Morgunblaðið - 15.03.1981, Side 1
64 SÍÐUR
62. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rússar senda 50
ráðgjafa til Chad
WashinRton, 14. marz. AP.
RÚSSAR hafa sent allt að 50
hernaðarráðgjafa til Chad upp á
síðkastið. að sögn embœttis-
manns i bandariska utanríkis-
ráðuneytinu.
Ráðgjöfunum er ætlað að vera
stjórninni, sem nýtur fulltingis
yfirvalda í Líbýu, innan handar,
og jafnframt að þjálfa þarlenda
hermenn.
Líbýumenn sendu í fyrra um
7.000 hermenn til Chad er studdu
sveitir Goukounis Oueddei forseta,
sem áttu í útistöðum við hersveitir
hliðhollar Hissein Habre fyrrum
varnarmálaráðherra landsins.
Bardögum slotaði í höfuðborg
Chads, N’djamena, fyrir þremur
mánuðum. Rússar hafa séð Líbýu-
mönnum fyrir hergögnum í mikl-
um mæli, og segir í yfirlýsingum
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, að íhlutunin í Chad sé gott
dæmi um alþjóðaskæruhernað,
sem rekinn sé fyrir tilstuðlan og á
kostnað Kremlar.
Söluhæstu bifreiðarnar í fyrra:
Japanir hafa
sett sitt mark
Tókýó, 14. marz. - AP.
SJÖ japanskar bifreiðar voru í
hópi 15 söluhæstu bifreiða heims
á siðasta ári, samkvæmt nýút-
kominni skýrslu um bifreiðasölu
á heimsmarkaði.
Söluhæsta japanska bifreiðin í
fyrra og jafnframt mest selda
bifreið heimsins var Toyota Cor-
Danska
stjórnin
hart
gagnrýnd
Kaupmannahöfn, 14. marz. AP.
DANSKA stjórnin sætti
harðri gagnrýni í dönsk-
um blöðum í morgun og
krafizt var opinberra
skýringa á hvað hæft væri
í fregnum í fréttabréfi
brezka timaritsins Econ-
omist, að nýskipaður ráð-
herra væri hættulegur
vörnum landsins.
Samkvæmt fréttabréf-
inu hafa fulltrúar í höfuð-
stöðvum NATO áhyggjur
af skipan ráðherra, sem
dönsku blöðin segja að sé
Ole Espersen dómsmála-
ráðherra, þrátt fyrir að
danska leyniþjónustan hafi
reynt að fullvissa fulltrúa
um að Espersen yrði úti-
lokaður frá því að hafa
aðgang að leyniskýrslum
vegna náins og langvar-
andi sambands hans við
sovézka diplómata og
diplómata frá öðrum lönd-
um austan járntjaldsins.
Eversen er eini nýi ráð-
herrann sem fer með við-
kvæm mál, en sem dóms-
málaráðherra er hann yfir-
maður leyniþjónustu
dönsku lögreglunnar.
olla, en alls seldust 771.720 bif-
reiðar af þeirri tegund, og var þar
um að ræða 21% söluaukningu frá
árinu áður.
I öðru sæti varð franska bifreið-
in Renault-r5, en af þeirri gerð
seldust 519.851 bifreið, og í þriðja
sæti varð Volkswagen Golf, en af
þeirri gerð voru seldar 517.619
bifreiðar.
Renault-bifreiðin var í sjöunda
sæti á lista yfir söluhæstu bifreið-
arnar 1979, og var um 39,7%
söluaukningu að ræða árið 1980.
Hins vegar voru seldar 16% færri
Golf-bifreiðar 1980 miðað við
1979, og féll Golfinn úr öðru sæti í
það þriðja.
I fjórða sæti listans var jap-
anski bíllinn Nissan Sunny
(506.052), í fimmta sæti Citation
frá General Motors (459.393) og
Chevette frá GM var í sjötta sæti
(454, 068). í sjöunda til tíunda sæti
voru í réttri röð Opel Cadet, GM
Cutlass, GM Century og Honda
Civic.
Vor í lofti.
Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.
Pakistönsku fangamir
komnir til Sýrlands
Karachi. 14. marz. — AP.
RÚMLEGA 50 pólitískum föngum var í morgun flogið frá
Karachi í Pakistan til Aleppoflugvallar í Sýrlandi, þar sem
þeir verða afhentir í skiptum fyrir rúmlega 100 gísla, sem þrír
pakistanskir flugræningjar hafa haldið um borð i flugvél er
þeir rændu í innanlandsflugi í Pakistan 2. marz síðastliðinn.
Þotan hélt áleiðis frá Kar-
achi kl. 6.25 að íslenzkum tíma
í morgun, og lenti hún í
Aleppo kl. 11.25. Brottför
hennar tafðist meðan beðið
var tryggingar fyrir því, að
gíslarnir yrðu látnir lausir í
Sýrlandi.
Sendiherra Pakistans í Sýr-
landi sagði, að er þotan kæmi
til Aleppoflugvallar í norður-
hluta landsins, myndu sýr-
lenzkir embættismenn ganga
úr skugga um að um borð
væru þeir menn sem ræningj-
arnir hefðu krafizt í skiptum
fyrir gíslana. Við svo búið yrði
föngunum flogið áfram til
Trípólí í Líbýu, og er þeir
kæmu þangað yrðu gíslarnir
látnir lausir.
Sýrlenzkar heimildir
hermdu hins vegar, að fang-
arnir yrðu fluttir í sýrlenzkri
flugvél frá Aleppo til Damask-
us, þar sem ræningjarnir
myndu slást í hópinn áður en
haldið yrði til Líbýu, sem
verður griðland ræningjanna
og fanganna. Þegar ræningj-
arnir slást í förina með föng-
unum verða gíslarnir látnir
lausir og þeir fluttir til Pakist-
an í sýrlenzkri þotu.
Flugræningjarnir höfðu
krafizt þess að 55 pólitískir
fangar yrðu látnir lausir í
skiptum fyrir gíslana, en
hermt er að 51 fangi sé á leið
til Sýrlands, þar sem fjórir
þeirra hafi neitað að fara úr
klefum sínum, þar sem þeir
vildu ekki fara úr landi.
Hreingerningamaður, sem
fór um borð í rændu flugvélina
í gær, sagði að ástandið um
borð væri uggvænlegt. Gísl-
arnir væru illa á sig komnir og
hefðu margir þeirra misst
tímaskyn. Óþrifnaður væri
mikill og lyktin í verra lagi.