Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ1981 64Sífellt dýrara að Iifa46 Erna Magnúsdóttir hefur unnið hjá frystihúsi Útgerðar- félags Akureyringa í 6 til 7 ár og sagðist hún kunna vel við sig þar, enda hefði hún ekki verið þar allan þennan tíma væri svo ekki. Tímakaupið of lágt Hvernig gengur að lifa af laununum? „Það svona rétt gengur, ég er einstæð móðir og vinn því yfirleitt aðeins hálfan daginn, en það dugir ekki og því vinn ég stundum meira. Tímakaupið er of lágt, en bónusinn bjargar miklu, ætli hann hækki ekki kaupið hjá okkur í vélasalnum um 30%. Ég er ekkert sérstaklega skattpínd og með því að vinna annað slagið allan daginn ná endar rétt saman, en það er ekki um neinn afgang að ræða.“ Efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnarinnar einkennilegar Hvað heldur þú að valdi þessu lága kaupi? „Það er ekki gott að segja, ætli það megi ekki kenna verkalýðshreyfingunni, ASI og ríkinu um þetta, það virðist enginn skilja það að þessi atvinnuvegur er undirstaða þjóðarbúsins og afurðir hans aðalútflutningsvara þjóðar- innar, að minnsta kosti er kaupið ekki í samræmi við það. Þá finnast mér kaupkröfur þeirra hæst launuðu vera einkennilegar, en mikið vill vist meira, er það ekki. Það virðist sem þeir sem minnst vinna, hafi mestu tekjurnar og lægstu skattana, hvernig sem á því stendur. Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar skil ég engan veginn, frekar en hún sjálf að öllum likindum, kaupgjalds- vísitalan er skert á nokkurra mánaða fresti og síðan eru hækkanir geymdar þar til vísitalan hefur verið reiknuð út. Annars fylgist ég iítið með pólitíkinni, mér finnst hún leiðinleg, en ég veiti því svo sannarlega athygli að það verður alltaf dýrara og dýrara að lifa, alveg sama hvaða ríkisstjórn er við völd. Vörur og þjónusta hækka mun hraðar en kaupið og þetta hefur sko ekki batnað með myntbreytingunni." - HG 64Atvinnuvanda- mál mætti leysa meö fiskmiðiun44 Gunnar Lorenzson er yfirverkstjóri frystihúss Út- gerðarfélags Akureyringa og hefur unnið þar í 14 ár. Hann sagði að þar hefði verið stöðug vinna í allan vetur og nú væri unnið 10 tíma á dag. Frystihúsið tæki á móti 400 til 500 tonnum af fiski vikulega og væri hann unninn i frystingu, skreið og salt. Hann sagði ennfremur að miklar endurbætur hefðu verið gerðar á húsinu undanfarin 4 ár og hefði það aukið afköstin italsvert og bætt vinnuaðstöðu starfsfólksins verulega, en í frystihúsinu vinna nú 260 til 270 manns og daglega er hringt þangað og beðið um vinnu. Skreidarmarkaðurinn fallvaltur Hvernig lýst þér á þróun mála í fiskveiðum og á fiskmörkuðum? „Mér lýst illa á þessa þróun, bæði það hve mikið er unnið í skreið og hvernig fiskurinn er nú verðlagður. Ég tel það spor aftur á bak að hækka verð á 2. og 3. flokks fiski, en ekki á 1. flokknum, það ætti að vera meiri verðmunur á 1. flokki annars vegar og lægri flokkunum hins vegar, þá myndu sjómenn vanda betur meðferð fiskjarins og við fá betra hráefni til vinnslunnar. Þá tel ég að nú sé of mikil áherzla lögð á skreiðarverkunina, ég held að markaðurinn fyrir hana sé mjög fallvaltur þar sem tíð stjórnarskipti eru í þeim Afríkulöndum, sem við verzlum aðallega við og því getur markaðurinn þar alltaf brugðist með stuttum fyrirvara og við gætum átt það á hættu að sitja uppi með miklar birgðir. Þá tel ég ekki heppilegt að draga úr frystingunni á meðan við erum í samkeppni við Kanadamenn á Bandaríkjamarkaðinum, það gæti orðið til þess að framboð okkar yrði ekki nóg til að anna eftirspurn og því gætum við misst markaðinn í hendur Kanadamanna og allir hljóta að sjá hvaða afleiðingar það gæti haft.“ Skrapdagarnir of marg- ir og illa skipulagöir Hvernig finnst þér stjórn fiskveiða hér við land? „Henni er í ýmsu ábótavant og ég er ekkert bjartsýnn yfir þeim mörgu skrapdögum, sem framundan eru, þeir valda of miklum sveiflum í aflanum og erfiðleikum í vinnslu hans. Það þarf að stjórna þessu betur og jafna dögunum betur út. Eins og staðan er nú lendum við venjulega með alla togarana á skrapið á sama tíma og nú eru 105 skrapdagar eftir á hvert skip. Það væri réttara að hafa tímabilin styttri og ekki eins fastákveðin hvað tíma varðar eins og nú er. Þá gætu togararnir tekið út dagana á hvaða tíma sem væri og þyrftu ekki allir að vera á skrapinu á sama tíma. Þá held ég að það sé tóm vitleysa að ætla að fjölga togurum, það eykur bara vanda þeirra sem fyrir eru, þess í stað mætti leysa atvinnuvanda ýmissa byggðar- laga með fiskmiðlun sem byggja mætti mun meira á en gert er nú. Þá gætu togarar landað hluta aflans á þessum smærri stöðum, sem varla eru í stakk búnir til að vinna úr heilum togarafarmi á nægilega skömmum tíma til þess að koma í veg fyrir skemmdir á hráefninu. Einnig mætti hreinlega aka aflanum á milli staða," sagði Gunnar. — HG 44Óskemmtileg reynsla aö vera atvinnulaus44 Það eru ekki allir sem hafa atvinnu þessa dagana, nú eru meira en 100 manns atvinnulausir á Akureyri og einn þeirra er Valdimar Davíðsson. Hann er 18 ára gamall og hefur verið atvinnulaus frá því í janúar utan eina helgi, sem hann vann í áburði, en hann býst við því að fá vinnu aftur um miðjan næsta mánuð. Fœ 124 krónur á dag 5 daga vikunnar Er það ekki fremur óskemmtileg reynsla að vera atvinnulaus? „Jú, svo sannarlega, maður gerir ekkert annað en að Úr bæjar- og héraðshókasafninu á Akrar Akranes: 7,2% útlánaaukning h já saf ninu BÆJAR- og héraðsbókasafnið á Akranesi lánaði út 75.183 bindi á árinu 1980 og er það 7,2% útlánaaukning frá fyrra ári segir í frétt frá safninu. Fullorðnir safngestir voru alls 15.736 og fengu 39.565 bindi lánuð heim eða til lestrar á lesstofu safnsins, en fjöldi barna var samtals 15.945 og bókalán þeirra alls 35.618. Inni- falið í þessum tölum eru bóka- lán til skipshafna og einnig talbækur til blindra og sjón- skertra. Samkvæmt þessum tölum komu alls 31.681 gestir í safnið árið 1980 og hefur lánþegum fjölgað verulega frá árinu áður eða alls 1658. Bæjar- og héraðsbókasafn Akraness þjónar íbúum Akra- neskaupstaðar og íbúum sveit- anna sunnan Skarðsheiðar, samtals 5.730 íbúum og voru útlán á hvern íbúa árið 1980 13,1 bindi. Fjórar málverkasýningar voru haldnar í safninu á árinu 1980. Samkvæmt aðfangaskrá og aðfanganúmerum var bókakost- ur safnsins sl. áramót 25.277 bindi og rit. Afskrifaðar voru 262 bækur. Aukning bóka og rita á árinu urðu 906 bindi. Vakin er athygli á því, að bókakaup hafa dregist saman á árinu miðað við undan- farandi ár, segir í fréttinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.