Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981
Getum boöiö plastmottur í stæröinni
120x60x21/2 cm. Hentugar til notkunar á
vinnustööum, vegna stööu viö vinnu, eins
heppilegar í búningsklefa, (sundstaöi/íþrótta-
hús). Auövelt aö krækja mottunum saman á
alla kanta.
Athugið hvort siíkar mottur henta yður. —
Hringið og fáið nánari upplýsingar.
B. Sigurðsson sf., Skemmuvegi 12, Kópavogi, sími 77716.
DAUÐI
TÁNINGS
Góði Guð! Ég er aðeins 17 ára.
Dagurinn þegar ég dó var venju-
legur skóladagur. Ég hefði heldur
átt að fara með strætisvagninum.
En ég var of mikill karl til þess.
Ég man hvernig ég narraði
mömmu til að lána mér bílinn.
„Gerðu það!“ sagði ég. „Allir krakk-
arnir eru á bílum.“
Þegar hringt var út úr skólanum
þennan dag, fleygði ég bókunum
niður í skólatöskuna. Nú var ég
frjáls þangað til klukkan 8 næsta
morgun! Ég hljóp út á bílastæðið,
spenntur fyrir því að fá að aka bíl
og vera minn eiginn herra. Frjáls!
Það skiptir ekki máli hvernig
slysið vildi til. Ég var að fíflast —
ók alltof hratt — tefldi á tæpasta
vað hvað eftir annað. En ég naut
svo sannarlega frelsisins og
skemmti mér konunglega.
Það síðasta sem ég man var að ég
tók fram úr gamalli kerlingu sem
rétt drattaðist áfram. Þá heyrði ég
ærandi hávaða og fékk ofboðslegt
högg. Gler og stál þeyttist um allt.
Mér fannst eins og skrokkurinn á
mér væri að rifna í sundur. Ég
heyrði að ég æpti.
Skyndilega vaknaði ég. Allt var
mjög hljótt. Það stóð lögregluþjónn
yfir mér. Svo sá ég lækninn. Líkami
minn var illa farinn. Það sá varla í
mig fyrir blóði. Það stóðu glerbrot
út úr mér hér og þar um líkamann.
Það var skrítið að ég skyldi ekki
finna neitt fyrir þessu.
Nei, heyrðu mig nú! Viltu láta það
vera að draga þessa hvítu dulu yfir
hausinn á mér. Ég get ekki verið
dauður. Ég er aðeins 17 ára. Ég á
stefnumót við stúlku í kvöld. Ég
sem er talinn svo efnilegur. Ég hef
ekki lifað ennþá. Ég get ekki verið
dauður.
Seinna var ég settur í kassa.
Foreldrar mínir urðu að koma til að
bera kennsl á mig. Af hverju þurftu
þau endilega að sjá mig svona?
Hvers vegna þurfti ég endilega að
horfa beint í augun á henni mömmu
þegar hún varð fyrir mesta áfalli
ævi sinnar? Pabbi virtist allt i einu
orðinn svo gamall. Hann sagði við
manninn þarna á staðnum: „Já,
þetta er sonur okkar.“
Kistulagningin var einkennileg
reynsla. Eg sá alla ættingja mína og
vini ganga að kistunni. Þeir gengu
framhjá kistunni, einn í einu, og
horfðu á mig með svo sorgbitnum
augum að ég hef aldrei séð annað
eins. Nokkrir félaga minna voru
grátandi. Nokkrar af stúlkunum
snertu við hendinni á mér og snöktu
um leið og þær gengu burt.
Vill ekki einhver vekja mig? Vill
ekki einhver bjarga mér héðan? Ég
þoli ekki að sjá pabba og mömmu
svona niðurbrotin. Afi og amma eru
svo lömuð af sorg að þau geta varla
gengið. Bróðir minn og systur
mínar eru eins og í leiðslu. Þau
hreyfa sig eins og þau séu stjörf.
Það trúir þessu enginn — og ég ekki
heldur.
Gerið það, ekki grafa mig! Ég er
ekki dáinn! Ég á eftir að lifa svo
margt. Mig langar til að hlaupa og
hlæja aftur. Ekki setja mig niður í
jörðina. Ég heiti því Guð, ef þú
gefur mér aðeins eitt tækifæri til þá
skal ég verða gætnasti bílstjórinn í
öllum heiminum. Ég bið bara um
eitt tækifæri enn. Gerðu það, Guð.
Ég er aðeins 17 ára.
(Frá Umferðarráði)
Föstuvaka í Hafnarfjarð-
Mótmæla breytingum á
rekstri Hvitabandsins
ÍMM) 83 r.Tn^r.^.r
arkirkju annað kvöld
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatiikynning til
birtingar:
Fundur haldinn í deild geðhjúkr-
unarfræðinga innan Hjúkrunarfé-
lags íslands mánudaginn 23. marz
sl. mótmælir þeirri ákvörðun borg-
aryfirvalda að taka Hvitabandið
undir fyrir hjúkrunardeild aldraða
án þess að framtíð dag- og göngu-
deildarstarfsemi Geðdeildar Borg-
arspítalans, sem nú fer þar fram, sé
tryggð.
Með þessari ákvörðun er verið að
etja saman tveim hópum innan
heilbrigðisþjónustunnar sem hvor-
ugur hefur mátt sín mikils í
kerfinu.
Þessi starfsemi hófst í nóvember
’79. Mikilvægi hennar í geðheil-
brigðisþjónustunni er augljóst
vegna aukinna möguleika á fjöl-
breyttari tilboðum í meðferð fólks
með geðræn vandamál.
Hvítabandið hentar mjög vel til
þessarar starfsemi en miklar og
dýrar breytingar þarf að gera til að
hægt sé að nota það sem hjúkrunar-
deild, t.d. byggja lyftu, stækka dyr
o.fl.
Um leið og við fögnum þeim
áformum stjórnvalda að bæta úr
neyð aldraðra, hörmum við að þær
úrbætur bitni á þjónustu fólks með
geðræn vandamál.
Á MORGUN, sunnudag. verður
haldin föstuvaka í Hafnarfjarð-
arkirkju og hefst hún kl. 20.30.
Aðalrséðumaður verður séra
Heimir Steinsson rektor. Fðstu-
vaka þessi er framlag Hafnar-
fjarðarkirkju til þeirrar menn-
ingarviku, sem nú er að hefjast i
Hafnarfirði.
Kínverski gítarsnillingurinn
Joseph Fung leikur klassisk gítar-
verk. Margrét Pálmadóttir sópr-
ansöngkona syngur eisöng. Þor-
valdur Steingrímsson leikur á
fiðlu og kór kirkjunnar syngur
valin kórverk undir stjórn organ-
ista kirkjunnar Páls Kr. Pálsson-
ar.
„Fastan tjáir í boðskap sínum
þær kenndir mannlegs lífs sem
dýpst standa," segir í fréttatil-
kynningu frá sóknarnefnd og
Fyrsta plata Start
HLJÓMSVEITIN Start sendir nú
frú sér sína fyrstu plötu og er
hún tveggja iaga. Start flytur
lögin „Seinna meir“, iag og texti
eftir Jóhann Helgason, og „Stína
fina“ eftir Jón ólafsson við texta
Eiriks Haukssonar.
Start hefur starfað um eins árs
skeið en hljómsveitina skipa Pétur
Kristjánsson (söngur), Eiríkur
Hauksson (söngur, hljómborð),
Sigurgeir Sigmundsson (gítar),
Jón Ólafsson (bassi), Nikulás Ró-
bertsson (hljómborð) og Davíð
Karlsson (trommur).
Hljómsveitin Start mun á næst-
unni verða önnum kafin við
hljómleika- og dansleikjahald um
allt land, þó aðallega á suðvestur-
horni landsins. Ef að líkum lætur
mun Laddi verða gestur þeirra á
nokkrum þessara skemmtana og
kynna nýju plötuna sína.
sóknarpresti. „Voniná um ljós í
myrkri, styrk í þjáningu og sigur
fórnar og kærleika í hverri bar-
áttu. Sönn menningarviðleitni og
göfug list sækir í þá von og trú
fyrirmynd og leiðsögn."
Hlaðborð
Fákskvenna
FÁKSKONUR efna til kaffihlað-
borðs laugardaginn 4. apríl nk. i
félagsheimili Fáks við Bústaða-
veg.
Að venju verður mikið um
kræsingar. Allir eru velkomnir,
jafnt hestamenn sem aðrir sam-
borgarar. Veitingarnar hefjast kl.
15.
Tilgangur kvennadeildar Fáks
með kaffihlaðborðinu auk þess að
gleðja samborgarana, er að safna
til verðugs verkefnis.
BMWgœöamerkiö
r'
Af sérstökum ástæðum getum við boðið þennan BMW er óskabíll allra sem vilja eignast bfl með góda
gæðabíl BMW 518 á mjög hagstæðu verði. aksturseiginleika, vandadan frágang, velhönnuð sæti,
þægilega fjöðrun og góða hljóðeinangrun.
KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
:YRARUMBOÐ: BÍLAVERKSTÆÐI BJARNHÉÐINS GÍSLASONAR SÍMI96-22499