Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981
25
hennar, en einkar kært var með
þeim systrum alla tíð.
Það var á þessu ári að ég
kynntist fyrst Eggerti Sölvasyni
og fjölskyldu hans. Við hófum
störf hjá Síldarverksmiðjum
ríkisins í sama mánuðinum. Það
tókust fljótt kynni með okkur sem
hófum þar störf, þótt ókunnugir
værum áður. Þó aldursmunur
væri ærinn, eða rúm 40 ár, tókst
góð vinátta með okkur. Ég sóttist
eftir því að vera í návist hans.
Hann var fullur af fróðleik og jós
honum á báða bóga, þá talaði
hann tæpitungulaust um stjórn-
mál, hann fór ekki dult með
skoðanir sínar í þeim efnum og má
mikið vera ef hann, ásamt fleir-
um, átti ekki drjúgan þátt í því að
gera mig að framsóknarmanni .
Eftir komuna til Siglufjarðar má
segja að öll fjölskyldan hafi tekið
til höndunum — allir höfðu eitt-
hvað að starfa jafnvel sonurinn,
10 ára.
Að haustinu hófu börnin nám í
skólum staðarins og húsfreyjan
tók upp fyrri iðju og saumaði
skartföt á siglfirskar konur.
í Siglufirði dvöldu hjónin frá
Skúfum í 16 ár. Árið 1947 fluttu
þau til Reykjavíkur og bjuggu
lengst af að Stórholti 27. Vinahóp-
urinn þeirra var orðinn stór í
Siglufirði sem sá nú eftir þessari
fjölskyldu við brottförina.
Eftir að komið var til Reykja-
víkur bjuggu dæturnar jafnan
með foreldrum sínum og önnuðust
þau af einstakri kostgæfni. Eins
og fyrr segir naut Jóninna góðrar
heilsu lengst af ævinnar, en bóndi
hennar var ekki eins heilsuhraust-
ur. Þegar elli og sjúkdómar sóttu á
hann, vöktu kona hans og dætur
yfir sérhverju spori hans, en hann
hafði lengst af fótaferð þó sjúkur
væri. Sömu sögu er að segja af
Gissuri, syni þeirra, og hans fólki,
þó hann byggi ekki með þeim.
Langömmubörnin sem iðulega
komu í Stórholtið voru augastein-
ar og eftirlæti langömmu sinnar.
Eggert andaðist 3. mars 1963.
Éftir að við, fjölskylda mín og
ég, fluttum til Reykjavíkur og
eignuðumst heimili í næsta ná-
grenni við Stórholtið hófst sam-
gangur á milli heimilanna.
Á heimili þessa fólks var gott að
koma og eigum við hjónin og þá
ekki síður börnin okkar góðar
minningar þaðan.
Ég mun lengi minnast Jóninnu
Ingibjargar Jónsdóttur. Hún var
glæsileg kona, há vexti og fasprúð,
stundum kembdi aftur af henni
skörungsskapurinn, ef henni
fannst réttu máli hallað.
Áður var að því vikið hve dugleg
hún var við búskapinn, hún mun
hafa verið í fremstu röð húsfreyja
í sveit á sinni tíð og víkingur til
allra starfa utandyra.
Þótt vinnudagur Jóninnu væri
jafnan langur bæði norðanlands
og sunnan gaf hún sér alltaf tíma
til að lesa og læra. Hún unni
kveðskap — og var hinn mesti
vísnasjóður, oft mælti hún vísur
og löng kvæði af munni fram og
síðast í febrúar sl. fór hún með
Gunnarshólma allan. Viðstaddir
höfðu orð á því að svo væri minnið
gott og framburðurinn skýr að
framsögnin minnti á atvinnuleik-
ara.
Jóninna verður kvödd á mánu-
daginn, 16.3., kl. 1.30 frá Háteigs-
kirkju — sóknarkirkjunni sinni,
sem hún unni mjög'og sýndi það í
verki er hún og börn hennar gáfu
kirkjunni á vigsludegi fagra
stjaka og kross á altari kirkjunnar
til minningar um Eggert Sölva-
son.
Jóninna var hamingju mann-
eskja. Hún átti góða og umhyggju-
sama foreldra. Hún naut æsku-
daganna á Kirkjubæ og minntist
þeirra jafnan. Systur hennar voru
henni kærar og ómetanlegar. Hún
eignaðist góðan mann og unni
honum lífs og liðnum.
Barnalán hafði hún og naut þess
til hinstu stundar.
Ég kveð þessa vinkonu mína
með virðingu og þakka henni
samfylgdina, ábendingar og holl
ráð. Ég kveð hana með teimur
orðum úr uppáhaldskvæðinu
hennar, Gunnarshólma. — „Farðu
vel ...“
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma,
DANIELA JÓNA JÓHANNESDÓTTIR
frá Hntfsdal,
sem andaöist 8. marz, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 16. marz kl. 15.00.
Lárus I. Sigurösson,
Jón Arinbjörn Lárusson, Sigfríó Lárusdóttir,
Lárus Hafstein Lárusson, Þóranna Hjálmarsdóttir,
Sigurgeir Ingi Lárusson, Kristbjörg Guðjónsdóttir,
Bára Björk Lárusdóttir, Stafán Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför fósturmóöur minnar, tengdamóöur, ömmu, systur og
mágkonu,
GUDRÚNAR ÞORVALDSDOTTUR
frá Kroppstööum í Önundarfiröi.
Oddur Jónsson, Erna Jónsdóttir,
Jóna Oddsdóttir, Gunnar Oddsson,
Elín Oddsdóttir,
Vilborg Þ. Hafberg,
Andrew Þorvaldason, Dagbjört Þórarinsdóttir,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Ólafur Guömundsson,
Elfn Arnadóttir.
f
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför
SIGRÍDAR FINNBOGADÓTTUR,
Stóra-Núpi.
Einnig bestu þakkir til þeirra er önnuöust hana í veikindum hennar.
Jóhann Sigurösson
og aörir aöstandendur.
f
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu við andlát og
útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
GUOMUNDAR RAGNARSSONAR,
Espigerði 4.
Alúöarþakkir til lækna, hjúkrunarliös og alls starfsfólks á deild ll-B
Landakotsspítala fyrir góða umönnun við hinn látna og elskuleg-
heit viö aöstandendur.
Hólmfríöur Carlsson,
Herberg Guömundsson, Anna M. Hjartardóttir,
Sólveig Guömundsdóttir, Björgvin Ingibergsson,
Siguröur Guömundsson, Ester Kristjánsdóttir,
Ragnar Guömundsson, Sigríður Þóroddsdóttir
og barnabörn.
/ ■
nyjan
FORD TAUNUS
Eftir langt hlé getum viö nú boðiö aftur þýskan
FORD TAUNUS
Mest seldi
tö\sky'dubi»»nn
$
\
Evrópu
Allir þeir, sem hafa kynnst Ford Taunus vita, að þar er um aö ræöa bíl í efsta gæöaflokki. Hinum getum viö bent á
eftirfarandi atriöi:
• Bjart og rúmgott farþegarými
• Luxus innrétting meö djúpbólstruóum sætum
• 1600 cm vél — 75 hestöfl
• Mjúka gormafjöörun á öllum hjólum
VERÐ: FORD TAUNUS 1600 GL 4 DYRA
Meö sjálfskiptingu
Miöstöö og loftraastingu f sérflokki
Frábæra aksturseiginleika
Eyösla aöeins 7,1 á 100 km
Kr. 99.000.
Kr. 108.000.
Sveinn Egilsson hf.
SKEIFUNNI 17 SIMI 85100
Jón Kjartansson