Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 46

Morgunblaðið - 04.04.1981, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 r Konurnar til Belgíu? HSÍ hefur fengið boð frá Handknattleiks8ambandi Hollands þess eðlis, að senda kvennalandslið til Hollands í október á þessu ári með það fyrir augum að leika einn eða fleiri landsieiki. Reikna má með, að stúlkurn- ar i íslenska liðinu hafi mikinn áhuga á þessu ef fjármagn fæst. Þá hafa farið fram viðræður við Norð- menn um samskipti og ár- lega kvennalandsleiki. Hafa þær umræður gefið góðar vonir um samstarf. Ótrúlegir yfirburðir FH FELULEIKUR einn fór fram i 1. deild kvenna i handknattieik i vikunni. Var það viðureign Hafnar- fjarðarliðanna FH og Hauka. Úrsiit leiksins skiptu engu máli í sjálfu sér, FH haíði þegar tryggt sér íslandsmeistaratitiiinn. en Haukarnir voru failnir i 2. deild. Sá getumunur kom einnig i ijós, FH vann með ótrúlegum yfirburðum, 25-5. Fimleikasýning í Hafnarfirði Á SUNNUDAG fer fram fimleikasýning i iþróttahús- inu i Hafnarfirði. I>að er Fimieikafélagið Björk sem stendur fyrir sýningunni sem hefst kl. 17.00. Sýnd verða hópatriði og einstakl- ingsatriði. Vorleikur kylfinga Á MORGUN sunnudag verða kylfingar hjá GR með vorleik á túni Korpúlfs- staða. Leiknar verða 9 hoi- ur. Allir eru velkomnir. Þá verður kvikmyndasýning i golfskálanum i Grafarholti i kvöld kl. 20.00. Sýndar verða golfmyndir. Á eftir verður svo diskótek. Hart verður barist á Skaganum um helgina ÍSLANDSMEISTARAMÓT í bad minton fer fram um helgina á Akranesi. Mótið hefst með setn- ingu formanns BSÍ, Rafns Vigg- óssonar, kl. 12 i dag. Verður leikið fram f undanúrslit á laug- ardag. Sunnudag kl. 10 f.h. fara fram undanúrslit og siðan leikið til úrslita kl. 2 e.h. Keppt verður f öllum flokkum; meistaraflokki, A-flokki, öðlinga- flokki og æðsta flokki. Þátttak- endur verða um 80 frá eftirtöld- um félögum: TBR, KR, Val, Gróttu, BII, ÍA, USHÖ og TBA. Allir bestu badmintonleikarar landsins eru meðal þátttakenda. Má búast við hörkuspennandi leikjum í einliðaleik karla, milli núverandi íslandsmeistara, Brodda Kristjánssonar, Jóhanns Kjartanssonar, Guðmundar Adolfssonar og fleiri, einnig í tvíliðaleik karla. í einliðaleik kvenna er Kristín Magnúsdóttir, núverandi ís- landsmeistari, áberandi sterkust í kvennaflokki, og í tvíliðaleik hafa Kristín Magnúsdóttir og Kristín Berglind unnið öll undanfarin mót. I tvenndarleik verður hart bar- ist; núverandi íslandsmeistarar, Lovísa Sigurðardóttir og Haraldur Kornelíusson, þurfa að taka á öllu sinu til að halda íslandsmeistara- titlinum. í A-flokki er fjöldi þátttakenda eins og venjulega, þar eru margir ungir og efnilegir badmintonleik- arar ásamt eldri og reyndari keppendum. I öðlingaflokki (40—49 ára) og æðsta flokki (50 ára og eldri) verður einnig mjög spennandi keppni, enda hörkureyndir keppn- ismenn þar. Stjarnan endur- réð Gunnar E. Handknattleiksdeild Stjörn- unnar i Garðabæ hefur endurráð- ið FH-inginn Gunnar Einarsson sem þjálfara fyrir meistara- flokkslið félagsins. Gunnar þjálf- aði Stjörnuna á nýloknu keppnistfmabili og náði frábær- um árangri með liðið. Sigraði Stjarnan með miklum yfirburð- um i 3. deildarkeppninni, tapaði aðeins einu stigi á mótinu. Var það i útileiknum gegn Þór frá Vestmannaeyjum, liðinu sem fór upp i 2. deild ásamt Stjörnunni. Og Þórsarar skoruðu jöfnunar- markið á siðustu sekúndu leiks- ins. — gg- Páll undir hnífinn á ný - Óskar Valtýsson hættir PÁLL Pálmason, hinn siungi markvörður knattspyrnuliðs ÍBV hefur lagst undir hnifinn á nýjan leik, en hann var skorinn upp i hné fyrr i vikunni. Er verið að hlúa að sömu meiðslum og Páll átti við að stríða á síðasta keppnistímabili. Hann var skorinn síðasta sumar, en það er mál manna að hann hafi byrjað að æfa og keppa of snemma og því hafi meiðslin rifið sig upp. Páll ætlar sér að vera með í slagnum í sumar og ætti hann að vera orðinn góður áður en Islandsmótið hefst. ÍBV hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku rétt einu sinni, en óskar Valtýsson, miðvallarleikmaðurinn duglegi, hefur nú lagt skóna á hilluna, en fáir knattspyrnumenn á íslandi í dag hafa verið jafn lengi í keppni. Ferill Óskars með meistaraflokknum spannar aftur til fyrri hluta sjöunda áratugsins. Þess má að lokum geta, að ÍBV hefur fengið liðsauka frá Vopna- firði, en nýlega gekk Ingólfur Sveinsson úr Einherja til liðs við ÍBV. - gg. Lækningamáttur slag- arans með ólíkindum LÆKNINGAMÁTTUR West Ham-slagarans „líubbles" virðist með ólikindum. Hinn 14 ára gamli WH-aðdáandi, Martin Rob- inson, varð fyrir vörubifreið á leið sinni i skólann i Portadown á írlandi fyrir nokkru. IHaut strákurinn slæmt höfuðhögg og hafði legið i dái i mánuð, er fregnin spurðist til Upton Park í Lundúnum, heimaslóðar West Ham. John Lyall, framkvæmda- stjóri West Ham, gekk í að senda spólu með slagaranum til Porta- down og er lagið var leikið á sjúkrastofu hins unga West Ham-aðdáanda gerðist undrið. Hann vaknaði og náði sér innan tiðar að fullu af meiðslum sinum. Það kann að þykja undarlegt, að Lyall skyldi detta i hug að senda spóluna til trlands. Það er þó i raun ekki svo undarlegt, því fyrr i vetur vakti feikilega at- hygli i Englandi, er sami slagar- inn vakti annan ungan West Ham-aðdáanda úr dái... IS klekkti á Víkingi ÍS HREPPTI Ljómabikarinn í kvennaflokkinum i blaki i fyrr- akvöld, er liðið sigraði íslands- meistara Vikings 3—2 i æsi- spennandi viðureign. Gangur leiksins var sem hér segir og eru ÍS-tölurnar hafðar á undan: 16— 14, 12-15, 15-7, 8-15 og 15- 8. Kvennalandsleikir EINS OG frá var greint í Morg- unblaðinu i gær, fara fram tveir landsleikir i handknattleik kvenna i LaugardaishöIIinni um þessa helgi. Eru Norðmenn mót- herjarnir i bæði skiptin og er fyrri leikurinn i dag klukkan 17.00, en sá síðari á morgun klukkan 20.00. Leikurinn f dag er siðari leikur þjóðanna i undan- keppni fyrir B-heimsmeistara- keppni sem fram fer innan tiðar. • Martfir hafa það að takmarki að taka þátt í einni eða fleiri kappRönRum. Fyrir ferðaKönRumenn er það mjög spennandi. • Áður en þú tekur þátt í göngu, verður þú að fara til læknis. I>að er mikið öryggi í því. ’i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.