Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981
Rætt vid Jósef Borgarson verkstjóra í
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
„Ríkisumsvifin undirrót
þess ófremdarástands er ríkir
í f jármálum þjóðarinnar“
— Sannleikurinn er nú þvi
miður sá að miðað við þann
boðskap er forsætisráðherra lét
frá sér fara um síðustu áramót
hefur alls ekki verið haldið
nÓKU fast á málum. I>ví miður
virðist fátt benda til að stjórn-
völd muni taka málin fastari
tökum í náinni framtið — þvert
á móti er það einmitt rikis-
stjórnin sem beinlinis stuðlar
að aukinni verðbólxu með si-
feldum hækkunum hjá ríkinu.
Það er þessi geysilega fjár-
þörf rikisins sem er aðal verð-
bólKuhvatinn — rikisfyrirtæk-
in eru alltaf þau fyrirtæki sem
Kanjja á undan með hækkanir
vegna þess að þau eru verst
rekin. Rikisumsvif eru orðin
allt of mikil i þessu þjóðfélaKÍ
ok það er undirrót þess ófremd-
arástands er rikir i fjármálum
þj(>ðarinnar.
Það er Jósef Borgarsson verk-
stjóri í Sorpeyðingarstöð Suður-
nesja sem hefur orðið og svarar
þeirri spurningu hvernig honum
lítist á ástandið eins og það er í
dag. Jósef hefur verið verkstjóri
hjá Sorpeyðingarstöðinni síðan
hún tók til starfa fyrir rúmlega
ári síðan og býr í Njarðvík. Hjá
Sorpeyðingarstöðinni vinna alls
níu manns en þar er eytt sorpi
frá sveitarfélögunum sjö á Suð-
urnesjum og einnig frá varnar-
liðinu. Stöðin er rekin af sveit-
arfélögunum og er í þeirra eigu.
Jósef er nýfluttur til Njarðvík-
ur. Hann er fæddur á Horn-
ströndum en hefur lengst af búið
í Höfnum og verið þar oddviti sl.
14 ár og sveitarstjórnarmaður
u.þ.b. aldarfjórðung. Ég spyr
Jósef hvað hann telji vera helztu
leiðirnar til úrbóta eins og nú
horfir.
— Númer eitt er að draga
markvisst úr umsvifum ríkis-
sjóðs og reisa skorður við frekari
útþenslu ríkisbáknsins. Það er
megin forsenda þess að lífskjör-
in hér í landinu batni. Það er
orðið ansi margtuggið að tala
um aðhald í ríkisrekstri — það
sem gera þarf er að draga
skipulega úr framkvæmdum á
vegum ríkisins og það er vel
framkvæmanlegt án þess að til
atvinnuleysis komi, t.d. með því
að draga árlega úr einum þætti
ríkisframkvæmda. Það fjármagn
sem þannig losnaði mætti svo
nota til að byggja upp arðbæra
atvinnuvegi í formi einkarekstr-
ar og hlutafélaga.
Hvað viltu segja um framtíð-
arhorfurnar hér á Suðurnesjum?
— Ef okkur Suðurnesjamönn-
um tekst að standa saman um
skynsamlega nýtingu jarðvarm-
ans sem er til staðar hér á
Reykjanesinu held ég að hér geti
orðið bylting í atvinnumálum á
næstu árum. Ef þetta á að takast
verður að nást góð samvinna
með þeim sjö byggðarlögum sem
hlut eiga að máli og náist hún tel
ég að framtíðarhorfurnar séu
mjög bjartar.
Atvinnulífið hér á Suðurnesj-
um er alltof einhæft og mikil
nauðsyn á að auka fjölbreytnina.
Hér hefur yfirleitt verið þokka-
legt atvinnuástand — að vísu
var nokkuð atvinnuleysi í byrjun
þessa árs en það varð úr sögunni
fljótlega eftir að vertíðin hófst.
Það verður ekki komist hjá
þessum sveiflum meðan atvinnu-
vegirnir byggjast einvörðungu á
sjávarútvegi.
Þá hlýt ég sem fyrrverandi
sveitarstjórnarmaður að minn-
ast á málefni aldraðra hér á
Suðurnesjum. Þar þurfum við
Suðurnesjamenn að gera mikið
átak því að mikið vantar uppá að
aðstaða aldraðra sé nógu góð og
eins þarf að stórefla þjónustu
við þá.
En hvað með framtíð íslenzku
þjóðarinnar?
— Hver framtíðin verður
ræðst fyrst og fremst af því
hvort forráðamönnum þjóðar-
innar tekst að halda skynsam-
lega á málum, og okkur takist að
hagnýta þá kosti sem landið
hefur til að bera. Það hefur
okkur ekki tekist nærri nógu vel
hingað til. ísland er eitt auðug-
asta land heims frá núttúrunnar
hendi — það er hreint gósenland
— þ.e.a.s. ef við höfum vit og
samstöðu til að hagnýta okkur
þá möguleika sem hér eru fyrir
hendi.
Ur því að þú minnist á pólitík
þá dettur mér í hug að því fer
fjarri að öll pólitík sé okkur jafn
gagnleg og stundum virðist hún
fara út í hreina ónáttúru. Mér
fannst það t.d. meira en lítið
kaldranalegt hér á dögunum,
þegar var verið að safna undir-
skriftum í því skyni að styrkja
stórmeistarann Korchnoi í bar-
áttu hans fyrir að fá fjölskyldu
sína lausa frá Sovétríkjunum —
að þá gat forseti borgarstjórnar
ekki skrifað undir vegna þess að
einhver pólitík þvældist fyrir
honum. Ég leit á þetta sem hvert
annað mannúðarmál og get
ómögulega skilið hvaða pólitík
átti að geta hindrað menn í að
Ijá Korchnoi stuðning sinn í
þessu máli — og ég held að ef
þetta er pólitík þá á hún ekki
eftir að verða okkur að miklu
gagni og miklu betra að vera án
hennar, sagði Jósef að lokum.
— bó.
_____________35_
Ökukennarafélag
íslands:
Notkun
bílbelta
verði
lögleidd
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi frá Ökukennar-
afélagi Islands:
Nýlega var haldinn aðalfúndur
Ökukennarafélags Islands, þar
sem eftirfarandi tillögur voru
samþykktar:
1. Fundurinn samþykkir að mæla
með því við Alþingi að það
samþykki nú á þessu þingi að
lögleiða notkun bílbelta á Is-
landi.
Alþingis að Umferðarráði verði
tafarlaust séð fyrir nægilegu
fjármagni, svo það get gegnt
því hlutverki, sem því var
upphaflega ætlað, sem sé að
vera leiðandi og stefnumark-
andi afl í umferðarmálum.
3. Fundurinn varar stjórnvöld
og löggjafarþing við því að
skertar séu fjárveitingar til
löggæslu og þá alveg sérstak-
lega til löggæslu, sem lítur að
akandi umferð.
4. Fundurinn ítrekar fyrri sam-
þykktir til dómsmálaráðherra
um breytingu á ljósatíma öku-
tækja á þann veg að ekið skuli
með ljósum allan sólarhringinn
frá 15. okt. til 15. mars. Énn-
fremur að endurskoðuð verði
reglugerð um ökukennslu, próf
ökumanna o.fl.
5. Fundurinn beinir þeim tilmæl-
um til gatnamálastjórans í
Reykjavík, svo og til bæjar- og
sveitarfélaga og Vegagerðar
ríkisins, að séð verði til þess að
yfirborðsmerkingum á vegum
sé ávalt haldið svo við, sem
nokkur kostur er á.
G. Fundurinn mótmælir hinum
gífurlegu verðhækkunum á
bensíni, sem orðið hafa að
undanförnu og skorar á stjórn-
völd að endurskoða nú þegar
reglur um skattlagningu á
bensíni.
í stjórn var kosinn formaður
Birkir Skarphéðinsson. Aðrir í
stjórn eru Guðbrandur Bogason,
Guðmundur G. Pétursson, Olafur
Einarsson, Hallfríður Stefáns-
dóttir, Eiður Eiðsson, Sigurður
Gíslason. í varastjórn voru kosnir
Stefán A. Magnússon, Selfossi,
Jón Sævaldsson, Reykjavík og
Finnbogi Sigurðsson, Hafnarfirði.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGCRÐ
AÐALSTRAETI • SlMAR; 17152-17355
Vörusýningar œ ^
HIARNI II IHNI ST
DUuekJorfer Mesten
Húsgagnasýningin i Kaupmannahöfn 5-11 mai
Verð með gistingu og morgunverði fra35l2kr_
INTERHOSPITAL 19-22 mai Múnchen
Lækningatæki og sjukravörur______________
IFAT Múnchen 23-27 júni
Hreinsitæki, eyðing úrgangsefna, hreinsun gatna
INTERPACK Dússeldorf 14-20 mai
Pökkunarvélar og efni
Vélar fyrir sælgætisiðnað
INTERZUM Köln 22-26 mai
Vélar og tæki fyrir húsgagnaiðnað. t d til bólstrunar
Innréttingaefni fyrir heimili og verslanir
COSMETICS Múnchen 8-10 maí
Heilsu-. snyrti- og fegrunarvórur
BÓKASÝNING Varsjá 20-25 mai
Alþjóðleg bókasýning__________
INTERSTOFF Frankfurt 5-8 mai
Fataefni, áklæði, vélar til fataiðnaðar
IfjjiFERÐA
« MIDSTOÐIIM
ADALSTRÆTI9 S.11255-12940