Morgunblaðið - 15.03.1981, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.03.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 27 einstakur sem málari, næstum merkilegt að ísland skuli ekki eiga marga alveg eins og hann. Hinn, sá einasti sem ég hefi tíma til að segja svolítið um, er Munch — Edvard Munch, hinn norski mál- arajötunn, og það er engin furða þó að Norðmenn standi framar- lega í listum á heimsmarkaðinum í augnablikinu, þar sem þeir hafa slíkan mann í viðbót við sína eldri listkrafta. Ég ætla mér ekki að fara að lýsa neinum af Munchs listaverkum heldur aðeins virð- ingarfyllst dáðst að honum. Hann getur skapað svo mörg stór verk enn, með sinni víðtæku þekkingu á listinni og hann hefir háð svo mörg stríðin í sínum innra manni, og unnið sigur ofan á sigur — sem glöggt má sjá á verkum hans — að hann hefir alla möguleika sem Jóhannes S. Kjarval: „SIrta“ 1933 Eftir að hafa talið upp marga ágæta málara, heldur hann áfram... „Margir eru þeir fleiri sem ég hef fest hugann við á mínum mörgu ferðum gegnum sýningar- salina — en ég læt mér nægja að nefna tvo til, sem hafa dregið mig til sín einna sterkast, — enda þótt þeir séu hvor öðrum ólíkir. Annar er Harald Solberg, fæddur 1869. Málverk hans eru alveg útaf fyrir sig, og líkjast engu sem ég hefi séð á myndum, hann málar helgiblæ náttúrunnar með hrífandi róm- antískum einföldum litum. — Það er aðdáun mannssálarinnar fyrir hinni hátíðlegu alvöru og kyrrð náttúrunnar, sem hann hefir mál- að. Og hann hefir áreiðanlega hitt naglann á höfuðið. — Maður verður betri við að horfa á myndir hans, hann vekur barnið upp í þeirri sál sem skilur hann — og dregur það mótþróalaust til sinn- ar upprunalegu móður, náttúr- unnar, úti í hinni djúpu hlustandi einveru. Maður man allt í einu eftir hátíðisdögum heima á Fróni, og sérstaklega nýársmorgni með léttu frosti í hálfbirtingunni þegar tunglið er að hverfa bak við heimafjallið. Hann Solberg er Jóhannes Kjarval: “Suðurnesja- menn“ Johannes Larsen: „Hrossagauk- ur“ Höskuldur Björnsson: „Litli fugl- inn“ Gunnlaugur Scheving: „Við eidunarstörf“ Jóhannes S. Kjarval: „Stúlku- andlit“ listamaður getur átt til þess að skapa eitt verkið öðru sterkara og fegurra. Og það er þess vegna að maður trúir hinni svokölluðu yngri listastefnu — eftir að hafa séð Munch — svo einfaldan í sinni meistaralegu fjölbreytni (varia- tion). Og maður byrjar að trúa því, að framtíðin eigi í skauti sínu óunnin lönd, sem Iistin ein getur unnið, og að mögulegt sé að skapa jafn göfuga og góða list í framtíð- inni sem nútíðarfyrirmyndina, Hellas fornminjar (antiken) og þá seinni guðsbarnaanda, Rafaelo, Rembrandt og Murillo. En á öðru sviði í annarri frígerðri mynd, þar sem samlífið milli þjóðar og lista- manns er betur vakandi en nokkru sinni áður, þar þjóðirnar finna vakandi en ekki í draumóramóki, lífsþrótt sinn, margfalda hann í frjálsborinni sköpunarþrá, sem er listarinnar innsta eðli.“ . Hér er skýrlega að orði komist þótt málið virðist dálítið forn- eskjulegt en þetta er nú einu sinni skrifað af skútusjómanni ofan úr sveit. Ekki líkist þetta í neinu seinni tíma gjörningum Kjarvals á ritvellinum! En málið er, — kynnumst við ekki list og myndhugsun Kjarvals betur í gegnum þessi skrif. Eiga þessi orð ekki við einn listamann í viðbót? — Jóhannes Sveinsson Kjarval.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.