Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 13

Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRIL 1981 13 HELGARVIÐTALIÐ Það færist sífellt í aukana að konur hasli sér völl í störfum, sem talin hafa verið vígi karlmanna. Anna Lára Friðriksdóttir er 25 ára gömul og hún ætlar sér að verða atvinnuflugmaður, stundar nám af kappi og hefur þegar lokið einkaflugmannsprófi. Anna Lára er alls ekki fyrsta konan, sem lýkur atvinnuflugmannsprófi en hún er ein af mörgum sem varða veginn — sem telja, að hin „helgu vígi“ karlmanna séu alls ekki helg og konur geti haslað sér völl þar sem annars staðar í þjóöfélaginu. Blaðamaður ræddi við Önnu Láru í vikunni. m g m Frjals eins og fuglinn fljúgandi Anna Lára fyrlr framan flugvélina aina. M>nd RAX FLUGBAKTEHÍUNA fékk ég áöur en ég fæddist. Hanna, systir mín, smltaði mig. Hún er 20 árum eidri en ég og 17 ára gömul stundaöi hún flug. Hún hætti og sneri sér aö búi og börnum. Sem barn dreymdi mig um aö fljúga. Þegar ég var í gagnfræöaskóla, var ég staöráöin í því aö veröa flugmaö- ur. En eitthvaö dvlnaöi þessi áhugi minn í menntaskóla. Þá dreymdi mig aö veröa sjúkraliði, mannfræöingur, ég held bara allt. Nú, en flugbakterlan var ekki dauð — hún bara blundaöi. Þaö var svo fyrir fjórum árum, aö ég átti leiö í Nauthólsvíkina og gekk þá framhjá flugskóta Helga Jóns- sonar. Inn fór óg og spuröi hvort ég gæti ekki lært aö fljúga. Jytte, eiginkona Helga, tók á móti mér og hún hélt nú þaö — ég gæti lært aö fljúga. Hún bauö mér umsvifalaust upp í flugvél og upp fórum viö og vorum I um hálftíma. Það var stórkostlegur hálftími, undursamlegur og bakterían vaknaði af dvala. Ég haföi ánetj- ast fluginu.“ Og hvaö er þaö sem er svo heillandi? „Þaö er stórkostlegt aö fljúga. Aö svífa um loftin blá, fjarri mönnum, alein, og líta til jaröar og hugsa meö sér: Ég er laus viö þetta allt, frjáls elns og fuglinn fljúgandi. Eg hóf flugnám, fór rólega af staö því flugnám er dýrt. En ég hef lokiö einkaftugmannsprófi og nú bý ég mig af kappi undir atvinnuflugmannspróf. Fyrir um ári síðan keypti ég ásamt nokkr- um kunningjum mfnum litla flug- vél, Skyhawk, en hún á tvítugsaf- mæli um þessar mundir og nefnist Dúa, fráb.ær vél. Þaö er nóg aö gera í náminu og ég verö aö hafa mig alla viö. Ekki bætír úr skák, aö vlð verðum aö sækja tíma suöur tii Keflavíkur, sem er óskiljanleg ráöstöfun, þar sem allir nemendur eru af fleykja- víkursvæðinu og langflestir kenn- arar. En ég vil taka þaö fram, aö gefnu tilefni, aö ég er ekki fyrsta konan sem læri til atvinnuflug- manns. Þegar hafa nokkrar konur lokiö atvinnuflugmannsprófi hér á landi. Og þig dreymir auðvitaö aö fljúga DC-10? Nei, I sjálfu sér dreymir mig ekki að fljúga DC-10. I þessum risaþotum er allt svo staölaö, vélrænt. Þaö er ( sjálfu sér ákaflega lítiö spennandi aö stjóma risaflugvél, breiöþotu. Ég hef miklu meiri áhuga á minni vélum og gæti vel hugsað mér, aö starfa sem flugmaöur hjá litlu flugfélagi. flogiö litlum reltum, jafnframt ööru starfi. Nú starfa ég sem sölumaöur hjá fööur mínum, Friðriki Sigurbjörnssyni, í is- lenzk-erlenda verzlunarfélaginu. Fetta karlmenn fingur út I þegar þú — konan — stjórnar flugvél? Nei, ég hef ekki fundiö til hræöslu hjá karlmönnum I vél hjá mér bara af því ég er kona. Aöeins einn hefur orðlð flugveikur I vél hjá mér og þaö var karlmað- ur. Hefur þú oröiö hrædd í flugvél? Ég neita þv( ekki, aö þaö fer ónotaleg tilflnning um mig þegar litlar flugvélar hrapa til jaröar. Og ég hef oröiö smeyk. Elnhverju sinni var ég meö farþega á leiö frá ísafiröi til fleykjavíkur. Veöriö var ákaflega slæmt, miklir sviptivind- ar og vélin lét illa, kastaöist upp og niöur. Þá fór um mig ónotaleg tilfinning. Þó ekki mín vegna, heldur af þv( ég var meö farþega um borö. Þegar svo háttar, þegar veöriö er slæmt, þarf mikillar einbeitingar viö. En ég er ekki hrædd þó hreyfill bili, því alltaf má lenda Þær eru svo meðfærilegar þessar litlu vélar. Þú feröast mikiö flugsins vegna, ekki satt? Jú, þaö gefur einstakt tækifæri til feröalaga. Þá lærir maöur aö meta náttúruna betur, njóta henn- ar. Ég hef alltaf haft yndi af feröalögum, hef feröast mikiö um Evrópu og einnig hef ég komiö til Japan. Þá fór ég einhverju sínni meö bakpoka um Grænland, þaö var stórkostlegt. Fór einsömul, og velddi mér til matar. En óg hef einnig feröast mlkiö um ísland. flaunar er ég í íslenzka Alpa- klúbbnum og hef nýlega dvallö ( snjóhúsi á Esju, þar áöur gekk ég á Öræfajökul, Snæfellsjökul og Eiríksjökul. Vlnir mínir segja aö óg sé endemis dellumokari. En ég hef alltaf haft gaman aö reyna eitt- hvað nýtt. Eg æföi júdó um t(ma, og tvö ár í röö varö ég íslands- meistari í þeirri íþróttagrein. Þá er ég meöltmur í Skotfélagi fleykja- víkur, og æfi nú lyftingar. iJÁi* — Bryndis Valgeirsdóttir, eigandi Fjarkans í Austurstræti. Mynd Mbl. RAX. FJARKINN FIMMTÁN ÁRA „FJARKINN er 15 ára á þessu ári og við erum enn með sama matseðilinn að segja má og þegar við byrjuðum. Þetta er litill staður, með litinn matseðil, en það sem við hofum á boðstólum er ljúffengt,“ sagði Bryndis Valgeirsdóttir, eigandi veitingastað- arins Fjarkans i Austurstræti i spjalli við blaða mann. „Fyrir um tveimur árum voru gerðar gagngerar endurbætur á staðnum. Við hofum ávallt lagt áherzlu á einfaldleika en innan tiðar munum við hafa djúpsteiktan fisk á boðstólum,“ sagði Bryndis ennfremur. Bragi Kristjónsson: Spjall um sjón- varp og útvarp íslenzk tunga sætir hnjask- kenndri meðferð í Ríkisútvarp- inu. Tungan er ekki bara rétt byggðar setningar og skiljanleg íslenzk orð: einnig flutningur máls og almenn tignun þess. Flutningur tungunnar hjá þul- um hljóðvarps er til fyrirmynd- ar. Þulir eru ytri ásýnd miðilsins og mikilsvert að þeir séu starfi sínu vaxnir. Hjá sjónvarpi hefur ekki enn orðið sú skolun, sem æ verður í tímans rás: hinir lakari falla út og hæfari taka við, í sjónvarpi ætti að vera óþarfi að bjóða sjáendum að hlusta á fólk blæst á máli og yfrið smámælt — auk útbreiddra talgalla, sem er nokkuð almenn pest hjá þeim miðli. Málbrúkun ýmissa umsjár- manna hljóðvarpsþátta er hins- vegar óræk sönnun þess, að litlar kröfur eru á þeim bæ gerðar til kunnáttu í máli og tali. Fram- sögn er svo önnur saga, sýnu dapurlegri: Enn er t.d. nær allt barnáefni hljóðvarps flutt á gamla framsagnarhættinum: „ertu-þarna-ennþá-auminginn- minn,“ og má vera mikið sam- bandsleysi ríkjandi á veruleika dagsins hjá umsjárfólki þess efnis, að ekki verði brátt um bætt. En hljóðvarpið flytur einnig þætti, sem beinlínis fjalla um íslenzkt mál í bráð og lengd. Áratugum saman höfðu veg og vanda af þætti um tunguna þeir Jakob Benediktsson, Ásgeir Blöndal Magnússon, Bjarni Vil- hjálmsson og Jón Aðalsteinn Jónsson. Prófessor Halldór Hall- dórsson flutti einnig árum sam- an margan kjarngóðan pistil um þessi efni. Þættir Jakobs, Ásgeirs og Jóns Aðalsteins voru víðtækir í uppfræðslu og skemmtan, ágæta vel fram sagðir og tengdir þjóð- bótastarfi þeirra við íslenzka orðabók. Hlustun var almenn og þjóðin tók virkan þátt í starfi orðabókarmanna. Nú er Jón Aðalsteinn einn eftir hinna „gömlu" umsjónar- manna við þáttagerðina. Og hef- ur fengið ungt starfsfólk sitt af orðabókinni til liðs. Ungmennin eru að sönnu skýrmælt og glögg. En þau eru fjarska litlaus og leiðinleg. Hinn víðtæki húman- ismi, sem jafnan gætti hjá fyrri flytjendum — og Jóni Aðal- steini, hefur vikið fyrir nær hreinræktuðum sparðatíningi fyrir orðabókina. Almennur áhugi fyrir þáttunum um ís- lenzkt mál og tengd málefni, er því fremur dvínandi. Margir eru að sönnu, nú sem fyrr, reiðubún- ir til liðs við þetta merka starf; en upprunalegt hlutverk þessara þátta er víðtækara en fram- kvæmdin nú og það ber að hafa í heiðri. Óvenju skýrlegur piltur, Þórð- ur Ingvi Guðmundsson — af stjórnarráðsstarfsmanni að vera — stýrði spjalli nokkurra karla um atvinnumálefni fatlaðra í vikunni. Og fékk til fylgdar opinn og samstæðan við- mælendahóp, sem lýsti ástand- inu hræsnislaust, en af sann- girni. Það voru Halldór lögmað- ur Rafnar, Bjarni Kristjánsson forstöðumaður, Ólafur Jónsson læknir og Sigursveinn tónskóla- stjóri. Barði Þingeyingur Frið- riksson, talsmaður vinnukaup- enda, lýsti ýmsum jákvæðum hugmyndum úr þeim herbúðum og deildi réttilega á aulalegar þvingunar- og gustukaleiðir löggjafans, sem fyrirhugaðar eru. Og svo brá við, að hinn ella mjög svo málhressi fulltrúi sjó- mannastéttarinnar, Óskar Vig- fússon, átti svo bágt með að tjá sig og lýsa afstöðu samtaka Jón Aðalsteinn sinna, að helzt var sem hann væri að undirbúa sig að taka við starfi orkuráðherrans — og hefði farið í tíma til hans í véfréttartalshætti. Hin opinbera loðmulla og hræsni í málefnum fatlaðra er löngu öllum ljós. Grámennin á ráðherrasessunum og kansellí- undirsátar þeirra hafa allar göt- ur staðið í vegi fyrir raunhæfum umbótum í málefnum fatlaðra — og eingöngu brúkað þessi réttlætismál til auglýsingaskr- ums við sundlaugavígslur og á tilfallandi hátíðum. Nær allur raunsær atbeini á þessum svið- um hefur fyrr og nú komið frá félagasamtökum og framtaks- sömum einstaklingum, ef frá eru taldar allra brýnustu sjúkra- stofnanir, sem þó eru sveltar með sama yfirdrepshættinum og einkennir mál þessi öll. Fordómar gagnvart fctluðu fólki hafa stórbreytzt á síðasta áratug. Margir vinnukaupendur hafa gert sér grein fyrir kostum þeirra starfskrafta, sem búa í fötluðu fólki í öllum greinum. Þar eru gagnkvæmir hagsmunir nýttir báðum til góðs. Samtök fatlaðra hafa eflzt og eignazt áhrifamikla málsvara úr eigin röðum. Allt horfir þetta í rétta átt. Það er helzt á sviði geðfötl- unar, sem fordómar eða óvissu- hræðslan, er enn nokkuð al- menn. En með framhaldinni upplýsingamiðlun á því sviði má einnig ná miklum árangri. Helzta hindrun í vegi framfara á þessu sviði er hin opinbera aumingjagæzka, sem heita má nær hyldjúp í hræsni sinni. En gott er þá að vita, að innan um öll opinberu grámennin, leynast raunsæir skýrleikspiltar, eins og stjórnandi þessa þáttar. TONLISMRSKOLI KÓPKJOGS Frá Tónlistarskóla Kópavogs Fyrri vortónleikar veröa haldnir laugardaginn 4. apríl kl. 2 e.h., í sal skólans. Skólastióri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.