Morgunblaðið - 24.01.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
3
Leif Maehle, formaður nefndar þeirrar sem úthlutar bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs
tilkynnir ákvörðun nefndarinnar. Snorri Hjartarson situr við hlið hans. Ljcwm. Kristinn.
Snorri Hjartarson eftir verðlaunaafhendinguna:
„Þ§etti gaman að komast
til Ítalíu og Grikklands44
„ÞESSI ákvörðun
kom mér á óvart. ég
hafði ekki gert ráð
fyrir þvi að hljóta
verðlaunin,“ sagði
Snorri Hjartarson í
samtali við Mbl. í gær.
„Ég var lengi að átta
mig á því að þetta
væri raunverulegt.“
„En þú ert að von-
um ánægður?“
„Já. auðvitað. Það
er ekki hægt að vera
annað en ánægður.“
„Hefurðu ákveðið
hvernig þú ætlar að
verja peningunum, i
eitthvað sérstakt
verkefni kannski?“
„Ég veit það ekki.
Ég veit aldrei hvenær
ég kemst í vinnuskap.
Það kemur i skorpum.
En mér þætti gaman
að komast til Ítalíu og
Grikklands.“
Snorri hlaut bók-
menntaverðlaun Norð-
ing,“ sagði Snorri.
„Það hefur örugglega
átt sinn þátt í því að ég
fékk verðlaunin hvað
ég var heppinn með
þýðandann. Nefnd-
armenn sögðust hafa
getað fylgst með ís-
lenska textanum jafn-
hliða sænsku þýðing-
unni.“
— Snorri sagði að
áður hefði úrval ljóða
komið út eftir sig á
norsku og einstaka
ljóð eftir hann hafa
verið þýdd á ýmis
tungumál og birst í
tímaritum.
Bókmenntaverð-
launin verða afhent í
Kaupmannahöfn í
mars n.k. Snorri sagði
aðspurður að hann
hefði ekki ákveðið,
hvort hann færi þá
utan.
„Ég vil ekkert um
það segja núna. En ég
vona að ég geti farið."
urlandaráðs fyrir bók
sína „Hauströkkrið yf-
ir mér“. Er Snorri var
beðinn um að segja frá
bókinni kvaðst hann
heldur vilja láta það
öðrum eftir.
Inger Knutson þýddi
bókina yfir á sænsku
vegna verðlaunaveit-
ingarinnar og ber þýð-
ingin heitið „Höst-
mörket över mig“
„Þetta er ágæt þýð-
Einn nefndarmanna, Kai Laitinen, prófessor
við háskólann i Helsinki óskar Snorra Hjartar-
syni til hamingju.
Rikisverksmiðjuverkfalli frestað:
Stefnir í
2 saxtminga
VERKALÝÐSFÉLÖGIN 13, sem standa í samningsgerð við ríkisvaldið
vegna rikisverksmiðjanna tveggja og Kisiliðjunnar frestuðu klukkan
04 í fyrrinótt verkfalli, sem kom til framkvæmda á miðnætti í fyrrinótt
um óákveðinn tima með 3ja daga boðunarfresti. Jafnframt buðu þau 12
félög. sem eru innan ASÍ rikisvaldinu upp á áframhaldandi samnings-
gerð, sem þýðir að þau skilja vélstjórana eftir, sem ekki hafa viljað
sætta sig við röðun i launaflokka og hafa krafizt 24,5% grunnkaups-
hækkunar. Meðaltálshækkun samningsins eins og hann lítur nú út mun
vera um 11,5%. Vinnumálanefnd ríkisins taldi sig ekki hafa umboð til
að taka ákvörðun um áframhaldandi viðræður við félögin 12 og var
viðræðum þvi frestað fram á mánudag. unz rikisstjórnin hefur fjallað
um málið.
Launastiginn, sem menn hafa
verið að raða inn í, gefur 33,8%
launamismun milli hæstu og
lægstu launa. Er þá miðað við
byrjunarlaun verkamanns og byrj-
unarlaun iðnsveins. Verkamaður-
inn hefur 4.505 krónur á mánuði,
en iðnsveinninn 6.029. Eftir 6
mánaða störf hækkar verkamaður-
inn þó um 5% og fer í 4.730 krónur
á mánuði. Síðan koma áfanga-
hækkanir á samningstímanum,
sem miða að því að ná samræm-
ingu við laun á Grundartanga.
Hinn 1. nóvember hækka þannig
öll laun um 5% og hinn 1. maí 1982
hækka sömu laun aftur um 9%.
Þannig verður heildargrunnkaups-
hækkun á samningstímanum
25,5% hjá öllu starfsfólki verk-
smiðjanna þriggja. Þessar hækk-
anir koma með þeim hætti, að allir
starfsmenn verksmiðjanna byrja á
byrjunartaxta, en vinna síðan upp
starfsaldursmismun miðað við
ríkjandi starfsaldur á Grundar-
tanga í þessum tveimur áföngum í
nóvember 1981 og maí 1982.
Vélstjórarnir frestuðu einnig
verkfalli í fyrrinótt með sama
hætti og félögin 12. Á fundi
klukkan 04 í fyrrinótt óskuðu
vélstjórarnir eftir því, að fundur-
inn sem heild frestaði verkfalli
allra félaganna, en hvert félag yrði
ekki látið fresta verkfalli. Þessu
hafnaði fundurinn og vildi, að
hvert félag fyrir sig frestaði.
Niðurstaðan varð, að vélstjórarnir
gerðu það með sama hætti og
önnur félög. Samningamaður, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær,
kvaðst þess fullviss, að ekki yrðu
tök á að gera einn samning við
verksmiðjurnar eftir það sem á
undan væri gengið. Taldi hann, að
ASÍ-félögin 12 myndu gera sameig-
inlegan samning, en Vélstjórafé-
lagið annan.
Þess má geta, að að þeim fyrir-
tækjasamningum, sem áður hafa
verið gerðir í þessa veru, hjá ÍSAL
og Járnblendifélaginu, hafa aðeins
staðið félög innan ASÍ, þar sem
engir vélstjórar vinna á þessum
stöðum.
Skuldabreytingar húsbyggjenda:
Undirbúningsviima
að tillögum hafin
- segir Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra
GUNNAR Thoroddsen, forsætis-
ráðherra. sagði í áramótaávarpi
sínu, að einn þáttur efnahagsað-
gerða ríkisstjórnarinnar. yrði sá
að gefa húsbyggjendum kost á þvi
að breyta lausaskuldum i föst
lengri lán.
Morgunblaðið snéri sér til Svav-
ars Gestssonar, félagsmálaráð-
herra, en þessi málefni heyra undir
hans ráðuneyti, og spurði hvernig
þessum málum liði. — „Undirbún-
ingsvinna er þegar hafin á vegum
ráðuneytisins, en hér er um mjög
flókið mál og tímafrekt að ræða.
Það mun því líða nokkur tími áður
en tillögur liggja fyrir fullmótaðar,
og því er ekkert hægt að fullyrða
um, á hvern hátt þessum skuld-
breytingum verður háttað," sagði
Svavar.
Sjónvarpið hefur ekki
f jármagn til að færa
sér jarðstöðina í nyt
MEÐ TILKOMU jarðstöðvarinnar
Skyggnis í Mosfellssveit verður
hægt að taka á móti beinum
sjónvarpssendingum utan úr
heimi gegnum gervihnött. Ilefur
komið fram í fréttum, að sjón-
varpið hefur í hyggju til að byrja
með, að fá daglega fréttasendingu
frá Evrópu. Mbl. innti Hörð Vil-
hjálmsson fjármálastjóra rikis-
útvarpsins eftir því hvenær búast
mætti við því að þessar beinu
sendingar gætu hafist:
— Það er allt óráðið varðandi
þau mál ennþá og við höfum af
fjárhagsástæðum ekki ennþá getað
tekið um það ákvörðun, því hér er
um að ræða stofnkostnað upp á 4,8
milljónir nýkróna auk rekstrar-
kostnaðar, sem er áætlaður um 10
þúsund nýkr. á dag, sagði fjármála-
stjórinn. Hörður Vilhjálmsson
sagði, að vissulega væri áhugi fyrir
því að taka upp þessa þjónustu,
með vorinu yrði sá gervihnöttur,
sem sendingarnar eiga að fara um,
tilbúinn og því af tæknilegum
ástæðum hægt að hefjast handa
þá. Hins vegar væri ljóst, að ekki
yrði ráðist í nauðsynlegar fjárfest-
ingar til að koma upp tækjabúnaði
nema til kæmi sérstök fjárveiting
með einhverjum hætti og því væri
óvíst hvort þetta yrði á árinu.
Sem fyrr segir er stofnkostnað-
urinn 4,8 m. nýkr. og rekstrar-
kostnaðurinn 10 þ. nýkr. á dag.
Sagði Hörður, að reksturinn
kostaði 60 nýkr. á ári væri honum
deilt niður á sjónvarpstæki lands-
manna, en í þeirri tölu er jafn-
framt gert ráð fyrir greiðslu hluta
stofnkostnaðar. Þyrftu afnota-
gjöldin því að hækka um 60 nýkr.
aukreitis á árinu, ef hrinda ætti
þessum málum í framkvæmd, en
sótt verður um 22,5% hækkun
afnotagjalda frá 1. marz n.k., þ.e. á
afnotagjöldum fyrri hluta ársins.
Ljósmyndafyrirsœtur
Ungfrú Útsýn
Val á Ijósmyndafyrirsætum í keppnina „Ungfrú ÚTSÝN
1981“ stendur nú yfir. Þátttakendur skulu vera á
aldrinum 17—25 ára. Allir þátttakendur fá feröaverölaun
og ca. 10 stúlkur, sem valdar veröa til úrslita hljóta
ókeypis ÚTSÝNARFERÐ til sólarlanda. Kynning stúlkn-
anna fer fram á Útsýnarkvöldum á Hótel Sögu.
ATH.:
Stúlkur, sem þegar hafa skráö sig í keppnina, eru
beönar aö koma til viötals á Útsýn, sunnudaginn 25.
janúar kl. 4 síödegis. Nýir þátttakendur geta einnig
skráö sig á sama tíma. Sími 20100.