Morgunblaðið - 24.01.1981, Qupperneq 41
ffclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
41
JTi
Frœgur
frétta-
þulur
+ Þessi mynd er af Alvar
Lidell en hann lést fyrir
skömmu síðan, 72 ára að
aldri. Hann var þulur hjá
bresku útvarpsstöðinni
BBC og á stríðsárunum
flutti hann fréttir til millj-
óna hlustenda víðs vegar
um hnöttinn. Hann hóf
störf fyrir BBC árið 1932 en
þá var þess krafist af þul-
um að þeir væru klæddir í
jakkaföt við fréttalestur-
inn. Lidell tilkynnti þá
ákvörðun Edwards VIII að
láta af konungdómi árið
1936. Seinna varð hann
Hertoginn af Windsor eins
og flestum er víst kunnugt
úr sjónvarpsþáttunum
margfrægu. í september
1939 var Lidell boðaður til
Downingstrætis 10, til þess
að lesa þar í beinni útsend-
ingu stríðsyfirlýsingu þá-
verandi forsætisráðherra,
Neville Chamberlains, gegn
Þjóðverjum.
Frelsinu feginn
+ Eins og alkunna mun vera rændu Rauðu herdeildirnar á Ítalíu
dómaranum Giovanni D’Urso og héldu honum í 34 daga. Margir
óttuðust að Aldo Moro-málíð frá 1978 væri að endurtaka sig en allt
fór þó að lokum vel. Dómaranum var skilað bundnum og kefluðum
Rauðu herdeildirnar sögðust hafa skilað D’Urso vegna þess að
„Hann hefði verið samstarfsfús og lýst fyrir þeim hvernig
dómsmáiaráðuneytið starfaði". Á blaðamannafundi sem haldinn
var skömmu eftir frelsunina þakkaði dómarinn blaðamönnum fyrir
„einhug og mannúð" í skrifum sínum. Aðspurður kvaðst hann ekki
vilja svara hvort eða að hve miklu leyti hann hefði gefið ræningjum
sínum upplýsingar. Hann sagðist aftur á móti hafa mikla trú á
þeirri stefnu stjórnarinnar að semja ekki við mannræningja og að
því leyti til hefði hann ekki orðið fyrir vonbrigðum. Arið 1978
neitaði þáverandi stjórn einnig að semja við ræningja Aldo Moro
fyrrum forsætisráðherra. Málalyktir urðu þær að ræningjarnir,
Rauðu herdeildirnar, myrtu hann.
Hugrakkir menn
+ Sem kunnugt er úr fréttum ríkir nú skálmöld hin versta í
Mið-Ameríkuríkinu E1 Salvador. Vinstri skæruliðar berjast þar
við her stjórnarinnar og ef marka má af fréttum er mannfall
mikið. Þeir menn sem sjá um fréttaflutning eru í stöðugri
lífshættu enda yfirleitt staddir í fremstu víglínu. Þessi mynd er
frá San Francisco Gotera í E1 Salvador og sýnir Harry Mattison
ljósmyndara hjá blaðinu Time skýla Oliver Rebbot ljósmyndara
Newsweek. Rebbot varð fyrir skoti leyniskyttu vinstri manna.
Stjórnarhermaðurinn býst til varnar.
Carterar í
flutningum
+ Hér er mynd af fyrrum
Bandaríkjaforseta, Jimmy
Carter, þar sem hann virðir
fyrir sér búslóð móður sinnar
Lillian Carter í Plains. Carter
hyggst nota þetta hús sem
skrifstofu. Sá skrautlegi með
hattinn er enginn annar en
hinn skrautlegi bróðir hans,
Billy Carter, en mörgum
fannst sem hann nýtti sér
aðstöðu sína þegar bróðir
hans var forseti. Fyrir bragð-
ið var hann mjög umdeildur.
„En „ber er hver ...“
Laugard. 24. jan. kl. 17:00.
Sænska mezzosópransöngkonan
MARGOT RÖDIN
syngur lög eftir Rangström, Stenhammar, Peterson-
Berger, Brahms, Wolf, Strauss o.fl. Undirleikari JAN
EYRON. Aögöngumiöar á 30 kr. í kaffistofu og viö
innganginn.
NORRíNA HUSIO POHJOLAN TAID NORDENS HUS
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUNBLAÐIÐMORG
MORGUr^LAÐIÐMQ
MORGU
MORG
MOR
MOI
MQ
M
NBLAÐIÐMORGUNBLADIO
IOMORGUNBLAOIO
'/" ^ORGUNBLAOIO
NBLAÐIÐ
Blaó-
burðar-
fólk
óskast
M
M
MOi
MO
MOR
MOR
MOI
MO
M<7
Mferrréíl'l
MORGUl
MORGUNB
MORGUNBLA
MORGUNBLAÐIÐI
MORGUNBLAÐIÐMOR
ÐIÐ
OIÐ
ÐIÐ
LAÐIÐ
ÐIÐ
AÐIO
ÐIÐ
ÐIÐ
ÐIÐ
BLAÐIÐ
&LAÐIÐ
BLAOIÐ
NBLAÐIÐ
UNBLAOIÐ
'iGUNBLAÐIÐ
RGUNBLAÐIÐ
OT
BLADIÐM(
NBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ