Morgunblaðið - 15.03.1981, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981
Annar slösuðu mannanna fluttur úr þyrlunni yfir i sjúkrabíl á þyrlupallinum við Borgarspitalann i gær. Mennirnir tveir, sem eru á milli
tvitugs og þritugs, eru báðir taldir allmikið slasaðir, en þó ekki i lifshættu. LjóKm. Mbi.: Raiínar Axelason.
Síminn
á afgreiðslunni er
83033
jnerjjwnblabib
Þyrla sótti slasaða menn í Landmannalaugar:
af hengju
féiagar úr Björgunarsveitinni Ing-
ólfi, sem voru við æfingar við
Veiðivötn, sem höfðu samband við
Slysavarnafélagið í gegnum Gufu-
nesradíó. Til þeirra hafði komið fólk
úr Landmannalaugum, og skýrt frá
því, að tveir menn er farið höfðu frá
skálanum í Landmannalaugum milli
klukkan 19 og 20 kvöldið áður, væru
ekki enn komnir fram. Voru þeir á
snjósleða, en illa búnir. Pélagar
Björgunarsveitarinnar brugðust
þegar við, og hófu leit að mönnunum,
og skýrðu Siysavarnafélaginu frá
gangi mála.
Nokkru síðar fundust mennirnir,
en þeir höfðu farið á snjósleðanum
fram af hárri hengju, og voru bæði
slasaðir og hraktir af kulda. Til-
kynntu björgunarsveitarmenn, að
þeir óttuðust að um innvortis
meiðsli væri að ræða og meiðsli á
hrygg, svo nauðsynlegt væri að þyrla
sækti mennina. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar, TF-Rán, var þegar í stað
undirbúin fyrir flug austur, og fór
hún frá Reykjavík um klukkan 8.
Vegna éljagangs og slæms skyggnis
komst hún hins vegar ekki niður til
lendingar þe'gar austur var komið,
en varð að sveima yfir Landmanna-
laugum nokkra hríð. Þegar lending
var síðan möguleg, var búið að hlúa
að mönnunum og búa þá undir
flutninginn, og var þeim þá farið að
hlýna.
Læknir var með þyrlunni, og hlúði
hann að mönnunum í Landmanna-
laugum og leiðinni til Reykjavíkur
eftir því sem unnt var, en þyrlan fór
af stað um klukkan 10.43 og kom á
lendingarpallinn við Borgarspítal-
ann um klukkan 12 á hádegi. Voru
mennirnir þegar fluttir á slysadeild
og eru nú á Borgarspítalanum.
Félagar úr Björgunarsveitinni
Ingólfi voru sem fyrr segir á æfing-
um við Veiðivötn. Þeir voru tuttugu
saman, með snjóbíl og sex vélsleða,
og kom nærvera þeirra sér vel sem
nærri má geta. Skipherra í sjúkra-
fluginu austur var Þröstur Sig-
tryggsson, flugstjóri var Björn
Jónsson og aðstoðarflugmaður Ben-
óný Ásgeirsson. Læknir Borgarspít-
alans sem fór með þyrlunni var
Leifur Jónsson.
Hannes Hafstein sagði, að björg-
unin hefði í alla staði tekist eins vel
og við var að búast. Allir þeir er lagt
hefðu hönd á plóginn ættu þakkir
skildar, björgunarsveitarmenn,
áhöfn þyrlunnar, læknalið spítalans
og starfsmenn Gufunessradiós.
Hannes sagði þetta fyrstu ferð nýju
þyrlunnar af þessu tagi, og lending á
pallinum við Borgarspítalann, og
hefði allt gengið að óskum. Yfir-
stjórn leiðangursins var í höndum
Slysavarnafélagsins.
Hannes Hafstein sagði að lokum,
að sjaldan væri fólk of oft hvatt til
að fara að öllu með gát í óbyggð-
aferðum, ekki síst á þessum árstíma.
Hornafjarðarflugslysiö:
Flakið á land
Höfn i Hornafirði. 14. marz.
Björgunarfélagsmenn á Höfn í
Hornafirði náðu í gær á land flaki
Piper-flugvélar Flugfélags Austur-
lands með því að koma flotholtum á
vélina á fjöru og cinnig komu þeir
netabelgjum fyrir inni i vélinni.
Flotin á vélinni voru um 20 olíu-
tunnur, 250 lítra. Þegar mest var
voru 5 bátar á staðnum að aðstoða
við flutning flaksins til lands, en
þegar vélin var komin á þurrt kom
berlega í ljós hve gífurlega illa vélin
var farin, svo til enginn hlutur heill á
henni og mótorarnir héngu stór-
skemmdir utan á vélinni. — Einar
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
Jflarcrinblwbib
„STAÐREYND er að bilastæðamál
í miðborg Reykjavikur eru í megn-
asta ólagi, og ætla má að nú vanti
um eitt þúsund bílastæða a.m.k.
þannig að ástandið yrði viðunandi."
sagði Markús Örn Ántonsson borg-
arfulltrúi i samtali við Morgun-
blaðið í gær. En Markús fór þess
nýlega á leit i framkvæmdaráði
Reykjavikurborgar, ásamt tveimur
öðrum fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins, Jónasi Elíassyni og Hilmari
Guðlaugssyni, að borgarverkfræð-
ingur tæki saman skýrslu um bila-
stæðamál gamla miðhæjarins.
„Við fórum fram á þessa greinar-
gerð vegna þess að við teljum úrbóta
þörf í bílastæðamálum miðbæjar-
ins,“ sagði Markús Örn við Morgun-
blaðið. „Ljóst er að stóran hluta
vikunnar er erfiðleikum bundið að
finna bílastæði í miðborginni, eink-
um þann tíma sem bankar og aðrar
opinberar stofnanir eru opnar. Eftir
lokunartíma þeirra virðist hins veg-
ar sem dauft sé á þessum slóðum, og
verslunareigendur fullyrða að versl-
un í miðbænum hafi stórlega minnk-
að. Virðist svo, sem bílaeigendur
kjósi nú fremur að versla í verslun-
Aðkallandi að
finna lausn á
vandanum segir
Markús Örn
Antonsson
um í öðrum borgarhverfum, þar sem
auðveldara er að finna stæði fyrir
bifreiðar."
Markús Örn sagði, að í svari
borgarverkfræðings hefði komið
fram, að síðasta athugun á bíla-
stæðamálunum hefði farið fram árið
1975. Þá hefðu verið 1777 bílastæði á
svæðinu vestan Lækjargötu að Æg-
isgötu. Jafnframt hefði verið leitt í
ljós að á þessu svæði hefði verið lagt
1826 bifreiðum vestan Aðalstrætis,
11% fleiri bílum en stæði voru fyrir,
og í Kvosinni 13% fleiri bílum.
Markús sagði ennfremur, að áætl-
að væri að árið 1975 hefðu 25 þúsund
bílar ekið um Kvosina daglega.
Samkvæmt þeim tölum hefði verið
áætlað að bílastæðaþörfin væri milli
2500 og 2750. Síðan þá hefði bíla-
stæðum fækkað, meðal annars vegna
þess að Alþingi hefði tekið fleiri
stæði, og jafnframt hefði bifreiðum
fjölgað. Því mætti ætla að vantaði
um 1000 bílastæði í miðborginni nú
að minnsta kosti.
Markús Örn Antonsson sagði jafn-
framt, að kynntar hafi verið tillögur
að skipulagi í Grjótaþorpi, sem hefði
það í för með sér að um 100 bílastæði
hyrfu. Einnig væri möguleiki á því,
að Alþingi byggði á lóðum sínum, og
gætu þar horfið um hátt á annað
hundrað stæði undir hús og annað,
sem eru nú til almennra nota meira
og minna.
Af úrlausnum á þessum vanda
sagði Markús á hinn bóginn fyrir-
sjáanlegt, að á svokölluðum Seðla-
bankagrunni nyrst í Arnarhóli gætu
rúmast 190 bílar í tveggja hæða
bílageymslu, og einnig hefði borgar-
verkfræðingur í fyrra kynnt hug-
myndir um bilageymsluhús milli
Tryggvagötu og Hafnarstrætis, sem
byggt yrði í samvinnu við eða í
samráði við lóðaeigendur þar. Þar
væri um að ræða hús upp á 550 bíla,
sagði Markús, samkv. hugmyndum
er kynntar hafa verið borgarskipu-
lagi Reykjavíkur.
fram
Bilastæði á Hótel Islands-planinu eða Hallærisplaninu í miðborg
Reykjavikur. Sifellt verður erfiðara að finna stæði fyrir bifreiðar i
miðbænum, og er nú talið að þar vanti um 1000 stæði til að vel væri.
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
i gærmorgun tvo unga menn, er
slasast höfðu á snjósleðaferðalagi
skammt frá Landmannalaugum.
Var komið með mennina tvo að
Borgarspítalanum laust eftir
klukkan 12 á hádegi i gær, og voru
mennirnir taldir allmikið slasaðir
en þó ekki i lifshættu.
Hannes Hafstein framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélags Islands sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær, að
tilkynning um slysiö hefði borist um
klukkan 6 í gærmorgun. Það voru
Margeir í 2.
sæti í Tallin
MARGEIR Pétursson er nú i
2.-3. sæti á skákmótinu i
Tallin i Eistlandi með 4 vinn-
inga eftir 6 umferðir. Stór-
meistarinn Gipslis er efstur i
mótinu með 4 lh vinning.
Margeir, sem er alþjóðlegur
meistari, er í 2. sæti ásamt
stórmeistaranum Bronstein
með 4 vinninga og i 4.-9.
sæti eru þeir Tal, Nei, Gufeld,
Vogt, Ftacacnik og Kiarner
með 3'á vinning.
I sjöttu umferð mótsins,
sem tefld var á föstudag, vann
Margeir Hazai frá Ungverja-
landi í 32 leikjum, en Margeir
hafði svart.
Margeir er eini V-Evrópu-
búinn, sem tekur þátt í mótinu
og stýrði hann hvítu mönnun-
um síðdegis í gær gegn Vogt,
en í dag mætir hann Gipslis,
efsta manni mótsins. Á morg-
un og þriðjudag er ekki teflt í
mótinu, en Margeir teflir fjöl-
tefli í skákklúbbi í Tallin á
þriðjudaginn.
Óku á snjósleða
Um 1000 bílastæði vantar
í miðborg Reykjavíkur
i