Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981
37
) á útgerðinni
Eins og málin standa
er ekki hægt að reka.
fyrirtækið með hagnaði
Rætt við Ivar Magnússon
— Það hefur verið nægilegt
hráefni hér í allan vetur —
Hraðfrystihúsið gerir út tvo tog-
ara, en við höfum ekki keypt neitt
af bátum í vetur. Ég get því miður
ekki sagt, að ég líti alltof björtum
augum á framtíðina hjá fyrirtæk-
inu — maður á auðvitað ekki að
vera með svartsýni, en staðan er
ansi erfið, sagði ívar Magnússon,
yfirverkstjóri hjá Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hf.
— Ég hefði viljað endurnýja og
bæta við vélum hér og einnig
þyrfti að bæta aðstöðu starfs-
fólksins — hér gæti allt gengið
miklu betur með aukinni hagræð-
ingu og vélvæðingu. Það vantar
bara peningana til að framkvæma
þessa hluti.
— Já, það er svolítið skrítið, að
það sé nógur fiskur en samt geti
fyrirtækið ekki byggt sig upp.
Staðreyndin er sú, að peningarnir
skila sér ekki til fyrirtækisins —
þeir fara allir í útgerðina. Ég
hugsa, að það væri vel hægt að
reka svona frystihús með hagnaði,
ef við keyptum aflann af öðrum en
værum ekki að gera út sjálfir.
Olíukostnaðurinn við útgerð
togaranna er alveg geysilegur —
ég held, að hann éti upp um það bil
helminginn af aflaverðmætinu í
meðal veiðitúr. Ef ríkið gæfi eftir
nokkuð af þeim sköttum sem það
hefur á olíunni, yrði mun auðveld-
ara að eiga við þetta — eins og
málin standa, held ég, að ekki sé
hægt að reka þetta með hagnaði.
Svona fyrirtæki þurfa hins vegar
nauðsynlega að geta skilað arði,
svo þau geti byggt sig upp og búið
í haginn fyrir fólkið sem hjá þeim
vinnur.
Það þyrfti líka að vera meiri
stöðugleiki í fjármálunum, þannig
að menn hefðu möguleika á að
gera áætlanir sem hefðu mögu-
leika á því að standast. Verðbólg-
an og öll vitleysan í sambandi við
hana hefur aukið vaxtabyrðina á
fyrirtækjunum og valdið okkur
niargvíslegum skaða.
En hvernig líst þér á framtíð
byggðarinnar hér á Suðurnesjum?
— Mér líst vel á hana fyrir
hönd Keflavíkur, ef okkur tekst að
halda atvinnufyrirtækjunum
ívar Magnússon
gangandi. Keflavík er bær á upp-
leið og það er mikið byggt hérna.
Fólkið hérna er mjög duglegt og
vinnur yfirleitt mikið. Ég vona
bara, að fjármálin fari að færast í
betra horf og við getum farið að
skila meiri árangri í rekstri fyrir-
tækjanna — á því hvílir náttúr-
lega velferð fólksins sem býr
hérna.
Dagvinnan ekki ann-
að en skítur á priki
Rætt við Ómar Baldvinsson
Ég starfa hér í móttökunni —
við tökum á móti fiskinum, gerum
að honum, flokkum hann og kom-
um honum í kæliklefa en þaðan
fer hann svo í frekari vinnslu. Það
hefur verið nokkuð mikil vinna,
sérstaklega síðasta mánuðinn, það
hefur verið unnið frameftir á
kvöldin og eins um helgar. Eins
var unnið um páskana nema á
föstudaginn langa og páskadag,
sagði Omar Baldvinsson starfs-
maður Hraðfrystihúss Keflavíkur
hf., í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins.
— Kaupið er ágætt þegar vinn-
an er svona mikil þótt grunnkaup-
ið sé náttúrulega allt of lágt —
það er ágætt að fá svona skorpur í
þetta og hafa það svo rólegra á
milli.
— Nei, af átta tíma vinnu
myndi maður aldrei lifa — það er
ekkert nema skítur á priki. Fólk
kemur til að vinna hér í saltfiskn-
um og skreiðinni vegna yfirvinn-
unnar fyrst og fremst. Þetta er
ekki skemmtileg vinna — alltaf
sama rútínan og engin tilbreyting.
Finnst þér að verkalýðsfélögin
séu nógu virk í því að berjast fyrir
bættum kjörum fyrir verkafólk?
— Það hefur alltaf verið mikið
baráttumál verkalýðsfélaganna að
fá betri kjör en hitinn í því er ekki
eins mikill og áður. Mér finnst
verkalýðsfélögin ekki standa sig
alveg nógu vel — en baráttan
virðist líka heldur vonlaus, því ef
kaupið hækkar þá sér verðbólgan
til þess að allt annað hækki í
samræmi við það. — Þá finnst
mér að verkalýðsfélögin hér hafi
ekki staðið vel í stykkinu gagnvart
okkur hérna því afgreiðsla á
kvörtunum sem héðan hafa borist
hafa iðulega verið dregnar á
langinn eða þeim jafnvel ekki
verið sinnt. Þessar kvartanir hafa
að vísu fæstar verið alvarlegs eðlis
en mér finnst ekki hægt að ganga
svona framhjá þeim.
Hvernig er vinnu aðstaðan
hérna?
— Hún var mjög slæm hér
áður, en það hefur mikið verið
gert til að bæta hana og í þeirri
deild sem ég vinn í er hún að ýmsu
leyti til sóma. Það mætti þó
auðvitað gera betur og ég held að
það sé fullur vilji fyrir því hjá
fyrirtækinu að koma til móts við
kröfur okkar að þessu leyti. Ég
held að allir í minni deild séu
þakklátir fyrir það sem þegar
hefur verið gert og það er mikill
munur að vinna hérna fyrir bragð-
ið.
STRAX í FYRSTA FLOKKI
BASSS
Vinningar strax í 1. flokki eru:
íbúðavinningur á 250.000
Peugeot 505 á 137.000.-.
8 bílavinningar á 30.000.-.
25 utanferðir á 10.000.-.
565 húsbúnaðarvinningar á
700 og 2.000.- krónur hver.
Sala á lausum miðum og
endurnýjun flokksmiða og
ársmiða stendur yfir.
Miði er möguleiki
iLGUN OG
iRHÆKKUN
VINNINGA
Mánaðarverð miða er kr. 25.-,
ársmiða kr. 300.-.
Dregið verður í 1. flokki
þriðjudaginn 5. maí.