Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 félk í fréttum Preben Kaas fannst látinn + Danski gamanleikarinn og revíuhöfundurinn Preben Kaas, sem nokkuð almennt er talinn hafa verið allt að því jafningi hins kunna landa síns Dirch Passer sem lést á síð- asta ári, er nú einnig látinn. Bar lát hans að með snöggum hætti. Lík hans fannst á floti í höfninni í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum dögum. Hann var fimmtugur. Nafn hans sem leikara og leikhússtjóra tengist ABC Teatret, Cirkus- revyen og danska sjónvarpinu. Þar var hann einmitt nú að jefa gamanleik. Hann hefur ekki gengið heill til skógar um alllangt skeið. Að sögn nán- ustu vina og samstarfsmanna hafði hann verið í rosa stuði og virtist hafa tekið gleði sína á ný, eftir erfiðleikatímabil í lífi sínu. Kona hans er leik- konan Lísbet Dahl, en hún var á leikför er dauða Kaas bar að höndum. Vill kvænast fyrstu eiginkonu sinni aftur + Þessi mynd er tekin utan við dómshúsið á Barbados. Á mynd- inni má sjá Ronald Biggs, lestar- ræningjan breska, sem rænt var í Brasilíu á dögunum og fluttur til Barbados. Þar komst löggan í málið. Nú er það spurningin hvort hann verði sendur heim til Bretlands, til að taka þar út refsingu sína. Bresk iögreglu- yfirvöld vilja fá hann framseld- an. Honum tókst að flýja úr fangelsi þar árið 1965 á hinn ævintýralegasta hátt. í samtali við blað á Barbadoseyju segist Biggs vilja fara aftur heim til Bretlands. „Ég vil taka saman aftur við fyrstu eiginkonu mína; giftast henni á ný,“ segir Biggs. I Brazilíu öðlaðist hann ríkisfang, er sambýliskona hans þar fæddi þeim son fyrir um 10 árum. Hann segir í þessu samtali að það hryggi sig að verða að yfirgefa hina brazilísku konu og son. Hann kveðst vonast til þess að hann þurfi ekki að sitja lengur inni í Bretlandi en svo sem fimm ár. Hann var á sínum tíma dæmdur í 30 ára fangelsi er hann tók þátt í lestarráninu mikla árið 1963. Verður hún borgarstjóraefni? + Þegar þetta er skrifað hefur fyrrum leikkona og forsætisráð- herrafrú Dana, Helle Virkner (Kragh) ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort hún gefi kost á sér sem borgarstjóri á Frede- riksberg í Kaupmannahöfn fyrir sosíaldemokrata (flokk forsætis- ráðherrans). Hún hefur verið hvött til þess þar eð hún er talin mjög sigurstrangleg, en borgar- stjórinn á Frederiksbergi er hægri maður. Flytur í óaldarhverfi + Það er kmia borgarstjóri stórborgarinnar Chicago, Jane Byrne, að nafni. — í einu hverfi borgarinnar, sem er álíka fjölmennt og Breiðholtshverfið hér í Reykjavík, Cabrini Green heitir það, hefur ríkt skuggaleg óöld í allmargar vikur. Byrne borgarstjóri hefur nú tilkynnt borgarbúum að hún ætli sjálf að kanna þetta mál. Muni hún flytja í þetta hverfi ásamt fjölskyldu sinni. í hverfinu hafa verið framin 10 morð undanfarnar 9 vikur og 35 meiriháttar líkamsárásir. Er nú svo komið t.d. að leigubílstjórar neita að vera á ferðinni í þessu hverfi borgarinnar. — Þar sem Byrne borgarstjóri býr nú er hún í um það bil hálfs annars kílómetra fjarlægð frá þessum skuggalega borgarhluta. 39 SPANN SPANN INNFLYTJENDUR M/S Suöurland léstar í Bilbaó 14. apríl til íslands. Umboösmenn: Emasa Servicios, S.a. San Vicente s/u, Planta 9A, Bilbaó. Sími 4235146/4237025. Telex: 32458. Nesskip hf. Öldugötu 15, sími 25055. Hestar til sölu Hjá okkur er ávallt úrval reiöhesta til sölu. Kaupum efnilega fola. HESTAMIDSTÖD Hafravatnsleið, (ekið frá Geithálsi, sími 66885.) Námskeið um byggingareglugerðina Tæknifræöingafélag íslands gengst fyrir námskeiöi þar sem tekin veröur fyrir kynning á gildandi byggingareglugerö. Námskeiöiö fer fram í Tækniskóla íslands laugardag- inn 11. apríl n.k. kl. 9.00 til 17.00. Aðal fyrirlesari veröur Gunnar Sigurösson bygginga- fulltrúi í Reykjavík. Áhersla veröur lögö á túlkun byggingayfirvalda á ýmsum þáttum reglugeröarinnar. Námskeiösgjald er kr. 250.- Þátttaka er öllum heimil og tilkynnist skrifstofu Tæknifræöingafélagsins ekki síöar en mánudaginn 6. apríl í síma 21730. Fjöldi þátttakenda takmarkast viö 30 manns. Tæknifræöingafélag íslands. 1 Kökur yðar og brauð verða bragðbetri og íallegri ef bezta tegund af lyftidufti er notuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.