Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980 57 •Pl* merkió sem ávallt tryggir vandaóri og betri bækur Líney Jóhannesdóttir Aumingja Jens Saga um misheppnaðan listamann? Saga þriggja kynslóða? Vægðarlaus samtíðarlýsing? Kvenna- saga? Ekkert af þessu og allt I senn - og mlklu meira. Þó er ytri efnisumgerð aðeins líf sex persóna i sömu götunni einn vetrarpart. Þetta er göldrótt og margþætt skáldsaga, rituð af beyglausri til- finningu og mikilli ratvisi. VERÐ KR. 13.710. FÉLAGSVERÐ KR. 11.650. Ólafur Haukur Símonarson Galeiðan Timabær og vel gerð nútima skáldsaga um verk- smiðjustúlkur á vinnustað og i einkalífi. Lesandi slæst i hóp stúlkna sem vinna í dósaverksmiöju og llfir með þeim súrt og sætt fáeina daga. í bókinni bfrtist glöggt það galeiðumynstur sem Iff þeirra er hneppt f, en á þessum dögum gerast einnig atburð- Ir sem gætu breytt lifi þeirra, a.m.k. reynist sam- staða þeirra vonum meiri þegar i odda skerst... VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Guðlaugur Arason Pelastikk Nýstárleg og skemmtileg skáldsaga sem gerist á sjónum eitt sildarsumar á 6. áratugnum. Lifandi lýsing á heimi sjómannsins, séðum með augum átta ára drengs sem fær aö fljóta með einn túr og sfðan annan og enn annan. Vel skrifuð bók sem hefur fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Dee Brown/Magnús Rafnsson Heygðu mitt hjarta við Undað Hné Þessi bók, „Bury My Heart at Wounded Knee“, kom fyrst út i Bandarikjunum árið 1970 og sló öll fyrri sölumet. Þarna var gerbylt viðteknum hugmyndum um margrómaö tímabil í bandariskri sögu, og erfitt var að véfengja þær sagnfræðirannsóknir sem að baki lágu. Auk þess þótti bókin afburða listaverk. Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda af helstu indiána- foringjum sem koma við sögu og henni fylgja ræki- leg kort og nafnaskrá. VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795. Emest Hemingway/Stefán Bjarman Hverjum klukkan glymur Frægasta skáldsaga Hemingways, sem gerist á Spáni á timum borgarastyrjaldarinnar. Andstæður lifs og dauða, ástar og haturs i samþjöppun þriggja daga aö baki víglinu fasistaherjanna. Höfundi hefur þótt takast undra vel aö sýna i hnotskurn spænskt þjóðlif og hugsunarhátt á þessum örlaga- riku tímum og opna baðan víðari útsýn. VERÐ KR. 19.760. FELAGSVERÐ KR. 16.795. Marek Hlasko/Þorgeir Þorgeirsson Áttundi dagur vikunnar „Það er gengið hreint til verks i þessari stuttu skáldsögu. Hvergi slegiö úr og í... Hér er hvergi athvarf aö finna, hvorki fyrir hugsjónir né vonir né heldur ævintýrið mikla, ástina, sem þau Agnéska og Pietrek setja á allt sitt traust. Umhverfi og hugar- ástand persónanna verða eitt i þessu magnaða riti kornungs pólsks höfundar sem heldur undarlega vel áhrifamætti sínum f blaséruðum heimi". Á.B. Þjv. 23/11. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. William Heinesen/Þorgeir Þorgeirsson Það á að dansa Spánýtt safn eftir hinn aldna færeyska snilling, með nýjum sögum frá Þórshöfn. Bókin kemur út samtfmis á dönsku og fslensku, fjóröa bókin i sagnasafni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. Hér segir frá ástarkvölum Fabfans unga, frá fordæðunni og prestaflennunni Teodóru, frá trúar- fári og ofstopa f sögunni Aðventa og titilsagan segir frá sögulegu brúðkaupi á hinni afskekktu Stapaey, þar sem skuggalegir atburðir urðu, skip- brot, strandrán, meira að segja brúðarrán! Óvið- jafnanleg bók sem gefur fyrri verkum Heinesens ekkert eftir. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Einar Olgeirsson/Jón Guðnason ísland í skugga heimsvaldastefnunnar Þessi bók rekur örlagarfkustu atburði islands- sögunnar á þessari öld og gefur innsýn i það sem gerðist á bak við tjöldin. Dregnar eru upp persónu- legar svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum sem komu við sögu og mun þar margt koma á óvart. Frásagnamaður er einn mikllhæfasti og harðskeyttasti stjórnmálamaður þessa timabils og einn fremsti sagnfræðingur okkar færði f letur. VERÐ KR. 19.885. FÉLAGSVERÐ KR. 16.900. Guðbergur Bergsson Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans Bráðskemmtileg skáldsaga í stfl prakkarasagna um athafnamanninn Ara Fróðason og ferð hans gegnum þjóðfélagið, sem hefst á leikvelli og lýkuri eftirminnilegri laxveiðiferð. Með þessari bók sýnir Guðbergur Bergsson enn á sér nýja hlið og spurn- ing er hvort skáldgáfa hans nýtur sin ekki einmitt best i þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að finna. VERÐ KR. 14.820. FÉLAGSVERÐ KR. 12.600. Jakobína Sigurðardóttir Snaran önnur útgáfa þessarar klassísku framtíðar-hroll- vekju. „Sú mynd sem höfundur dregur upp af „venjulegum fslenskum alþýðumannl" kemur ekki á óvænt, en um leið er hún það sterk aö hún hlýtur i senn að vekja eftirtekt og ugg. Og þungi þeirrar viðvörunar sem Jakobina ber tram i framtfðarlýs- ingu sinni vex af þvf að hún spáir atburðum sem eru svo ískyggilega nátengdir þvi sem þegar hefur gerst". Þjv. 17/12 1968. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. Mál IMI og menning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.