Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 23

Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRIL 1981 23 Kekkonen hvetur til ákvörðunar URHO Kekkonen, Finnlandsíor- seti, hvatti i dag Mauno Koi- visto, forsætisráðherra, og fjög- urra flokka samsteypustjórn hans til að taka skjótt ákvarðan- ir í þeim málum, sem hafa valdið hálfgerðri stjórnarkreppu í landinu síðustu dagana. Deilur stjórnarflokkanna snú- ast um tryggingamál í sambandi við nýjan kjarasamning við laun- þega til næstu tveggja ára. Þrír stjórnarflokkanna eru sammála þeirri tilhögun, sem gert var ráð fyrir, en kommúnistar eru henni andvígir. Búist er við því, að ef kommún- istar fallast ekki á samþykkt hinna flokkanna, jafnaðarmanna, Miðflokksins og Sænska þjóðar- flokksins, muni Koivisto afhenda forseta lausnarbeiðni sína 10. apríl nk. Kekkonen kallaði einnig á sinn fund formann Kommún- istaflokksins, Aarne Saarinen, og sagðist eftir þann fund búast við falli stjórnarinnar í næstu viku. Landamæri opnuð á ný Quito, 3. april. AP. LANDAMÆRI Ecuador og Perú voru aftur opnuð í dag í fyrsta skipti síðan 28. janúar þegar herlið landanna börðust út af landamæradeilu. Herir land- anna voru aðskildir 26. febrúar. Arás á hersins San Salvador. 3. april. AP. HRYÐJUVERKAMENN gerðu vélbyssuárás í dag á bifreið forseta herráðsins í E1 Salvador, Rafael Flores Lima ofursta, og drápu bílstjórann, en herráðsfor- setinn var ekki i bilnum. Árásin var gerð þegar bílstjór- inn ætlaði að sækja Flores Lima á heimili hans í norðvesturhluta höfuðborgarinnar. Árásarmenn- irnir flúðu. Sprenging í olíuskipi Rio de Janeiro, 3. aprll. AP. SPRENGINGAR urðu í olíuflutn- ingaskipi þar sem það lá við festar á Guanabara-flóa við Rio í dag og eldur kom upp í skipinu. Engan sakaði af áhöfninni, en tveir hafnarverkamenn fengu brunasár. Notaði tilræðismað- urinn sprengikúlur? Washington, 3. april. AP. TALSMENN bandarisku alrík- islögreglunnar sögðu i gær- kvöldi. að vera kynni að tilræðis- maðurinn, sem reyndi að ráða Reagan forseta af dögum, hefði notað sprengikúlur i byssuna. í morgun var kúla fjarlægð úr hálsi lögreglumannsins, sem særðist við árásina, og gekk aðgerðin vel. Roger Young, talsmaður FBI, bandarísku alríkislögreglunnar, sagði, að nú væri talið, að allar sex kúlurnar hefðu verið sprengi- kúlur, en hann lagði þó áherslu á, að það yrði kannað nánar. Hann sagði, að kúlurnar væru holar fremst og fylltar sprengiefni, sem spryngi þegar kúlan lenti í ein- hverju. Læknar lögreglumannsins, sem særðist í árásinni á Reagan, höfðu fyrr ákveðið, að kúlan yrði ekki tekin strax úr hálsi hans en þegar FBI skýrði þeim frá niðurstöðum rannsókna sinna, var ákveðið að fjarlægja hana umsvifalaust. Að- gerðin gekk vel og og að henni lokinni sögðu læknarnir, að lög- reglumaðurinn væri „þungt hald- inn en þó ekki í lífshættu". Talsmaður FBI vildi ekki full- yrða, að kúlan, sem lenti í Reag- an, hefði verið sprengikúla og kvað það verða rannsakað betur. Hann sagðist heldur enga skýr- ingu kunna á því hvers vegna kúlurnar, sem lentu í Reagan og lögreglumanninum, hefðu ekki sprungið, ef eins væri í pottinn búið og þeir héldu. Um sama leyti gerðu hryðju- verkamenn skotárás á byggingu búnaðarbanka ríkisstjórnarinnar í öðrum hluta San Salvador og flúðu. Stjórnarherinn hefur hafið loft- árásir og stórskotaliðsárásir á um 500 skæruliða, sem hafa búizt til varnar í fjöllunum 23 km fyrir norðan höfuðborgina. Báðir aðilar Skriðdrekaárás á kristna borg Beirút, 3. april. AP. SÝRLENZKT herlið gerði geysiharðar skriðdrekaárásir með stuðningi sovézksmíðaðra flugskeyta i dag til þess að ná á sitt vald kaþólsku borginni Zahle í Austur-Líbanon. Kristnir hægrimenn hafa beðið um alþjóðlega íhlutun til að „stöðva þjóðarmorð á kristnum mönnum.u Setulið kristinna falangista í völdum eldflauga Sýrlendinga og Zahle barðist með flugskeytum og stórskotaliðsvopnum gegn skriðdrekum Sýrlendinga og eyði- lögðu 15 þeirra að sögn talsmanns þeirra. Sýrlenzki herinn tilkynnti í stjórnarmálgagninu „Al-Thawra“ að hann væri staðráðinn í að „refsa falangistum fyrir að æsa til bardaganna í Zahle.“ Blaðið sak- aði falangista um að „fara eftir fyrirskipunum ísraelsmanna" og reyna að magna átökin við Sýr- lendinga vegna fyrirhugaðrar ferðar Alexanders Haig, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda. Eldur logar í nokkrum fjölbýlis- húsum í Zahle og skurðdeild borgarspítalans eyðilagðist af tveir læknar særðust að sögn útvarpsstöðvar falangista. Alls hafa 82 fallið og 245 særzt á einum sólarhring í Zahle og við græna beltið í Beirút að sögn yfirvalda. Tvö hundruð þúsund íbúar Zahle hafa hafzt við í kjöllurum og sprengjubyrgjum í þrjá sólar- hringa án rafmagns og hita og matvæla- og vatnsbirgðir eru á þrotum að sögn falangista. bíl yfirmanns í E1 Salvador segjast ráða svæði nálægt Guaz- apa. Herinn á einnig í höggi við skæruliða í norðausturhéraðinu Morazan og í San Vicente. í Róm ræddi Arturo Rivera y Damas erkibiskup við Jóhannes Pál páfa II um málamiðlun í átökunum. Veður víða um heim Akureyri 7 alskýjað Amsterdam 11 skýjað Aþena 17 heiðskírt Berlín 15 heiðskírt BrUssel 11 rigning Chicago 26 rigning Feneyjar 17 þokumóða Frankfurt 19 skýjað Færeyjar 4 alskýjað Genf 16 skýjað Helsinki 7 skýjað Jerúsalem 16 heiðskirt Jóhannesarborg 23 heiðskírt Kaupm.höfn 11 skýjað Las Palmas 19 skýjað Líssabon 17 rigning London 13 heiðskírt Los Angeles 17 heiöskírt Madrid 11 heiðskírt Malaga vantar Mallorca 13 rigning Míami 28 heiðskírt Moskva 9 heiðskirt New York 19 heiðskírt Osló 6 skýjað París 13 skýjað Reykjavík 7 súld Ríó de Janeiro 30 skýjað Rómaborg 20 skýjað Stokkhólmur 10 heiöskírt Tel Aviv 20 heiöskírt Tókýó 17 rigning Vancouver 10 skýjað Vínarborg 16 skýjað ERLENT Genscher ræðir við Brezhnev Mowkvu, 3. april. AP. HANS-DIETRICII Gensch- er, utanríkisráðherra Vest- ur-Þýzkalands, ræddi við Leonid Brezhnev, forseta Sovétríkjanna, í Kreml í dag. Áður skoraði Genseher í ræðu í Moskvu á öll ríki að hlutast ekki til um innan- ríkismál Póllands í stefnu sinni. Genscher hvatti einnig til þess í ræðu í hádegisverðarboði sem Andrei Gromyko utanríkisráð- herra hélt honum að Afghanistan yrði sjálfstætt, óháð ríki og að ekkert erlent herlið yrði í landinu. Hann sagði að Vestur-Þjóðverj- ar veittu Pólverjum efnahagsað- stoð að beiðni Varsjár-stjórnar- innar og kvað aðstoðina „framlag til samvinnu í Evrópu". Genscher og Gromyko ræddu fjölmörg mál í sambúð acsturs og vesturs, m. a. eldflaugar í Evrópu- ríkjum, ástandið á óróasvæðum í heiminum, Madrid-ráðstefnuna, samskipti þýzku ríkjanna og sam- búð Rússa og Vestur-Þjóðverja. SJOFÖTIN SEM ÞEIR BIÐJA UM SEXlfll OG SEX NORÐUR Nóbelsverð- laun hækka Stokkhólmi. 3. april. AP. PENINGAVERÐLAUNIN, sem veitt verða Nóbelsverðlaunahöfun- um i ár, verða hærri en að undan- förnu, eða ein milljón sænskra króna, að því cr Nóbeisstofnunin tilkynnti f dag. í fyrra voru verðlaunin 880.000 sænskar krónur. Samkvæmt árs- reikningum stofnunarinnar varð 12,4 milljóna króna hagnaður á rekstri stofnunarinnar á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.