Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 Á Eyriimi „Verður ekki allt mor andi í rauðum fánum með hamri og sigð?“ „IIvaA viljið þið á MoKKanum vera að Kcra tilstand útaf 1. maí. Vrrður ekki allt morandi i rauð- um (ánum með hamri ok sÍKð? I»ar fyrir utan er én einhleypur. I>ú ættir frekar að tala við fjolskyldumennina hér. Astandið hjá þeim er sjálfsaKt verra en hjá mér. Við erum hér með eitthvað um 1100 krónur á viku fyrir átta stunda vinnudaK. En hér erum við flest kvold til 10 ok iðuleKa á lauKardoKum. Allir vinna fram- eftir; hver þarfnast ekki pen- inKanna.** sa^ði IlallKeir SÍKurðs- son þeKar hlaðamaður hitti hann á Eyrinni en hann vann við að Rætt við Hallgeir Sigurðsson lesta Coaster Emmy. leÍKUskip Ríkisskips. „Ek hef verið hér á Eyrinni í 25 til 30 ár,“ — og lætur engan bilbug á þér finna skaut blaðamaður inní. „Eg veit það ekki. Maður er nú orðinn lúinn. Þetta er hundavinna. Það getur orðið næðingssamt að standa hér frá klukkan 8 á morgn- ana til 10 á kvöldin í nístings- kulda. Það er svosem ekkert sér- lega eftirsóknarvert . En meðan maður finnur ekkert annað, verð- ur maður að láta sig hafa það. Ég væri farinn ef ég gæti — heilsan maður, heilsan. Það er varla að maður geti sveiflað höndum leng- ur,“ — og sveiflaði þeim eins og unglingur — kjarnakarlar á Eyr- inni. Finnst þér verða meira úr laun- um nú en áður? „Ég veit það ekki. Við vinnum svo mikla næturvinnu þannig að erfitt er um samanburð. Þó er ég ekki frá því, að það sé tiltölulega verra nú og þá vegna þess að kröfurnar eru allt aðrar og meiri. Hér á árum áður áttu fáir bíla og það þótti ekkert tiltöku- mál; nú verða allir að eiga bíl og taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu á fullu. Fólk á meira nú, en er það ánægðara? Nú er Dagsbrún bara svipur hjá sjón. Gvendur jaki er aldrei við. Hann er alltaf niðri í þingi og aldrei hægt að hitta á hann. Það var þó hægt hér áður fyrr. Eðvarð Sigurðsson er orðinn gamall; þeir sem stjórna mega ekkert vera að þessu lengur og allir eru að ganga í Verslunarmannafélagið. Þar ku taxtarnir vera hærri. Annars er enginn munur á kommum og íhaldi. Það er nú Chicago-svipur á þessum Svavari Gestssyni og engu máli skiptir hverjir eru í stjórn." Hvað um vinnuna, hefur hún mikið breyst hér frá því þú byrjaðir? „Já, hún hefur mikið breyst, sérstaklega síðustu árin. Vinnan hefur meira færst inní skálana. Það er vegna geymanna. Þar vinna menn við að fylla þá og vinnan hefur því mikið til horfið úr skipunum. Nú eru 10 tonn hífð í hífi en áður tók það kannski 20 híf. Það tekur enga stund að lesta skipin og losa. Þetta er auðvitað hagræðing fyrir skipafélagið og gott því skipin staldra svo stutt við í höfn, en það er skítavinna að fylla þessa gáma,“ sagði Hallgeir Sigurðsson. Hallgeir Sigurðsson ... Allir vinna frameftir; hver þarfnast ekki peninganna. Kristinn Pálsson hóf störf við Reykjavikurhöfn 1929. „Krónurnar fleiri en hvað hefst með því?46 — Rætt við Kristinn Pálsson „Það er ekki um annað að ræða fyrir okkur íslendinga en að herða sultarólina. Fólk er orðið svo góðu vant, — það hefur komist upp á þægilegheitin og það er meira að segja það að taka þægilegheitin frá fólkinu. Ilvað mig snertir? Ék hef það gott enda komin á eftirlaun hjá Reykjavikurhöfn en sem betur fer hannar enginn mér að vinna hér hjá Rikisskip. — það væri líka annað hvort,“ sagði Krist- inn Pálsson þegar blaðamaður hitti hann á röltinu niður við höfn. „Á næsta ári verð ég löggilt gamalmenni," sagði Kristinn og hló. „Ég verð 67 ára þá og fer á eftiríaun hjá ríkinu. Ætli ég verði þá ekki bara heimavinn- andi húsmóðir og sendi konuna út á vinnumarkaðinn. Hvernig líst þér á það. Þú skrifar með vinstri sé ég er. Þegar ég var ungur, voru krakkar barðir í lúkurnar ef þeir skrifuðu með vinstri hendinni. Nú eru svo margir örvhentir. Árið 1929 byrjaði ég að vinna hjá Reykjavíkurhöfn, skal ég þér segja og þá fékk á 80 aura á tímann; var þá í Hafnarsmiðj- unni. Nú eru krónurnar orðnar nokkuð fleiri í launaumslaginu en hvað hefst upp úr því? I nokkur ár hafði fólk það ágætt en svo kom verðbólgan og hruna- dansinn hófst. Krónunum fjölg- ar stöðugt í launaumslaginu, en hvað stoðar það? Þrátt fyrir allar krónurnar hefði maður varla í sig og á með dagvinnunni einni saman. Því verður maður að taka þátt í þessari gegndar- iausu yfirvinnu, vinna til 10 á kvöldin og um helgar. Ég segi ekki að ég þurfi þess. Ég hef eftirvinnulaunin hjá Reykjavík- urhöfn. En ég hef tekið eftir- vinnunni. 1. maí skal ég þér segja er nú bara svipur hjá sjón, miðað við í gamla daga. Það var líf í tuskun- um 1. maí þegar ég var strákl- ingur. Vestur í Verkamannabú- stöðum voru haldnar stórhátíðir. Stórkarlar eins og Héðinn Valdi- marsson, Ólafur Friðriksson og Jón Baldvinsson héldu ræður og menn rifust hressilega til að lífga upp á daginn; 1. maí er svipur hjá sjón.“ sagði Kristinn Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.