Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 19 flokka þeim dvölina bærilegri. Auðvitað hafa menn töfl, spil, bækur og annað slíkt til að stytta sér stundir. Auk þess er unnt að stunda nám í bréfaskóla og læra arabísku. Þá eru kvikmyndasýningar og sjón- varpsefni frá Noregi er sent á spólum. í sænska sjúkrahúsinu í Naqoura sögðu þeir mér, að ekki væri unnt að fá sjónvarpsefni á spólum frá sænska sjónvarpinu vegna deilna um höfundarréttar- greiðslur. Heyrðist mér, að þeir teldu Norðmenn að ýmsu leyti betur setta en sig, til dæmis í launum. Fram kom bæði hjá Berth- elsen og öðrum, að mikilvægasta velferðarmálið væri líklega að gefa mönnum tækifæri til að komast af og til á brott frá Norbatt svæðinu. Fara þeir þá gjarnan í styttri ferðir til ísraels og í lengri fríum heim til Noregs. Prestur liðsins hefur skipulagt ferðir á Biblíuslóð- ir. íþróttafulltrúinn sér um að menn stundi líkamsrækt og skipu- leggur kappleiki. Pósthús er í Ebel es Saqi og sérstakur blaðafulltrúi, sem gefur út blað fyrir sveitina. Okkur íslendingum er gjarnt að líta á hermenn sem menn, er standa utan hins venjulega þjóðfé- lagsramma. Þetta er mikill mis- skilningur. í Norbatt eru bæði atvinnuhermenn, og sjálfboðaliðar, sem gegnt hafa herskyldu og horfið að öðrum störfum, en síðan haft löngun til að starfa í gæslusveitun- um. Við litum í Ebel es Saqi listamenn í norskri silfursmíði, menningarfulltrúa í Moss og skóla- meistara í menntaskóla í Hamm- erfest. Auðvitað er það margt, sem ræður ákvörðunum manna um að rífa sig upp og gjörbreyta um lifnaðarhætti með því að ganga í herinn og fara til Suður-Líbanon. Fyrir íslending er erfitt að setja sig í þau spor, en flestum okkar myndi líklega fyrst detta í hug launin. Þau eru dágóð og greidd af Sameinuðu þjóðunum, auk þess sem menn njót.a þeirra fríðinda að geta keypt ýmsan varning toll- frjálsan, þar sem þeir eru starfs- menn Sameinuðu þjóðanna. Eins og áður sagði er aðbúnaður allur fremur frumstæður hjá Nor- batt og vakti það undrun okkar, að ekki skyldi hafa verið gert meira til að búa að mönnum eftir þriggja ára dvöl norsku sveitanna þarna. Margir dvelja lengur en eitt tíma- bil, sem er sex mánuðir. Við hittum til dæmis óbreyttan skotliða, sem hafði verið í Norbatt í tvö ár og var ekki á þeim buxunum að hætta. Menn þrífast vel, maturinn í þeim mötuneytum, sem við heimsóttum, var góður og síður en svo skorinn við nögl. En hver er áhættan? Hvaða líkur eru á því, að menn lendi í átökum. Hermaður hefur þá skyldu að leggja líf sitt að veði við störf sín. Helsta starf sveitanna er að halda uppi eftirliti. Hermennirnir eru ekki í raunverulegu stríði, þar sem þeir skiptast daglega á skotum við andstæðing sinn. Finni þeir flugu- menn á eftirlitsferðum sínum, eiga þeir að gefa þeim skipun um að stöðva með því að beina að þeim vopnum. Síðan skjóta þeir aðvör- unarskotum fyrir ofan og til hliðar við andstæðinginn, hlýði hann þeim ekki er skotið í fæturna á honum. Venjulega hlýða menn, áður en skotið er á þá. Þeir eru þá teknir til yfirheyrslu og áminntir rækilega, áður en þeim er sleppt. Til að gera yfirheyrsluna ábúðar- meiri er gjarnan hafður hundur til taks, þar sem hún fer fram. Norskir hermenn hafa særst í skotbardögum og í stórskotaárás- um á búðir þeirra, þá hafa sumir orðið fyrir slysum eða gengið á jarðsprengjur. Eina nóttina, sem við dvöldumst í Ebel es Saqi skaut Haddad, majór, 40 sprengjukúlum úr skriðdrekum eða fallbyssum inn yfir Norbatt svæðið. Þetta er svo- nefnd „terror-skothríð", ekki er miðað á neitt ákveðið skotmark heldur hending látin ráða. í slíku kúlnaregni er eins gott að vera vel á verði. Þá hafa sveitir Palestínu- manna skotið eldflaugum inn á svæði Norðmanna og valdið tjóni á mannvirkjum. Kæmi til stórárásar til dæmis frá ísrael, er ekki líklegt, að mörgum mannslífum verði fórnað, áður en UNIFIL-liðið dragi sig til baka. Hins vegar er tilvist þess staðfesting á alþjóðlegu pólitísku viðhorfi sem enn má sín nokkurs. Fleiri hættur eru á þessum slóðum en skotárásir og jarð- sprengjur. I sumarhitanum, þegar jörðin skrælnar, er hætta á skógar- eidum og þá dafnar skordýralífið og bakteríurnar. Sólin skein í heiði einn dag okkar í Ebel es Saqi. Áður en hún rann til viðar, höfðu tveir innfæddir komið á sjúkrastofuna vegna eiturslöngubita. Líklega hafa þeir verið bitnir af svonefnd- um palestínskum höggormi, sem yfirleitt er ekki banvænn, ef menn komast fljótt undir læknishendur. Þá eru þarna tvær tegundir sporðdreka, gulur, sem er stór- hættulegur, og svartur, sem er algengari og meinlausari. Önnur skorkvikindi er einnig nauðsynlegt að varast, svo sem eins og hundrað- fætluna Scolopendra Gigantea, sem mikið er af. Hún krækir sig fasta í menn með öllum hundrað fótunum. Þó er sagt, að hún sé ógnarlegri ásýndar en hættuleg. Sem betur fer var ekki skordýra- veður í Ebel es Saqi nema einn dag, á meðan við Kjartan dvöldumst þar, og við gættum þess vel að hrista skóna okkar, áður en við fórum í þá. æsta grein: í TE HJÁ BRAHIM OG TALAÐ VIÐ PLO Farið um nágrenni gæslusvæðisins, „hreiður" PLO skoðað og litið við í smyglarabæ, ekið um Haddadsland og skroppið til ísrael. Hnignun Samtaka óháðra ríkja Verkefni fundar utanríkis- ráðherra Samtaka óháðra rikja í Nýju Delhí á dögunum var að gera úttekt á árangri af starfi samtakanna frá því að leiðtoga- fundur þeirra var haldinn í Havanna fyrir tveimur árum og hefja undirbúning að næsta leiðtogafundi. sem ráðgerður er í Bagdad á næsta ári. Tuttugu ár eru liðin frá stofnun samtak- anna á þessu ári, en stofnfund- urinn var haldinn i Belgrad og var Tító Júgóslavíuforseti þar fremstur í flokki. en aðrir stjórnmálaskörungar sem stóðu að stofnuninni voru t.d. Nehru. sem þá var forsætisráðherra í Indiandi. Nasser Egyptalands- forseti og Súkarnó Indónesiu- forseti. Grundvöllur samtakanna og skilyrði fyrir inngöngu í þau var að viðkomandi ríki væru ekki í bandalagi við risaveldin, en auk þess var samtökunum ætlað að stuðla að friðsamlegum sam- skiptum ríkja er byggju við ólík stjórnmála- og efnahagskerfi. Stuðningur við þjóðfrelsishreyf- ingar og barátta gegn nýlendu- stefnu voru einnig meðal skil- yrða fyrir inngöngu, en stofnrík- in voru 25. Á þessum tuttugu árum hefur aðildarríkjunum fjölgað í 91, og samtímis hefur dregið úr mikil- vægi þessara samtaka. Pomp og prakt, írafár og ágreiningur hafa sett stöðugt meiri svip á fundi samtakanna, og hið göfuga ætlunarverk hefur runnið meira og minna út í sandinn. Nægir í því sambandi að benda á ógnar- og óreiðustjórnir í mörgum að- ildarríkjanna, t.d. einræðis- stjórnir Pol Pots, Idi Amins og Nguema, sem jafnazt hafa á við hvaða nýlendustjórn sem er, og er þá vægt til orða tekið. í tylft S-Ámeríkuríkja eiga mannrétt- indi undir högg að sækja, eins og fram kemur í nýjustu ársskýrslu Amnesty International, og þegar kemur að þeirri grein í stofnlög- um samtakanna er lýtur að því að „treysta frið og öryggi", nægir að benda á stríðið milli Irans og Iraks og styrjöldina milli Eþíópa og Sómala, en öll þessi ríki eru í Samtökum óháðra ríkja. Borgarastyrjaldir geisa í Líbanon, San Salvador og Kampútseu, og Marokkó er i nýlendustríði i Vestur-Sahara. Eþíópíustjórn fer með her á hendur Erítreumönnum og Indó- nesar á hendur íbúum Austur- Tímor. Eitt ljósasta merkið um að samtökin hafa misst tiltrú sína er að Iranir og Irakar gátu ekki fallizt á að samtökin beittu sér fyrir friðarumleitunum í styrj- öldinni, sem nú geisar milli þessara ríkja, heldur kusu þau heldur að láta Olof Palme, fyrr- um forsætisráðherra í Svíþjóð, reyna að miðla málum. Ástæðurnar fyrir þessari þróun eru m.a. þær, að Fidel Castro, núverandi formaður samtakanna, glataði virðingu sinni með því að styðja innrás Sovétríkjanna í Afganistan, Tító er látinn, og loks urðu vonir Indiru Gandhi, sem hafði hug á að skipa sess Títós innan sam- takanna að honum látnum, að engu þegar hún gekk Sovétríkj- unum á hönd í maí sl. með því að undirrita samning um gífurleg vopnaviðskipti. Hlutleysi aðildarríkja þessara samtaka hlýtur að vera dregið í efa þegar þess er gætt að Egyptaland og Saudi-Arabía hafa fallizt á að láta Bandaríkj- unum í té flotaaðstöðu, og Sóm- alía virðist vera að fara í spor þeirra. Hernaðaraðstoð Banda- ríkjanna við Pakistan og flest ríki S-Ameríku, svo og stuðning- ur Sovétríkjanna við Eþíópíu, Sýrland og Víetnam, hljóta að draga úr sjálfstæði þessara ríkja. I seinni tíð hafa fundir Sam- taka óháðra rikja farið að snúast um efnahagsmál, og þá einkum hið breiða bil sem er milli þróunarríkja og iðnríkja í heim- inum, í æ ríkari mæli. Alþjóða- fyrirtæki hafa þar legið undir miklu ámæli, en ekki hefur verið á það minnzt að mútur og spilling sem tíðkazt hafa í kring- um starfsemi þeirra í þróunar- löndum hefðu ekki getað þrifizt nema af því að ráðamenn í þessum ríkjum eru móttækilegir fyrir slíku og þeir setja persónu- lega hagsmuni ofar þjóðar- hagsmunum. Nægir í þessu sam- bandi að benda á framferði Kenyatta-fjölskyldunnar í Kenya og eignir Móbútus í Sviss. Önnur reynd hefur aldrei verið til umræðu á fundum Samtaka óháðra rikja. I Alþjóðaþróun- arskýrslunni 1980 kemur fram að 40% fátæklinga í sex af 15 þróunarlöndum hafi innan við 10% af meðalárstekjum í þess- um löndum. Þannig er ástandið í Malaísíu, Mexíkó, Venezúela, Hondúras, Perú og Brasilíu, en samskonar þróunar gætir einnig mjög verulega í ýmsum ríkjum Afríku, t.d. Nígeríu, Zaire, Zambíu, Ghana og á Fíla- beinsströndinni, þar sem hinir fátæku verða sífellt snauðari og hinir ríku stöðugt ríkari. Eldfjallið Etna á Sikiley hóf og gjósa miðvikudag. Nokkur hús hafa farið undir hraun og á símamvnd-AP sést hvar einbýlishús verður glóandi hrauninu að bráð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.