Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 22
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981
Regnboginn frumsgnir „Times Square“
Vatzlav
Um þessar mundir sýnir Leik-
listarfélaK Menntaskólans við
Hamrahlið leikritið Vatzlav eftir
Sawomir Mrozek. Þýðinguna
gerði Karl Ágúst Úlfsson, en
leikstjóri er Andrés Sigurvinsson.
Hafa þeir, svo og leikendur,
fengið mjög góða dóma hjá gagn-
rýnendum fyrir verk sitt. Næsta
sýning er i kvöld kl. 20.30 og
önnur annað kvöld á sama tíma,
en sýnt er i hátiðarsal MH.
Frá æfingu Skagaleikflokksins á Atómstöðinni eftir halldór Laxness.
Skagaleikflokk-
urinn frumsýn-
ir Atómstöðina
í DAG frumsýnir Skagaleik-
flokkurinn á Akranesi
Atómstöðina eftir Halldór
Laxness í leikgerð sem heitir
Norðanstúlkan og er eftir
Svein Einarsson og Þorstein
Gunnarsson. Sýningin hefst
í Borgarbíói kl. 20.30.
Leikstjóri er Gunnar Gunn-
arsson leikhúsfræðingur og
leikmynd hefur Gylfi Gísla-
son myndlistarmaður gert.
Lýsingu annast Lárus
Björnsson og tónlist er eftir
Valgeir Skagfjörð.
Méð helstu hlutverk fara:
Hallbera Jóhannesdóttir, Ha-
lldór Karlsson, Auður Sig-
urðardóttir og Hallgrímur
Hróðmarsson.
Æfingar hafa staðið um 7
vikna skeið og er Atómstöðin
13. verkefni Skagaleikflokk-
sins.
Kirkjukór Lögmanns-
hlíðarkirkju endur-
tekur tónleika sína
Kirkjukór Lögmannshlíð-
arkirkju endurtekur hljóm-
leika sína í Akureyrarkirkju
í kvöld, laugardagskvöld, kl.
20:30, vegna f jölda áskorana
og gífurlegrar aðsóknar á
sunnudaginn var.
Auk kórsins koma fram
Inga Rós Ingólfsdóttir og
Hörður Áskelsson, sem leika
á selló og orgel og 15 manna
strengjasveit Tónlistarskóla
Akureyrar. Einsöngvarar
verða Eiríkur Stefánsson,
Helga Alfreðsdóttir og Þórar-
inn Halldórsson, en stjórn-
andi er Áskell Jónsson, sem
verður sjötugur á morgun,
sunnudaginn 5. apríl.
André Isoir
FÍLADELFÍUKIRKJAN:
Orgeltónleik-
ar André Isoir
f DAG heldur franski orgelleik-
arinn André Isoir tónleika í
Filadelfiukirkjunni í Reykjavik
og hefjast þeir kl. 17.00. Á
morgun mun hann svo halda
tónleika i Skálholtskirkju og á
miðvikudag í Landakotskirkju.
Á cfnisskrá tónleikanna i Fíla-
delfiukirkjunni eru m.a. verk
eftir Thomas Preston, Claude le
Jeune, J.S. Bach, Bach-Vivaldi-
Isoir, J.A. Reinecken, G. Lasceux,
Michel Corette, Leos Janacek o.fl.
André Isoir er fæddur 1935.
Hann hefur sérhæft sig í barokk-
músik og þykir standa flestum
framar á því sviði, en einnig er
mikið látið af túlkun hans á nýrri
tíma tónverkum. Hann stundaði
nám við Tóniistarháskólann í Par-
ís og hlaut þar fyrstu verðlaun í
orgelleik og impróvisasjón við
brottfararpróf 1960. Hann er nú
fastráðinn organisti við kirkjuna i
Saint-German des Prés í París.
Hann hefur farið víða um
heimaland sitt til tónleikahalds og
um Þýskaland, haldið tónleika á
Norðurlöndum, í Bandaríkjunum
og í Japan.
í þrjú ár samfleytt fór hann
með sigur af hólmi í alþjóðlegri
keppni í impróvísasjón, sem hald-
in er árlega í Haarlem í Hollandi.
Isoir hefur leikið inn á rúmlega
þrjátíu hljómplötur í Frakklandi
og sjö sinnum (á árunum 1972—
1979) hlotið Grand Prix du Disque
og auk þess hin eftirsóttu forseta-
verðlaun, Grand Prix du Président
de la République. Nú hefur hann
tekið sér fyrir hendur að leika öll
verk meistara Bachs inn á plötur
og er það margra ára verk.
Ingeborg
Einarsson
sgnir í Eden
UM ÞESSAR mundir sýnir
Ingeborg Einarsson í Eden i
Hveragerði.
Þar sýnir hún 15 vatnslita-
myndir og 6 olíumálverk.
Þetta er fyrsta sýning hennar
og stendur hún til 10. apríl.
Ingeborg Einarsson á sýn-
ingu sinni i Eden í Hvera-
gerði.
\Auv V
:
í DAG frumsýnir Regnboginn
ensk-bandaríska kvikmynd,
„Times Square“, gerða af Robert
Stigwood. Leikstjóri er Alan
Moyle. Aðalhlutverk leika Tim
Curry. Trini Alvarado, Robin
Johnson og Peter Coffield.
Myndin fjallar um tvær ungl-
ingsstúlkur, sem eru af gjörólík-
um uppruna en kynnast á sjúkra-
stofu og lenda í ýmsum ævintýr-
um eftir að þær strjúka af sjúkra-
húsinu.
Tónleikar á morgun
í Hveragerðiskirkju
Á MORGUN verða haldnir tón- Árni Sighvatsson baritónsöngvari,
leikar í Hyeragerðiskirkju og Haraldur Árni Haraldsson bás-
hefjast peir kl. 16.00. leikari flytja verk eftir ýmsa
Á tónleikunum munu Sigurður höfunda, bæði innlenda og er-
Pétur Bragason tenórsöngvari, lenda.