Morgunblaðið - 18.11.1980, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
Páfinn ræðir við
leiðtoga gyðinga
Fulda. \-I'ýzkalandi. 17. nóvembrr. AP.
JÓIIANNES Páll páfi II færði í
daK KyðinKum. múhamcOstrúar
múnnum. mútma-lcndum ok þjóúar-
brotum kveðjur sínar i daií og
hvatti til jafnréttis allra manna í
ferð sinni um Vestur-Þýzkaiand.
Þúsundir útlendinKa hylltu páfa.
þeKar hann talaði til þeirra á
dómkirkjutorKÍnu í horKÍnni
Mainz vió Rín. Ilann ávarpaói þá á
þý/.ku, ítúlsku. spa'nsku. slóvensku
ok króatísku.
Gallar á
Lada-bílum
liondon, 17. nóv. AP.
UM 60.000 Lada-hílar í Bretlandi
verða innkallaóir ve^na Kalla á
stýrishúnaói.
Eigendum bíla af þessari gerð,
sem voru smíðaðir á árunum 1977
til 1980, verða send bréf, þar sem
þeir verða beðnir að koma með bíla
sína til ókeypis skoðunar, þar sem
reynt verður að laga þennan galla.
í ljós hefur komið vanstilling
milli stýrisstangarinnar og stýris-
vélarinnar, en aðeins í bílum, sem
eru með stýrið hægra megin.
Páfi talaði um „dimmt baksvið"
ofsókna og tilrauna til að útrýma
gyðingum þegar hann hitti gyð-
ingaleiðtoga að máli. Síðan fór hann
með þyrlu til háskólabæjarins
Fulda til fundar með 65 biskupum
Vestur-Þýzkalands.
I viðræðunum við gyðinga í Mainz
lét páfi einnig í ljós von um frið í
Miðausturlöndum. Hann sagði við
24 manna sendinefnd miðstjórnar
gyðinga í Þýzkalandi: „Megi öll
þjóðin senn sættast í Jerúsalem og
njóta blessunar Abrahams."
Páfi sagði: „Saklaus fórnarlömb í
Þýzkalandi og öðrum löndum eru
hörmuleg sönnun um, hvað misrétti
og virðingarleysi fyrir manninum
getur leitt af sér, einkum þegar það
stjórnast af rangsnúnum kenning-
um og hugmyndum um mismun á
kynþáttum."
Páfi benti í gær á baráttuna í
Póllandi og hvatti þjóðir heims til
að virða mannréttindi og trúfrelsi i
samræmi við Helsinki-sáttmálann,
sem nú er til umræðu á ráðstefnu
austurs og vesturs í Madrid.
Hann fordæmdi heimsvalda-
stefnu, árásarstefnu og nýlendu-
stefnu, minntist hinna „grimmdar-
legu hryðjuverka" í heimsstyrjöld-
inni og sagði: „Þetta má aldrei
gerast aftur."
Matos hótar að
steypa Castro
Miami. 17. nóvemhor. AP.
IIUBER Matos. fangi Fidel Castr-
os í 20 ár eftir að hann var
yfirmaður byltingarhers hans.
segir. að hann stefni að því að
steypa manninum. sem hann
hjálpaði að komast til valda 1959.
„Eg hef aldrei verið í vafa um,
að við munum snúa aftur til
frjálsrar Kúbu.“ sagði Matos í
viðtali í tilefni af því, að eitt ár er
síðan honum var sleppt úr kúb-
önsku fangelsi.
„Ég er sannfærður um, að við
munum snúa aftur," sagði hann.
„Löng og þungbær fangavist kennir
mönnum að gefast aldrei upp.“
Matos hefur komið á laggirnar
samtökum, sem hann kallar
„Frjáls og lýðræðisleg Kúba“, síðan
hann kom til Miami fyrir einu ári
og þúsundir bandarískra Kúbana
fögnuðu honum.
„Þetta er ekki stjórnmálaflokkur
eða útlagastjórn, heldur samtök
baráttumanna, sem helga sig mál-
stað frjálsrar Kúbu,“ sagði hann.
Matos telur stöðu sína hafa
styrkzt við komu 125.000 Kúbu-
manna til Bandaríkjanna, hreinsun
í stjórn Castros fyrr í ár, verkfall
Pólverja og kosningarnar á Jama-
ica, þar sem andstæðingar Castros
sigruðu.
Bob Marley sagður
með krabbamein
Lundúnum. 17. nóvrmhor. — AP.
BOB Marley, konungur Raggae-
tónlistarinnar er sagður þjást af
krahhameini. Það var Lundúna-
hlaðið New Standard Evening sem
skýrði frá þessu í dag. Rokkskríh-
ent hlaðsins, John Blake. sagði að
Marley hefði veikst alvarlega eftir
tónleika í New York og að læknar
hefðu komist að því. að Mariey
þjáðist af krabhameini.
Bob Marley er 34 ára gamall
Jamaicabúi. Talsmaður Island re-
cords hljómplötufyrirtækisins, sem
hefur gefið út plötur Marleys
sagðist ekki geta staðfest frétt New
Evening Standard en hins vegar
sagðist hann hafa heyrt orðróm
þess efnis, að Marley væri með
krabbamein. „Við vitum að Marley
hefur verið sjúkur en við töldum,
að það hefði verið vegna of mikillar
vinnu,“ sagði talsmaður fyrirtækis-
ins.
Þetta gerðist
1626 — Péturskirkja í Róm vígð.
1666 — Frakkar taka Antuiga,
Vestur-Indíum, af Bretum — Skot-
ar sigraðir í orrustunni á Pent-
landhæöum.
1830 — Þjóðþing í Belgíu lýsir yfir
sjálfstæði landsins.
1903 — Bandaríkin og Panama
semja um réttindi Bandaríkja-
manna til að leggja Panamaskurð.
1905 — Stórþingið kýs Karl Dana-
prins (Hákon VII) konung Noregs
— Japanir gera Kóreu að vernd-
arríki.
1918 — Lettland verður sjálfstætt
lýðveldi.
1935 — Gripið til efnahagslegra
refsiaðgerða gegn ítölum.
1936 — Þjóðverjar og ítaiir viður-
kenna stjórn Francos.
1941 — Bretar hefja sókn í vestur-
eyðimörkinni í N-Afríku.
1970 — Kínverjar skipa sendi-
herra í Moskvu eftir fjögurra ára
hlé — Vestur-Þjóðverjar og Pól-
verjar taka upp stjórnmálasam-
band og hætta 31 árs fjandskap.
1976 — 27 teknir af lífi í Eþíópíu
fyrir meint samsæri gegn herfor-
ingjastjórn landsins.
1978 — „Jonestown“-fjöldamorðin
í Guyana (900 manns úr sértrúar-
söfnuði fremja sjálfsmorð og
bandarískur þingmaður myrtur
ásamt fjórum öðrum.
1979 — Námsmennirnir í banda-
ríska sendiráðinu í Teheran ákveða
að sleppa átta blökkumönnum og
fimm konum úr gíslingu.
Afmæii. Sir W.S. Gilbert breskur
leikritahöfundur (1836—1911) —
Ignaz Jan Paderewski, pólskur
píanóleikari og stjórnmálaleiötogi
(1860-1941) - Amelita Calli-
Curci, ítölsk sópransöngkona
(1890—1963) — William Hogarth,
enskur myndlistamaður (1697—
1764).
Andíát. 1831 Karl von Clausewitz,
Jóhannes Páll páfi annar kom i heimsókn til V-Þýzkalands á föstudag og hefur síðan ferðast vitt og breitt
um landið. Hér sést hann umgirtur sveit sérþjálfaðra lögreglumanna áður en hann stígur um borð í þyrlu
til að ferðast milli staða. Símamynd AP.
Verkamöramm heitið
umbótum í Rúmeníu
liúkarest. 17. nóvember. AP.
ÓLGA verkamanna i Póllandi
virðist hafa ieitt til þess, að samin
hefur verið löng álvktun, sem
vcrður lögð fyrir næsta þing
rúmenska verkalýðssamhandsins.
Þar er heitið „auknu lýðraíði
verkalýðsstéttarinnar“ og auknu
fulltrúaiýðræði í verkalýðshreyf-
ingunni.
Þingið fer fram í byrjun april
nk. og ályktunina samdi mið-
stjórn verkalýðssambandsins.
samkvæmt frétt fréttastofunnar
Agerpres. Ekki var minnzt á
athurðina i Póllandi, en skjalið
virðist grcinilega eiga að friða
rúmenska verkamenn og koma i
veg fyrir að sams konar ástand
skapist í Rúmeníu ok Póllandi.
Auk loforðalista er í skjalinu
gagnrýni á verkalýðsfélögin fyrir
Skógareldar
í Kaliforníu
Frá SÍKurjóni Sijthvatssyni. frétta-
ritara Mhl. i Ixis Angrlrs. 17. nóvrmhrr.
MIKLIR skógareldar geisa nú í
nágrenni Los Angeles i Kaliforníu.
Ék sé eldana Kreinilega þaðan sem
ég bý í Down Town, Los Angclcs.
Það er einkum á þremur svæðum
sem skógareldarnir geisa. Eldarnir
kviknuðu eftir mikia þurrka og í
kjolfar þeirra kom mikið rok og
varð vindhraði yfir 100 kílómetra á
klukkustund.
Næst geisa eldarnir á Verdough-
hæðum en þeir kviknuðu á laugar-
dag og hafa eyðilagt um 5 þúsund
ekrur. Íbúar í Bradbury, um 10
þúsund manns, var ráðlagt að yfir-
gefa heimili sín. Þá geisa eldar í
Orange-héraði. Þar eru eldarnir
mestir — við Elsinor-vatn. Þar hafa
brunnið yfir 40 þúsund ekrur og
þúsund manns vinna við slökkvi-
starfið. Tjónið hefur þó orðið hvað
mest við San Gabriel-gil. Þar hafa
yfir 100 hús orðið eldinum að bráð og
fólk hefur verið flutt á brott. Vind-
inn hefur lægt nokkuð en veðurfræð-
ingar spá vaxandi vindhæð á ný.
Éldar loguðu skammt frá heimili
Ronald Reagans í Palisades en
yfirvöld segja, að tekist hafi að ná
valdi á eldinum og að heimili Ronald
Reagans hafi aldrei verið í hættu.
að hafa ekki haft nánara samband
við alþýðuna á liðnum árum og
sýna of lítinn áhuga á efnahags- og
félagsmálum.
Stjórn verkalýðssambandsins
segir, að gerðum samningum hafi
ekki alitaf verið nógu vel framfylgt
á sumum sviðum. Þess séu dæmi,
að ekki hafi verið staðið við
samþykktir gerðar á almennum
fundum verkafólks. Verkalýðsfélög
hafi ekki alltaf staðið við þá skyldu
sína að verja staðfastlega lagaleg-
an rétt og réttlætanlega hagsmuni
verkafólks.
í skjalinu segir, að verkalýðsfé-
lög hafi þegar möguieika á beinni
þátttöku í ákvörðunum á öllum
sviðum efnahagsmála og félags-
mála, en gefið er í skyn, að þessi
réttindi verði aukin. Sagt er, að
verkalýðsfélög fái ekki aðeins áhrif
á stefnuna í launa- og verkalýðs-
málum og í þá átt að bæta
vinnuskilyrði, heldur verði að fá
samþykkt þeirra áður en ráðizt
verði í nýjar framkvæmdir.
Þar sem vinnuaðstaðan er
heiisuspiliandi geta verkalýðsfélög
farið fram á að vinnu verði hætt
þar til úr hefur verið bætt. Þó var
ekki tekið fram, að starfsmenn geti
lagt niður vinnu til að knýja fram
launahækkanir.
herfræðingur — 1922 Marcel
Proust, rithöfundur.
Innlent. 1892 d. Hannes stiptamt-
maður Finsen — 1894 Sjómanna-
félagið Báran stofnað — 1918 d.
Guðm. Magnússon skáld. — 1918
d. dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði
— 1920 d. Matthías Jochumson —
1921 Bardaginn í Suðurgötu milli
fyigismanna og andstæðinga Ólafs
Friðrikssonar — 1940 ASI endur-
skipuiagt — 1941 Annað ráðuneyti
Hermanns Jónassonar skipað —
1969 „Ægir bjargar 20.000 tonna
olíuskipi við Eldey — 1886 f. Páll
Zópóníasarson alþm. — 1909 f.
Svavar Guðnason listmálari.
Orð dagsins. Ég hef aldrei séð
asna, sem tala eins og menn, en ég
hef hitt marga menn, sem tala eins
og asnar — Heinrich Heine, þýzkt
skáld (1797-1856).
Falleg söngkona
huggaði Churchill
London. 15. nóv. — AP.
FALLEG, bandarísk söngkona. Fidythe Baker, hughreysti Winston
Churchill á hinum erfiðu dögum síðari heimsstyrjaldarinnar og
þau urðu mjög „einlægir og nánir vinir“, sagði læknirinn Alfred
Alexander i viðtali við BBC um heigina.
Churchill kynntist ungfrú Baker, sem hafði verið óhamingju-
samlega gift auðugum bankastjóra. þegar hún kom til Englands í
tónleikaferð. Alexandcr læknir. sem sjálfur var vinur Churchills.
segir að ungfrú Baker hafi verið gamla manninum mikil stoð og
stytta, einkum þegar hann var einmana og einangraður rétt áður
en styrjöldin hrauzt út.
Eitt af uppáhaldslögum
Churchills, sem ungfrú Baker
söng, var „My Heart Stood Still",
sem Alexander telur að Rodgers
og Hart hafi samið sérstaklega
fyrir hana. Anægjusvipur færðist
yfir Churchill, þegar hún söng
þetta lag, sagði Alexander, og
hann bað hana að syngja það
aftur og aftur.
Blaðið Daily Mirror segir, að
aðrir úr Churchill-fjölskyldunni
hafi hatað Edythe, en hún hafi
verið honum mikill styrkur. Blað-
ið segir, að hún hafi verið „bezt
varðveitta leyndarmálið í stríðs-
stjórninni".
Haft er eftir vini hennar, að
hún hafi verið svar Englendinga
við Marlene Dietrich og sungið
fyrir Churchill á hverju kvöldi.
Hún hafði ágæta tónlistarhæfi-
leika, en hún lét lítið fara fyrir
sér, þegar annað fólk var viðstatt,
sagði hann.
Mirror segir að eftir stríðið
hafi ungfrú Baker farið aftur til
Kaliforníu, þar sem hún er sögð
iifa kyrrlátu lífi enn þann dag í
dag. „Allur hinn frjálsi heimur
stendur í þakkarskuld við Edythe
Baker,“ sagði Alexander læknir.