Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ1981
„ÞAÐ ER ÁGÆTT Að BÚA HÉR í GARÐINUM"
Fjóla Svavarsdóttlr
„Þegar á allt er litið er
prýðilegt að vinna hér“
Rætt við Fjólu
Svavarsdóttur starfs-
stúlku hjá Fiskverk-
unarstöð Asgeirs hf.
— Ég hef unnið hér síðan i
fyrrasumar og það hefur yfir-
leitt verið töluverð vinna nema
þá helzt um siðustu jól — þá
var lítið að gera á timahili. Mér
likar starfið sæmilega og er að
hugsa um að vera hér áfram i
sumar. Að visu er þetta dálitið
þung vinna og sum af þeim
störfum sem við vinnum dálitið
erfið — en þegar á allt er litið
líkar mér prýðilega að vinna
hér, sagði Fjóla Svavarsdóttir
starfsstúlka i Fiskverkunarstöð
Ásgeirs hf. i Garði á Suðurnesj-
um. Hún vinnur þar i saltfisk-
verkun og það var mikið sem lá
fyrir af óunnum fiski er blaða-
maður Morgunblaðsins ræddi
við starfsfólk fiskverkunar-
stöðvarinnar.
— Það verður unnið til kl. 12 í
kvöid, sagði Fjóla — það hefur
verið ansi mikil vinna hér síð-
asta mánuð, oft unnið til kl. 10 á
kvöldin og líka unnið á laugar-
dögum. Já, maður verður auðvit-
að oft ansi þreyttur þegar svona
mikið er unnið — en fólk sækist
samt eftir næturvinnunni og
mætir betur í hana heldur en
dagvinnuna. Maður verður að
vinna yfirvinnu ef maður á að
hafa einhverjar tekjur að ráði.
Mér finnst kaupið hér ágætt
en það mætti alveg vera hærra
— það er alveg hægt að lifa á
átta tíma vinnu. Það eru margar
konur í Garðinum sem vinna í
fiskvinnslustöðvunum hálfan
daginn og passa svo börnin hve
fyrir aðra þegar þær eiga frí —
og þær eru held ég nokkuð
ánægðar með það kaup sem þær
hafa.
Fjóla á heima í Sandgerði
þannig að hún er aðkomumaður í
Garði. Ég spyr hana hvernig
henni líki að búa þar.
„Það er alls ekki svo lítið um
að vera hér í Garðinum — það
eru böll hér í samkomuhúsinu
um helgar og svo er alltaf hægt
að skreppa í bíó eða á aðrar
skemmtanir inn í Keflavík ef
maður hefur áhuga fyrir því.
Það hefur líka sína kosti að búa
hér — maður eyðir t.d. áreiðan-
lega minni peningum heldur en
ef maður ætti heima í Reykjavík.
Þó það mætti auðvitað vera
meira félagslíf þá líkar mér
ágætlega að búa hérna og gæti
alveg hugsað mér að setjast hér
að.
„Fyrirtækið
gengur vel
og útlitið er
alls ekki
svo slæmt“
Rætt við Ólaf Ágústs-
son, framkvæmda-
stjóra, Fiskverkunar-
stöðvar Ásgeirs hf.
Það eru fjórir bátar sem
leggja upp hjá okkur og við
vinnum aflann i saltfisk og
skreið. Hér vinna nú 25 manns
og það hefur verið töluvert að
gera að undanförnu. Það hefur
verið sæmilegur afli i vetur en
tíðarfarið hefur spillt mikið
fyrir þar til núna fyrir páska.
Ég get ekki annað sagt en
rekstur fyrirtækisins hafi geng-
ið sæmilega, sagði ólafur Ág-
ústsson, framkvæmdastjóri
Fiskverkunarstöðvar Ásgeirs
hf. i Garði.
ólafur hefur verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins allt
frá þvi að það var stofnað árið
1964. óiafur býr á Seltjarnar-
nesi og ekur þaðan i Garðinn og
heim aftur nálega á hverjum
degi — hann segir að það
komist upp i vana og sé alls
Guðjón Arngrimsson
„Miklu betra en að vinna í frystihúsi“
ist að við höfum verið afskiptir á
þessu svæði á undanförnum ár-
um hvað varðar lánafyrirkomu-
lagið. Við erum hér með gamla
báta og smáa — það er orðið
mjög aðkallandi að endurnýja
bátaflotann hér, og þá er ég að
tala um endurnýjun en ekki
stækkun.
Þá hefur verðbólgan verið söm
við sig og það hefur leitt til þess
að við höfum átt í fullu fangi að
greiða af lánum — það væri
mjög til hagsbóta fyrir fyrirtæk-
in ef hægt væri að lækka þessa
vexti. Hér hjá fyrirtækinu hafa
ýmsar framkvæmdir setið á hak-
anum af þessum sökum. Við
þurfum t.d. að stækka húsnæðið
hérna — það er allt of lítið
miðað við þá vinnslu sem hér fer
fram — og það verður líklega
ráðist í það innan skamms. Þá
væri einnig æskilegt að auka og
endurnýja vélakost og einnig að
bæta aðbúnað og vinnuaðstöðu
starfsfólksins, en til þess hafa
ekki verið peningar. Afköstin
eru mjög misjöfn — þessa dag-
ana eru unnin hér frá 20 til 40
tonn af fiski, það fer mest í
saltfisk en það sem telst annars
flokks af aflanum fer í skreið.
Söluhorfur eru mjög góðar í
saltfisknum núna og það er talið
að það séu líka góðar horfur með
sölu á skreið. Það er því eins og
ég sagði engin ástæða til að vera
svartsýnn á framtíðina, sagði
Ólafur að lokum.
„Það er allt í lagi að eiga
frí eitt og eitt kvöld“
— Fólkið hér í Garöinum
vinnur flest i fiski — þeir sem
ekki sækja vinnu inn i Keflavik
eða eitthvað annað, sagði Signý
Hermannsdóttir, sem vinnur i
saltfiskverkun hjá Fiskverkun-
arstöð Ásgeirs hf. Það er ágætt
að búa hér i Garðinum — það er
kannski dálítið dauflegt hérna,
en þó eru oftast böll hér i
samkomuhúsinu um helgar og
svo er stutt að fara inn í
Keflavik á bió og aðrar
skemmtanir.
Nei, ég vildi ekki eiga hér
heima til langframa — það
skeður aldrei neitt hérna — ég
held, að það hljóti að vera
skemmtilegra að eiga heima í
borg eða stærri bæ.
Það er enginn framhaldsskóli
hér og þeir, sem vilja halda
áfram, verða að fara í gagn-
fræðaskólann í Keflavík eða á
heimavistarskóla — flestir fara
á heimavistarskóla og ég held,
að krakkarnir séu ekkert
óánægðir með það. Flestir fara á
Skóga, að Reykjum eða í skólann
á Reykjanesi við Djúp. Það er
auðvitað dýrara en að sækja
skóla að heiman frá sér, en ég
Rætt við Signýju Her-
mannsdóttur, starfs-
stúlku hjá Fiskverk-
unarstöð Ásgeirs hf.
heid, að það hljóti að vera miklu
skemmtilegra að fara á heima-
vistarskóla heldur en að vera í
gagnfræðaskólanum í Keflavík.
Hvernig finnst þér að vinna
hér í Fiskverkunarstöðinni?
— Mér finnst þetta ágæt
vinna, en hún er dálítið erfið,
þegar mikið er að gera og lengi
unnið. Mér finnst þetta miklu
betra en að vinna í frystihúsi og
hef hugsað mér að vinna hérna
eitthvað áfram. Þó gæti ég ekki
hugsað mér að vera í þessu starfi
til frambúðar, en hvað ég tek
fyrir er ég alveg óráðin í ennþá.
Mér finnst, að kaupið, sem við
höfum hérna, sé alveg sæmilegt,
en mætti auðvitað vera hærra.
Vinnuaðstaðan er ekki alveg
nógu góð — en þetta er þó allt í
lagi eins og það er og forráða-
menn fyrirtækisins hafa reynt
að bæta úr því sem kvartað
hefur verið yfir.
En hvað er með þorpið sjálft
— er það að stækka?
— Já, byggðin hér fer heldur
vaxandi. Það hafa verið stofnuð
hér ný fyrirtæki á undanförnum
árum og það er töluvert um, að
ungt fólk setjist hér að. Ég held,
að fólk sé yfirleitt ánægt með að
eiga hér heima.
Ólafur Ágústsson
ekki leiðinlegt, maður geti ver-
ið að velta ýmsu fyrir sér á
leiðinni og þannig fari timinn
alls ekki til spillis.
— Það er ekki gott að spá í
framtíðina og bezt að segja sem
minnst, sagði Ólafur. Annars er
þetta allt í nokkuð föstum skorð-
um hjá okkur og við höfum alltaf
haft nóg hráefni — og sé ekki
neina ástæðu til svartsýni. Þetta
fyrirtæki gengur vel og útlitið er
alls ekki slæmt í dag.
Okkur hefur hins vegar fund-
Maður verður að vísu dálítið
þreyttur á þessari vinnu til
lengdar, en ég set það ekki fyrir
mig. Ég var í saltfisknum í vetur
og fannst það skemmtileg og
fjölbreytt vinna, enda hafði ég
ekki unnið við það áður — þessi
vinna hér í skreiðinni finnst mér
ekki eins skemmtileg.
Hvað kom til að þú komst
hingað suður í vinnu?
— Það var einn vinur minn
sem benti mér á að fara hingað
— hann vann hér í fyrravetur og
hafði vel upp. Mér hefur líka
fallið ágætlega við að vinna hér
— það er til dæmis miklu betra
en að vinna í frystihúsi.
Aðbúnaðurinn hér er ágætur
en þó ekki alveg nógu góður. Það
var til dæmis mjög kalt hér i
vetur. Þeir voru að reyna að
bæta úr því með olíuofnum, en
það dugði bara hvergi nærri til.
Svo er auðvitað fleira, sem
mætti nefna, en það hefur alltaf
verið fullur hugur hjá forráð-
amönnum fyrirtækisins að bæta
úr því sem fundið hefur verið að.
Hvernig kanntu við að búa hér
í þorpinu?
— Mér finnnst ágætt að vera
hér. Það er töluvert félagslíf hér
að vetrinum, en mætti auðvitað
vera meira. Það eru alltaf öðru
hverju dansleikir hér í sam-
komuhúsinu og stutt að fara inn
í Keflavík, ef mann langar til að
lyfta sér upp. Ég gæti alveg
hugsað mér að setjast hér að —
ég myndi að minnsta kosti frek-
ar búa hér en fyrir norðan.
Hefurðu hugsað þér að vinna
áfram hér í Fiskverkunarstöð-
inni?
— Ekki í sumar. Ég hætti
líklega um miðjan maí og fer þá
heim í Bjarnarfjörð — fer þar að
vinna í frystihúsi og eins að
hjálpa til við búskapinn hjá
föður mínum. Ég kem svo vænt-
anlega aftur hingað í haust og
vinn hér næsta vetur.
Rætt við Guðjón Arn-
grímsson starfsmann
hjá Fiskverkunar-
stöð Ásgeirs hf.
— Ég er búinn að vinna hér
siðan i haust og þetta hcfur
verið sæmilegt, sagði Guðjón
Arngrimsson, sem vinnur i
skreiðinni hjá Fiskverkunar-
stöð Ásgeirs hf. Hann á heima á
Odda í Bjarnarfirði, Stranda-
sýsiu, en segir, að fyrir norðan
sé ekki mikið um vel launaða
vinnu yfir veturinn.
— Mér hefur þó ekki fundist
nógu mikil vinna hér, en það
hefur lagast núna síðustu vik-
urnar, — þá hefur yfirleitt verið
unnið fram eftir kvöldi og eins
um helgar.
En er ekki bæði erfitt og
leiðinlegt að vinna svona lengi?
— Nei, ég vil helzt fá að vinna
sem mest. Það er allt í lagi að
eiga frí svona eitt og eitt kvöld,
en mér finnst líka ágætt að
vinna. Maður hefur heldur alls
ekki nógu mikið upp úr því að
vinna 10 tíma.
Signý Hermannsdóttir