Morgunblaðið - 24.01.1981, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
Jm 4 ílcöáuc
m /
w * tFð morgun
i tmmá jtt; m
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 2
messa. Fermingarbörn aðstoða.
Þess er vænst að fermingarbörn
og aðstandendur þeirra komi til
messunnar. Sr. Þórir Stephen-
sen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Barnasamkoma i safnaðarheim-
ili Árbæjarsóknar kr. 10:30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu kl. 2. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að
Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
í Breiðholtsskóla: Sunnudaga-
skóli kl. 10:30. Messa kl. 14.
Biblíulestur mánudagskvöld kl.
20:30. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 2. Organleikari Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúla-
son.
DIGRANESPRESTAKALL:-
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Messa kl. 10 árd. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson messar.
FELLA- OG HÓLAPRESTA-
KALL: Laugard.: Barnasam-
koma í Hólabrekkuskóla kl. 2.
Sunnud.: Barnasamkoma í Fella-
skóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu að Keilufelli
1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 2 — altarisganga. Organleik-
ari Jón G. Þórarinsson. Almenn
samkoma nk. fimmtudagskvöld
kl. 20:30. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRlMSKIRKJA: Messa
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Fjölskyldumessa kl. 2. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lárusson. Þriðjud. kl.
10:30 árd.: Fyrirbænaguðsþjón-
usta. Beðið fyrir sjúkum. Kirkju-
skóli barnanna er á laugardög-
um kl. 2 í kórkjallara (gömlu
kirkjunni).
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
/
Matt. 8.:
Jesús gekk ofan af fjall-
inu.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2. Sr.
Arngrímur Jónsson. Organleik-
ari dr. Orthulf Prunner. Les-
messa og fyrirbænir fimmtu-
dagskvöld 28. janúar kl. 20:30.
Sr. Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Fjölskylduguðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Fullorðnir
eru hvattir til að mæta með
börnunum til guðsþjónustunnar.
Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Söngur, sögur,
myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Að-
stoðið eldra fólk til þess að
sækja guðsþjónustuna með ykk-
ur. Prestur sr. Sig. Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Minnum á samverustund
aldraðra á vegum safnaðarfélag-
anna kl. 3. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2.
Þriðjudagur: Bænaguðsþjónusta
kl. 18, altarisganga. Æskulýðs-
fundur kl. 20:30. Föstudagur 30.
jan.: Síðdegiskaffi kl. 14:30.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 10:30. Guðsþjónusta kl. 2. Sr.
Frank M. Halldórsson. Kirkju-
kaffi. Munið bænaguðsþjónustur
á fimmtudagskvöldum kl. 20:30
og félagsstarf aldraðra á laugar-
dögum kl. 4—5.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10:30 árd.
Barnasamkoma að Seljabraut 54
kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta að
Seljabraut 54 kl. 2 e.h. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnasamkoma kl. 11 árd. í
Félagsheimilinu. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa kl. 2. Organleikari Sigurð-
ur ísólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Al-
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Einar J. Gíslason.
KFUM & K: Samkoma kl. 20.30
að Amtmannsstíg 2 B. Ræðu-
maður verður Jónas Gíslason
dósent.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 10 árd. Bæn
kl. 20 og hjálpræðissamkoma kl.
20:30.
DÓMKIRKJA KRISTS Kon-
ungs Landakoti: Lágmessa kl.
8:30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðð. Alla rúm-
helga daga er lágmessa kl. 6
síðd., nema á laugardögum, þá
kl. 2 síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
NÝJA POSTUL AKIRK J AN,
Háaleitisbraut 58: Messur kl. 11
og kl. 17.
KAPELLA St. Jósefssystra f
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. í upp-
hafi Kristniboðsviku KFUM &
K. Sr. Jónas Gíslason lektor
prédikar. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN f Hafnarfirði:
Barnatími kl. 10:30 árd. Guðs-
þjónusta kl. 14. Helgi Hró-
bjartsson sjómannafulltrúi pre-
dikar. Eftir messu heimsækir
fermingarfólk og foreldrar
þeirra aldraða í Hrafnistu. Safn-
aðarstjórn.
KAPELLA St. Jósefsspítala
Hafnarfirði: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Há-
messa kl. 8:30 árd. Rúmhelga
daga er messa kl. 8 árd.
KÁLFATJARNARSÓKN: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Stóru
Vogaskóla kl. 14. Sr. Bragi
Friðriksson.
INNRI-NJARÐVÍKUR-
KIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Tvísöngur: Helga Ingimundar-
dóttir og Fanney Karlsdóttir.
Athugið breyttan messutíma.
YTRI-NJARÐVÍKUR-
KIRKJA.'Sunnudagaskóli kl. 11
árd. Fyrirhugaðir tónleikar f
kirkjunni kl. 15 falla niður.
Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Skólabíllinn leggur af stað kl.
10:30. Bænaguðsþjónusta kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Sókn-
arprestur.
HVALSNESKIRKJA: Messa kl.
2 síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 10:30 árd. Messa kl.
2 síðd. Sr. Björn Jónsson.
TVÆR ALDIR verða seint i
næsta mánuði liðnar frá fæð-
ingu sr. Jóns Þorsteinssonar,
ættföður Reykjahlfðarættarinn-
ar. Ilann segist sjáfur, f stuttu
æfiágripi sem hann samdi 1848,
vera fæddur mánudag fyrstan i
góu 1781, en þá bar hann upp á
24. febrúar. Sunnudagur fyrst-
ur í góu á þvf herrans ári 1981
verður hins vegar 22. febrúar.
og hyggjast niðjar sr. Jóns hér
á suðurslóðum minnast tveggja
alda afmælis ættföðursins með
samkomu i Sigtúni við Suður-
landsbraut þann dag kl. 3 e.h.
Einn af forgöngumönnum
þessarar samkomu, Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður,
var spurður að því hvernig þetta
samkomuhald hefði verið ákveð-
ið. í svari sínu sagði hann: —
Börn sr. Jóns, þau er uppkomust,
voru fjórtán alls, og eignuðust
öll þeirra nema eitt niðja. Þegar
upp kom að minnast tveggja
alda afmælis sr. Jóns, lá beinast
við að kveðja til einn fulltrúa
hvers hinna þrettán barna hans,
Úr undirbúningsnefnd afkomenda 13 barna sr. Jóns i Reykjahlfð var mynda þrfr framkvæmdanefnd
og var myndin tekin á fundi hennar. Frá vinstri Kristinn Hallsson, Ragna Ragnars og Finnbogi
Guðmundsson. Ljósmyndari Emilia (ein af afkomendum sr. Jóns).
Niðjar Jóns í Reykjahlíð hittast
á 200 ára afmæli ættföðurins
svo að þetta yrði gert með vitund
og samþykki allra greina ættar-
innar og þátttaka mætti verða
sem almennust.
— Nú hyggist þið efna til
þessa niðjamóts hér syðra en
ekki í höfuðstað ættarinnar
nyrðra, í Reykjahlíð við Mývatn?
— Það er rétt. Auðvitað hefði
verið skemmtilegt og viðeigandi
að vera þar, en hvort tveggja er,
að afmælið er um hávetur, þegar
allra veðra er von, og mikill
fjöldi niðjanna er kominn í
margmennið hér fyrir sunnan.
Vissulega væri gaman, ef ein-
hverjir úr frændaliðinu nyrðra
eða hvar annars staðar sem er
utan höfuðborgarsvæðisins, sem
erindi ættu hingað suður um
þetta leyti, gætu stillt svo til að
vera stödd í Reykjavík sunnu-
daginn fyrstan í góu, 22. 'febrúar
og taka þátt í afmælishaldinu.
Því fleiri sem koma, því
skemmtilegra ætti þetta að geta
orðið.
— Hvernig verður samkom-
unni hagað?
— Samkomustjóri verður
Ágúst Bjarman, en söngstjóri
Jón Stefánsson, stjórnandi kórs
Langholtssafnaðar. Söngkrafta
skortir ekki í ættinni, aðalvand-
inn víst sá, að bassaraddir eru
þar yfirgnæfandi, færri skærir
tenórar. En hér verður mest um
fjöldasöng að ræða, svo allt ætti
þetta að falla í ljúfa löð.
— Ættföðurins og þeirra
hjónanna beggja, Jóns Þor-
steinssonar og Þuríðar Hall-
grímsdóttur, verður vitaskuld
minnzt sérstaklega, en aðal-
atriðið er að koma saman í nafni
sameiginlegs uppruna og styrkja
ættarböndin. Á samkomunni
sunnudaginn 22. febrúar kl. 3
verða kaffiveitingar, en þeir sem
vilja svo sitja fram eftir kvöldi,
geta fengið sér kvöldverð, sem
panta verður með nokkurra daga
fyrirvara. Er ekki að efa að
þarna verður glatt á hjalla,
slíkir gleðimenn sem Reykhlíð-
ingar hafa löngum þótt.
Fyrir miklu er, að sem flestir
festi sér daginn nú þegar í
minni, sagði Finnbogi að lokum,
og strengi þess heit að koma
allir sem vettlingi geta valdið,
ungir sem gamlir.
Fulltrúar ættkvíslanna, af-
komendur barna sr. Jóns og
Þuríðar, sem standa að undir-
búningi eru: Arnljótur Björns-
son (afkomandi Valgerðar), Jó-
hannes Arason (Þorsteins),
Ragna Ragnars (Hallgríms),
Finnbogi Guðmundsson (Þor-
láks), Guðmundur Pétursson
(Sigfúsar), Jón Múli Árnason
(Jóns), Sveinn Skorri Höskulds-
son (Guðrúnar), Hlédís Guð-
mundsdóttir (Péturs), Sigmar
Jónsson (Sigurgeirs), Jón
Bjarman (Hólmfríðar), Heimir
Áskelsson (Bjarna), Steingrímur
Gauti Kristjánsson (Sólveigar)
og Kristinn Hallsson (Bene-
dikts). Hópurinn hefur valið sér
þriggja manna framkvæmda-
stjórn, sem þau Finnbogi, Ragna
og Kristinn skipa.
Guðmundur
teflir í
þýzku deild-
arkeppninni
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
stórmeistari heldur í næsta mán-
uði til Vestur-Þýzkalands, en þar
mun hann tefla fyrir skákklúbb í
Köln í þýzku deildarkeppninni.
Robert Húbner, sem nýlega gaf
einvígið við Korchnoi er meðlimur
í þessum klúbbi, en Guðmundur
var sem kunnugt er aðstoðarmað-
ur Húbners. Húbner teflir á fyrsta
borði en á öðru borði teflir stór-
meistarinn Hort frá Tékkósló-
vakíu, sem nú er búsettur í
Þýzkalandi.
Þýzkur milljónamæringur, Hil-
gert að nafni, fjármagnar starf-
semi skákklúbbsins í Köln og
hann hefur verið bakhjarl Húbn-
ers í áskorendaeinvígjunum. Þess
má geta að Guðmundur hefur einu
sinni áður teflt fyrir klúbbinn í
deildarkeppninni. Það var sl.
haust þegar Köln vann sigur yfir
Solingen, en hjá þeim klúbbi er
Spassky fyrrum heimsmeistari á
fyrsta borði. Guðmundur tefldi við
stórmeistarann Hecht og lauk
skákinni með jafntefli.
Skipað í bygg-
ingarnefnd fyr-
ir útvarpshús
HINN 19. þ.m. skipaði mennta-
málaráðherra eftirtalda menn i
byggingarnefnd Rikisútvarpsins:
Vilhjálm Hjálmarsson, formann
útvarpsráðs, ólaf R. Einarsson,
varaformann útvarpsráðs, Bene-
dikt Bogason, verkfræðing, og
Hörð Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóra, sem jafnframt var skipað-
ur formaður nefndarinnar.
Verkefni nefndarinnar er að
hafa á hendi framkvæmdastjórn
og yfirumsjón með byggingu út-
varpshúss fyrir starfsemi Ríkis-
útvarpsins.