Morgunblaðið - 24.01.1981, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
Útgöngudyrnar verða aftast en ekki fyrir miftju eins og er á öllum
vögnum Strætisvagna Reykjavíkur.
Og vinna er þegar hafin við þann næsta.
Nýr strætó
í næstu
viku
UNDANFARNA mánuði hefur
verið unnið að yfirbyggingu
strætisvagna af Volvogerð í
Nýju bilasmiðjunni. Sá fyrsti
verður tilbúinn í næstu viku.
„Við vinnum nú við yfirbygg-
ingu þriggja vagna og verður
sá fyrsti afhentur á föstudag.
Alls smíðum við yfirbyggingar
á 20 vagna og mun verkefni
þetta taka hálft þriðja ár,“
sagði Kristfinnur Jónsson, yf-
irverkstjóri í Nýju bílasmiðj-
unni i samtali við blaðamann.
„Frá því að fyrsti vagninn fer
á götuna munu að meðaltali líða
45 dagar á milli vagna. Þessir
nýju vagnar munu taka 42
manns í sæti en Bifreiðaeftirlit-
ið mun síðar taka ákvörðun um
hve margir farþegar mega alls
vera í vögnunum. Stæði verður
aftast og einnig útgöngudyr og
er það helsta breytingin," sagði
Kristfinnur ennfremur.
Volvostrætisvagninn, sem mun koma fyrir augu Reykvíkinga i næstu viku.
Myndtr Mbl. Krintján.
Skreiðarsala í Nígeríu
Þar sem mútur eru lenzka
„ÞAÐ virftist nánast sjálfgefið,
aft mútur séu annars vegar þegar
skreið er seld til Nigeriu. Og það
er engu likara en að gert sé ráð
fyrir þvi i launum þeirra, sem
annast skreiðarkaup þar syftra.
Ifins vegar taka íslendingar ekki
þátt í þessu og ég tel að það hafi
bitnaft á okkur. Til að mynda
hafa islenzk skip verið látin biða
uppskipunar i höfnum svo vikum
skiptir. Þá vegna þess, aft aftilar
hafa talið, að fjármgan hafi ekki
gengið manna i millum — með
öðrum orðum: Mútur voru ekki
greiddar,“ sagði Valgerður
Björgvinsdóttir, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Lýsi hf. i stuttu
spjalli við blaðamann.
Valgerður flutti erindi um sölu
skreiðar á ráðstefnu, sem Við-
skipti og verzlun gengust fyrir um
útflutning sjávarafurða. Ýmsir
höfðu á orði, að enn eitt vígi
karlmannsins væri fallið og því
slógum við á þráðinn til hennar.
„Já, ég hef svo sem heyrt þessar
raddir en Jón Ármann Héðinsson
ber hitann og þungann af skreið-
arviðskiptum. Sjálf hef ég aldrei
til Nígeríu komið en starfað að
þessum málum hér. Það þarf
traustar hendur til að annast sölu
fiskafurða erlendis og sífelt þarf
að fylgjast náið með þróun málá.
Ástæðan fyrir því, að við hjá
Lýsi hf. fórum út í skreiðarsölu er
sú, að sala á lýsi og mjöli er
árstíðabundin og því þótti við hæfi
að nýta þann dauða tíma sem
myndaðist. Á síðastliðnu ári hóf-
um við þessi viðskipti og seldum
um 500 tonn af skreið. Nú við
seljum auðvitað loðnulýsi, einkum
til Bretlands og svo meðala- og
fóðurlýsi um allan heim. Ég kann
ákaflega vel við mig í þessu starfi
og hef unnið hér í 12 ár — lært í
skóla lífsins, ef svo mætti að orði
komast," sagði Valgerður.
Valgerður Björgvinsdóttir. LJdsmynd Emllia.
' flokksþingi Demokrataflokksin* á ilðaita ári var m jög tekift til þess hversu innilegri Ted og Joan voru
/ift hvort annaft. ólikt þvi sem menn höfftu átt aft venjast.
Sambúd Kennedyhjótv
anna fer batnandi
Samkvæmt traustuslu vakti einnig athygli i kosninga mjog vift konu sina auk þess
neiniildum okkar i Bandarikj- baráttunni aft Joan tók virkan sem hann hafi gert.sér grein
unum hefur sambúð Ted þátt i fundahöldum og stóft sem fyrir. aft neikvctt umtal um
Kennedv og Joan konu hans klettur vift hlift manns sfns. einkallf hans á undanförnum
Vísir fyrstur með fréttirnar?
FYRIR skömmu varð okkur á
Mbl. á í messunni þegar danska
orðið „krydsild“ var þýtt krydd-
sild. Þar voru að sjálfsögðu
mannleg mistök á ferðinni sem
alltaf geta hent i hinum hraða
heimi blaðamennskunnar. Sið-
degisblöðin tóku þetta upp og
sérlega var þeim á Vísi mikið
niðri fyrir. Þeir skrifuðu um
mistökin fullir vandlætingar.
Blaðamaðurinn, sem skrifaði
um „kryddsíldarmistök" okkar
fór út á þá hálu braut að þýða
sjálfur hluta fréttarinnar og
heldur fórst honum það óhönd-
uglega. Hann þýddi nefnilega
danska orðið „frokostmad" sem
kvöldverðarveizlu. Já, þannig fór
um sjóferð þá.
Og úr því við erum að tala um
Vísi og mannleg mistök. Síðast-
liðinn fimmtudag birtist frétt í
Mbl. um skilnað Edward Kenne-
dys og Joan. Sama dag var frétt
í Vísi um, að sambúð þeirra
hjóna færi batnandi. Slagorðið
„Vísir fyrstur með fréttirnar"
hefur nú um langt skeið glumið í
eyrum landsmanna — en er það
nú svo?
Ted Arnason
endurkjörinn
bæjarstjóri
„Hann er mikill veiðimaður
hann Ted Arnason bæjarstjóri á
Gimli eins og sjá má á þessari
mynd. En hann er slyngur við
fleira en fiskveiðar, hann veiðir
líka atkvæði og veiðir vel,“ sagði
í stuttri frétt í Lögbergi-
Heimskringlu þegar skýrt var
frá, að Ted Arnason hefði verið
endurkjörinn bæjarstjóri á
Gimli. í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum var hann endurkjör-
inn, hlaut 78,2% atkvæða. Og
það var mannmargt á kosninga-
daginn hjá Ted og þar var
framreiddur fiskurinn, sem bæj-
arstjórinn heldur á á myndinni.
Kosningastjóri Reagans kominn til Húsavíkur!
LEIKFÉLAG Húsavíkur hefur fyrir nokkru byrjað æfingar á
nýju leikriti eftir Jónas Árnason og skrifaði hann það
sérstaklega fyrir Húsvíkinga. Hér er um gamanleikrit að ræða
og ber það nafnið „Halelúja". Fjallað er á gamansaman hátt
um forsetakosningar á Islandi það herrans ár 1990. Til
landsins er kominn kosningastjóri Ronald Reagans, Banda-
ríkjaforseta, og stjórnar hann baráttu eins frambjóðandans.
Leikstjóri er María Kristjánsdóttir, en Jónas Árnason fylgdist
náið með æfingum og hefur flutt sig um set úr Borgarfirðinum
og hyggst búa á Húsavík fram yfir frumsýningu.