Morgunblaðið - 04.04.1981, Side 5

Morgunblaðið - 04.04.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 Bókauppboð Klaust- urhóla á morgun SJÖTUGASTA og níunda list- munauppboð Klausturhóla verð- ur á morgun, sunnudag, 5. apríl, að Laugavegi 71. Þar verður að vanda margt góðra bóka, alls 166 númer og verða bækurnar til sýnis í Klausturhólum i dag, laugardag (rá klukkan 9—17. í frétt frá Klausturhólum segir, að á uppboðinu verði meðal ann- ars þessi rit: „Et ridt gennem Island" eftir Jón Sveinsson (Nonna), útgefið í Kaupmanna- höfn 1908; „Fótatak manna" og „Kaþólsk viðhorf" eftir Laxness; Prentsmiðjusaga Vestfirðinga; órnefni í Vestmannaeyjum; Saga Vestmannaeyja, Landnám Ingólfs og Annáll nítjándu aldar. Einnig: „Breiðfirðingur" — tímarit Breið- firðingafélagsins 1,—29. árgangur; Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1— 15; Iðunn — nýr flokkur 1915/ 1916—1937; og Almanak Hins ís- lenska þjóðvinafélags 1893—1973. En alls verða þau 166 númerin á þessu bókauppboði Klausturhóla sem verður haldið á morgun, sunnudag, í Klausturhólum að Laugavegi 71. Og það skal ítrekað, að bækurnar verða til sýnis á uppboðsstað milli klukkan níu og sautján í dag, laugardag. Ferming í Ytri- Njarðvíkurkirkju FERMING í Ytri-Njarðvíkur- kirkju, sunnudaginn 5. april kl. 10.30. Prestur sr. Þorvaldur Karl Helgason. Stúlkur: Berglind Bjarnadóttir, Hlíðarvegi 86. Berglind Svavarsdóttir, Holtsgötu 27. Harpa Hjaltested, Holtsgötu 30. Linda Björk Magnúsdóttir, Sjávargötu 21. Drengir: Alexander Ragnarsson, Hæðargötu 8. Arnar Skjaldarson, Hlíðarvegi 18. v Árni Ómar Árnason, Hraunsvegi 1. Birgir Albertsson Sanders, Hraunsvegi 19. Hafþór Torfason, Lyngmóa 4. Halldór Viðar Jónsson, Borgarvegi 48. Hrannar Þór Arason, Hjallavegi 3P ísak Leifsson, Starmóa 5. Jón Orri Leósson, Sólvangi, Höfnum. Jón Ragnar Magnússon, Brekkustíg 6. Kristinn Einarsson, Hlíðarvegi 42. Lárus Arnar Gunnarsson, Hæðargötu 4. Sigurður Baldur Magnússon, Hlíðarvegi 13. Er heimsmeistaraeinvigið í skák var haldið hér á landi árið 1972, vann Sveinn að hluta til í Laugardalshöllinni og frá þess- um tíma er til mynd af þeim Sveini og Fischer. E.t.v. hefur Ómar Ragnarsson haft þessa mynd í huga er hann fékk Svein til liðs við sig. Myndina tók Bjarnleifur Bjarnleifsson og fylgir hún hér. „Myndin var tekin eftir eina af fyrstu skákunum," segir Sveinn. „Fischer tapaði fyrir Spassky og að skákinni lokinni rauk hann út úr Höllinni og var mikið æði á blessuðum manninum, en Bjarn- leifur náði að smella þessari mynd af áður en Fischer hvarf inn í bíl á hlaðinu bakdyrameg- in. Nei, svei mér þá, ég held við séum ekkert líkir. Það er þó „Úr f jarlægð og í fljótheitum erum við kannski líkir“ SJÓNVARPIÐ brá á leik í fréttatima á miðvikudagskvöld og sagði frá þvi, að Bobby Fischer, fyrrum heimsmeistari i skák. væri kominn hingað til lands. Flestir hafa sjálfsagt áttað sig á þvi, er þeir hugsuðu málið, að um aprilgabb var að ræða, en sá sem brá sér i gervi Fischers var Sveinn Sigmunds- son, skrifstofumaður i prent- smiðjunni Eddu. kannski hægt að sjá einhvern svip í miklum fljótheitum og ef fjarlægðin er nógu mikil,“ sagði Sveinn Sigmundsson. Þess má geta, að Sveinn er faðir þeirra Láru og Sigrúnar, sem báðar eru fræknar frjáls- íþróttakempur. Þriðja dóttirin, Katrín, er einnig vel liðtæk í frjálsum íþróttum, en hún er yngst þeirra systra. Albert tekur undir mótmæli golfmanna BRÉF Golfklúbbs Reykjavikur, þar sem mótmælt er áformum borgarstjórnarmeirihlutans um skerðingu á golfvelli féiagsins í Grafarholti, var lagt fram i borgarráði á þriðjudaginn. Á fundinum óskaði Albert Guð- mundsson borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins að eftirfarandi yrði bókað: Ég vil eindregið taka undir mótmæli frá Golfklúbbi Reykja- víkur og tel nauðsynlegt, að borg- arstjórn Reykjavíkur endurskoði hug sinn í máli þessu. Sýniljóð Magnús- ar á Akureyri UM SL. HELGI var opnuð sýning á verkum Magnúsar Tómassonar í Rauða húsinu á Akureyri. Nefnist sýningin Sýniljóð, eða „Visual Poetry" og hefur hluti hennar verið sýndur víða um lönd undir því heiti, en nokkrar myndanna hafa ekki verið sýndar áður. Sýn- ingu Magnúsar í Rauða húsinu lýkur nk. sunnudagskvöld eða 5. apríl. Myndabrengl MYNDABRENGL urðu í Morgun- blaðinu í gær með frásögn af fundi í Valhöll um utanríkismál, þar sem myndir þeirra Ámunda Loftssonar, Nikulásar Sveinsson- ar, Jóhanns Siggeirssonar og Bjarna Helgasonar víxluðust. Morgunblaðið biður viðkomandi einstaklinga velvirðingar á þess- um mistökum. SCIENTIFIC — fyrir skólafólk á öllum stigum og þá sem lengra eru komnir gerðir af vasatölvum. gerðir af reiknistölvum. Rótarreikningur. 'i k I Konstant. [l/*] Grunnrót af lölu. P*Á] Próaentureikningur. W Til að finna % tölu. ni*1 Veldisreikningur. iLCDI Fljótandi Chrystal stalir. m Fluor Peru stafir. [ FE J Fastur aukastafur. ! FL] Fljótandi aukastatur. U Minni. [SC| Minnis tölva. [MSj Minnis öryggi (minni hreins- ast ekki þótt slökkt sé). [anj Slekkur á sér sjálf. [>5/4i Rúnnar af tölur upp og niður. m Tóntakkar. Komid og frábæru og fjölhæfu tölvur frá skoðiö hinar HLJÓMTÆKJADEILD KARNABÆR LAUGAVEG 66 SÍMI 25999 Sendum í póstkröfu um land allt. Póstkröfusími 17244. Formúlur skrifaöar beint. Algebru formúlu + útrelkningur. 24 stafir. 61 reiknisaöferö. 11 minni — 80 skref. Vorö 1.100.-. Rafhlööur endast í 5000 klst. 4 stig af svigareikningi. 22 reiknisaöferöir. Verö 235.-. SIBlWlll]®®®® Tekur viö formúlum beint. 3 stig af svigareikningi. 44 reiknisaöferöir. Verö kr. 310.-. liiiEHiii @[g][K]®l^l[S][í]®[l]l5l® Skartgripur Glæsileg hálsman f flirtf- og silfurlitum mað innbyggð- um tölvuúrum. Varð frá S10 kr. og bókstafi 8 orða minni. Verð kr. 1.180. |LCD|[^[Mir^[Tin^[^[i^rri[FElÍFL|[*ro!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.