Morgunblaðið - 26.03.1981, Side 17

Morgunblaðið - 26.03.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 17 Félagsleg könn- un Hjartavemdar „VIÐ vonumst til að geta skýrt frá áhættuþáttum einstakra starfsstétta í samhandi við hjarta (>K æðasjúkdóma siðar á þessu ári eða i byrjun hins næsta,“ sagði Nikulás SÍKfússon. yfirlæknir, þeKar Iljartavernd boðaði blaða- menn á sinn fund ok skýrði frá útkomu skýrlsna um félaKsfræði- leKar kannanir. sem Iljartavernd hefur KenKÍst fyrir. „Hjarta- vernd hóf hóprannsóknir á höfuð- borKarsvæðinu 1967 en þá var valið úrtak úr þjóðsskrá, á aldr- inum 34 ára til 61 árs, alls 17 þúsund einstaklinKar. Þessi hóp- ur hefur verið rannsakaður í þremur áfönKum. 1967—68, 1970-71 ok 1974-76. Fjórði áfariKÍ könnunarinnar stendur nú yfir, en hann hófst árið 1978. Hóprannsókn Iljartaverndar er viðtæk faraldsfræðileK könnun. fyrst ok fremst á hjarta ok æðasjúkdómum ok áhættuþáttum þeirra. Þessar félaKsfræðileKU kannanir eru undirbúninKsvinna til að meta áhættuþætti einstakl- inKa á að fá hjarta— ok æðasjúk- dóma. Það er tenKsl félaKsIeKra aðstæðna ok þessara sjúkdóma. ok eins ok ók saKði áður, þá vonast éK til að þær niðurstöður Hkkí fyrir síðar á þessu ári eða í byrjun þess næsta,“ saKði Niku- lás SÍKfússon ennfremur. Þeir ÓLafur Ólafsson, land- læknir og Haukur Ólafsson, MA hafa unnið kannanirnar fyrir Hjartavernd og skýrði Haukur frá helstu niðurstöðum á fundi með fréttamönnum, en menn voru sammála um, að það sem helst hefði komið á óvart væri, hve stéttaskipting eins og hún þekkist meðal nágrannaþjóða okkar, væri lítil hér á landi og hins vegar hve vinnuvika Islendinga væri löng. „Bættur félagslegur aðbúnaður, svo sem betri húsakynni, batnandi viðurværi, betri menntun og sam- göngur, samfara aukinni velmeg- un, hefur stuðlað að betri heilsu fólks, ekki síður en læknisaðgerðir og lyfjagjafir," sagði Haukur og hélt áfram. „Félagslæknisfræðin er ein af sérgreinum læknisfræð- innar. I hóprannsókn Hjarta- verndar hefur verið leitast við að kanna ýmis félagslæknisfræðileg atriði meðal þáttakenda. í þessu skyni var notaður staðlaður spurningalisti. I honum eru 24 megin spurningar um félagsleg atriði, margar þeirra í allmörgum liðum," sagði Haukur. Hann sagði að kannanirnar hefðu verið tvíþættar og niður- stöðurnar koma fram í tveimur skýrslum. I fyrri skýrslunni grein- ir frá niðurstöðum á menntun, atvinnu, húsnæði, heilsufari og lifnaðarháttum karla á höfuð- borgar svæðinu. Rannsóknin náði yfir Reykjavík og nærliggjandi sveitarfélög. Þriðjungur af sextán árgöngum karla á aldrinum 34 til 61 árs var boðaður til rannsóknar- innar. Alls voru boðaðir 2955 karlar og var þáttaka 75,1%. Mótmæla frum- varpi um drag- nótaveiðar í Faxaflóa FULLTRÚARÁÐ Sjálfsta>ðisfé- laganna á Akranesi hefur beðið Mbl. að birta eftirfarandi tillögu, scm samþykkt var einróma á fundi ráðsins 18.3. s).: „Fundur haldinn í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi miðvikudaginn 18. marz 1981 skor- ar alvarlega á þingmenn Sjálf- stæðisflokksins að berjast af hörku á móti frumvarpi Stein- gríms Hermannssonar um drag- nótaveiði í Faxaflóa og telur það lífsiiauðsyn fyrir Akranes að frið- un flóans verði tryggð áfram.“ Þáttakendum var skipt í 4 flokka eftir skólagöngu þeirra. Niðurstöður urðu m.a. þær, að 9,3% mættra höfðu háskólapróf, 16,7% stúdentspróf eða hliðstæða menntun, 38,7% höfðu gagnfræða- próf eða svipaða menntun og 33% höfðu barnaskólapróf eða minna. Hvað atvinnu snertir, þá sitja 38,9% um kyrrt mestan hluta vinnutímans, 14,2% eru í kyrr- stöðu en 43,8% eru á hreyfingu. Um 14% töldu starf sitt andlega erfitt. Meðalvinnutími um 53 klst. á viku Yfir 70% vinna a.m.k. 50 klst. á viku og um 13% a.m.k. 60 klst. á viku að jafnaði. Meðalvinnutími reyndist vera um 53 klukkustundir atviku. Þá kom í ljós, að 78% karla á höfuðborgarsvæðinu búa í eigin húsnæði, 30,3% búa í einbýlishúsi, 18,2% í raðhúsum eða viðlíka byggingum en 45,8% búa í fjölbýl- ishúsum. Samkvæmt heilsufars- rannsókninni hafa 82% karla á höfuðborgarsvæðinu leitað til læknis vegna veikinda, eða gruns um sjúkdóm, 63,4% karla hafa legið á sjúkrahúsi, 43,9% hafa gengist undir uppskurð, 17,3% eru undir læknishendi og 16,1% karla taka reglulega einhver lyf. Þá kom fram, að 36,2% karla reykja sígar- ettur og 24,4% hafa einhvern tíma þyngst um 5 kg. eða meira á tveggja ára skeiði sl. 15 ár. Skipt í 3 aldursflokka I síðari skýrlu Hjartaverndar var mönnunum skipt í 3 starfs- flokka. Hér er um að ræða sömu karla og í fyrri skýrslunni. I a—flokki eru þeir sem vinna störf, sem krefjast fremur huglægrar vinnu en líkamlegrar áreynslu. Þar er t.d. um að ræða stjórnend- ur og eigendur fyrirtækja, emb- ættismenn og launþega í hærri launaflokkum. í b-flokki eru þeir, sem vinna við ýmis konar þjón- ustu, afgreiðslu- og eftirlitsstörf og líkamlega létta iðnvinnu. Sem dæmi má nefna verkstjóra, skrif- stofumenn, prentara og fleiri. í c-flokki eru faglærðir og ófag- lærðir, sem vinna tiltölulega erf- iða líkamlega vinnu. Þar er um að ræða ófaglært verkafólk af ýmsu tagi, svo sem verksmiðjufólk, byggingaverkamenn, handverka- fólk, sjómenn og fleiri. Vinnutími reyndist lengstur í c-flokki, en í a-flokki vinna 39.6% 50 klst. eða lengur, í b-flokki 33.8% og í c-flokki 65.4%. Þá sögðust 43.6% í a-flokki hafa unnið aukastörf a.m.k. 10 klst. á viku sl. 5 ár, í b-flokki 34.8% og í c-flokki 35.1%. Þá kom í ljós, að fjarvistir eru algengari hjá yngri mönnum en þeim eldri og á það við alla starfsflokkana. Þá kom fram, að íbúðareig- endur/húseigendur eru hlutfalls- lega fleiri á íslandi en á hinum Norðurlöndunum og að fleiri ís- lendingar búa í einbýlis- eða raðhúsum en aðrir Norðurland- abúar. I a-flokki eru 87,1% íbúðar- eigendur, en í b-flokki og c-flokki eru um 80% íbúðareigendur. í starfsflokki a búa 59,8% í einbýl- ishúsum eða raðhúsum,, en í b-flokki 47,6% og 52,3% í c-flokki. Þá kom fram, að í a-flokki höfðu 87,6% einhvern tíma leitað læknis vegna sjúkdóms, 83% í b-flokki og 79,4% i c-flokki. Á sjúkrahúsi höfðu legið, talið í sömu röð, 68,3%, 64,5% og 59,2%. Regluleg lyfjataka reyndist algengust í flokki a, eða 17,6%, í flokki b 17,2% og í c-flokki 11,8%. í a-flokki reykja 29,9% sígarettur, 37,4% í b-flokki og 38,7% í c-flokki. í a-flokki segjast 22,2% fara reglulega í læknisskoðun, 22,9% í b-flokki og 14,8% í c-flokki. Regluleg íþróttaiðkun eftir tvítugsaldur var algengust í a-flokki, 44,4%, í b-flokki 25,6% og í c-flokki 13,5%. Talið frá vinstri, Davíð Davíðsson, prófessor, Ottó J. Björnsson, tölfræðingur, en þeir eru báðir i úrvinnslustjórn könnunar Hjartaverndar, Stefán Júliusson, félagsmálastjóri Hjartaverndar. Nikulá® Sigfússon, yfirlæknir, formaður úrvinnslustjórnar, og Haukur ólafsson MA. Mynd Mbi. ól.K.M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.