Morgunblaðið - 11.11.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
47
Jarðskjálftar
í Kaliforníu
Kureka. Kaliforníu. 10. nóv. — AP
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist 7
stÍK á richter-kvarða, skók 500
milna svæði á Kyrrahafsstrond
Kaliforniu snemma sl. lauKar
daK. OIli skjálftinn talsveröum
skemmdum og að minnsta kosti 5
manns urðu fyrir meiðslum, að
sðgn yfirvalda.
Skjálftinn, sem átti upptök sín
320 kílómetra norður af San
Francisco, er sá mesti á þessu
svæði síðan í janúar 1923 og sá
mesti á meginlandi Bandaríkj-
anna síðan jarðskjálftinn varð í E1
Centro á sl. ári.
Jarðvísindamenn í Bandaríkj-
unum segja að jarðskjálftinn á
laugardaginn sé „hluti af því afli
sem er að skipta Kaliforníu í
tvennt".
Hönecker
í Austurríki
Vinarborg. 10. nóvrmbfr. — AP.
ERICH Hönecker, leiðtogi a-þýzka
kommúnistaflokksins, kom í dag í 4
daga opinbera heimsókn til Austur-
ríkis. Ferð hans þangað er fyrsta
ferð hans til vestræns ríkis. Búist
er við, að Bruno Kreisky, kanslari
Austurríkis, muni kvarta yfir
brottrekstri tveggja austurrískra
blaðamanna frá A-Þýzkalandi en
málgagn a-þýzku stjórnarinnar
ásakaði þá um njósnir í þágu
V-Þjóðverja.
Lafði Lucan
byrlað eitur?
I.undúnum. 10. nóvember. — AP.
LAFÐI Lucan, einglnkona Lucan
lávarðar sem grunaður er um
morð á barnfóstru er starfaði hjá
þeim hjónum, hefur sagt aö til-
raun hafi verið gerð til að byrla
henni eitur. Lucan lávarður hvarf
fyrir sex árum eftir að lik barn-
fóstru þeirra hjóna, Söndru Rivett,
fannst, illa lemstrað. Lögreglan
hefur lýst eftir lávarðinum. Talið
er, að hann hafi átt vingott við
barnfóstruna. Ekki er vitað hvar
hann er nú niðurkominn.
„Ég vona, að takist að sanna að
tilraun hafi verið gerð til að byrla
mér eitur," sagði lafði Lucan en
lögreglan hefur tekið sýnishorn af
hári hennar, og nöglum til rann-
sóknar. Lafði Lucan hefur áður
kvartað undan því, að tilraun hafi
verið gerð til að myrða hana. Hún
sagði, að tilraun hefði verið gerð til
að láta svo líta út, sem hún væri
geðveik. Lafði Lucan er 42 ára
ERLENT
Mynd frá Voyager I. tekin 3. nóvember — reikistjarnan ásamt
hring sinum og tvö tungl hennar sjást.
Voyager hefur
fundið 15. tungl
Satúrnusar
Pasadena. Kaliforniu. 10. október AP.
BANDARÍSKA geimfarið Voya-
ger 1. fann á föstudag 15. tungl
Satúrnusar. Þetta tungl Satúrn-
usar er litið og það fer hringinn
umhverfis reikistjörnuna á lið-
lega 14 klukkustundum. Hið ný-
fundna tungl er hið þriðja i
röðinni, sem Voyager 1. finnur. í
október siðastliðnum var skýrt
frá fundi tveggja tungla á braut
umhverfis Satúrnus.
Hið ómannaða geimfar, Voya-
ger 1., hefur nú farið 1,6 milljarða
kílómetra út í geiminn. Á mið-
vikudag verður geimfarið næst
Satúrnus, — í 128 þúsund kíló-
metra fjarlægð frá reikistjörn-
unni. Geimfarið fer með 56 þús-
und kílómetra hraða á klukku-
stund. Myndir berast stöðugt frá
Voyager 1. Þær eru ákaflega
litríkar og eru vísindamenn í
sjöunda himni með gæði þeirra.
Vísindamenn segja, að margt sé
svipað í andrúmslofti Satúrnusar
og Júpiters, er Voyager 1. fór
einnig framhjá.
Egglaga skýjamyndanir hafa
komið í ljós á Satúrnus. Vísinda-
menn telja að þarna sé á ferðinni
gasuppstreymi — líkast öflugum
hvirfilbyljum og hafi þetta upp-
streymi varað í nokkra mánuði.
Þá eru skýrari og nákvæmari
myndir farnar að berast af
hringnum umhverfis reikistjörn-
una. Þá rannsaka vísindamenn af
ákafa æ betri myndir af „rauða
blettinum" sem geimfarið fann.
Þessum rauða bletti svipar um
margt hinum fræga rauða bletti á
Júpiter nema hvað hann er mun
minni. Satúrnus er 800 sinnum
stærri en jörðin.
Islendingar á
fund Nixons
MIKII) hóf var haldið í sovézka
sendiráðinu í Washington 6. nóv.
i tilefni af afmadi rússnesku
byltingarinnar 7. nóvember.
Richard Nixon var meðal gesta
og beindist mest athygli að hon-
um allt kvöldið. Fólk stóð i biðröð
til að heilsa forsetanum fyrrver-
andi og scgja við hann nokkur
orð. í frásögn Washington Post
af hófinu og orðaskiptum Nixons
við fólk segir meðal annars:
„Og við Spike Hanssen ritstjóra,
sem er af íslenzku bergi brotinn,
sagði Nixon: „Sjö ungir menn úr
íslenzka Sjálfstæðisflokknum
heimsóttu mig einmitt í morgun.
Þeir skafa sko ekkert utan af sinni
pólitík.""
Þettageröist 11. nóv.
1500 — Granada-sáttmáli
Frakka og Spánverja um skipt-
ingu Ítalíu.
1606 — Friðarsamningur Tyrkja
og Austurrikismanna undirritað-
ur í Zeitva-Torok.
1647 — Karl I af Englandi flýr
frá hernum, sem hafði hann í
haldí.
1673 — Jóhann Sobieski konung-
ur Póllands sigrar Tyrki við
Korzim, Póllandi.
1778 — Bretar taka St. Lucia,
Vestur-Indíum, af Frökkum.
1793 — Klúbbi Jakobíta lokað í
París.
1836 — Chile segir ríkjasam-
bandi Perú-Bólivíu stríð á hend-
ur.
1895 — Brezka Bechuanaland
innlimað í Höfðanýlenduna,
S-Afríku.
1918 — Bandamenn og Þjóðverj-j
ar undirrita vopnahlé (Vopna-
hlésdagurinn).
1938 — Ismet Inönú kosinn
forseti Tyrkja við lát Atatúrks.
1942 — Eisenhower hershöfðingi
viðurkennir Darlang flotafor-
ingja, þjóðhöfðingja Frakka í
Norður-Áfríku.
1965 — Ian Smith lýsir einhliða
yfir sjálfstæði Rhódesíu.
1971 — Öldungadeild
Bandaríkjaþings staðfestir sam-
ning um að skila Japönum Okin-
awa.
1972 — Bandaríkjamenn af-
henda Suður-Víetnömum her-
stöðina í Long Binh.
1973 — Egyptar og ísraelsmenn
undirrita vopnahlé.
Afmæli. L.A. de Bougainville,
franskur sæfari (1729—1811) —
Fydor Dostoyevsky, rússneskur
skáldsagnahöfundur (1821—1881)
— Sören Kirkegaard, danskur
heimspekingur (1813—1856) —
Gústaf VI Adolf Svíakonungur
(1882—1973) — Mamie Eisen-
hower, bandarísk forsetafrú
(1896-1979).
Andlát. 1945 Jerome Kern,
tónskáld.
Innlcnt. 1090 d. Hallur Þórar-
insson í Haukadal — 1273 Erfða-
bálkur Járnsíðu samþykktur —
1812 d. Ólafur Stefánsson stift-
amtmaður — 1831 f. Wiliard
Fiske — 1835 f. Matthías Joch-
umson — 1922 Eldgos í Öskju —
1932 Magnús Guðmundsson
dómsmálaráðherra fær lausn —
1949 d. Sigurður Guðmundsson
skólameistari — 1952 Ásgrímur
Jónsson listmálari arfleiðir rtkið
að eignum sínum — 1%2 „Hart í
bak“ frumsýnt — 1%8 Gengis-
felling (35,2%).
Orð dagsins. Miklir atburðir
þurfa ekki endilega að eiga sér
miklar orsakir — A.J.P.Taylor,
brezkur sagnfræðingur (1906—
).
„Fjórmenningaklíkan“
ákærð formlega
Peking. 10. nóv. — AP
„Fjórmenningaklíkan" svokall-
aða i Kína fékk í dag í hendur
formlegt áka'ruskjal. að sögn kín-
versku fréttastofunnar. Xinhua.
Samkvæmt kinverskum logum
mega réttarhöld hef jast sjö dögum
eftir að ákærðir hafa fengið i
hendur ákæruskjal.
„Fjórmenningaklíkan" og sex
aðrir eru ákærð fyrir samsæri um
að myrða Mao Tse-tung, formann
kínverska kommúnistaflokksins,
árið 1971.
í „fjórmenningaklíkunni" eru
fyrrum háttsettir stjórnmálamenn
í Kína. Hafa þeir verið sakaðir um
allt mögulegt, allt frá því að leggja
efnahag landsins í rúst til þess að
spilla æsku þess.
Búist er við að allt að 800 manns
verði við réttarhöldin en þau verða
lokuð erlendum fréttamönnum.
Líklegt þykir að rétturinn muni
lýsa yfir sekt hinna ákærðu og
ákveða refsingu. Framkvæmda-
stjóri allsherjarnefndar Alþýðu-
þingsins, Zeng Tao, hefur sagt að
krafist verði dauðadóms yfir fjór-
menningunum en formaður komm-
únistaflokksins, Hua Guo-feng, hef-
ur sagt að þau verði ekki líflátin.
□ Mikiö efnaúrval
□ Klæöskeraþjónusta
□ Hönnun Colin Porter
Sími frá skiptiborði 85055
Austur.NL’ t?ti