Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRIL 1981 25 Aðalfundur Verzlunarmannafélass Reykjavíkur: Starfsárið einkenndist af mikilli samningavinnu AÐALFUNDUR Verzlunar mannafélags Reykjavíkur var haldinn að Hótel Esju hinn 26. marz siðastliðinn. A fundinum var lýst kjöri stjórnar félagsins, en Magnús L. Sveinsson var endurkjörinn formaður félags- ins. Starfsemi félagsins á siðast- liðnu ári einkenndist af mikilli samningavinnu i aðalsamningum og sérsamningum. Merkasta at- riðið. sem vannst i kjarasamning- um, voru aukin kjararéttindi afgreiðslufólks, sem getur fengið kauphækkun að uppfylltum skil- yrðum um starfstima og mennt- un á námskeiðum, sem haidin verða. í fréttatilkynningu frá félaginu segir að önnur helztu mál, sem félagið hafi unnið að á árinu, hafi verið bygging 24 íbúða, sem VR byggði og seldi félagsmönnum sínum á kostnaðarverði. Þá voru reist 6 ný orlofshús að Húsafelli. Áfram var og haldið byggingu Húss verzlunarinnar, en VR á þar tæplega 10% eignarinnar. Utbreiðslu- og fræðslustarf á vegum féiagsins var stóraukið með útgáfu VR-blaðsins, útgáfu bæklings um VR, fræðslufunda, námskeiða og auglýsinga. Fjár- veitingar voru úr sjúkrasjóði til fyrirbyggjandi starfs á sviði heil- brigðismála, unnið er að könnun á því, hvort einhverjar starfsgrein- ar verzlunar- og skrifstofufólks gefi tilefni til sérstakra aðgerða á sviði heilsuverndar og sjúkdóms- varna. Á aðalfundinum gerði Pétur A. Maack, gjaldkeri félagsins, grein fyrir reikningum félagsins og Guðmundur H. Garðarsson gerði grein fyrir reikningum Lífeyris- sjóðs verzlunarmanna. í stjórn VR eiga nú sæti: Magnús L. Sveinsson, formaður, Hannes Þ. Sigurðsson, Auður R. Torfadóttir, Pétur Á. Maack, Helgi E. Guðbrandsson, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Jóhanna Sig- urðardóttir, Klemenz Hermanns- son, Grétar Hannesson, Elís Adolphsson, Halldóra Björk Jóns- dóttir, Böðvar Pétursson, Teitur Jensson, Elísabet Þórarinsdóttir og Arnór Páisson. Hagkaup opnar húsgagna verzlun með IKEA-vörur Launasjóður rithöfunda: Samhljóða álit allsherjarnefndar Allsherjarnefnd Sameinaðs þings hefur skilað samhljóða áliti um þingsályktunartillögu Halldórs Blöndal (S) o.fl. um launasjóð rithöfunda. Álitið er svohljóðandi: „Nefndin hefur fjallað um tillög- una og fengið umsagnir Rifhöfunda- sambands Islands, Félags íslenskra rithöfunda og Menntamálaráðs. Einnig mætti á fund nefndarinnar Njörður P. Njarðvík, formaður Rit- höfundasambandsins. Nefndin telur eðlilegt, að fram fari endurskoðun á lögum um launa- sjóð rithöfunda og reglugerðum samkvæmt þeim lögum, eins og greint er í tillögugreininni. Nefndin tekur þó ekki afstöðu til þeirrar hugmyndar, sem fram kem- ur í greinargerð þingsályktunartil- lögunnar, að stjórn launasjóðs verði skipuð af Alþingi. Mælir nefndin með samþykkt'til- lögunnar með breytingum, sem fluttar eru tillögur um, á sérstöku þingskjali." Alþingi, 2. apríl 1981. Jóhanna Sigurðardóttir Birgir ísl. Gunnarsson Guðm. G. Þórarinsson Páll Pétursson Steinþór Gestsson Halldór Blöndal Guðrún Ilelgadóttir eiginlega hafa þær fengið álit ýmissa stofnana, sem málið varð- ar. Álit allra hefur verið á einn veg; af bæði tönkunum og leiðsl- unni stafar stórhætta og oftar en einu sinni hefur munað litlu, að olía rynni úr þeim í höfnina og geta menn væntanlega gert sér í hugarlund það ástand sem þá hefði skapast. Þá kemur einnig fram, að leiðsl- urnar standa í vegi fyrir skipulagi hafnarsvæðisins í Keflavík og íbúasvæðis í Njarðvík. Félags- málaráðherra sagði hér í ræðu sinni, að það væru einhver annar- leg sjónarmið á bak við þessa En varðandi orð 4. þingmanns Norðurlands eystra og reyndar fleiri hér þá sé ég ekki, hvernig hægt er að ræða þessi mál öðru- vísi en í samhengi við aðsetur varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Ég held að Alþýðubanda- lagsmenn verði að horfast í augu við það, að varnarliðið er hér af því að meiri hluti þjóðarinnar hefur samþykkt það. Það er lág- markskrafa þeirra, sem búa í nágrenni við Keflavíkurflugvöll, að þannig sé búið að málum, að ekki stafi hætta af nábýlinu eins og nú er um að ræða varðandi þessa olíutanka. Þetta er einmitt mergurinn málsins, að það er verið að reyna að finna leiðir til þess að ráða bót á þessum vanda- málum. Og ég verð að segja það með allri virðingu fyrir skoðunum Alþýðubandalagsins þá hljóta nú heimamenn að vita betur í þessum málum og þeirra skoðanir því að vera þyngri á metunum. mm v/9 mtót VIEM5N9UK ViVáóiA'oT WM KRÖVOK mm m wtö LlettA V//VNU ólafur Iljaltason, deildarstjóri húsgagnadeildarinnar, t.h. og Sigurður Geir Pálmason i hinni nýju verzlun. Ljósraynd Mbl. Kmilia. Ole Villumsen Krog (t.h.) og Þór Magnússon virða fyrir sér hluta af þeim munum sem á sýningunni eru. Annan þeirra kaleika sem sjást á myndinni pantaði Skúli Magnússon fógeti og gaf Viðeyjarkirkju árið 1791. Ljósm. Ól. K.M. Sýning á silfurmunum SÝNING á verkum Sigurðar Þorsteinssonar gullsmiðs verður opnuð i Bogasal Þjóðminjasafns- ins i dag, laugardag. kl. 16. Sýningin mun standa fram i september nk. Sigurður Þorsteinsson var fæddur i Norður-Múlasýslu 1714 en hann lést 1799. Árið 1742 hélt hann til Danmerkur til gull- smiðanáms og bjó þar og staríaði til æviloka. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði Þór Magnússon þjóð- minjavörður að sýningin væri einn áfangi þess samstarfs sem VHNKWSTWK------ Þjóðminjasafnið og Ole Villumsen Krog silfurfræðingur frá Dan- mörku hafa átt á síðustu árum um rannsókn og skráningu silfur- muna á íslandi. Krog hefur ásamt öðrum séð um uppsetningu sýn- ingarinnar, tekið Ijósmyndir af munum eftir Sigurð sem til eru erlendis og skrifað texta í sýn- ingarskrá ásamt þjóðminjaverði. Þór Magnússon sagði að Sigurð- ur hefði verið meðal þekktustu gullsmiða sem störfuðu í Dan- mörku á 18. öld. Á sýningunni munu vera allir munir eftir Sigurð sem til eru hér á landi og vitað er um. Þjóðminjavörður sagði að Sigurður hefði alltaf haft náin tengsl við ísland þótt hann hefði búið erlendis og hann og ættmenni hans á tíðum gefið kirkjum silf- urmuni. Einnig hefðu ýmsir pant- að frá honum muni hingað til lands, einkum í kirkjur. Alls eru 37 munir á sýningunni ásamt bréfum og bókum úr eigu Sigurð- ar. HAGKAUP opnaði sl. mánudag nýja húsgagnaverzlun i húsi fyrirtækisins i Skeifunni, en í verzluninni verða eingöngu á boðstólum húsgögn og búnaður frá sænska stórfyrirtækinu IKEA. — Sigurður Geir Pálma- son hjá Hagkaup sagði i samtali við Mbl., að þeir Hag- kaupsmcnn hefðu lengi ihugað þann möguleika að opna hús- gagnaverzlun i húsnæði þvi, sem Ilúsgagnaverzlun Guð- mundar var í áður. Siðan hefði verið ákveðið að láta til skarar skriða þcgar bauðst að selja vörur IKEÁ-fyrirtækisins hér. Sigurður sagði aðspurður, að IKEA væri mjög stórt fyrirtæki, og væri með verzlanir mjög víða, en það framleiddi ekkert af vörunum sjálft heldur léti fram- leiða hina ýmsu hluti eftir þeirra hugmyndum. — „í því sambandi má kannski geta þess, að við höfum þegar viðrað þá hugmynd við IKEA, hvort ekki væri hægt að bjóða ákveðna hluti út hér á landi, þannig að islenzkir fram- leiðendur ættu þar möguleika. Það er erfitt að segja til um það á þessari stundu hvort þetta er r unhæfur möguleiki, en það æðst fyrst og fremst af því, *hvort íslenzkir framleiðendur yrðu samkeppnishæfir í verði," sagði Sigurður ennfremur. Það kom fram hjá Sigurði, að IKEA legði sig í líma við að vera með sem allra breiðasta línu, en óneitanlega höfðaði vara þeirra frekar til yngra fólks. — „Það má segja, að allt annað yfir- bragð sé á vörum IKEA heldur en maður á að venjast í venju- legum húsgagnaverzlunum," sagði Sigurður. Auk þess að hafa á boðstólum allar gerðir hús- gagna, selur IKEA ýmsan hús- búnað eins og borðbúnað, lampa, rúmáklæði og teppi svo eitthvað sé nefnt. Sigurður sagði aðspurður, að auðvitað yrði Hagkaup ekki með alla línu fyrirtækisins, en reynt yrði að bjóða upp á nokkuð breiða línu. — „Ef fólk hefur áhuga á einhverjum vörum, sem við höfum ekki á lager, erum við auðvitað boðnir og búnir að panta þær að utan,“ sagði Sig- urður. IKEA-vörur koma í einingum, sem lækkar flutningskostnaðinn verulega. Kaupendur fá vörurn- ar í einingum og sjá um að setja t.d. húsgögnin saman. Aðspurð- ur um greiðslukjör sagði Sigurð- ur, að vörur fyrir minni upphæð en 3000 þyrfti fólk að staðgreiða, en væru fjárhæðir hærri byði Hagkaup upp á greiðslukjör. Hann sagði sama verð gilda, hvort heldur að fólk staðgreiddi vöruna, eða þá það fengi hana á greiðslukjörum, ein hins vegar borgaði fólk skuldabréfavexti af eftirstöðvum væri um greiðslu- kjör að ræða. Salóme Þorkelsdóttir: Nýir olíugeymar hagsmunamál íbúanna í Keflavík og Njarðvík í umræðum á Alþingi í fyrra- dag um olíugeymana í Ilelguvik flutti Salóme Þorkelsdóttir stutta ræðu og sagði m.a.: Þetta er fyrst og síðast hags- munamál byggðarlaganna í Njarðvík og Keflavík og íbúanna þar. Þetta er staðbundið hags- munamál, enda hafa bæjarstjórn- irnar bæði í Njarðvík og Keflavík árum saman krafizt úrbóta. Sam- tillögu, svo sem pólitísk. Ég vísa slíkri fullyrðingu algerlega á bug. Ef Alþýðubandalagsmenn vilja stuðla að því, að íbúar á svæðinu verði ekki látnir gjalda nábýlis við varnarliðið ættu þeir að gera sér ljóst, að það er tímabært nú þegar og hefur verið það í raun allar götur frá því 1951 þegar bráða- birgðaráðstafanir voru gerðar á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.