Morgunblaðið - 26.03.1981, Page 1
48 SIÐUR
71. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samvinna gegn
hryðjuverkum
Madrid. 25. marz. AP.
SPÆNSKA varnarmálaráðuneytið sagði í dag, að þótt
heraflinn mundi veita liðsinni í baráttunni gegn
hryðjuverkum yrði ekki um beina þátttöku hans að
ræða og ábyrgðin mundi hvíla í höndum öryggissveit-
anna.
Um samvinnu hersins verður
aðeins að ræða þegar hún verður
talin nauðsynleg og þá verður
fylgzt með umferð á landi, sjó og
í lofti, einkum á landamærunum,
til að reyna að hafa uppi á
hryðjuverkamönnum.
Sjóherinn tilkynnti, að sjö
herskip mundu hafa gætur á
norðurströnd Spánar milli Sant-
ander í vestri og Pasajes í austri.
Spænsk yfirvöld segja, að
hryðjuverkamenn Baska leiti
hælis á franskri grund og hafi
skipulagt og gert árásir frá
Frakklandi, er hafi kostað rúm-
lega 350 mannslíf á 14 árum. Þau
kvarta yfir skorti á samvinnu
Frakka.
Leopoldo Calvo Sotelo forsæt-
isráðherra kynnti leiðtoga
heimastjórnar Baska, Carlos
Garaicoechea, ráðstafanirnar
gegn hryðjuverkamönnum á
tveggja tíma fundi. Garaicoechea
kvaðst ánægður með fundinn og
sagði að fyrir hendi væri gagn-
kvæmur samstarfsvilji.
Hann lýsti sig andvígan neyð-
arástandi í Baskahéruðunum, |
Svör frá
Thatcher
London. 25. marz. AP.
MARGARET Thatcher forsæt-
isráðherra vann í dag að
skýrslu sinni á þingi á morg-
un um ásakanirnar i Daily
Mail um að Sir Roger Hollis,
fyrrverandi yfirmaður gagn-
njósnaþjónustunnar MI5, hafi
verið njósnari Rússa og nýjar
ásakanir um að þingmaður-
inn Tom Driberg hafi leikið
tveim skjoldum. Hún ræddi
Tom Driberg, hinn látni þing-
maður sem er sakaður um
samvinnu við bæði MI5 og
KGB.
m.a. við yfirmenn öryggis-
mála.
Jafnframt segir Daily Mail
að sonur bandarisks stjórnar-
erindreka. Michael Whitney
Straight. hafi flett ofan af
njósnaranum Anthony Blunt.
Innanrikismálanefnd íhalds-
flokksins tók i dag undir
kröfur um rannsókn. Nefndin
vill að dómari stjórni rann-
sókninni, er skuli ná aftur til
áranna eftir 1940 til að gengið
verði úr skugga um áhrif
KGB. Sjá nánar bls. 22.
þar sem það kæmi niður á öllum
borgurum, en kvaðst hafa fengið
fullvissanir um að ráðstafanirn-
ar mundu ekki bitna á þróuninni
til heimastjórnar.
Lech Walesa þefar af blómi frá aðdáanda í fundarhléi í Bydgoszcz þar
sem boðað var allsherjarverkfall
20 falla í
götuátökum
Beirút. 25. marz. AP.
ANDSTÆÐAR fylkingar stuðn-
ingsmanna írana og íraka áttu í
götuhardögum i allan dag í hinni
fornu borg Baalbek í Austur-
Líbanon og 20 féllu og 50 særð-
ust. Sýrlenzka gæzluliðið sendl
liðsauka á vettvang.
Leyniskyttur létu að sér kveða
umhverfis skrifstofu forsætisráð-
herra á græna svæðinu í Beirút og
stórskotahríð heyrðist öðru hverju
í hafnarhverfi borgarinnar. Eng-
an sakaði.
Engin niðurstaða á
fundum með Walesa
Varsjá. 25. marz. AP.
I.ECH WALíiSA sagði í dag að engin
niðurstaða hefði fengizt i dag i
viðræðunum, sem miða að þvi að
afstýra allsherjarverkfalli i Pól-
landi. en báðir aðilar heíðu sam-
þykkt að taka viðræðurnar upp að
nýju á morgun.
Walesa sagði að loknum hálfrar
annar klukkustundar fundi með Mi-
eczyslaw Rakowski aðstoðarforsætis-
ráðherra að viðræðunum hefði verið
frestaö, þar sem stjórnarnefnd, sem
var skipuð til að rannsaka barsmíðar
á þremur verkamfinnum á fimmtu-
daginn, hefði ekki lokið við að semja
skýrslu sína.
„Þar sem engin niðurstaða liggur
fyrir er engin ástæða til að sitja 12
tíma á fundi,“ sagði Walesa í útvarps-
viðtali. „Við bíðum, við erum fúsir til
viðræðna og þegar niðurstöðurnar
liggja fyrir tökum við afstöðu til
þeirra."
„Viðræðunum yrði ekki haldið
áfram á morgun ef enginn árangur
hefði náðst í dag,“ hafði Walesa áður
sagt i viðtali.
Spenna hefur aukizt vegna barsmíð-
anna í Bydgoszcz, er leiddu til hótan-
anna um allsherjarverkfall, og fréttir
herma að hamstur sé hafið á matvæl-
um, sem eru af skornum skammti.
Auk þess hefur sjónvarpið lýst sam-
eiginlegum heræfingum Rússa og
Pólverja á hverju kvöldi í fimm daga.
Um 1, 000 manns fögnuðu Walesa
þegar hann kom til fundarins með
ríkisstjórninni og honum varð orðfall
þegar fjórir menn lyftu honum upp og
báru hann á gullstól inn í bygginguna
þar sem viðræðurnar fara fram. „Ég
er viss um að viðræðurnar verða góðar
og að þeim muni Ijúka með samkom-
ulagi," sagði Walesa. „Ef ég tryði því
ekki, dytti mér ekki í hug að semja,"
sagði hann. Næstráðandi hans, And-
rzej Gwiazda, tók í sama streng.
Kröfur verkamanna, sem voru birt-
ar í dag, eru þessar: Að embættis-
mönnum, sem báru ábyrgðina á at-
burðunum í Bydgoszcz, verði vikið úr
starfi eða refsað. Að öryggi meðlima
verkalýðsfélaga verði tryggt, svo og
réttur þeirra til að svara gagnrýni,
sem kemur fram í fjölmiðlum, í sömu
fjölmiðlum. Að málsókn verði hætt
gegn fólki, sem var handtekið fyrir
pólitíska andstöðu 1976-1980. Að
bændur fái að stofna óháð verkalýðs-
félög. Að felld verði niður stjórnar-
tilskipun um að verkamenn í verkfalli
fái aðeins hálf laun.
„Ég vil ekki verkföll fremur en
ríkisstjórnin, en ef það er eina leiðin
til að halda fram málstað okkar
gerum við verkfall," sagði Walesa
fyrir fundinn.
í Bydgoszcz eru verkamenn bjart-
sýnir á samkomulag. En mörg verka-
lýðsfélög eru að flytja skrifstofur
sínar úr húsnæði í borgum í verk-
smiðjur til að tryggja öryggi verka-
lýðsleiðtoga og betri skipulagningu ef
til verkfalls kemur.
Verkfallsviðbúnaður Solidarnocz
hefur breiðzt til allra háskóla í Varsjá
og óháð stúdentafélög hafa boðað
verkföll ef verkamenn leggja niður
vinnu.
í Bydgoszcz hefur a. m. k. einn
embættismaður, Eduard Berger form-
aður héraðsráðsins, boðizt til að segja
af sér. Einnig er krafizt afsagnar
varalandstjórans, saksóknarans og
lögreglustjórans.
Skálmöld í Kampala
Nairubi. 25. marz. AP.
SKÆRULIÐAR er beittu plastsprengjum og sprengjuvörpum drápu
þrjá hermenn, létu vélbyssukúlum rigna yfir aðalstöðvar stjórnar-
flokksins og tóku rafmagn af miklum hluta Úganda i dag i árásum í
Kampala og nágrenni.
Fjórar sprengingar skóku
Kampala í nótt og hermenn og
skæruliðar skutust á á aðalgötum
borgarinnar í þann mund sem
skrifstofur voru opnaðar. Borgar-
búar flúðu fljótlega úr höfuðborg-
inni og borgin var mannlaus það
sem eftir var dagsins.
Frelsishreyfing Úganda (UMF),
sem er hægrisinnuð og styðst við
ættflokka, lýsti sig ábyrga á
árásunum. Hreyfingin kvaðst hafa
samvinnu við annan skæruliðahóp
fjandsamlegan Milton Obote for-
seta, Mospor (hreyfinguna til bar-
áttu fyrir pólitískum réttindum),
undir forystu Yoweri Museveni
fyrrum varnarmálaráðherra.
„Við verðum að beita öllum
nauðsynlegum ráðum til að upp-
ræta einræði," sagði félagi úr
UMF. „Þetta verður löng barátta
og við erum vel vopnaðir."
Paulo Muwanga varaforseti for-
dæmdi árásirnar og sagði: „Þetta
fólk hefur sagt þjóðfélaginu stríð
á hendur. Eyða verður óvinum
þjóðfélagsins."
Völd Haigs
„ekki skert“
WashinKtod. 25. marz. AP.
RONALD Rragan forseti lýsti
því yfir í dag. að Alexander M.
Ilaig utanríkisráðherra væri
enn helzti ráðgjafi hans í utan-
ríkismálum. þótt hann hefði
skipað George Bush varafor-
seta formánn nefndar. sem á að
samræma stjórnarstefnuna
þegar upp kemur neyðarástand
heima eða erlendis. Aðrir ráða-
menn sögðu Haig hafa beðið
álitshnekki.
Reagan sagði fréttamönnum,
að engin mótsögn væri í því
fólgin að Haig væri aðalráðgjafi
hans í utanríkismálum og Bush
yrði formaður nefndarinnar.
Jafnframt reyndu Reagan og
utanríkisráðuneytið að gera lít-
ið úr fréttum um togstreitu í
skrifstofukerfinu vegna
óánægju Haigs.
Reagan neitaði því einnig að
Haig hefði hótað að segja af sér
vegna málsins. Aðrir sögðu að
frekari ávítur yrðu til þess að
Haig hætti.
Sjá nánar bls. 23.
Hreinsun spáð
í Afghanistan
Nýju Delhl. 25. marz. AP.
MEIRIIIÁTTAR hreinsun embættismanna, sem kommúnistar hafa
skipað í Afghanistan, í þvi skyni að auka vinsældir ríkisstjórnar
Babrak Karmals forseta, var spáð i dag samkvæmt vestrænum
diplómataheimildum.
UKt '*< •
í ráði er samkvæmt heimildun-
um að víkja nokkrum háttsettum
embættismönnum kommúnista og
skipa óflokksbundna menn í
þeirra stað til að láta líta út fyrir
að stjórnin standi á breiðari
grundvelli og sé ekki eins rígbund-
in í hugsjónafræði.
Breytingarnar munu fara fram
eftir ráðgerðan stofnfund fyrir-
hugaðrar „föðurlandsfylkingar" í
apríllok, en hann átti upphaflega
að fara fram 21. marz. I útvarps-
ræðu í síðustu viku talaði Karmal
um „nýtt lýðræðislegt andrúms-
loft, einingarandrúmsloft" í Afgh-
anistan.
Samkvæmt fyrri fréttum er
þrýst á kunna Afghani, sem
standa utan stjórnmálaflokka, að
sækja stofnfund föðurlandsfylk-
ingarinnar. Upphaflegi stofnfund-
urinn rann út í sandinn vegna
ónógrar þátttöku og aflýsa varð
hersýningu sama dag, sem var
nýársdagur Afghana, vegna rign-
ingar.
Unnið er að endurbótum á
fyrrverandi þinghúsi Afghanist-
ans, sem verður aðalbækistöð
fylkingarinnar.
Jafnframt er óhugur i Hindúum
og Síkhum, búsettum í Afghanist-
an. vegna rána í 48 verzlunum
þeirra í Kabúl á fimmtudaginn.
Verðmæti ránsfengsins var áætl-
að a.m.k. 1,5 millj. dala.