Morgunblaðið - 04.04.1981, Side 29

Morgunblaðið - 04.04.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 29 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi í boöi Hafnir Einbýlishús um 65 ferm ásamf bílskúr. Laust sfrax. Verö 150 þús. Einbýlishúa 120 ferm. nýlegt. Verö 430 þús. Eldra einbýlishúa á 2 hæöum. allt ný endurbyggt aö utan, fokhelt aö innan. ofnar fylgja. Verö 200 þús. Einbýlishús 140 ferm. ásamt bílskúrssökkli. Steinsteyptar einingar í hann fylgja. Verö 450 þús. Einbýlishús 140 ferm. fokhelt, tilbúiö aö utan. Verö 240 þús. Úrval eigna á skrá um öll Suöurnes. Eignamiölun Suðurnesja, Hafnargötu 57, sími 3868. Sumarleiga Einbýlishús á Nesinu meö öllum þægindum til leigu í ágúst nk. í húsinu eru 3 svefnherb. Hentugt fyrir 5 manna fjölskyldu eöa tvenn hjón. Bíll fylgir. Skrifiö eftir frekari upplýsingum í P.O. Box 789, Reykjavík. tilkynningar Kvnnnadeild Rauða kross íslands Konur athugið Okkur vantar sjálfboöaliöa tll starfa fyrir deildina. Uppl. ( sfmum 34703, 37951 og 14909. Kennsla Aöstoða námsfólk i íslensku og erlendum málum fyrir vorprófin. Siguröur Skúlason magister, sími 12526. Óska eftir aö taka á leigu 2ja—3ja herb. íbúö frá og meö komandi sumrl, helst í Vesturbæ. Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: .Vesturbær — 3247 “ Skrifstofuhúsnœði óskast 80—100 ferm. skrifstofuhús- næöi óskast. Þjónustumiöstöö bókasafna, Box 7050, sími 27130. Rörsteypuvélar til sölu Uppl. í sfma 99-5626. □ Gimli 5981467=1. I.O.O.F. 10 = 16204068V. = 9. III. j Sunnud. 5.4. kl. 13 Krœklingafjara viö Hvalfjörö eöa Eyrarfjall, steikt á staönum, fararstj. Jón I. Bjarnason. Verö 50 kr. frítt f. börn m. fullorönum. Fariö frá Ð.S.Í. vestanveröu. Myndakvöld aö Freyjugötu 27 nk. þriöjudagskvöld, Hallur og Óli sýna, kaffi og meö því. Páskaferöir Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli, sundlaug. Fimmvöröuháls, gengiö upp frá Skógum, og niöur í Bása. Útivist FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ___ ÖLC'JGÖTU 3 SfMAfi11796og 19533. Ferðir um páskana 16,—20. apríl kl. 07. Land- mannalaugar — skíöaferö (5 dagar). / 16.—20. apríl kl. 08. Hlööuvellir — sföaferö (5 dagar). / 16,—20. apríl kl. 08. Þórsmörk (5 dagar). / 16.-20. apríl kl. 08. Snæfellsnes (5 dagar). / 18,— 20. apríl kl. 08 / Þórsmörk (3 dagar). Dagsferöir i vikunní fyrir páska og páskadagana: 16. apríl kl. 13. Vffilsfell. / 17. apríl kl. 13. Gálgahraun — Álftanes. / 18. apríl kl. 13. Keilisnes — Staöarborg. / 19. apríl kl. 13. Gengið meö Elliöa- ám. / 20. apríl kl. 13. Húsfell. Allar upplýsingar á skrlfstofunni, Öldugötu 3, s. 19533 og 11798. Feröafélag islands Feröafélag Islands heldur myndakvöld aö Hótel Heklu, Rauöarárstíg 18, miðvikudaginn 8 apríl kl. 20.30, slundvíslega. íslenski Alpaklúbburinn (ÍSALP) sýnir myndir frá: Skíöagöngu- ferö yfir Kjöl, skíöagönguferö á Mýrdalsjökli, klifri á Eyjafjalla- jökli og klifri á Hraundranga og fleiri stööum. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Veitingar í hléi. Ferðafélag islands Tilkynning frá félaginu Anglía Félagiö hyggst styrkja einn Bretlandsfara til náms eöa menningarstarfsemi þarlendis sumariö 1981. Umsóknir, meö uppl. um fyrirhugaöan tilgang fararinnar, svo og meömælum, skulu hafa borist Menningar- sjóöi Anglía, pósthólf 474, Reykjavík, fyrir 15. apríl nk. Stjórn Menningarsjóös Anglíu. Svölurnar Fundur verður haldinn 7. apríl kl. 20.30 aö SfÖumúla 11. Gestur fundarins Haukur Hjaltason Stjórnin Bláfjallaganga 1981 Laugardaginn 11. apríl kl. 2 e.h. hefst almenningsganga á skíð- um. Gengiö veröur frá Bláfjöllum til Hveradala um Þrengsli. Þetta er um 16 km leiö og létt ganga Öllum er heimil þátttaka. Innrit- unatímar eru frá kl. 18—21, 10. apríl og allra síöasta lagi kl. 12 viö Bláfjallaskála, keppnisdag- inn. Þátttökugjald er kr. 70 og greiöist á innritunarstaö. Skíöa- fólk fjölmennið í þessa almenn- ingsgöngu. Stjórn Skföafélags Reykjavíkur KFUM og KFUK Fórnarsamkoma í kvöld kl. 20.30 aö Amtmannsstíg 2B. Helgi Elíasson bankaútibústjóri talar. Allir velkomnir. Fíladelfía Safnaóarfundur verður kl. 20.30. Rætt um heimsóknir og aöstoö- arforstööumann. Safnaöarfólk er beöiö um aö ftölmenna Safnaöarstjórn Krossinn Æskulýössamkoma í kvöld kl. 8.30 aó Auöbrekku 34, Kópa- vogi. Allir hjartanlega velkomnir. Heimatrúboðið Óðinsgötu 6a Almenn samkoma á morgun kl. 20.30. Allir velkomnir. Félag austfirskra kvenna Fundur að Hallveigarstöðum mánudaginn 6. apríl. Bingó Hörgshlíð Samkoma í kvöld kl. 8. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Fundur veröur í Félagsheimilinu aö Baldursgötu 9, mánudaginn 6. apri) kl. 8.30 Spllaö veröur blngó Vinnlngar: páskamatur og kökur. Konur fjölmenniö. Stjórnin Frá Indlands- vinasamtökunum Fundur f dag kl. 3 síödegis Templarahöllinni Aöalfundar- störf, erindi og myndasýning. Fíladelfía Sunnudagaskólarnir eru kl. 10.30. Almenn guösþjónusta kl. 20. Ræöumaöur Hallgrímur Guömannsson. Fjölbreyttur söngur. Fórn fyrir Afríkutrúboö- iö. Kvenfélag Háteigssóknar Fundur veröur þriöjudaginn 7. apríl kl. 20.30 í Sjómanhaskól- anum. Gestur fundarins veröur Margrét Hróbjartsdóttir. Þá veröur tískusýning. raðauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar tilkynningar Sumarnámskeið í ensku Bournemouth International School 13.6.— 11.7. 1981. Úrvalsskóli í fögru umhverfi á suðurströnd Englands. Gamalreynd og traust þjónusta. Hagstætt verð. Allar upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Rvík., sími 14029. Skotfélag Reykjavíkur nýr sími 86616 í félagsheimilinu Dugguvogi 1 Opið laugardaga frá kl. 14.00—17.00. Land undir sumarhús Til leigu er land undir sumarhús á mjög fögrum stað í Borgarfirði, 10 km frá Borgarnesi, liggur mjög vel við samgöngum en er samt mjög útúr. Landiö býður upp á ýmsa möguleika. Allar uppl. í síma 93-7032. Eftir kl. 9 á kvöldin. „Vegna fjarveru sendiherrans í opinberum erindum svo og páskana, veröur þjóðhátíö- ardagur Danmerkur ekki haldinn hátíölegur aö þessu sinni á afmælisdegi drottningarinn- ar, en í þess stað daginn fyrir Grundlovsdag- inn, eða 4. júní 1981.“ KGL. Dansk Ambassade, Reykjavík, den 1. april 1981. Skálhyltingar — Skálhyltingar Munið nemendamótið í Skálholti 4. og 5. apríl. Aðalfundur NSS haldinn 4. apríl kl. 16. Ferð verður frá Miðbæjarskólanum laugar- daginn kl. 10.00. Félagar fjölmennið. Stjórnin. ÞÚ AUGLYSIR um ALLT LAND ÞEGAR r ÞÚ AUGLÝSIR í * MORGUNBLAÐINU / \l GLYSINGA- SIMINN ER: 22480 Guðný Ólöf Stefáns- dóttir - Afmæliskveðja Guðný Ólöf Stefánadóttir er fædd að Berghyl í Austur-Fljótum 4. apríl 1911, og hefir því skilað samtíð sinni 70 árum nú í dag. Foreldrar hennar voru búandi hjón þar, Anna Jóhannesdóttir og Stefán Benediktsson. Á þessum tímamótum Guðnýjar langar mig undirritaða til að senda henni nokkur afmælisorð. Guðný er eins og að framan segir fædd í Fljótum norður, þeirri harðbýlu sveit, þar sem grasið kom grænt undan snjónum, og trjágróður þreifst betur en víða annarstaðar, því heitt hjarta móð- ur jarðar sló þar undir hrjúfu yfirborði. Guðný missti föður sinn er „Maríanna" fórst í maí-garðin- um mikla árið 1922. Móðir hennar stóð þá ein uppi með 7 börn á aldrinum frá eins til fimmtán ára. Með „Maríðnnu" fórust 13 heimil- isfeður úr Fljótum, og má nærri geta að víða hefur sorfið að. Þetta sama vor fór Guðný að prestssetr- inu Barði til séra Stanley Melax, er bjó þar með aldraðri móður sinni. Á Barði dvaldi hún í 5 ár og naut þar hins almenna skólalær- dóms, eins og títt var um unglinga á þeim árum. Þá þegar vann Guðný mikið í höndum, enda var hugur hennar mjög opinn fyrir hannyrðum og eru til eftir hana margir listrænir handunnir mun- ir. Árið 1927 flutti Guðný til Siglu- fjarðar, þar sem hún kynntist seinna sínum lífsförunaut, Magn- úsi Þorlákssyni. Mann sinn missti hún árið 1976. Þau eignuðust einn son, sem einnig er látinn. Guðný hefir margt reynt i lífinu, þar hafa skipst á skin og skúrir, en gerð hennar er þannig, að hún lætur ekki bugast, trúir á sigur hins góða og að allt andstreymi leiði til þroska sé það skilið á réttan hátt. Nú seinni árin hefir hún átt því láni að fagna, að halda hús í félagi við vinkonu sina, Aðalheiði Rögn- valdsdóttur, og styðja þær hvor aðra í lífsbaráttunni. Þótt við Guðný Stefánsdóttir séum tvær greinar vaxnar af sama meiði og teljum ættir okkar til skagfirskra fornkappa, þá hófust kynni okkar ekki að ráði fyrr en hún tekur að sér verkstjórn á nýstofnaðri Saumastofu „Sjálfs- bjargar" á Siglufirði á haustnótt- um 1959. Árið áður hafði fatlað fólk á Islandi ákveðið að stofna með sér samtök, og var vagga þeirra hér í Siglufirði. Fljótt var hafist handa með að skapa starfs- vettvang fyrir fólk, sem ekki gat heilsu sinnar vegna leitað á al- mennan vinnumarkað. Þannig varð saumastofan til. Hið mesta lán okkar, sem að þessum málum stóðu, var að fá þegar í byrjun svo dugmikla og hagsýna konu til verkstjórnar. Það var oft vandasamt verk að halda um þetta ungviði og hlúa að því, svo vel mætti fara. Allt þetta verkefni leysti Guðný af hendi með slíkri ósérhlífni og eljusemi, að engu er hægt við það að jafna. Hún var ætíð í viðbragðsstöðu til að sinna skyldustörfum allt eftir þörfum líðandi stundar. Guðný veitti saumastofunni forstöðu í 10 ár, og verða henni aldrei þökkuð þau störf, sem hún innti af hendi á þessum árum fyrir félagið okkar hér. Ég fann oft í samskiptum okkar, hvað hún sinnti lítið um eigin hag, heldur var hugurinn fyrst og fremst bundinn því, að skila verk- efnunum sem best og haglegast frá sér, um tímann sem það tók var aldrei talað. Guðný Stefánsdóttir er sérlega vel af guði gerð, létt í lund, hreinskilin og hreinskiptin við samtíðarmenn sína, dul í skapi og flíkar ógjarna tilfinningum sín- um. Hún hefir gaman af þjóð- málaumræðu og ver þá gjarna hlut þess, sem minna má sín. Þessi meðfæddi eiginleiki hefir vafa- laust átt sinn þátt í því að hún hefir um langan tíma kosið að eyða tíma sínum til lítt launaðra starfa í þágu samtaka fatlaðs fólks. Hugarfar hennar, fórnfýsi og vináttu alla viljum við samstarfs- fólkið í „Sjálfsbjörg" þakka nú í dag, með þeirri einlægu ósk, að Guðný eigi lengi enn eftir að halda heilsu sinni, og starfa með okkur að framgangi málefna til baráttu fyrir bættum lífskjörum smáfugl- anna í íslensku þjóðfélagi. Ilulda Steinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.