Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 1. MAÍ 1981
41
„Verðbólgan farin
að ráða okkur...
Ómar Ólafsson
„4 daga vinnuvika
til reynslu hér“
Rætt við Ómar Ólafsson, prentara í Kassagerðinni
„DaKVÍnnulaunin duga hvorxi
til að framfleyta f jölskyldunni en
hér i KassaKerðinni er talsverð
eftirvinna hjá okkur prenturum.
Konan vinnur úti ok það i sjálfu
sér veitir ekkert af því en auðvit-
að fer það eftir hvað fólk vill láta
eftir sér. Ék lifi K<)ðu lífi, en éK
verð líka að hafa fyrir þvi,“ saKði
Ómar ólafsson, prentari í Kassa-
Kerð Rcykjavikur í samtali við
Mbl. i vikunni.
„Fólk verður auðvitað að haga
seglum eftir vindi; of margir
flaska á því að leggja of mikið
undir. Ég kann vel við starf mitt
hér í Kassagerðinni. Vinnuaðstaða
hér er með ágætum og nýlega
tókum við upp breytt vinnufyrir-
komulag.
Skömmu fyrir páska tókum við
prentararnir upp fjögurra daga 40
stunda vinnuviku. Við vinnum frá
mánudegi til fimmtudags, byrjum
kl. 7.30 og hættum kl. 17.15. Þetta
nýja fyrirkomulag er til reynslu í
sumar hér í fyrirtækinu. Mér
finnst það koma vel út og vona að
þetta gangi. Ég held að þetta sé
framtíðin. Svo gæti jafnvel farið,
að fjögurra daga vinnuvika verði
tekin upp í allri verksmiðjunni,"
sagði Ómar Ólafsson.
„Ástandið óbærilegt
fyrir þá sem eru að
koma sér upp heimili“
Ásmunda Ólafsdóttir
Rætt við Ásmundu
Ólafsdóttur
„VIÐ erum nú bara tvö hjónin,
dóttir okkar er farin að heiman.
Tekjurnar eru þolanlegar ef mað-
ur er þurftalitill; en ég held að
ástandið sé óbærilegt fyrir þá
sem eru að koma sér upp hcimili
og eru að hyggja. — hreint
óhæriiegt,“ sagði Asmunda ólafs-
dóttir, en hún starfar í öskjudeild
Kassagerðar Reykjavikur.
„Við hér í Kassagerðinni erum
yfirborguð og því er ég með hátt í
fimm þúsund krónur á mánuði.
Hér hef ég starfað í 20 ár.
Aðstaðan hér hefur mikið breyst á
þessum árum og sífellt hafa verið
að koma ný og ný tæki. Mér finnst
aðstaðan til fyrirmyndar um
margt en hávaðinn hefur aukist
með þessum nýju tækjum og
veldur streitu, er ég smeyk um.
Þegar ég hóf störf, var stelpan
okkar um fermingu og í .skóla og
býsna þröngt var hjá okkur. Þá
stóðum við líka í að byggja og öll
okkar laun fóru í það.
Eins og ég segi, þá hefst þetta
með sparnaði. Ég reyni að kaupa
eins hagstætt til heimilisins og
kostur er. Reyni að kaupa í stærri
skömmtum fremur en smot*
hverju sinni því það er hagsta
ara. En dýrtíðin er gífurleg o,
verðlag hækkar stöðugt.
Við þessar aðstæður hefur
launamismunur í þjóðfélagi okkar
stöðugt verið að aukast. Láglauna-
fólkið hefur orðið undir. Þrýsti-
hóparnir innan launþegahreyfing-
arinnar hafa, með því að koma í
kjölfar aðalkjarasamninga, tekist
að fá hærra í sinn hlut. Þá er
ríkisbáknið orðið svo mikið, að það
tekur sífellt meira í sinn hlut; frá
almúganum," sagði Ásmunda Ól-
afsdóttir.
TÓNLISTARSKÓLI
HAFNARFJARÐAR
Tónleikar
Forskólans veröa í Bæjarbíói laugardaginn 2. maí kl.
11. f.h. Vornámskeið Forskóladeildar (meö blokk-
flautur) veröa 11. til 28. maí. Innritun hafin.
Skólastjóri.
Leirlistamaóur
kynntur
Nýr listamaöur kynntur í verzluninni í Hafnarstræti 3S
Borghildur Oskarsdóttir.
Sýningin er opin á venjulegum verzlunartíma.
íslenzkur Heimilisiðnaöur,
Hafnarstræti.
HEFURÞU
Það nýjasta frá Lundi
Handsaumaöar ekta mokkasíur meö léttum ilstuöningi og
tágripi. (í Danmörku ganga þeir undir nafninu „Fodposer“ ísl.
þýðing Fótaskjóöur. Vegna þess hve mjúkir og þægilegir þeir
eru.
Hvítt
Beige
Blátt
Svart
Stæröir
35—39
35—39
35—46
40—46
Verö
299.-
Verndið
ffæturna
Vandið
skóvalið
Póstsendum
samdægurs
Domus
Medica
S. 18519.