Morgunblaðið - 26.03.1981, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981
45
Horfin heimsmynd
InKibjórK ÞorKeirsdóttir skrifar:
„Þriðjudagskvöldið 17. þ.m. fór
fram umræðuþáttur í Sjónvarpinu
um stöðu kirkjunnar í íslensku
nútíma þjóðfélagi í umsjá Gunn-
laugs Stefánssonar. Strax í upphafi
lagði stjórnandinn höfuðáherslu á
þá spurningu, hvort kirkjan ætti
erindi við okkur í dag. Fjórir voru
mættir til andsvara við borðið (þjón-
andi prestur, alþingismaður, kunn
leikkona og prófessor einn í guð-
fræði) auk þriggja annarra, sem
komu þar fram í viðbótarþáttum.
Þekkt fólk og vel gefið upp til hópa.
Eg gerði mér því góðar vonir um
innihaldsríka stund. En því miður
verð ég að játa að þrátt fyrir lifandi
áhuga spyrjandans, góðar og
ákveðnar spurningar og fáein skýr
svör, var heildarútkoman að mínu
mati ótrúlega lífvana og bragðdauf
og góðu efni og mjög svo tímabærri
spurningu glutrað niður í þokukennt
hjóm, sem örðugt var að henda
nokkrar reiður á.
Ef spurt hefði verið, hvort Kristur
ætti erindi við okkur íslendinga í
dag, efast ég ekki um að greiðara
hefði orðið um svör.
Blysberar í
andlegum efnum
En hvers vegna er svo mörgum
„tregt um tungu að hræra“ á skýran
og afdráttarlausan hátt, þegar kirkj-
an á í hlut? Ættu þó allir að vita, að
kirkjan allt frá upphafi hefur verið
einhver sterkasti áhrifavaldurinn í
menningu okkar og andlegu lífi, eins
Ingibjörg borgeirsdóttir
og reyndar allsstaðar, þar sem hún
hefur náð fótfestu. Okkar eigin saga
sýnir ljóslega, að fjölmargir okkar
ágætustu manna á liðnum öldum
voru einmitt kirkjunnar þjónar, og
sumir þeirra þjóðinni slíkir blysber-
ar í andlegum efnum, að óvíst er,
hversu farið hefði um menningu
hennar, andlegt líf og tilveru sem
þjóðar, ef þeirra hefði ekki við notið.
Mér koma í hug nöfn eins og
Eysteinn Ásgrímsson, Oddur
Gottskálksson, Guðbrandur Þorláks-
son, Hallgrímur Pétursson og Jón
Vídalín. Tveir þeirra síðastnefndu
létu þjóðinni eftir í arf ómetanleg
Á heiður skilið
A.J. skrifar:
„Velvakandi.
Nú langar mig til að biðja þig að
gera mér greiða. Þannig er mál
með vexti, að fyrir nokkrum kvöld-
um fór veðurfræðingurinn Guð-
mundur Hafsteinsson með vísu í
upphafi veðurfregna í sjónvarpinu.
Efni vísunnar var orðaskipti
Kölska og Sæmundar fróða um
veðrið. Ég hafði mjög gaman af
vísunni, en lærði hana ekki. Þess
vegna langar mig til að biðja
veðurfræðinginn, eða aðra sem
kunna vísuna, að senda þér hana til
birtingar hér í dálkum þínum. Hafi
svo Guðmundur Hafsteinsson þökk
fyrir. Mér finnst hann frábær í
sjónvarpinu. Hann skýrir allt svo
vel út fyrir okkur sem glápum, að
hann á heiður skilið."
Sæmundur og
kölski yrkjast á
Eftir gömlum frásögnum áttust
þeir oft margt saman Sæmundur
fróði og kölski. Var það eitt með
öðru að Sæmundur sagði hann
skyldi aldrei geta hitt sig í rúmi
óklæddan. En einu sinni bar so við
að kölski kemur á gluggann við
rúm Sæmundar og er hann þá eigi
kominn í fötin. Þá segir
Sæmundur: En kölski svarar:
-Ilvaö fréttist?“ „Illt citt.“
„Er hríð?“ „Ji, stríð.“
■Hvernin? „Hvcfsin."
„Hvaðan?" „Nnrðan."
„Er frost?" „Ailireyst."
„En snær?" „Eráhær."
„Er myrkt?" „Sótsvart."
„Sést ei?"
„Ónei."
Og þegar þeir voru búnir að
talast þetta við var Sæmundur
alklæddur og fór á fund kölska.
verðmæti, sem framar öllu varð
henni andlegt veganesti, orkugjafi
og leiðarljós næstu aldirnar, þegar
við lá að ís og eldur og hverskonar
óáran gengu af þjóðinni dauðri.
Hcimsmynd miðaldanna
En tímarnir breytast og mennirn-
ir með. Vissulega eru Passíusálm-
arnir og Vídalínspostilla, þessir and-
legu bjarghringir liðinna kynslóða,
þjóðinni dýrmætur arfur, gersemar,
er halda sínu gildi, þótt séðar verði
frá nokkuð öðru sjónarhorni nú en
áður fyrr, sem m.a. stafar af því, að
verulegur hluti af þeim grunni, sem
þessi verk voru upphaflega reist á, er
nú gersamlega brostinn. Á ég hér við
þá heimsmynd miðaldanna, sem
segja má að ríkt hafi a.m.k. um allan
hinn vestræna heim á dögum Hall-
gríms og Jóns Vídalíns, heimsmynd,
sem reiknaði jörðina flata kringlu og
himinrúmið bláa kristalsskál,
heimsmynd, er áleit heiminn fæddan
fyrir aðeins 4—5 þúsund árum, enda
orðið þróun þá í einskis kristins
manns huga komið.
Fóstra þeirrar guðfræði
sem kirkjan skóp
Og þessi heimsmynd — ásamt
þeirri hugmyndafræði annarri, sem
henni er samofin — var í upphafi að
verulegu leyti fóstra þeirrar guð-
fræði, sem kirkjan skóp — og reynir
enn í dag að halda við lýði. Því það
furðulega er að ennþá virðist kirkjan
ekki hafa gert sér ljósa þessa
staðreynd. Ennþá sýnist hún halda
dauðahaldi í viss slitur af hinni
fornu hugmyndafræði miðaldanna,
sem skýrast sést á ýmsum hugtökum
og orðum, sem runnin eru frá
þessum gömlu hugmyndum og kirkj-
an teflir óspart fram. En einmitt
þetta veldur því öðru fremur, hve
mál kirkjunnar er venjulegu fólki oft
lítt skiljanlegt og næsta framandi,
eins og Árni Gunnarsson vék að í
áður nefndum sjónvarpsumræðum.
Að síðustu þetta: Á meðan kirkjan
heldur áfram að girða Guð og Krist
af með gamalli, aflóga hugmynda-
fræði og óskiljanlegum kennisetn-
ingum, á hún lítið erindi við hina
íslenzku þjóð í dag.“
Fyrirspurn til
Seðlabanka Islands
Lárus Björnsson skrifar:
„Hinn 20. febrúar sl. kom ég
með fyrirspurn í dálkum Velvak-
anda, þar sem ég spurðist fyrir um
hvaðan bankastofnanir hefðu
heimild til að innheimta kr. 29,50
af hverri ávísun, sem ekki reynd-
ist næg innstæða fyrir á viðkom-
andi reikningi.
Mér vitanlega hef-
ur þessu ekki verið svarað hér í
dálkunum.
Eru þetta tekjur
sem munar um?
Mér finnst þetta vera nokkuð
mikil upphæð, þar sem auk þess
eru innheimtir dráttarvextir sem
hlutfall af upphæð ávísunarinnar.
Það væri einnig fróðlegt að vita
hve margar innstæðulausar ávís-
anir koma inn til banka og
sparisjóða á ári hverju, og þá hve
miklar fjárhæðir bankastofnanir
fá með þessum hætti á ári. Eru
þetta tekjur sem munar um?
Hættið að tönnl-
ast á göml-
um krónum
Bangsi hringdi og sagði: — Það
hefur verið brýnt fyrir okkur,
sauðsvörtum almúganum, með
linnulausum áróðri, að tileinka
okkur verðskyn á nýjum krónum
og hætta að hugsa um gömlu
krónurnar. Samt láta fjölmiðlar
ekki af því að klifa á að þessi og
hin upphæðin sé svo og svo mikið í
gömlum krónum. Er þetta ekki í
algjörri mótsögn við það sem vera
ætti? Er ekki verið að gera okkur
erfitt fyrir með þessu athæfi. Má
ég biðja fjölmiðlafólk að ganga í
lið með okkur, en hætta að
tönnlast sífellt á samanburði við
gamlar krónur?
Fótaaðgerðir
Hef opnaö fótaaögeröastofu að Álftamýri 3.
Annast allar fótaaögerðir.
Ath.: Sérstakar meöhöndlanir viö niöurgrónum
nöglum. Tímapantanir í síma 31580.
Kristín Gunnarsdóttir.
Fótasérfrædingur.
Álftamýri 3.
Sími 31580 eóa 43986.
Verkakvennafélagið
Framsókn
Allsherjar atkvæðagreiðsla.
Ákveöiö hefur veriö aö viöhafa allsherjar atkvæöa-
greiöslu til kjörstjórnar og annarra trúnaðarstarfa
félagsins fyrir árið 1981 og er hér meö auglýst eftir
tillögum um félagsmenn í þau störf. Frestur til aö
skila listum er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 30.
marz 1981. Hverjum lista þurfa aö fylgja meömæli
100 fullgildra félagsmanna. Listunum ber aö skila á
skrifstofu félagsins í Alþýöuhúsinu viö Hverfisgötu.
Stjórnin.