Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 12

Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 HLAÐVARPINN Umsjón: Hallur Hallsson Á FARALDSFÆTII Síðasti farandrakarinn Listasafnið vildi ekki lána verk svo notast er við myndir af dagatölum „ÞAÐ má ef til vill segja að ég sé síðasti farandrakarinn, en ég klippi í Reykjavík fyrstu viku hvers mánaðar. Síðan held ég til Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykkishólms og klippi þar en auk þessa klippi ég á Hellu, í Þykkva- bænum og Fljótshlíðinni," sagði Hinrik Þorsteinsson, rakari í spjalli við Mbl. í vikunni. „Jú ég hef iðuiega lent í ævin- týrum en það sem rekur mig áfram í þessu er samskipti við fólk. Ég nam rakaraiðn hér hjá Guðjóni í Veltusundinu og fluttist síðan til Stykkishólms og bjó þar í sex ár. Það er fremur lítið pláss svo ég fór og klippti í Ólafsvík, Grundarfirði og Búðardal. Leið mín lá síðan til Reykjavíkur en ég hafði eignast svo marga vini fyrir vestan, að ég gat ómögulega hugs- að mér að hætta að klippa þar. Það hefur gengið á ýmsu. Ég hef orðið veðurtepptur, orðið að leita gistingar á bæjum og orðið að skilja bílinn oftar en einu sinni eftir, svo eitthvað sé nefnt. Ein- hverju sinni var ég á leið til Búðardals og hafði auglýst komu mína þangað, því auðvitað þýðir ekki að koma bara sisona einn góðan veðurdag og ætlað að byrja að klippa. Fólk verður að vita af manni. Nema hvað, þegar ég lagði af stað var rigningasuddi. Þegar leið á daginn gerði slagviðri. Þrátt fyrir það hélt ég áfram för minni og fékk inni á bæ í Dölum og dvaldi þar í 2 nætur. Vegna snjóa þýddi ekkert að reyna að hreyfa sig. Á þriðja degi hélt ég áfram ferðalagi mínu. Ég lenti í hvarfi á leiðinni og braut fjaðrir í bílnum. í Álftafirði var mikill snjór og auðvitað festi ég bílinn svo ég byrjaði að moka. Ég mokaði og mokaði, — allan daginn mokaði ég og að lokum sá ég fram á að ég yrði að skilja bílinn eftir. Að sjálfsögðu var ég orðinn glor- hungraður en hafði engan mat haft með mér. Eftir mikla leit fann ég brjóstsykursmola í hanskahólfinu og það er sá bezti brjóstsykursmoli, sem ég hef bragðað. Svo hélt ég gangandi að næsta bæ en þegar þangað kom var enginn heima. Ég fann síma og tók upp tólið. Eftir nokkuð vafstur fékk ég samband og gat komið skilaboðum. Konan mín, sem er kennari, hafði hafið eftir- grennslan og hringt á bæi en loks haft spurnir af mér á bænum, þar sem ég dvaldi í 2 daga. En skilaboðin komust tit skila og ég var sóttur á jeppa. Það hefur gengið á ýmsu og um daginn varð ég til að mynda að skilja bílinn minn eftir í Ólafsvík í hálfan mánuð. En áfram held ég og þá vegna tengsla sem skapast við fólkið — vegna persónulegra tengsla. Fyrir nokkru fluttumst við hjónin aust- ur í Fljótshlíðina. Svo hagar málum, að ég er ekki bara far- andrakari, ég er líka farandpré- dikari. Ég hef verið í hvítasunnu- söfnuðinum frá þvi ég var ellefu ára. Við stöndum í miklum fram- kvæmdum austur þar. Erum að koma upp 700 fermetra byggingu, þar sem hægt verður að koma fyrir námskeiðahaldi, biblíuskóla, hvíidarheimili, unglingastarfi og hvers konar mótshaldi. Það er hvítasunnuhreyfingin í heild sinni, sem stendur að þessari uppbyggingu. En í dvöl minni í Fljótshlíðinni hef ég tekið upp skærin austur þar og klippt fólk, einnig á Hellu og í Þykkvaþænum. Það er því í nógu að snúast hjá mér og auðvitað verð ég stundum þreyttur en maður fyllist eldmóði eftir stutta hvíld. Ég hef eignast svo marga vini í Reykjavík og á Snæfellsnesinu og Dalasýslu, að ég get ómögulega hugsað mér að hætta þessu flandri mínu,“ sagði Hinrik Þorsteinsson. „LISTASAFN íslands á 4329 verk í fórum sínum. Stöku sinnum eru þessi verk sýnd almenningi í sýn- ingarsal Listasafnsins en að sjálf- sögðu koma aðeins örfá verka þess- ara á veggi á hverjum áratug. Til eru verk sem ekki hafa sést áratugum saman, en spurst hefur til þeirra í miður góðum geymslum, þeim rykk- ornum einum til ánægju er varan- lega bólfestu taka sér í römmum og myndtökum," skrifar Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri fjármála- ráðuneytisins í sýningarskrá, „List- kynning í Arnarhvoli", en hann hefur haft forgöngu í ráðuneytinu um sýningu listaverka á veggjum ráðuneytisins. Það er greinilegt, að Höskuldur er lítið hrifinn af þeirri áráttu Listasafnsins að vilja helst loka listaverk niðri í kjallara, „ryk- kornum" til ánægju og því hefur hann hafið krossferð til að bjarga listaverkum frá því að rykfalla, að best verður séð. En gefum Höskuldi orðið á ný: „Ríkisstjórnir koma og fara. Menntamálaráðherrar stjórna þess- ara eiga það þó sameiginlegt að hafa boðið stjórn Listasafns íslapds að auka við sýningarrými safnsins með því að nýta veggi stjórnarráðsbygg- inga. Slíkur boðskapur hefur jafnan orðið starfsmönnum stjórnarráðsins til óblandinnar ánægju svo og mörg- um unnendum Listasafnsins er gefið hafa því verk en ekki eygt í áranna ráð að þau yrðu mönnum sýnd: — en nokkra stund tekur stjórnvaldsboð að ná eyrum forráðamanna Lista- safns íslands. Árið 1981 hefur hafið göngu sína og litlar líkur virðast þess að ró rykkornanna í Listasafninu verði raskað á því ári. Að undanförnu hefur verið sýnd viðleitni í þá átt í kaffistofunni í Arnarhvoli að tengja lyst á mat og drykk við þá list er auga metur og anda gleður. Fyrst var á ferðinni sýning á grafíkmyndum, þá færði dr. Gunnlaugur Þórðarson okkur mynd- ir Karls Kvaran og að undanförnu hefur staðið yfir sýning á myndum úr einkasafni dr. Gunnlaugs. Segja má að gestir kaffistofunnar hafi vel kunnað að meta. í myndleysi undanfarinna ára hafa starfsmenn fjármálaráðuneyt- isins orðið að spila upp á eigin spýtur. Fyrirtæki úti í veröldinni sendir ráðuneytinu dagatal árlega og skreytir það myndum af spila- mönnum. Þessar myndir hafa verið innrammaðar og eru hinar snotr- ustu. Því hefði þó ekki verið spáð við stofnun Listasafns íslands árið 1884 að útlend almanök yrðu á árinu 1981 sú lausn sem nærtækust væri til að verma kalda steinveggi Stjórnarráðs Islands. Sjaldan vinnur spilamaður fyrsta slag. Við skulum vona að ekki sé búið spil og úr rætist. í kaffistofunni er reyndar bikar einn mikill sem viður- kenning á að stjórnarráðsmenn kunni að halda á spilunum," skrifaði Höskuldur ennfremur. Við vonum að úr rætist hjá þeim í stjórnarráðinu og vonum, að ósvikin listaverk vermi í náinni framtíð kalda veggi Stjórn- arráðs íslands starfsmönnum til ánægju. Hinrik Þorsteinsson, mundar skærin. íleiðinni Ráð við of hröðum akstri Úr Kópavogstíðindum: — Þeir brosa bara góölátlega, var svariö, þegar viö inntum einn íbúa Skólagerðis eftir því, hvort íbúum við götuna væri ekki loksins fariö aö finnast gatan jaöra viö aö vera ófær. Þaö skiptast sem kunnugt er á djúpar lautir og háir hryggir og minnir þaö helst á svonefndan „rússíbana" í skemmtigörðum og tívolíum, þegar ekiö er eftir götunni, jafnvel þótt hægt sé fariö, sem vera ber. — En, bætti íbúinn viö, þaö eru tvær hliöar á þessu máli. Sums staöar í bænum eru íbúar aö biöja um „þröskulda“ á göturnar til aö hægja á umferöinni. Viö hér í Skólagerðinu höfum þarna tilbúna þröskulda, sem hægja á umferöinni, og þurfum ekkert aö kvabba á bæjaryfirvöldum þar um. Með okkar hryggjum og lautum er óhugsandi. að umferðin geti oröiö hröö. Þaö er því vafamál hvort viö viljum láta gera götuna rennislétta og umferöina þar með hraöa. En auövitaö mætti aö skaölausu fylla nokkrar holur og slétta svona þaö versta. Elsta neytinu slátrað Úr Degi: Fyrir stuttu var elsta nautinu slátraö í Hrísey. Þaö var 3ja ára og 7 mánaöa þegar því var slátraö. Þaö vó á fæti 826 kg en kjötþungi var 448 kg. Faöirinn var af hreinu Galloway-kyni en móöirin blendingur frá Gunnarsholti. Nú er ekki langt í þaö aö annar ættliöur af Galloway-blendingum sem fæðst hafa á eyjunni komist í gagniö. Hvít- þvegiim ráðherra Úr ísiendingi: Afar skemmtilegar umræö- ur fara nú fram í „Austurlandi" vegna spurnlngakeppni þeirr- ar sem blaöiö efndi til um Sovétríkln. Hjörleifur Gutt- ormsson, iðnaöarráöherra, réöst all harkalega aö flokks- bræörum st'num fyrir tiltækiö og taldi aö meö þessu væri btaöiö lagt undir áróöursher- ferö fyrir Sovétríkin meö til- heyrandi vinarhótum. Nú rasöst ritstjórinn, Bjarnl Þóröarson, fram á ritvölltnn f sföasta blaöi og hefur nú fundlö skýringu á upphlaupi HjörWfs. „Hann heldur árunnl hreinni. Og hafi einhver blett- ur á hana falliö vegna gruns um Rússaþjónkun hefur hann nú verlö hvítþveginn af.“ Það er sumsé skoöun Bjarna, aö Hjörlelfur ráöist á skoöana- braaöur sfna og kjósendur á Austurlandi til þess aö hvft- skúra sig af öllum grun um austantjaldsþjónkun. Ja, sei, sei. Talsvert viröist nú viö »ggja- Ein Þingvallamynda Ólafar. Vill selja málverk svo sonurinn geti fermst á Islandi Úr Lögbergi-Heimskringlu: „f New Baltimore, Mjchigan býr ís- lenzk listakona, Ólöf Kristjáns- dóttir Wheeler ásamt syni sínum Kristjáni og eiginmanni, John Wheeler. Ólöf hefur veriö búsett í Bandaríkjunum í tvö ár. Hún bjó fyrst í Sacramento California og læröi þar hjá Gary Pruner og nú eftir aö hún flutti til New Baltimore hefur hún veriö viö nám hjá Alice Bode. Ólöf sem er vestfirsk aö upp- runa, lagöi stund á málaralist áöur en hún fór frá íslandi og hélt a.m.k. eina sýningu á olíumálverk- um sínum í Reykjavík. Hún málar myndir úr íslenzkri náttúru og einnig hafa blómamyndir hennar veriö mjög vinsæiar. Ólöf hefur nú til sölu nokkur olíumálverk af Þingvöllum og elnnig nokkrar blómamyndir. Kristján, sonur Ólafar hefur mikinn hug á aö komast heim til íslands í aprfl og láta ferma sig á fslandi. Nám Ólafar hefur veriö kostnaöarsamt og þarf hún því aö selja málverk svo aö draumur sonarins geti ræst. Þeir sem áhuga hafa á aö eignast þessar fallegu myndir Ólafar geta snúiö sér beint til hennar og mun hún þá veita allar upplýsingar. Heimil- isfang hennar er: Olöf E. Wheeler, 51067 E. Village, Bldg. 4 Apt. 207, New Baltimore, Michigan 48047, U.S.A. og síminn er, 1—313— 949—1947."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.