Morgunblaðið - 04.04.1981, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981
KJARVALSSTAÐIR:
Samsýning 47
norrænna kvenna
SAMSÝNING 47 kvenna frá öllum
Norðurlöndunum opnar að Kjar-
valsstöðum i dau ok mun sýninKÍn
standa til 27. þ.m. Á sýninuunni
eru 250 verk — málverk ok teikn-
in«ar. Sýninj? þessi er eins konar
farandsýning. Hún var fyrst sett
upp i Finnlandi, en síðan i Noregi
en þaðan kemur hún hingað til
tslands. Var flutninKur sýninKar-
innar hinKað styrktur af Norræna
menninKarsjóðnum ok Malmö
Konsthall. Héðan fer sýninKÍn til
Danmerkur þar sem hún verður
sett upp í Árósum.
Á blaðamannafundi sem nokkrir
aðstandenda sýninRarinnar efndu
til kom fram að nú eru liðin rúmleKa
3 ár síðan sú huKmynd kom upp að
konur frá öllum Norðurlöndunum
efndu til sameÍKÍnleKrar sýningar.
Eru verkin á sýningunni eftir konur
á öllum aldri — sú elzta var 102 ára
gömul er hún lést 1979. Reynt var að
fá sem mesta breidd í sýninguna og
engin ein myndlistarstefna látin
ráða vali þeirra verka er fengin voru
til hennar.
Að hálfu íslands taka þátt í
sýningunni þær Valgerður Bergs-
dóttir, Sigríður Björnsdóttir, Edda
Jónsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir,
Bergljót Ragnars og Björg Þor-
steinsdóttir.
Eitt
verkanna á
sýningunni.
málverk eftir
sænsku
iistakonuna
Benedicte Berg-
mann.
Gunnar Hjaltason við eitt verka sinna á sýningunni sem hann opnar i dag i kjallara Norræna
hússins. (LjAsm. ÓI.K.M.)
Gunnar Hjaltason sýn-
ir í Norrœna húsinu
í DAG opnar Gunnar Hjaltason
sýningu i Norræna húsinu. t>ar
sýnir hann 92 myndir, flestar
unnar með akryl-, pastel- og
vatnslitum, en einnig myndir
unnar með bleki á japanskan
rispappir.
Gunnar Hjaltason er fæddur
21. nóv. 1920 að Ytri-Bakka við
Eyjafjörð, en fluttist til Hafnar-
fjarðar 1952 og hefur búið þar
síðan. Hann stundaði nám í
teikniskóla Björns Björnssonar
og Marteins Guðmundssonar
1933—42 og tók einnig þátt í
nokkrum námskeiðum á vegum
Handíðaskólans. Gunnar hefur
haldið einkasýningar í Hafnar-
firði svo til á hverju ári 1964—
78, í Bogasal Þjóðminjasafnsins
1%9, í Vestmannaeyjum 1%5, í
Mokkakaffi 1973, 75 og 80, í Eden
í Hveragerði 1975, í Borgarnesi
1976, í Norræna húsinu 1978, á
Akureyri 1977 og Hvammstanga
1979, auk þess sem hann hefur
tekið þátt í samsýningum hafn-
firskra málara 1970, 72 og 74.
Sýning Gunnars Hjaltasonar
stendur til 12. þ.m.
Samkór Selfoss
SAMKÓR SELFOSS OG ÁRNESINGAKÓRINN:
Sameiginlegir tónleikar
'í dag halda Samkór Selfoss og
Árnesingakórinn i Reykjavik
sameiginlega tónleika í Selfoss-
biói og hefjast þcir kl. 17. Á
söngskránni eru lög eftir inn-
lenda og erlenda hofunda og
munu kórarnir bæði syngja sam-
an og sinn í hvoru lagi.
Kórarnir eru báðir í Landssam-
bandi blandaðra kóra, en sam-
bandið hefur það m.a. á stefnuskrá
sinni að kórar í hinum ýmsu
byggðum landsins efli með sér
samstarf.
Söngstjóri Samkórs Selfoss er
Björgvin Valdimarsson en söng-
stjóri Árnesingakórsins er Guð-
mundur Ómar Óskarsson. Undir-
leikarar eru Geirþrúður Bogadótt-
ir og Hafdís Kristinsdóttir.
Næst síöasta
klassíska kvöld-
ið á Hlíöarenda
Nú er komið að næst siðasta
„klassiska kvöldinu“ á veitinga-
staðnum Hlíðarenda á þessum
vetri.
Annað kvöld munu listamenn-
irnir Rut L. Magnússon söngkona
og Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari koma þar fram. Á efnisskránni
verða lög eftir Hándel, ensk lög frá
17. öld og ísiensk lög eftir Arna
Thorsteinsson og Atla Heimi
Sveinsson.
MÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR:
Nemenda-
sýning í
Háskólabíói
í dag efnir Þjóðdansafélag
Reykjavikur til nemendasýningar i
Háskólabiói og hefst hún kl. 14.00.
Sýndir verða dansar frá ýmsum
löndum, svo sem Ameríku, Ítalíu,
Rússlandi, Balkanlöndum, íslandi
o.fl.
í sýningunni koma fram um 100
dansarar, börn og fullorðnir. Undir
stjórn Kolfinnu Sigurvinsdóttur
koma fram hópar barna og unglinga,
undir stjórn Helgu Þórarinsdóttur,
hópar úr gömludansanámskeiði og
úr þjóðdansaflokki og undir stjórn
Svavars Guðmundssonar hópur úr
þjóðdansaflokki. Undirleikarar á
sýningum verða þau María Einars-
dóttir, Þorleifur Finnsson og Þor-
valdur Björnsson, en verulegur hluti
tónlistar er þó fluttur af tónböndum.
Umsjón með búningum hefur Ásta
Guðmundsdóttir. Kynnir verður
Guðmundur Guðbrandsson.
Háskólatónleikar
í dag verða haldnir sjöttu Efnisskráin samanstendur af
Háskólatónleikar vetrarins i Fé- ítölskum og frönskum tónverkum
lagsstofnun stúdenta við Hring- frá barokktímanum og lýsir vel
braut og hefjast þeir kl. 17.00. hinum sérstæða og ólíka tónlist-
Flytjendur eru Camilla Söder- arstíl þessara tveggja þjóða á 18.
berg, Helga Ingólfsdóttir og Ólöf öld. Flutt verða tónverk eftir
Sesselja Óskarsdóttir og leika þær Paolo B. Bellinzani, Jacques M.
á blokkflautu, sembal og bassa- Hotteterre, Monsieur Ravet,
gígju. Þær Camilla og Helga leika Charles Dieupart, Joseph B. dé
á blokkflautu og sembal sem eru Boismortier og Francesco Bar-
eftirlíkingar af 18. aldar hljóðfær- santi.
um.
ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Helga Ingólfsdóttlr og Camilla Söderberg.