fólkaflokkurinn, Sjálvstýris-
flokkurinn og Framfara- og
fiskvinnsluflokkurinn við sig at-
kvæðum en Sambandsflokkurinn.
Javnaðarflokkurinn og Tjóðveld-
isflokkurinn misstu atkvæði. Að-
eins Sjálvstýrisílokkurinn bætti
við sig þingmanni en Javnaðar-
flokkurinn tapaði þingmanni.
Þingmenn á hinu nýja lögþingi
verða 32 og skiptast þannig: Sam-
bandsflokkurinn fær 8 þingmenn
og hafði 8 áður, Javnaðarflokkur-
inn fær 7 en hafði 8 áður, Tjóðveld-
isflokkurinn fær 6 og hafði 6,
Fólkaflokkurinn fær 6 og hafði 6,
Sjálvstýrisflokkurinn fær 3 en
hafði 2 og Framfara- og fisk-
vinnsluflokkurinn fær 2 og hafði 2.
Kosningaþátttakan var 85,9% og
hefur hún aldrei verið meiri. 23,8%
kjósenda greiddu Sambandsflokkn-
um atkvæði sitt (+2,4%), 21,7%
Javnaðarflokknum (+0,7%), 19%
Tjóðveldisflokknum (+1,3%), 18,9%
Fólkaflokknum (+1,0%) 8,4%
Sjálvstýrisflokknum (+1,2%) og
einnig 8,4% Framfara og fisk-
vinnsluflokknum (+2,1%).
Boðað var til kosninganna vegna
óeiningar stjórnarflokkanna
þriggja, Tjóðveldisflokksins, Fólka-
flokksins og Javnaðarflokksins.
Ekki eru líkur til þess að þessir
þrír flokkar myndi stjórn að nýju.
Pauli Elleífsen
Búist er við að Sambandsflokk-
urinn hafi forgöngu um stjórnar-
myndunarviðræður en ekki liggur
ljóst fyrir hvaða flokka Sambands-
flokkurinn mun ræða við.
Fprmaður Javnaðarflokksins,
Atli Dam, segir að sinn flokkur
muni ekki taka þátt í stjórnar-
myndunarviðræðum, að minnsta
kosti ekki fyrst um sinn. Segir
hann að flokkurinn hafi misst fylgi
vegna þess að hann hafi setið í
landsstjórnum í 12 ár í röð.
Mestir möguleikar eru taldir á að
borgaraflokkarnir, Sambands-
flokkurinn, Fólkaflokkurinn og
Sjálvstýrisflokkurinn, myndi
stjórn en samtals eiga þeir 17
menn á þingi af 32.
9. lestarslysið
í Svíþjóð í ár
LinköpinK. 10. nóvember. — AP.
Járnbrautarslys varð
skammt írá járnbrautar-
stöðinni í Linköping í Sví-
þjóð í morgun. Lestin írá
Rainbow
Warrior
á leið til
Amsterdam
Lundúnum. 10. nóvember. — AP.
SKIP Greenpeace-samtak-
anna, Rainhow Warrior,
stefndi til Amsterdam i dag.
Rainbow Warrior komst und-
an um helgina. en skipið hafði
legið við festar í hafnarborg-
inni E1 Ferrol á Spáni í meira
en fjóra mánuði. Spænsk yfir-
völd tóku skipið þegar skip-
vcrjar reyndu að koma í veg
fyrir hvalveiðar spænskra
skipa.
Peter Wilkinson, einn af
stjórnarmönnum Greenpeace-
samtakanna sagði við frétta-
menn, að Rainbow Warrior
hefði komist undan þrátt fyrir
að spænsk herskip hafi veitt
skipinu eftirför. Yfirvöld á
Spáni höfðu fjarlægt ýmsa mik-
ilvæga vélarhluta úr vél skips-
ins til að koma í veg fyrir að
skipið kæmist undan. Þrátt
fyrir þetta tókst skipverjum að
gangsetja vélina og „læðast" út
úr höfninni í EI Ferrol. Sjö
skipverjar eru um borð. Þrátt
fyrir eltingarleik spænskra
herskipa tókst Rainbow Warr-
ior að komast út úr spænskri
landhelgi og þannig undan.
„Það var skylda okkar að frelsa
skipið, því mörg ár geta liðið
þar til spænskir dómstólar
komast að niðurstöðu," sagði
talsmaður Greenpeace-samtak-
anna í einkaskeyti til Morgun-
blaðsins.
Stokkhólmi til Málmeyjar
fór þá útaf sporinu á 120
kílómetra hraða. Einn beið
bana og að minnsta kosti
20 manns slösuðust. Orsök
slyssins liggur ljós fyrir:
Lestarstjórinn sofnaði
undir stýri.
Slysið við Linköping er hið
níunda í röðinni í Svíþjóð í ár. Um
borð í lestinni voru 120 farþegar.
„Ég vaknaði og áttaði mig þá
þegar, að lestin var á 120 kíló-
metra hraða en hámarkshraði var
60 kílómetrar. Ég sá að járnbraut-
arlínan sveigði og áttaði mig þá
þegar á því að slys var óumflýjan-
legt,“ sagði lestarstjórinn. Lestin
fór af teinunum og tveir vagnanna
féllu niður á hraðbraut fyrir
neðan. Lestarstjórinn hafði í sam-
fellt 32 ár stjórnað lestum og
aldrei orðið á í messunni.
Niunda járnbrautarslysið í Sví-
þjóð á þessu ári. Loftmynd af
slysstaðnum. Lestarstjórinn. sem
vinnur einn, sofnaði og ók um
miðborg Linköping á 120 km
hraða i stað 00 km á klst.